Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1983, Blaðsíða 19
18
DV. FÖSTUDAGUR11. NOVEMBER1983.
DV. FÖSTUDAGUR11. NÖVEMBER1983.
27
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
Iþróttir
(þróttir
Tony Woodcock
Woodcock er
markahæstur
Tony Woodcock er markahæstur í ensku
1. deildarkcppninni — hefur skorað 11
mörk en Ian Rush hjá Liverpool kemur
næstur á blaði með 10 mörk.
Þeir leikmcnn sem eru nú markahæstir,
cru:
Woodcock, Arsenal........11
Rush, Liverpool........
Mariner, Ipswich.......
Swindlehurst, West Ham
Stainrod, Q.P.R........
Sjö leikmenn hafa skorað sex mörk, en
þeir eru: Withe, Aston Villa, Archibald,
Tottenham, Stapleton, Man. Utd.,
Davenport, Nott. Forest, Bertchin,
Norwich, Barnes, Watford og T. Gibson,
Coventry.
-SOS.
Varpa kúlu
frá Laugar-
vatni til
Reykjavíkur
— til styrktar
ólympfuförum íslands
49 nemendur Kennaraháskóla íslands
safna nú peningum tii styrktar
ólympíuförum islands á nokkuð sérstæðan
hátt. Þeir lögðu af stað frá Laugarvatni kl.
17.30 í gærdag og munu varpa kúlu aUa
iciðina tU Reykjavíkur.
Áætiað er að koma tU Reykjavikur um
miðjau dag í dag og enda kúluvarpiö hrni á
aðaUcikvanginum í Laugardal.
Ailir nemendurnir eru í bolum sem aug-
lýsingar hafa veriö þrykktar á og eins eru
augiýsingar á rútubifreið þeirri er fylgir
þeim frá Laugarvatni og í bæinn.
-AA.
Barcelona
á toppinn
Barcelona, sem hefur leikið að undan-
förnu án Bernd Schuster og Diego Mara-
dona, skaust upp á toppinn á Spáni á mið-
vikudagskvöldið þcgar félagið lagði
Valcncia að veUi 4—2 á útiveUi. Það er
geysUega hörð og spennandi keppni á
Spáni því að fimm félög eru með 14 stig —
Barcelona, Malaga, Real Madrid, Real
Zaragoza og Atletico Madrid. Reaí Betls
frá SevUla er með 13 stig.
Carlos SantiUana, landsliðsmiðherji
Spánar sem hefur verið meiddur að undan-
fömu, lék að nýju með Real Madrid og
skoraði hann bæöi mörk félagsins (2—0)
gegn Osasuna.
„Slátrarinn frá Bilbao” — Andoni
Goicoechea, sem var dæmdur í sjö leikja
keppnisbann eftir að hafa brotið á Mara-
dona, eins og frægt varð, lék að nýju með
Atletíco Bilbao sem náði jafntefli 2—2
Sporting á útivélli. Sjálfsmark spánska
landsliðsmannsins Antonio Maceda
hjálpaöi Bilbao til að ná jafntefli.
Paul Amarilla frá Paraquay skoraði
sigurmark Real Zaragoza 2—1 gegn Cadiz.
Þá má geta þess aö spútnikUð Malaga
vann stórsigur 5—1 yfir Atletico Madrid.
-SOS
Hin hliðin á ólympíuleikunum íLos Angles:
Stálu pylsth
peningum
upp á 280
þús. dollara
— og 6,59 mín., sem er nýtt „ólympíumet”
Ólympíuleikamir í Los Angeles eru
ekki eingöngu leikar íþróttanna heldur
einnig „Big Business’ fyrir peninga-
plokkara og aðra aurasjúka sem ekki
alltaf nota heiðarlegustu aðferðirnar
við að ná sínu fram.
Síðustu sex mánuöi hefur mikið
gengið á á aðalleikvanginum í Los
Angeles þar sem verið er aö prufu-
kejra flesta þætti starfseminnar fyrir
næsta sumar. 1 prúfukeyrslu voru
einnig tveir negrastrákar sem brunnu í
skinninu að fá vitneskju um á hvað
skömmum tíma hægt væri að græða
stóra féfúlgu á pylsusölu á aðal-
leikvanginum. Það eina sem þeir
þurftu á að halda voru tvær skamm-
byssur og góð skeiðklukka. Þegar þeir
höföu hirt allt af pylsusölunum sagði
klukkan 6. mín. og 59 sek., sem verður
aö teljast frábær tími, þegar tillit er
tekiö til þess að þeir höfðu 280 þúsund
dollara upp úr krafsinu og ekkert hefur
til þeirra spurst síðan.
Samningur í gildi
• Samningamir eru komnir í gildi
hjá göturæningjaflokkunum í suður-
hluta Los Angeles. Eftir mikinn sátta-
fund fyrir stuttu var ákveðið að hin
blóöugu átök sem verið hafa á milli
þessara aöila síöustu misserí skuli
liggja niðri fram yfir ólympíuleikana
1984. Vopnahlé sem sagt komið á og
yfirstjómir beggja aðila ákváðu sam-
starf á breiðum grundvelli gegn
túristunum sem mæta á hátíðina næsta
sumar. Fyrir göturæningjaflokkana
þýða ólympíuleikamir peninga og það
mikla peninga,” sagði Chuck Bradley,
einn af yfirmönnum lögreglunnar í LA.
Tannlæknir græðir
• Til em þó þeir menn sem þéna
dágóðan skilding á heiðariegan máta á
meðan leikamir fara fram.
Tannlæknirinn Arthur P. Lowing er
einn þeirra. Hann ætlar að fara með
fjögurra manna fjölskyldu sína til
Flórída á meðan á leikunum stendur
og mun sú ferð kosta 9 þúsund dollara í
þrjár vikur. Og þegar ég kem til baka
verð ég 14 þúsund dollurum ríkari,”
segir Arthur. En hvemig? Jú, Arthur á
nefnilega glæsivillu í Beverly Hills sem
hann hefur þegar leigt út. Tvenn
hefðarhjón frá London lýstu sig tilbúin
að greiöa hvorki meira né minna en 23
þúsund dollara fyrir að búa í slotinu í 3
vikur. Dágóð þénusta það hjá Arthur
vini okkar.
Dýr þriggja
sæta sófi
• Peningar em eini gildandi
ólympíu-gjaldmiðillinn. Til þess að
leggja bifreið sinni við aðalleikvanginn
þarf að greiða 350 dollara á dag. Að fá
símalínu inni á leikvanginum kostar
600 dollara. Einn fermetri í sjónvarps-
stúdíói kostar 35 dollara á dag og
þriggja sæta sófi þar inni kostar 58
dollara á dag. Dýrt spaug
ólympíuleikar. -AA
Nýjustu fréttir frá Englandi:
ANDY GRAY TIL
GOODISON PARK
— til að lífga upp á sóknarleik Everton, sem
borgaði Úlfunum 250 þús. pund fyrir hann
Howard Kendall, framkvæmdastjóri
Everton, sem er nú orðinn mjög valtur
í sessi á Goodison Park, gerir nú ör-
væntingarfulla tUraun tU að fá Everton
td að rétta úr kútniun. KendaU fékk
leyfi hjá forráðamönnum Mersey-
félagsins tU að snara peningabuddunni
á borölð í gær þegar hann keypti
skoska landsliðsmanninn og marka-
skorarann mikla, Andy Gray frá
Wolves á 250 þús. pund. Þessi gamal-
kunni markahreUir hefur lækkað
nokkuð i verði síðan Úlfamir keyptu
hann frá Aston VUla á 1,4 mUljón
punda í september 1979.
Gray á örugglega eftir að setja svip
á Everton en spurningin er — hvort
hann nær að blsa nýju lífi í f>etta fræga
og ríka félag.
• Á sama tíma og Everíon kaupir
leikmann er annað félag, sem er í
vandræðum, að selja leikmann. Derby
seldi varnarmanninn Paul Futcher tU
Norwich í gær á 35 þús. pund.
• Liverpool tUkynnti í gær að
félagiö væri hætt við að lána PhU
Thompson tU Southampton eins og var
búið að ákveða. Astæðan fyrir þessu er
að nokkrir leikmenn Liverpool eiga við
meiösU að striða og því þyrfti félagið
að hafa Thompson til taks.
• Frá Old Trafford bárust þær
fréttir í gær að hinn efnilegi Norman
Whiteside hefði meiðst á nára í leik
United gegn Colchester og hann gæti
hvorki leikið með félaginu á laugar-
daginn eöa með landsUði N-Irlands
gegn V-Þjóðverjum í Evrópukeppninni
á miðvikudaginn kemur. Mikið áfaU
fyrir N-Ira því að leikurinn er mjög
þýðingarmikUl fyrir þá.
• Utherjinn Tony Morley, sem
hefur fengið fá tækifæri hjá Aston VUla
að undanfömu, var í gær settur á
sölulista og einnig Des Bremner.
Guðmundur Albertsson — átti góðan leik með KR gegn Víkingi. Hér sést hann skora eitt af mörkum sfnum —
með langskoti. Hvernig tekst honum upp gegn Luxemborgarmönnum? DV-mynd: Óskar örn Jónsson.
Wunderlich hefur
verið kastað á dyr
V-Þjóðverjar ætla að byggja upp landslið framtíðarinnar án hans
Erhards WunderUch
Verða teknir
í lyfjapróf
Lyfjanotkun íþróttamanna viðs
vegar um heim hefur verið i sviðsljós-
inu að undanfömu og verður tekið hart
á lyfjaprófum á ólympíuleikunum í
Los Angeles. Ólympínnefnd íslands
hefur gefið lyfjanefnd ÍSÍ leyfi tU að
taka þá íslensku íþróttamenn sem
koma tU með að keppa á
ólympiuleikunum I sérstakt lyfjapróf
hvar og hvenær sem er. -SOS
„Ég mun byggja landsUðið upp í
framtíðinni án Erhards WunderUch,”
sagði Simon Schobel, þjáifari v-þýska
landsUðsins í handknattleik, eftir hina
hroðalegu útkomu liðsins á heimaveUi
í „Supcr-Cup” keppninni á dögunum.
Fyrir keppnina hafði Schobel gefið
þá yfirlýsingu að ekkert Uð í heimi gæti
verið án WunderUch þegar hann væri
upp á sitt besta en eftir slaka frammi-
stöðu WunderUch í keppninni hefur-
þjálfarinn kastaö honum á dýr. Ekki
eru alUr jafn sáttir með þessa ákvörð-
un þjálfarans Schobel og benda á að
WunderUch hafi verið óöruggur þar
sem hann þurfti að leika í öUum stöð-
Arnesen
í landsliðs-
hóp Dana
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni — frétta-
manni DV í Svíþjóð: — Sepp Piontek,
landsUðseinvaldur Danmerkur, hefur
aðeins gert eina breytingu á landsUðs-
hópi sinum frá því í leiknum gegn
Ungverjum í Búdapest á dögunum.
Piontek hefur kaUað á Frank Ameson
fyrir leik Dana gegn Grikkjum en Dan-
mörk verður að komast í úrsUtakeppni
Evrópukeppni landsUða í Frakklandi.
Araesen hefur átt við meiðsli að striða
í hné en er nú orðinn góður.
- GAJ/-SOS
um útileikmanna og Schobel sé mesti
syndarselurinn hvað frammistöðu liðs-
ins og einstakra leikmanna snertir.
Hvað sem því Uður þá er V-Þýska-
land B-þjóð eins og við Islendingar og
hver keppni tekin sem undirbúningur
fyrir næstu B-keppni sem háð verður í
Noregi 1985. Eftir þessum nýjustu um-
mælum Schobels að dæma mun hann
mæta þar án sinnar bestu skyttu,
Erhards WunderUch.
-AA
„Við munum leggja
okkur alla fram
gegn HC Berchenf ’
— og verðum að vinna með f jögurra til fimm marka
mun, segir Jens Einarsson, markvörður KR-liðsins
„Við munum leggja okkur alla
fram í þessum fyrri leik gegn HC
Berchem og sýna og sanna að við
erum verðugir þátttakendur í
Evrópukeppni. Ég reikna með
mjög erfiðum leik. Við höfum séð
þá á myndbandi og þeir eru
sterkir. Við verðtnn að vinna með
fjögurra til fimm marka mun hér
heima ef við eigum að komast
áfram í keppninni.
— Maður veit aldrei hvað getur skeð
á útivelU og það er því von okkar að við
fáum góðan stuðning frá áhorfendum
því þeir hafa geysilega þýðingu í
Evrópuleikjum,” sagði Jens Einars-
son, markvörður KR og landsliðs-
maöur, um Evrópuleikinn gegn HC
Berchem sem fram fer í laugardals-
höUinnikl. 14.30 á morgun.
Hvað með undirbúninginn af ykkar
hálfu, hefur hann verið nógu góður að
þínu áliti?
Gunnar
þjálfar
hjá Eminum
Borðtennisfélagið örainn hefur ráðið
Gunnar Finnbjörasson, fyrrum
ísiandsmeistara, tll að þjálfa og leið-
beina byrjendum og þeim sem eru
lengra komnir í LaugardalshöUinni á
mánudögum og fimmtudögum kl. 18.
Þeir sem hafa áhuga á að fá leiðsögn
hjá Gunnari geta mætt á æfingarnar
eða fengið upplýsingar hjá Ástu
Urbancic í sima 37673.
r1
i
Þaö er vitað mál að tU þess að undir-
búa sig sem best fyrir Evrópuleiki þar
sem leikið er gegn liðum sem frekar
lítið er vitað um þarf að minnsta kosti
vikutíma. Við þurftum að leika í deUd-
inni á miðvikudagskvöldið gegn
Víkingum þannig að við fengum ekki
þann tíma sem nauðsynlegur er. Við
erum meö mjög breytt lið frá því í
fyrra og hver 1. deildarleikur er okkur
afar mikUvægur og mikU reynsla fyrir
okkar yngri leUcmenn. Eg vona aö þeir
séu tilbúnir að takast á við jafnerfitt
hlutverk og leUrur í Evrópukeppni er. I
fyrra gátum við stólað á að nokkrir
einstaklingar kláruöu dæmið hjá okkur
en nú er það Uösheildin sem máli skípt-
ir.
-AA
Jens Einarsson, markvörður f KR,
ætlar að taka á honum stóra sínum í
Evrópuleikunum á morgun.
Heppnin var
með Arsenal
— þegar dregið var í 16-liða úrslitum ensku
deildarbikarkeppninnar
Arsenal hafði heppnina með sér
þegar dregið var i 16-liða úrsUtum
ensku deddarbikarkeppninnar — MUk
Cup, í London í gær. Arsenal dróst
gegn 3. deUdarUðinu WalsaU og fer
leikurinn fram á Highbury.
Deildarbikarmeistarar Liverpool
þurfa aö leika að nýju gegn Fulham —
á Anfield Road. Ef þeir vinna þar sigur
leika þeir gegn Birmingham eða Notts
County á útivelli.
Þaö er ljóst að þrjú 1. deildarUð
Einu áhugamenn heims?
IStyrkur sá sem óiympíunefnd
íslands hefur veitt sérsamböndum
og einstökum íþróttamönnum, sem
8 er nú orðinn tæpar tvær miHjónir
_ kr„ er svipuð upphæð og kostaði að
senda ólympíulið Islands tU OL í 8
Moskvu 1980. Það er orðið dýrt að m
„reka” iþróttamenn á tslandi f 8
dag. Erum við ekki lengur einu ■
áhugamenn heims í fþróttum? SOS. ■
Einar gæti lent
/ 3 í verðlaunai >alli
— ef honum gengur vel á OL í Los Angeles,” segir Örn Eiðsson, formaður FRÍ
— Eins og málin standa nú, þá er
það Einar Vilhjálmsson, spjótkastar-
inn sterki, sem er liklegastur tU að ná
bestum árangri á óiympíuleikunum f
Los Angles, sagði öra Eiðsson, for-
maður FRl, á fundi fréttamönnum
þegar menn vora að vega og meta
möguleika íslenskra frjálsfþrótta-
manna í Los Angles.
Einar náði tíunda besta árangrinum
í spjótkasti í heiminum 1983 þegar
íþróttir
hann kastaði spjótinu 90,66 metra. —
Ef aUt gengur aö óskum á hann aö geta
orðið í hópi þeirra átta sem kasta
lengst og ef honum gengur mjög vel,
þá gæti hann lent á verðlaunapaUi,
sagði öm.
Þess má geta tU gamans, að Vil-
hjálmur Einarsson, faðir Einars, er
eini Islendingurinn sem hefur lent á
verðlaunapalU á ólympíuleikum —
hann varð annar á OL1956 í Melboume
þar sem hann keppti í þrístökki —
stökk 16,26 m. Vilhjálmur varð síðan
fimmti í þrístökki á OL 1960 í Róm —
16,37 m.
Þess má geta að þegar Vilhjálmur
stökk 16,26 í Melbourne, var það OL-
met, en þaö tók síðan BrasiUumaður-
inn Da SUva í síðasta stökki sínu og
tryggðisérsigur.
-sos
verða úr leik því að West Ham mætir
Everton, W.B.A. leikur gegn Aston
VUla og Ipswich gegn Norwich eða
Sunderland.
Drátturinn varð annars þessi í 16-
Uða úrsUtum ensku deddarbikar-
keppninnar:
Leeds/Oxford-Man. Utd.
Rotherham-Wimbledon
Birmingham/Notts County
Liverpool/Fulham
W.B.A.-AstonViUa
West Ham-Everton
Arsenal-Walsall
Stoke/Huddersfield-Sheff. Wed.
Ipswich-Norwich/Sunderiand.
Leikimir f ara fram 30. nóvember.
-SOS
Einar Vilh jáimsson
Friðrik HaUdórsson — sést hér ásamt ein-
um keppanda Cathay Pacific.
íþrótt
Iþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
Flugleiðamenn, eða réttara sagt Starfs-
mannafélag Flugleiða — STAFF, gerðu
góða ferð tU Hong Kong á dögunum þar
sem þeir kepptu f badminton gegn starfs-
mönnum flugfélagsins Cathay Pacific. Já,
og Flugleiðamenu komu, sáu og sigruðu —
unnu þar frækttegan stórsigur. Nú
hyggjast liðsmenn STAFF láta kné fylgja
kviði — og hyggjast fá Hong Kong-búana
til tslands sncmma næsta árs.
Þeir Flugleiðamenn sem héldu á
badmintonspöðunum í Hong Kong voru:
Ólöf Guðfinnsdóttir, Friðrik HaUdórsson,
öra Geirsson, Þórarínn Einarsson,
Þórann Reynisdóttir, HaUdór Friðriksson
og Þórarinn Guölaugsson, scm er
jafnframt þjáifari. -SOS.
| Flugleiðir
um
heimsmeist-
aratitilinn
Flugleiðamenn létu ekki við það sitja aö
vinna frækinn sigur í Hong Kong, heldur
lék STAFF-Uðið við Uð frá v-þýska ftug-
félaginu Lufthansa i undanúrsUtum i
heimsmeistaramóti flugfélaga í badmin-
ton. Flugleiðamenn unnu sætan sigur 4—3
og tryggðu sér þar með rétt til að leika til
úrslita f HM. Það verða starfsmenn SAS,
sem eru núverandi heimsmeistarar flug-
félaga, sem verða mótherjar Flugleiða-
manna og fer leikurinn fram i byrjun
næsta árs.
HM flugfélaga í badminton, sem er
haldið á vegum ASIA, fer fram á tveggja
ára fresti. Árangur Flugleiöamanna er
mjög góður að þessu sinni. Spurningin er
hvort þeim tekst að tryggja sér heims-
meistaratitttinn. -SOS
Nýliðar Kolding
unnu
Það var miktt spenna i Arhus þegar
Fredericia KFUM lék gegn nýUðunum
Kolding í dönsku 1. dettdarkeppnlnni i
handknattleik. Fredericia náði aðeins einu
sinni forystu í leiknum og það í upphafi 1—
0. Eftir það leiddi Kolding með Flemming
Hansen fremstan í flokki og vann 22—21.
Hansen skoraði 7 mörk og var
markahæstur h já Kolding.
Holte náði jafntefli í Skovbakken 18—18 eftir að
hafa verið 1Z—6 undir í hálfleík. Michael Berg var
aðalmaðurínn hjá Hoite í seinni hálfleiknum þcg-
ar liðið var að saxa á forskotið. Úrslit leikja ár
síðustu umferð urðu þessi:
Arhus KFUM-Virum 22-15
Skobakkcn-Holte 18-18
Fred. KFÚM-Kolding 21-22
Helsingör-Rödovre 18—28
-AA
Leggur Baston
skónaáhilluna?
Það bcndir nú aUt tU að Brendon
Baston, bakvörður WBA, þurfi að leggja
skóna á hflluna. Baston hefur átt við þrá-
lát meiðsU að striða í hægra hné f tólf
mánuði. Hann hefur verið í rannsóknum
að undanförau og i þessum mánuði fær
hann úrskurð um hvort hann geti leikið
knattspyrau framar.
-SOS.
íþróttir