Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1983, Page 17
DV. FÖSTUDAGUR11. NOVEMBER1983.
17 '
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Fjórðungur þjóöarinnar fylgjandi hundahaldi skv. skoðanakönnun D V.
Síðustu björg
þorsksins
mokað á land
G.R.A. skrifar:
Nú er deilt ósleitilega um þaö
hvernig þjóöin geti komist af án þess
aö ganga af öllum þeim nytjafiskum
dauðum, sem hingaö til hafa verið
nýttir af Islendingum.
Um það er þó ekki deilt aö sókn í
flesta fiskistofna verður aö minnka
verulega ef þeir eiga aö vera áfram
okkar undirstööuhráefni til útflutnings
og þar meö lífsviðurværi.
Þaö sem kemur á óvart frá bæjar-
dyrum leikmanns er sú staöreynd aö
leyfa eigi veiöar á loðnu sem nemur
nærri 400 þúsund lestum. Allir vita þó
að loðna er ein aðalfæðutegund þorsks-
ins!
Sú staöreynd að lakari árgangar og
minni vaxtarhraöi er í stofnunum nú
en áöur leiðir hugann að því hvort hér
sé einfaldlega ekki um fæðuskort
þorsksins aö ræða.
Það segir sig sjálft að það geysilega
magn loðnu er mokaö hefur veriö upp
úr sjó hér viö land og á eldisstöövum
þorsksins hlýtur að koma niður á vexti
og viögangi þessarar fisktegundar.
Það er svo önnur spuming hvort
þorskstofninum sé gerður greiöi með
því að takmarka aflann á næsta ári viö
200 þúsund lestir.
Er hér ekki um eins konar „ofbeit”
aö ræöa, þ.e. of stórir stofnar þorsks aö
berjast um of litla fæöu? — A það ekki
rétt á sér að veiða fleiri fiska til þess
að þeir sem eftir eru hafi nægilegt
fæðumagn?
En hvernig sem þessum spumingum
er snúið má telja liklegt að ofveiði
loðnu sé miklu hættulegri en hvort
þorskaflinn sé takmarkaður við 200
þúsund tonn eöa 300 þúsund. — En
fróðlegt væri aö fá viðbrögð fiskifræö-
inga viö spurningunni um ofveiöi á
loðnu.
„ÞaO má telja líklegt að ofveiði loðnu só miklu hættulegri en þaó nvort
þorskaflinn sé takmarkaður við 200 þúsund tonn eða 300 þúsund," segir
G.R.A. íbréfi sínu.
VAR SVO EINHVER AÐ TALA
UM MINNIHLUTAHÓP?
Elnn úr Minnihlutahópnum skrifar:
Afskaplega var ég ánægöur þegar ég
sá niðurstöður skoöanakönnunar um
hundahald í þéttbýli sem birtist í DV
nú fyrir skömmu. Liðlega fjóröungur
þjóöarinnar er því fylgjandi. Var svo
einhver aö tala um minnihlutahóp?
Það þætti nú einhverjum stjórnmála-
foringjanum gott að geta róið upp á
25% fylgi á landsvísu og ekki nóg meö
þaö, „fylgið” hefur vaxiö úr 19,6% 1977
í 25,4% 1983 sem er sama og að hafa
bætt viö sig manni úr 4 í 5 20 manna
„stjóm”.
En DV slær þessu nú reyndar öðru-
vísi upp og lítur á málið frá hinni hliö-
inni, þ.e. mikill meirihluti segir NEI.
Við því er e.t.v. ekkert að segja, en
slíkar fyrirsagnir eru leiöandi fyrir
hlutlausan lesanda, ég tala nú ekki um
ef hann les aöeins fyrirsögnina. Þá
gladdi mig aö sjá í sama blaði hversu
ábyrg og skynsamleg afstaða öddu
Báru Sigfúsdóttur borgarfulltrúa er.
Hún segir m.a.: „Þess vegna er borg-
arstjórn Reykjavíkur aö glíma viö þaö
vandamál hvernig veröi hægt aö tak-
marka hundahald sem allra mest
vegna þess aö sú staðreynd liggur fyrir
aö þaö framfylgir enginn hundabanni
affyllstuhörku.”
Hún er sem sagt ekkert aö flíka sinni
eigin afstööu gagnvart hundahaldi
heldur vill hún leysa máliö þannig aö
sem flestir geti vel viö unað. Til þess
eru borgarfulltrúar kjörnir. Aö ætla
sér aö leysa þetta mál meö einhliða
banni án þess fyrst aö reyna aörar
leiöir er aö mínu mati vanvirða við
þúsundir Reykvíkinga.
Fæsthjá
bóksö/um
um
/andallt
ÚTGEFANDI
FÖSTUDAGSKVÖLD
I Jl! HÚSINUlíJI! HÚSINU
OPIÐ í ÖLLUM DEILDUM TIL KL. 10 í KVÖLD
Ný verslun
Fjatey 2. hæð.
• Bækur
• Leikföng
• Búsáhöld.
Til leigu nokkrir litlir
sölubásar í JL-húsinu II.
hæð í nóvember og des-
ember.
NYJUNG
JL grillið
Grillréttir allan daginn
Réttur dagsins
Opið á verslunartíma
Húsgagnaúrval
á tveimur
hæðum.
Munið okkar
hagstæðu
greiðslu-
skilmála
OPIÐ
LAUGARDAG KL.9-12
Matvörur.
Fatnaður.
Húsgögn.
RAFTÆKI
RAFLJÓS
REIÐHJÓL
Jli
A A A A A A
Jón Loftsson hf ___
Hringbraut 121
..1' c: u i it.rjo
zc JUUUJjK'
□LiumJr
U-lTl
m na■■ nu aaum uu 11ini
Sími 10600