Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1983, Blaðsíða 36
Varmi
Bílasprautun hf.
Auðbrekku 14 Kópavogi
Sími44250
r
27022 AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA 33 rSINGAR — AFGREIÐSLA :UR n
SAAÁAÚGL'i SKRIFSTOF ÞVERHOLTI
86611 RITSTJÓRN 1 SÍÐUMÚLA 12—14
ff
Þurfum að stilla
okkur betur saman99
— segir forseti ASÍ um kröfugerð ífyrirhuguðum samningum
„Nei, viö höfum ekki rætt um upp-
hafsdag samningaviöræðna. Það
bíöur væntanlega þangaö til Alþingi
hefur staðfest fyrirheit ríkisstjómar-
innar frá í gær um afnám samninga-
bannsins. Þeir tala um aö það veröi í
næstu viku,” sagöi Ásmundur
Stefánsson forseti ASI í morgun.
Ríkisstjómin tók þessa ákvöröun í
gær og forsætisráöherra tilkynnti
hana i þinginu. En samningabanniö
átti aö gilda til janúarloka, sam-
kvæmt bráðabirgöalögunum frá í
sumar.
En er ASI tilbúið til þess aö hefja
þátttöku í samningavið^ðum nú
þegar? „Viö verðum auövitaö að
vera þaö. Það hafa komið samþykkt-
ir væntanlega aö stilla okkur betur
saman. Þaö verður ekki dregíð, ef
raunhæft reynist að viðræður hefj-
ist. ”
Hvernig stilliö þið ykkur saman?
,,Það er ekkert eitt ákveöiö form á
því. Og þaö liggur ekki fyrir ó þess-
ari stundu hvernig aö því verður
staöiö. Möguleikarnir eru ýmsir.
Hugsanlegt er að þaö verði eitt af
verkefnum sambandsstjómarfundar
12,—13. desember, 50—60 manna
fundar, sem kemur saman þau ár
sem ekki er sambandsþing.”
I samþykktum einstakra félaga
og sambanda innan ASI viröist nú
mjög áberandi krafan um aö barátt-
an veröi einskorðuö viö aö bæta kjör
þeirra lægst launuðu. Veröur þetta
ríkjandi stefna í raun? „Það er alveg
ljóst að viö munum leggja áherslu á
þetta. En þess ber að gæta að við
erum ekki einir um aö semja. At-
vinnurekendur hafa oft verið greiö-
ugri viö þá betur launuöu. Þetta er
spurning um mikla samstööu. ”HERB
Þjófaflokkur
upprættur í Kópavogi:
Foringinn
varl5ára
Lögreglan hefur upprætt þjófa-
flokk sem hefur látið mikiö að sér
kveöa í Kópavogi aö 'undanförnu.
Athafnasvæði flokksins voru aðal-
lega barnaheimili, skólar, bóka-
safnið og Heilsugæslustöðin í Kópa-
vogi en flokkurinnvarhandsamaöur
við innbrot í HeilsugæslustÖðina.
I flokknum voru sjö piltar á
aldrinum fjórtán óra til tvítugs. For-
ingi flokksins var ekki sá elsti í
hópnum heldur 15 óra piltur og sá
hann um skipulagninguna á starf-
semi hans.
I fórum piltanna fundust ýmsir
munir, þar á meöal myndbandstæki
sem þeir stálu í bókasafni Kópavogs.
Þar voru þeir tíðir gestir — en þó
aldrei fyrr en eftir Iokun safnsins.
-klp-
IMORGUN
Nemendur Iþróttakennaraskóla
Islands komu til Reykjavikur i
morgun eftir að hafa kastað kulu
á undan sér alla leið frá Laugar
vatni. Lögðu þeir af stað i gær
kvöldi og skiptust á um að kasta.
Í hópnum voru 30 piltar og 19
stúlkur. Sögðu þau að erfiðasti
Einn býr í
torfbæ
Aöeins einn Islendingur býr enn í
torfbæ, samkvæmt upplýsingum
sem DV hefur aflað sér meö viötölum
viö starfsmenn Þjóðminjasafns,
Búnaöarfélags og aöra víða um land.
Pálína Konráösdóttir, bóndi aö
Skarðsá í Skagafirði, er síöasti
Islendingurinn sem á heimili í torf-
bæ. Blaðið heimsótti hana á dögun-
um og birtist viötal við hana á
morgun.
Torfiö, sem aöalbyggingarefni
sveitabæja, fór aö víkja fyrir timbri
og steinsteypu fyrir síðustu aldamót.
Jarðskjálftar á Suðurlandi flýttu
mjög fyrir breytingunni þar. Fram
til 1940 eru torfbæir almennt í
notkun. Allt fram á síðustu ár hafa
nokkrir slíkir verið heimili manna.
Torfbæir entust lengst í þurrviöra-
sömustu sveitunum, Þingeyjarsýsl-
um, Eyjafiröi, Skagafiröi, Húna-
vatnssýslum og Héraöi.
-KMU.
hluti leiðarinnar hefði verið upp
Kambana en þar vildi kúlan koma
á fullri ferð til baka. Nemendurnir
söfnuðu áheitum fyrir þetta mikla
Mikil ólga meðal kennara við Menntaskólann í Hamrahlíð:
kúluvarp og rennur féð til þeirra
sem keppa munu fyrir islands
hönd á ólympiuleikunum á næsta
ári. -klp/D V-m ynd G VA.
LOKI
Þetta e/dist af þeim í
Hamrah/íðinni.
Engin öldunga-
deild eftir áramöt?
„Staðan er einfaldlega sú, að haldi
menntamálaráðuneytiö þessari
stefnu til streitu, þá fæst enginn til aö
kenna viö öldungadeildina sem í eru
nú 800 nemendur. Meö sama áfram-
haldi má því búast viö að þaö verði
engin öldungadeild viö MH eftir
áramót,” sagði Gunnlaugur Ást-
geirsson, kennari viö Menntaskólann
íHamrahlíö.
Mikil ólga er nú meöal kennara viö
MH vegna íhlutunar menntamála-
ráöuneytisins um mál sem snerta
öldungadeildina. Telja þeir aö um-
rædd atriði séu bundin í kjara-
samningum og aö aöferðir
ráöuneytisins séu meö öllu óviðun-
andi. I fyrra tilvikinu sem um ræöir
mun ráðuneytið hafa sagt upp verk-
samningi við deildarstjóra öldunga-
deildar en í hinu síöara snýst málið
um ákvaröanir þess um greiöslu á
heimavinnu kennara. Á sama tima
og síðari tilkynningin var gefin út
var veriö aö semja um þaö mál í
launadeild fjármálaráðuneytisins,”
sagöi Gunnlaugur.
Kennarar í MH komu saman til
fundar í gærmorgun vegna þessa
máls. I harðorðri ályktun sem þar
var samþykkt einróma er mótmælt
„harðlega endurteknum gerræöis-
legum tilkynningum menntamála-
ráöuneytisins um atriöi sem fjallað
er á ótvíræöan hátt um í gildandi
kjarasamningum.” Er þeim
tUmælum beint til menntamálaráð-
herra að „hann sjái til þess að starfs-
menn ráðuneytisins séu ekki aö
trufla vinnufriö í skólum landsins
með ótímabærum tilkynningum um
mál sem ekki eru á þeirra verk-
sviði.”
-JSS