Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1983, Blaðsíða 15
DV. FÖSTUDAGUR11. NOVEMBER1983.
15
Kjallarinn
GuðlaugurT. Karlsson
þingmönnum úr kjördæmi sinu heldur
tókst þrátt tyrir hörkuprófkjör að sam-
eina flokkinn í kjördæminu og jafnvel
Eggert Haukdal leit út fyrir að una
hlutsínumvel.
I ræðu sinni á landsfundinum sagði
Þorsteinn „að þaö heföi ekki verið
háttur skaftfellskra vatnamanna að
snúa við í miðju iðukastinu”. Þótt
önnur vötn á Suðurlandi séu sjálfsagt
Þorsteini kunnugri, þar sem hann er
fæddur og uppalinn á Selfossi, þá
veröur varla lengra til jafnað með
kjark og þor en að berjast við jökul-
vötn, —þótt brjóti reyndar á bógum
skarpans meistaramynd.
Þennan kjark og þor viröist Þor-
steinn hafa ótvírætt og ýmsir, sem
minnast hryggspennu við hann á Sig-
túnstúninu langt undir fermingu, — og
ekki var maöurinn alltaf hæstur í
loftinu, staðfestu þetta og studdu hann
óspart í prófkjörinu.
Sáttarhöndin lagin
Þrátt fyrir ásýnd Vinnuveitenda-
sambandsins og verkbannaboðun
virðist Þorsteini sáttahöndin vera lag-
in. Þaö sýnir bros Eggerts Haukdals
og það sýndu faðmlög Þorsteins og
Friðriks Sophussonar, — kjörprins
flokksins í f jögur ár, á landsfundinum,
þegar sá síðamefndi hafði enn verið
kjörinn varaformaður flokksins, að
vísu með þvílíkum yfirburðum að nálg-
aðist alg jört traust.
Hvemig sem þeim félögum tekst svo
að leiða mesta stjórnmálaafl þjóðar-
innar, sjáifu sér, landi og lýð til far-
sældar getur guð og sagan ein sagt um.
En mikiðóskaplega var því óskáldlega
máli, hagvexti og efnahag, vel fyrir-
komið í ræöu Þorsteins, þar sem hann
sagðiað:
„hagvöxturinn er blikandi óska-
lindin,
sem bíður þeirra er brjótast upp á
tindinn.”
I þessum skæra efnahagsdiskant,
sem Þorsteinn magnaöi á félaga sína í
Sigtúni um helgina, hljómaði þó bassi
Sigurlaugar Bjarnadóttur þar sem hún
beindi orðum sínum til þeirra sjálf-
stæðismanna „sem ekki heföu enn
snúið Faðirvorinu upp á Hayek og
Friedmann”.
Hugumstórir menn eru því margir í
flokki þeirra Þorsteins og Friðriks,
þótt EUert Schram svipti hulunni af
sumum þeirra í ræðu sinni á lands-
fundinum og teldi að stööutákniö væri
þeim mikUvægara en sannleikurinn.
Framsókn ræður
Veruleiki íslensku þjóðarinnar er þó
sá, að Þorsteinn og Friðrik, formaöur
og varaformaður stærsta stjómmála-
afls hennar, hafa Utið að segja fyrir
hana, enn sem komiö er. Þeir eru
hvorugur í ráðherrastól og Stjómar-
ráöið því enn í seiUngarfjarlægð, hvað
sem koma skal.
Og hið mikla stjórnmálaafl,
Sjálfstæöisflokkurinn, sem heimt-
ar hreinan meirihluta meöal
þjóðarinnar í næstu kosningum með
klappi og hrópum í Sigtúni, þarf aö
hlíta því að hafa ekki einu sinni stjórn-
arforustu núverandi ríkisstjómar í
hendi sér. Forsætisráðherra
þjóðarinnar heitir nefnUega Stein-
grímur Hermannsson og er fram-
sóknarmaður.
Hvort þeir Þorsteinn og Friðrik vilja
breyta því er önnur saga og hvort þeir
og Sjáifstæöisflokkurinn geta það
sjálfum sér í vU er svo enn önnur saga.
En skaftfeUsku vatnamennirnir
kunnu taumhaldið.
Guðlaugur Tryggvi Karlsson
hagfræðingur.
Menning Menning Menning
Jakob og meistarinn
eftir Kundera
Miian Kundera: Jacques et son maitre.
Paris, Gallimard, 1981. 98 bls.
Ekki ails fyrir löngu sagöi aU-
þekktur rithöfundur útlenskur aö
ef hann væri rithöfundur myndi hann
láta það verða sitt fyrsta verk að
segja af sér og hætta. Þau orð era
víst dæmigerö fyrir andann meðal
rithöfunda nú um stundir: þeir eru
óskaplega uppteknir af því að kom-
ast að því hvað það er að vera rit-
höfundur og hvað þaö er að skrifa og
hvað skáldskapur er. Fyrir vikið eru
þeir hættir að geta skrifað. Engri
skáldsögu lýkur án þess að höfundur
ávarpi lesandann, engu leikriti lýkur
án þess að einhver persónan kjafti
frá og segist vera í leikriti eða að
þetta sé nú bara alveg eins og i leik-
riti. Þetta lamar og er áreiðanlega
það sem helst stendur skáldskapnum
fyrir þrifum: það getur orðið enginn
sagt sögu.
Milan Kundera, tékkneskur land-
flótta rithöfundur um fimmtugt, fer
bil beggja eöa gerir hvort tveggja.
Hann skrifar sögur sem þykja af-
bragðsgóðar og era til í þýðingum,
og hann talar um afdrif skáldsög-
unnar og skáldskaparins: hann
kennir bókmenntasögu og spyr í
tímaritum hvort skáldsagan sé
segiraðsvoséekki.
Eitt merkilegt tillag hans til bók-
menntanna er leikrit sem fyrst var
fært upp í París fyrir tveimur árum:
Jakob og meistarinn, og byggir þar á
skáldverki Frakkans Denis Diderot
frá 1770—80: Jakob örlagatrúar og
meistari hans. Diderot var einmitt
einna fyrstur allra til að rjúfa skáld-
skap sinn með umfjöllun um höfund-
inn og list hans: höfundur ávarpar
iesandann við og við og spjallar um
söguna sem verið var að segja, hótar
að hætta við og fara út í aðra sálma,
neitar að gefa ákveðin atriði í ljós.
Það er því kannski engin tilviljun að
Kundera grípur aftur til Diderot:
hann leitar til upphafs þeirra vand-
ræöa sem skáldsagan og skáld-
skapurinn hafa verið að kikna undir
síðustu áratugina. fín ástæðan er
ekki einvörðungu sú, hér er einnig á
ferðinni fundur skáldsögunnar og
leikritsins: Kundera segist skrifa
leikritiö til heiðurs skáldsögunni,
ekki aðeins til heiðurs Diderot.
Skáldsagan er frjálsust allra lista
orðsins og Diderot var einn af þeim
sem leystu hana úr læðingi. Leikritið
er enn ekki laust úr viðjum, það er
skorðað í hefð og á þess vegna minni
kost átaka og aflrauna en skáldsag-
an. Diderot skrifaði sjálfur nokkur
Milan Kundera rithöf undur.
ERLENDAR
BÆKUR
Már Jónsson
leikrit, öll afleit og afspymuleiðin-
leg; þar fylgdi hann heföinni, gerði
eins og hinir. Kundera vill beita
frjálsri eða frjálslegri skáldsögu
Diderot til að semja frjálst eða
frjálslegt leikrit eða því sem næst;
hann langar til að rjúfa hefð leik-
ritunarinnar. Hvort honum tekst það
er tæpast hægt að segja af lestri
einum, slíkt er ekki hægt að meta án
þess að haf a séð góða uppfærslu.
Kundera notar sögu Diderot;
ekkert er hjá honum sem ekki er hjá
Diderot, en mörgu sleppir hann.
Hann segist raunar, sem er rétt, hafa
samið eigið verk, sitt leikrit; til-
brigði viö Diderot frekar en leik-
gerð eöa einhvers konar vinnslu.
Leikritið er þríþættur vefur: þrjár
ástarsögur, og svipar hverri til ann-
arrar, enda segir Jakob að allt sé
skrifaö í efra sem gerist hér neðra og
Meistarinn fyllist örvæntingu við til-
hugsunina imi stöðuga endurtekn-
ingu á öllu: þetta er alltaf sama sag-
an. Tveir karlar era á ferð, Jakob og
Meistari hans; engu máli skiptir
hvert leið þeirra liggur. Jakob segir
Meistaranum frá ástarævintýri sínu
með kærastu Skramba vinar síns og
Meistarinn segir Jakobi frá ástar-
bralli hálfgildings heitkonu hans
með vini hans riddaranum Sánkta
Venna. Miðja vega koma þeir á gisti-
hús og þar segir húsfreyjan þeim
söguna af markgreifaynjunni Aldin-
fríði og því hvemig hún náöi sér
niðri á ástmanni sínum eftir að hann
hafði svikið hana.
Kyndugt og oft á tíðum afburöa
fyndið. Það er mikiö að gerast og oft-
ast era fleiri en ein saga i gangi á
sviðinu hverju sinni. Jakob eða
Meistarinn eða Húsfreyjan segja
frá og sagan fer fram um leiö. Sögu-
persónur birtast ljóslifandi, tala og
ganga um. Skipt er ó milli og jafnvel
talaö í kross. Lesandi og áhorfandi
geta átt fullt í fangi með að fylgjast
með, en þannig á það líka að vera, að
athyglin haldist og hugsunin gleðjist
við þrautirograun.
Ekki verður farið nánar í leikritið,
það væri óheiðarlegt, því flogið hefur
fyrir að Stúdentaleikhúsið sé í þann
mund að setja það upp og verði f ram-
sýnt strax eftir áramót. Fengur er að
ef réttermeðfarið.
Kundera samdi leikrit sitt
skömmu eftir innrás Sovétmanna í
Tékkóslóvakíu í ágúst 1968; hann
vildi anda að sér skynsemi og gáska
Frakkans og bægja með því frá sér
kæfandi tilfinningasemi Rússans.
Fjóram árum síðar kom hann hand-
ritinu úr landi, bækur hans höfðu þá
veriö bannaöar í heimalandinu.
Fyrir nokkru hélt hann sjálfur í út-
legö og þýddi þá leikritið yfir á
frönsku með aðstoð vina. Hann býr í
París.
ÍSLENSK SAGA
HANDA SMÁFÓLKI
Áslaug Ólafsdóttir: Litla rauða rúmið.
Teikningar: Ragnhildur Ragnarsdóttir.
Reykjavfk, Mál og menning, 1983.
Utgáfa bóka fyrir yngstu
lesenduma hér á landi hefur á und-
anfömum árum verið einna mest í
formi svonefnds fjölþjóðlegs sam-
prents. Þetta efni er mjög misjafnt
aö því er gæði varðar, en þaö á það
sameiginlegt aö vera tiitölulega
ódýrt í framleiðslu vegna þess að
dýrasti hluti prentvinnunnar er unn-
inn í eitt skipti fyrir mjög stóran
markað. Þar er textinn aðeins
þýddur og settur á íslensku, en
myndir, sem oftast eru í litum, eru
prentaöar í tugum eða hundraðum
þúsunda eintaka.
Nú í haust hef ég rekið augun í
nokkrar íslenskar bækur sem samd-
ar era af íslenskum höfundum og ætl-
aðar yngstu börnunum. Ein þeirra er
Litla rauða rúmið eftir Áslaugu
Olafsdóttur. Um höfundinn veit ég
sannast sagna ddd neitt, og tel ég
nær fullvíst að þessi bók sé sú fyrsta
sem kemur frá hennar hendi.
Sagan er eins konar dæmisaga úr
daglega lífinu. Ása litla á litið rautt
rúm, sem bræður hennar þrír og svo
Bókmenntir
Sigurður Helgason
hún hafa sofið í og rúmið er orðið
ævagamalt að áliti Ásu. En enda þótt
litla rauða rúmið hennar sé ágætt, þá
sætir hún sem allra oftast lagi við að
fá að sofa i rúmi foreldra sinna og á i
fórum sínum ýmsar afsakanir sem
verða til þess að rýmt er fyrir henni
þar.
Sagan er ágæt og skírskotar til
raunveruleikans. Og þaö er mjög
ánægjulegt að íslenskir útgefendur
skuli sjá sér fært að gefa út íslenskar
bækur fyrir litlu krakkana. Það sem
mér finnst þó á skorta er að ég hefði
viljað aö sagan hefði verið islensk-
ari, að þráðurinn fjallaöi að ein-
hverju leyti um séríslenskan veru-
leika. En innan þeirra marka sem
sagan er sögð er hún vel gerð. Eg hef
ástæðu til aöætla að krakkar þekki
sjálfa sig i Ásu litlu.
Einn stór kostur er við bókina og
hann er sá, að höfundurinn virðist
kappkosta að nota ekki mikið af
löngum orðum, þannig að krakkar
sem eru að stíga fyrstu skrefin í
lestramáminu ættu ekki að hnjóta um
löng og stirðbusaleg orð, nema þá í
undantekningartilfellum.
Litla rauða rúmið er rauður
þráður í skemmtilegri myndskreyt-
ingu Ragnhildar Ragnarsdóttur.
Þetta er snyrtileg og skemmtileg
bamabók.
-sh.
Datsun 280 c dísil árg. '81, ekinn
130.000 km, litur gullbrons, góð
dekk, útvarp + segulband. Verð
kr. 335.000.
Mercedes Benz 2401 árg. 1977,
bíll í sárflokki, ekinn 220.000 km.
Verð kr. 350.000. Skipti á
ódýrari.
Citroön CX 2000 árg. 1977, ekinn
100.000 km. Verð kr. 200.000.
Gullfallegur bíll. Skipti á ódýrari
eða dýrari.
Subaru 1600 4 x 4 árg. 1980,
vetrardekk, ekinn 40.000 km.
Skipti á ódýrari. Verð kr.
250.000. Einnig fyrirliggjandi árg.
1981 - 1982 af Subaru 4x4.
Econoline 150 árg. 1978, 6 cyl.,
sjálfskiptur, óslitinn bill. Verð
kr. 250.000. Einnig fyrirliggjandi
árg. 1980, 6 cyl., beinskiptur,
gott lakk, allur klœddur. Verð
kr. 390.000.
sA
Range Rover árg. 1974, ekinn
140.000 km, góð dekk. Verð kr.
240.000. Skipti á ódýrari eða
svipuðu verði.
ekinn 50.000 km, topplúga, raf-
magn í öllu, sportfelgur, sjálf-
skiptur, fallegur bill. Skipti á
ódýrari. Verð kr. 330.000.
Ch. Citation, litur gullsans, árg.
1980, ekinn 14.000 km. Verð
kr.265.000. Skipti á ódýrari.
Allir þessir bílar eru
á staðnum
GRENSÁSVEGI 11 -
108 REYKJAVÍK - SlMI 83150