Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1983, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1983, Blaðsíða 24
24 DV. MÁNUDAGUR 21. NOVEMBER1983. DV. MANUDAGUR 21. NOVEMBER1983. íþróttir__________________íþróttir __________íþróttir__________________íþróttir_________________íþróttir íþróttir íþróttir fþróttir íþróttir Sváfu á hurðunum — KR-ingar ífélagsmiðstöð íLúxemborg Þegar leikmenn Brcchem frá 1 úxem- borg voru hér á ferö fyrir skömmu og léku fyrri leikinn gegn KR í Evrópukeppni bikarmeistara í handknaUleik létu KR- ingar andstæðinga sína lúra á Hótel Esju sem hingað til hefur þótt boðiegnr gististaður. Það kom því KR-ingum talsvert á óvart ' þegar þcir léku síöari leikinn ytra um helg- ina að þeim hafði veriö komið fyrir á félagsmiöstöð emni og voru dýnur þær er undir þeim áttu aö vera um nóttina í mýkra lagi. Varð uppi fótur og fit í herbúð- um þeirra röndóttu þegar ganga átti til náða. Leystu þeir vandamáliö þanuig að þeir tóku skápahurðirnar sem á herbcrgj- unum voru af hjörunum og lögðu þær undir dýnurnar. Og á hurðunum sváfu þeir allir sætt og rótt og mættu eldhressir í leikinn daginn eftir og unnu góðan sigur. -SK. 35 þúsund fögnuðu Wallace áIbrox! — Aberdeen með þriggja stiga forustu í skosku úrvalsdeildinni Yfir 35 þúsund áhorfendur mættu á Ibrox Park, leikvöll Rangers í Glasgow, til að fagna endurkomu Joek Wallace sem framkvæmdastjóra Rangers en þrisvar hcfur Rangers unniö þrennuna miklu í skosku knattspyrnunni undir stjórn Wall- ace. Á laugardag gerði liðið markalaust jafntefli við meistara Dundee Utd. sem gefur til kynna að betri timar séu í vændum á Ibrox. Fyrir leikinn hafði Rang- ers tapað fimm lcikjum í röð. Liðiö í fallhættu. Urslit í skosku úrvalsdeildinni á laugar- daguröuþessi: Aberdeen-Hearts 2-0 Dundee-Motherwell 2-0 Hibernian-St. Johnst. 4-1 Rangers-Dundee Utd. 0-0 St. Mirren-Celtic 4-2 Mest komu úrslitin á Love Street í Paisley á óvart. Celtie skoraði tvívegis á fyrstu 19 minútunum, Tommy Bums og Roy Aitken en leikmenn St. Mirren gáfust ekki upp. Þeim tókst að sigra í leiknum. Komust í 3—2 í fyrri hálfleik með mörkum fan Clark, John McCormack og Frank McDougall. I siðari hálfleik reyndi Celtic mjög aö jafna en það fór á aðra leið. Ian Scanlon, fyrrum kantmaður Aberdeen, skoraði f jórða mark Paisley-liðsins. Aberdeen hefur nú þriggja stiga forustu og vann auðveldan sigur á Hearts með mörkum Dough Rougvie og Neal Simpson. Staðan ernú þannig: Aberdeen 13 10 1 2 36- -7 21 DundeeUtd. 12 8 2 2 29- -9 18 Celtic 13 8 2 3 35- -18 18 Hearts 13 6 3 4 15- -14 15 Hibernian 13 6 1 6 21- -24 13 Dundee 13 6 1 6 20- -24 13 St. Mirren 12 3 5 4 15- -18 11 Rangers 13 3 2 8 16- -24 8 Motherwell 13 1 5 7 8- -24 7 St. Johnstone 13 2 0 11 11- -44 4 -hsím. Úrslit íborðtennis Keppni hélt áfram í svcitakcppni Borð- tennissambands íslands i gær. Urslit. 1. dcild karla ÖminnA—KRB 6—4 Vikingur B—KR A 3-6 1. dcUd kvenna öminn A—Örninn B 3—0 öminn B—UMSB B 3-0 Víkingur—UMSBB 0-3 örninn A—UMSB A 2—3 íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir Singer skapar meiri saumagleði. Singer 7184 Einfbld saumavél; Blindsaumur, íjölspora Zig-Zag og teygjanlegur saumur, sjálfvirkur hnappagata- saumur og fríarmur. Staðgreiðsluverð Kr. 8.730.- Singer 7110 Alhliða saumavél; Styrktur teygju- saumur, blindsaumur fyrir falda, fjölspora Zig-Zag, sjálfvirkur hnappagatasaumur, nokkur munstur fyrir útsaum og fríarmur. Staðgreiðsluverð Kr. 9.962,- Singer 2010 Fullkomin saumavél; Rafeindastýring, með minni fyrir 29 munstur, þræðari, stillanlegur blindsaumsfótur auk alls sem prýðir hinar þrjár. Staðgreiðsluverð Kr. 23.243,- Singer 7146 Fjölhæf saumvél; Rafeindastýring, auk alls sem prýðir Singer 7184 og 7110. Staðgreiðsluverð K r. 11.510.- Rafeindastýring þýðir í raun aðeins eitt: Áreiðanleika. Góðir greiðsluskilmálar nmqnwp ntu u á ú SAMBANDSINS ÁRMÚLA3 SÍMAR 38900 - 38902 Stórskotahríð í Firðinum síðari leik liðanna í gærkvöldi Leikurinn í sjálfu sér var hrein endaleysa og villumar margar og þaö á báöa bóga. FH komst ekki virkilega í gang, en var þó strax eftir 15. mín. leik komið með yfirburðastööu, 10—3. Áfram héldu þeir svo að auka forskotiö og þrettán mörk skildu liöin í hálfleik. Allir leikmenn FH komu við sögu í markaskoruninni og meira að segja markveröirnir, Sverrir Kristinsson og Magnús Árnason létu sitt ekki eftir liggja meö því skora úr vítaköstum í seinni hálfleik. Mörkin skoruðu: Þorgils Ottar 10, Hans 9/2, Kristján 5/1, Pálmi 5/1, Guð- mundur Magnússon 4/1, Atli 3, Eggert 3, Jón E. Ragnarsson 1, Sveinn 1, Finnur Árnason 1, Magnús 1/1 og Sverrirl/1. -AA. Borg vann Björn Borg sýndi gamla takta í tennisnum þegar hann sigraði Vitas Gerulaites, einn besta tennisleikara USA, 4—6, 6—2, 6—3, 3—6 og 6-2 í Bahrain olíuríkinu á laugardag. Fyrir það fékk hann 50 þúsund dollara en Kaninn 25 þúsund. Eftir leikinn sagði Bjöni að hann ætlaði alls ekki að fara að keppa i tennis á ný. -hsim. — FH sigraði Maccaby, 44-16, í Það var heldur létt verk hjá FH að Ijúka síðari leik sínum gegn ísraelska liðinu Maccaby í IHF Evrópukeppninni. FH vann með 28 marka mun, 44—16, eftir að hafa leitt 20—7 í hálflcik. Önnur eins flugeldasýning hefur ekki sést hér á landi í Evrópukeppni. Israelska liðiö er svo slakt aö það myndi varla sóma sér í 2. deildinni hér á landi. Reyndar var þessi leikur í Alfreð skoraði 6mörk íþróttahúsi Hafnarfjaröar fyrir fullu húsi áhorfenda eingöngu formsatriði fyrir FH að ljúka leiknum. FH hafði unnið með 16 marka mun í fyrri leikn- um og þar með hafði liöið tryggt sér sætií8-liðaúrslitum. Miklar breytingar voru gerðar á liöi FH miðaö viö síðustu leiki þess og nokkrir ungir piltar fengu aö spreyta sig. Allir leikmenn FH komu undan- tekningalaust vel frá leiknum enda allar flóðgáttir opnar upp á gátt hjá Maccaby og nóg aö gera viö að raöa á þá mörkurn. Maccaby hefur ekki yfir neinni skyttu að búa og var auðvelt viðfangs fyrir stóra og stæðilega pilta í FH-vörninni. Stórsigur HSK og Is- landsmet fyrirliðans! — Héraðssambandið Skarphéðinn vann yfirburðasigur í bikarkeppninni í sundi Sundfólk Héraössambandsins Skarphéðins vann yfirburðasigur í bikarkeppninni í sundi, 1. deild, sem lauk í sundlaug Hafnarfjarðar í gær. Það hlaut 158 stig. í þriðja sæti komu Akurnesingar — sigurvegarar í fyrra — með 100 stig. Sundfélag Hafnar- fjarðar hlaut 91 stig og UMFN Njarðvíkur rak lcstina með 65 stig. Fyrirliöi Skarphéðins, Tryggvi Helgason, Selfossi, vann mesta afrekiö í gær, þegar hann setti nýtt Islandsmet í 200 m bringusundi. Synti vegalengd- ina á 2:26.0 mín. Eldra Islandsmetiö átti hann sjálfur, 2:27.09 mín. Urslit í einstökum greinum í gær uröu þessi en frásögn af bikarkeppninni er einnig á bls.27. 200 m f jórsund karla 1. TryggviHelgason,HSK, 2:15,6 2. EðvarðEðvarðsson, UMFN, 2:18,6 3. Kristinn Magnússon,SHH, 2:32,2 200 m flugsund kvenna. 1. Anna Gunnarsd. Ægi, 2:36,2 2. Sigurlaug Guðmundsd. lA 2:53,1 3. Guðrún Pálsdóttir, HSK, 3:00,5 100 m skriðsund karla 1. Ingi Þór Jónsson, IA. 54,6 2. MagnúsOlafsson.HSK, 57,0 3. Þröstur Ingvarsson, HSK, 58,4 100 m baksund kvenna 1. Ragnh. Runólfsdóttir, IA, 1:13,4 2. Bryndís Ölafsdóttir, HSK, 1:17,8 3. Elín Viðarsdóttir, lÁ, 1:19,1 200 m bringusund karla 1. TryggviHelgason,HSK, 2:26,0 2. Arnþór Ragnarsson, SH, 2:39,3 3. ÞórðurÖskarsson,UMFN, 2:44,0 100 m bringusund kvenna 1. GuörúnFemaÁgústsd., Ægi 1:17,3 2. Ragnh. Runólfsdóttir, IÁ 1:18,2 3. MaríaÖladóttir, HSK, 1:23,1 100 m flugsund karla l.IngiÞór Jónsson.lA, 1:00,9 2. Magnús Olafsson, HSK, 1:03,8 3. Þröstur Ingvarsson, HSK, 1:06,5 200 m skriðsund kvenna 1. BryndísOlafsdóttir.HSK, , 2:16,5 2. Guðrún Fema Ágústsd, Ægi, 2:16,7 3. Guðbjörg Bjarnadóttir, HSK, 2:18,4 200 m baksund karla 1. EðvarðEðvarðsson,UMFN, 2:19,7 DapuHegir ÍR-ingar töpuðu gegn KR-ingum KR-ingar sigruðu IR-inga í úrvals- deildinni í körfuknattleik í gærkvöldi með 85 stigum gegn 78. iR-ingar voru á köflum afspyrnulélegir og með þessu áframhaldi blasir fallið við þeim. Er skemmst frá því að segja að KR- ingar gengu ákveðnir til leiks og voru öryggið uppmálað meðan iR-ingar virtust algjörlega úti að aka. Það var ekki fyrr en ein mínúta var til hálfleiks að iR-ingar komust yfir í fyrsta sinn. Þá gerðist það óhapp að Benedikt Ingþórsson meiddist illa í baki. Þurfti að styðja hann út af við illan leik því ekki reyndust til sjúkrabörur í húsinu. Staöan í hálfleik var 44—42 fyrir KR. I seinni hálfleik náöu KR-ingar fljótlega góðu forskoti og með góðri baráttu héldu þeir því allt til leiksloka og var sigur þeirra aldrei í hættu. Lokatölur urðu 85—78 fyrir KR. Hjá KR-ingum var Guðni Guðnason bestur og Jón Sigurðsson seigur að vanda. Hjá IR bar Gylfi Þorkelsson af, sér- staklega í fyrri hálfleik, þar sem hann skoraði 21 stig eða helming stiga liðs- ins í hálfleik. Hann reif einnig niður á annan tug frákasta og gerði fá mistök í leiknum. Kristján Oddsson stóð sig einnig vel og er furðulegt hversu fá tækifæri hann hefur fengið til aö spreyta sig. Aðrir voru fremur daprir en það sem viröist hrjá suma iR-inga mest er hversu þeir láta dómarana fara í skapið á sér þegar þeim væri nær að einbeita sér aö leiknum. Stigin: KR: Guöni Guðnason 24, Jón Sigurðsson 21. Páll Kolbeinsson 12, aðrir minna. IR: Gylfi Þorkelsson 28, Kristján Oddsson 13. Hreinn Þorkelsson 10, aðr- irminna. Dómarar: Gunnar Valgeirsson og Kristinn Albertsson voru lélegir og var hreint ótrúlegt hvaö þeim tókst að sjá, og hvað ekki. Það var því ekki furða þótt sumum hitnaði í hamsi en það gerir alltaf illt verra aö deila við dómarann. Maður ieiksins: Gylfi Þorkelsson IR. Sökum plássleysis verður staðan í deildinni svo og stigahæstu menn aö bíða betri tíma. Þ.S. 2. OlafurEinarsson,Ægi, 2:27,0 3. HugiHarðarsson,HSK, 2:27,4 4 x 100 m f jórsund kvenna 1. SveitÆgis 4:52,5 2. SveitHSK 5:03,7 3. SveitlA 5:07,3 4 x 100 m skriðsund karla 1. SveitHSK 3:50,8 2. SveitÆgis 4:00,3 3. SveitSH 4:02,8. -hsím. Alfreð Gíslason og félagar hjá Essen áttu ekki í neinum vandræðum með Dimitri Sofia í Evrópukeppni bikar- hafa í seinni leik liöanna sem fram fór í Essen í gær. Essen vann 27—12 en fyrri . leikinn vann Sofia 20—18. Þannig er Essen komið í 8-liða úrslitin eins og KR eftir sigurinn í Lúxemborg. Liekenbrock var markahæstur hjg Essen með 7 mörk og næstu honum kom Alfreð með 6 mörk. Fjölmörg mörk Essen voru skoruð með hraðaupphlaupum. -AA. Siggi Sveins með 7 mörk í góðum sigri Lemgo Sigurður Sveinsson átti skínandi góðan leik með liði sínu Lemgo í v- þýsku Bundesligunni í handbolta. Sigurður skoraði 7 mörk í 25—20 sigri Lemgo gegn Bergkamen. Önnur úrslit urðu þessi. Schwsbing-Göppingen 26—25 Niirnberg-Hiittenberg 24—23 Dankersen-Grosswallstadt 14—17 Grosswallstadt og Schwabing eru nú efst í deildinni með 19 stig hvort lið. Essen hefur náð 12 stigum og er í 5. sæti og Kiel, lið Jóhanns Inga Gunnarssonar, er meö 10 stig og er í 6. sæti. Lið Sigurðar, Lemgo, er neðarlega í deildinni með 4 stig. Haukarunnu meistarana M jög óvænt úrslit er Haukar unnu Val, 74-69 „Varnarleikur okkar var frábær í þessum leik. Það var fyrst og fremst hann sem skóp sigur okkar,” sagöi Einar Bollason, þjálfari Hauka, eftir að nýiiðarnir í úrvalsdeildinni höfðu gert sér lítið fyrir og sigrað tslands- meistara Vals í Iþróttahúsi Hafnar- fjarðar á laugardag. Lokatölur uröu 74—69 eftir að staðan í leikhléi hafði verið 40—43 Haukum í hag. „Það var greinilegt strax í byrjun að barátta okkar kom Valsmönnum í opna skjöldu. En baráttan er mikill þáttur í leik okkar og körfuknattleik al- mennt. Þeir reyndu allt til að stööva Pálmar en hann lét þaö ekki fara í skapiö á sér heldur lék félaga sína frá- bærlega uppi,” sagði Einar Bollason eftir leikinn og var greinilegt aö ánægj- an var mikil með þennan dýrmæta sigur. Um gang leiksins er það helst að segja að hann var lengst af jafn og skemmtilegur. Munurinnoftastþrjútil fimm stig og á annan hvorn veginn. Haukar sjö stig yfir í leikhléi en í síöari hluta síðari hálfleiks komust Vals- menn þremur stigum yfir. Ungu strák- arnir hans Einars Bollasonar létu mót- lætið ekki aftra sér að sýna góðan og öruggan leik síöustu mín. leiksins og sigur nýliöanna var aldrei í hættu lokamínúturnar. Hálfdán Markússon var frábær í liði Hauka og einnig áttu þeir Olafur Rafnsson og Pálmar Sigurðsson góðan dag. Það er alveg greinilegt, að Haukar geta unnið hvaða lið sem er í úrvalsdeildinni í dag og það má mikiö vera ef liðið fellur í 1. deild. Stig Haukar: Hálfdán Markússon 22, Olafur Rafnsson 14, Kristinn Kristins- son 11, Pálmar 8, Eyþór 7,Reynir 6. Henning 4 og Sveinn Sigurbergs 2 stig. Stig Vals: Kristján Ágústsson 18, Jón Steingríms 16, Torfi 13, Tómas 12, Leif- ur 6 og Einar Olafsson skoraði tvær körfur. Maður leiksins Hálfdán Markússon, Haukum. -SK. Hin stórskemmtilega handknattleikskona Erla Rafnsdóttir skorar fyrir tsland gegn Bandaríkjamönnum. DV-ljósmynd Óskar Örn Jónsson. Úthaldið búið íþriðja leiknum — Bandaríkin sigruðu ísland, 21-14, á Selfossi á laugardag „Eftir þessa leiki við Bandaríkjamenn hcfur komið í ljós að þaö sem íslenskan kvennahandknattleik fyrst og fremst vant- ar er úthald, snerpa og kraftur. Þær stúlk- ur sem léku alla leikina þrjá voru gjör- samlega útkeyrðar í síðasta leiknum og það var ástæðan fyrir þessu tapi,” sagði Viðar Símonarson. þjálfari islenska kvennalandsliðsins, eftir þriðja leik Is- lands gegn Bandaríkjamönnum sem tapaöist 21—14 og leikinn var á Selfossi. Obreytt lið var fyrstu tvo leikina en fimm breytingar voru gerðar i þeim þriðja. Liöiö náði ekki nógu vel saman og sprakk á limminu í seinni hálfleiknum. Staöan í hálfleik var 8—8 og haföi Kol- brún Jóhannsdóttir í markinu varið mjög vel. Alls varði hún 14 skot i leiknum sem er ágætt. Bandarísku stúlkurnar nýttu hraða- upphlaupin injög vel og skoruðu grimmt úr þeim í seinni hálfleik. Markahæstar í liöi Isiands voru Ingunn Bemódusdóttir með 5 mörk og Guöríður Guðjónsdóttir sem skoraöi 4 mörk. -AA. Bjami skoraði sigurmarkið Það voru aðeins nokkrar sekímdur eftir af leiknum Wannc-Eickel-Nettelstedt þcgar Bjarni Guðmundsson braust inn úr horninu og skoraði sigurmark Wanne- Eickel 23—22 gcgn sínum fyrri félögum í Nettclstedt. Þctta var fjórða mark Bjarna í leiknum og frammistaða hans var mjög góð. Wanne-Eiekel er nú eitt af efstu liðum í 2. deildinni í v-þýska handboltaiium. Fram sigraði Fram sigraði Vikhig með þrcmur hriuitm gcgn tveimur í 1. dcild karla á Is- landsmótinu i blaki í Hagaskóla i gær- kvöldi. Hrinurnar fóru: 15—9, 8—15, 15— 11,10-15 og 15—12. Hjá Fram átti Haukur Magnússon góðan leik. Þorvaldur Sigurðsson sýndi og mikil tilþrif. Sterkastur Víkinga var Bjanii Þór- hallsson. Arngrímur Þorgrímsson var að vcnju traustur. I 1. deild kvenna kom Völsungur enn á óvart með öruggum sigri á IS í Ydölum á föstudag. Leikurinn fór 3—0: 15—2, 15—4 og 15—6. IS lék einnig á Akureyri og vann þar KA- stúlkur í gær 3—0:15—8,15—8 og 16—14. Þróttur rétt marði kvennaliö Vikings í gærkvöldi 3-2: 15-4,15-3,11-15,13-15 og 15—9. I 2. deild karla fóru tveir leikir fram í Norðurlandsriðli. Á Akureyri vann A-lið KA liö Skautafélagsins 3—0: 15—9, 16—14 og 16—14. A Dalvík hakkaði Reynivík B-lið KA 3-0: 15-2, 15-5 og 15-0. I lokahrin- unni gaf aðeins einn maður upp, Bjöm Víkingsson skíðakappi. Björn þurfti sex mínútur til að skora stigin fimmtán. Allur leikurinn varö 29 minútna langur. -KMU.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.