Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1983, Side 5
DV. FÖSTUDAGUR11. NOVEMBER1983.
5
Ein af pakkningum Ocean Harvest Co. i Gioucester sem er skammt norðan
Boston. Eins og sjá má er vörumerkið iceiand Harvest.
Á Bandaríkjamarkaði:
íslenski karfinn og
kanadíski þorsk-
urinn seljast
á líku verði
— mikil söluaukning hjá „þriðja
af linu”, Ocean Harvest
Mikil söluaukning hefur oröiö hjá
íslensk-bandaríska fisksölufyrir-
tækinu Ocean Harvest í Gloucester þaö
sem af er árinu, eins og raunar hjá öll-
um fyrirtækjum sem selja íslenskan
fisk í Bandaríkjunum. Meöal annars
gengur Ocean Harvest mjög vel að
selja karfa, einkum sérflokkaðan.
Islenski karfinn selst á svipuöu verði
og kanadíski þorskurinn.
Stutt er síöan fimm íslensk fyrirtæki
keyptu sig inn i Ocean Harvest Co. Þaö
var áöur í eigu Haralds Helgasonar
matvælafræöings sem á enn hlut og er
forstjóri fyrirtækisins. Hann er bróöir
Sigurðar Helgasonar, forstjóra Flug-
leiða hf., og hefur starfað aö fisksölu-
málum í Bandaríkjunum mjög lengi.
Islenska mnboössalan hf. er eitt
islensku fyrirtækjanna og forstjóri
þess, Bjarni V. Magnússon, er
stjórnarformaður. Hin íslensku fyrir-
tækin eru Langeyri hf. í Hafnarfiröi,
Sjöstjaman hf. í Njarövíkum, Rækju-
nes hf. í Stykkishólmi og Sæfang hf. í
Grundarfirði. Auk þess selur Ocean
Harvest fyrir ýmsa smáframleið-
endur.
Sem fyrr segir hefur salan á Banda-
ríkjamarkaöi gengið mjög vel, en eins
og kunnugt er hafa þar verið eingöngu
til skamms tíma tvö íslensk fisksölu-
fyrirtæki, Coldwater Seafood, tengt
Sölumiöstöö hraðfrystihúsanna, og
Iceland Seafood Sambandsins. Ocean
Harvest er því stundum nefnt „þriðja
afliö”, en er þó enn miklu minna en hin
og ekki í fiskréttaframleiðslu, sem þau
eru aftur á móti meö.
Aö sögn Bjama V. Magnússonar,
stjórnarformanns Ocean Harvest,
hefur oröiö mikil breyting á karfasölu
á bandaríska markaðnum síöustu ár
og neysla hans stóraukist og breiöst út
um mestöll Bandaríkin. Hins vegar er
Ijóst aö karfinn selst mismunandi eftir
því hvernig hann er boöinn á markaön-
um. Þá em aðrar fisktegundir, svo
sem ufsi og langa, vel seljanlegar og
auðvitað þorskurinn. Ocean Harvest
selur einnig mikið af hörpudiski á þess-
ummarkaði.
Islensku fyrirtækin selja ekki ein-
göngu í gegnum Ocean Harvest og em
einnig meö verulega sölu i Evrópu og á
öörum þeim mörkuðiun, sem taka viö
íslenskum fiskafuröum.
-HERB.
Fáskrúðsfjörður.
SALTAÐ AF KAPPI
Frá Ægi Kristinssyni, fréttaritara
DV á Fáskrúðsfirði.
Mikil atvinna hefur verið undan-
farna daga hjá síldarsöltunarstöðv-
unum tveimur, Pólarsíld hf. og Sól-
borgu hf. Unniö hefur veriö í 13—18
tíma á sólarhring.
Grundarfoss kom til Fáskrúös-
fjarðar í fyrradag meö rúmlega 4
þúsund tómar tunnur og fengu ungling-
ar í 8. bekk grunnskólans frí frá störf-
um til aö taka á móti tunnunum.
Peningamir sem þeir fá fyrir vinnuna
renna í feröasjóð fyrir unglingana.
Þorri SU landaöi 1500 tunnum hjá
Pólarsíld í gær. Þar er nú búiö aö salta
í rúmlega 11 þúsund tunnur. Steinunn
SF landaði 300 tunnum hjá Sólborgu og
þar hefur veriö saltað í rúmlega 1100
tunnur.
í gær var gefiö frí í 9. bekk grunn-
skólans og voru unglingarnir í síldar-
vinnslunni.
-GB.
Breiðdalsvík:
Miklar vega-
framkvæmdir
Frá Sigursteini G. Melsteö, frétta-
ritara DV á Breiödalsvík.
Vegagerö var meö mesta móti í
hreppnum í sumar. Bundiö slitlag var
lagt á 2 km út frá þorpinu og vegurinn
upphækkaöur og yfirkeyröur 5—6 km
inn í dalinn. Þá var vegurinn hækkaöur
á 2 kílómetra leið á suöurbyggö og loks
var byggö brú á Tinnudalsá og u.þ.b. 4
kmlangurvegurlagðuraðhenni. -GB.
NOTAÐI
■BILAR
VOLVO 245 GL '82
ekinn 27.000, sjálfsk.,
m/plussáklæöi. Verö 460.000.
VOLVO 244 GL '82
ekinn 28.000, sjálfsk.
Verð 420.000.
VOLVO 244 GL '81
ekinn 62.000, sjálfsk.,
m/plussáklæöi og læstu drifi.
Verö 370.000.
VOLVO 244 GL '80
ekinn 39.000, sjálfsk.
Verö 330.000. ‘
VOLVO 244 GL '79
ekinn 104.000, sjálfsk.
Verö 250.000.
VOLVO 245 DL '78
ekinn 65.000, beinskiptur.
Verö 240.000.
VOLVO 244 L '78
ekinn 78.000, beinskiptur.
Verö 195.000.
VOLVO LAPPLANDER '81
yfirbyggöur, ekinn 36.000.
Verö 360.000.
OPIÐ Á LAUGARDÖGUM
FRÁ KL. 13-17.
VOLVOSALURINN
Suðurlandsbraut 16 • Simi 35200
Postulíns
MATAR- OGKAFFh
STELL
Hollensk hnífapör
18/8 stál, spegilslípað
„Uppdekkuð horð” í búðinni
• Kynnið ykkur fallegt úrval
• Fáið myndalista og verðlista
• Gerið samanburð
• Greiðslukjör
— Munið okkar mikla
gjafavöruúrval
IEKK-líHIHllIX
Laugavegi 15 Sími 14320