Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1983, Blaðsíða 9
DV. FÖSTUDAGUR11. NOVEMBER1983.
9
Utlönd
Utlönd
Borga hvað
sem er fyrir
Heineken
— Lögreglan beðin um aö hræða
ekki mannræningjana
Stjórnendur hollensku bjórverk-
smiðjanna Heineken vilja umfram allt
greiða mannræningjum lausnargjald
tyrir forstjóra sinn, Freddie Heineken
og bílstjóra hans, en þeim var rænt á
götu fyrir utan skrifstofur fyrirtækis-
ins í gær.
Nú er komið í ljós að skömmu eftir
að rániö fór fram höfðu ræningjarnir
samband við fyrirtækiö og fóru fram á
lausnargjald. Engin trygging hefur þó
fengist fyrir því að forstjórinn og bíl-
stjóri hans séu á lífi og eru margir
áhygg jufullir um afdrif þeirra þar sem
talsvert blóð fannst í bílnum, sem
mannræningjarnir notuöu við ránið.
Þeir skiptu stuttu síðar um bíl.
Stjórnendur Heineken hafa gengið
svo langt að biðja lögregluna aö flýta
sér hægt í leit að ræningjunum, af ótta
viö að þeir kunni að grípa til örþrifa-
ráða ef lögreglan nálgast þá.
Talað er um að ræningjarnir krefjist
lausnargjalds á bilinu frá einni milljón
dollara til átta milljóna, en engin
upphæð hefur verið staöfest.
Heineken er kvæntur og á eina dótt-
ur. Hann er mjög yirtur í hollensku
viðskiptalífi og er náinn vinur
konungsfjölskyldunnar. Hann lifir
fremur látlausu lífi og er litiö í
fréttum. Bílstjóri hans er 57 ára gam-
all, einnig kvæntur og á einn son.
Heineken hefur lengi óttast mann-
ræningja og eru miklar öryggis-
ráðstafanir við heimili hans og vinnu-
stað, en gatan er allra,-
ÆTLA AÐ SEUA
INDVERJUM VARA-
HLUTI í KJARN-
ORKUVER
Bandarísk þingmannanefnd hefur
lýst stuðningi við ákvarðanir Reagan-
stjórnarinnar um að leyfa sölu á
varahlutum til Tarapur-kjarnorku-
versins á Indlandi ef þörf þykir vegna
öryggis fólks sem býr í grennd við
kjarnorkuverið.
Samþykkti nefndin að mæla meö
fjárveitingum í þessu skyni en þær
voru einn liðurinn í áætlun sem
utanríkisráðuneytið hefur um aðstoö
við fleiri aðila erlendis.
Þar á meöal var einnig samþykkt 500
þúsund dollara aöstoð við baráttuna
gegn kynþáttaaðskilnaðarstefnu
Suður-Afríku.
I samþykkt nefndarinnar var skorað
á Reaganstjórnina að taka af skarið
um hvort leyfa eigi útflutning á
kjarnorkubúnaði til Argentínu og
Suður-Afríku. — I gildi er fyrir bann
við útflutningi kjamorkubúnaðar til
þessara landa og tók þaö bann einnig
til Indlands. Samþykkt var aö gera
undanþágu varðandi Indland þar sem
yfirvofandi þótti hætta á geislaleka úr
kjamorkuveri Indver ja ef þeim bæmst
ekkivarahlutir.
Þingmennirnir lögðu annars áherslu
á að ströng höft þyrftu að vera á út-
flutningi kjarnorkubúnaðar til landa
sem ætla mætti aö mundu nota hann til
þess aö gera kjarnorkusprengju. Einn
repúblíkaninn í þingnefndinni sagöi að
Indland hefði, með því að neita að
undirrita sáttmálann um bann viö út-
breiöslu kjamorkuvopna og neita aö
gangast undir eftirlit, fyrirgert öllu til-
kalli til aðstoöar Bandarikjanna í
þessumefnum.
Umsjón:
Guðmundur Pétursson
Okkar framlag í verðbólgubaráttunni
Sanitas
SANITAS PILSNER
:::::] að ásiædulausu;
NÓATÚN,
Nóatúni 17,
sími 17261.
Nautakjöt 1/2 og 1/1 skokkar, 1. fl. 129 kr. kg.
Nautakjöt 1/2 og 1/1 skrokkar, 2. fl. 117 kr. kg.
Folaldakjöt 1/2 og 1/1 skrokkar, 1. fl. 79 kr. kg.
Svínakjöt 1. fl. 139 kr. kg.
Innifalið í verði:
Pökkun, merking, úrbeining.
AIVI,
Rofabæ 39,
sími 71200.