Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1983, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1983, Blaðsíða 2
2 DV. MÁNUDAGUR 21. NOVEMBER1983. „Er ekki of mikið um svona helgarfundi?” Þessari spumingu varpaði Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra fram þegar hann sat fyrir svörum h já Lífi og landi á laugardag. DV-mynd Bj. Bj. „A tvinnuleysi fylgja meirí kvillar en oflöngum matartíma" — sagði Steingrímur Hermannsson á ráðstefnunni „Er ekki of mikiö um svona helg- arfundi? Ég tek aö minnsta kosti þátt í allt of mörgum.” Þetta voru upphafsorö Steingríms Hermannssonar forsætisráöherra er hann sat fyrir svörum á ráöstefnu Lífs og lands um „þjóö í kreppu” á laugardag. Steingrímur bætti því viö aö hann vildi miklu fremur axla byssu sína og halda til veiöa í góöa veðrinu. Meöal þeirra spurninga sem beint var til forsætisráöherra var sú hvort ekki væri nauösyn á einhverju at- vinnuleysi hér til þess aö auka sam- keppnina á vinnumarkaöinum og á þaö bent að vinnuástundun heföi hrakað sem kæmi m.a. fram í óhóf- lega löngum matartímum launþega. I svari forsætisráöherra kom fram aö einstaklingunum heföi ekki tekist aö aðlaga sig þjóðfélagsbreytingum og þetta væri angi af streitu og verö- bólgukapphlaupinu. „En atvinnuleysi fylgja meiri kvillar en of löngum matartíma,” sagöi Steingrímur Hermannsson for- sætisráöherra. Steingrímur var einnig spuröur hvort hiö opinbera ætti ekki aö hætta aö skipta sér af ákvöröun fiskverös og hvort aldrei heföi verið hugleitt aö koma á fót hér frjálsum fiskmark- aöi. Fyrirspyrjandi benti á aö fyrir kíló af karfa fengjust 5 krónur hér en um 30 krónur erlendis. Steingrímur sagöi aö oft heföi ver- iö rætt um frjálsan fiskmarkað, en þaö heföi ekki veriö taliö fært, m.a. vegna þess aö stór hluti skipaflotans væri í eigu framleiðslustöðvanna. -GB husi þessu I ... er Slippbúðin I Slippbúinni eru sérhæfðir afgreiðslumenn. ^HEMPEIÍS ^CUPRINOL | VITRETEX Þeir bera þínn ha§ fyrir brjósti, þess vegna bjóöa þeir aöeins úrvalsmálningu. LIPPBÚÐIN VIÐ HÖFNINA s/mi 10123 Ráöstefna Lífs og lands: Kreppa alls staðar? Kreppudýr, gunga. Þessar tvær skil- greiningar á manninum komu fram á ráöstefnu samtakanna Lífs og lands um „þjóð í kreppu” á Hótel Borg á laugardag. Tuttugu erindi voru flutt á ráöstefn- unni og fjölluöu þau um kreppuna eins og hún birtist á ýmsum sviöum þjóö- lífsins. Þar má nefna efnahagskreppu, vistkreppu, listkreppu, hugmynda- kreppu, trúarkreppu, kreppu í stjórn- málum og innan fjölskyldunnar. Aö loknum erindunum fluttu Stein- grímur Hermannsson forsætisráö- herra og Albert Guömundsson fjár- málaráðherra stutt ávörp og sátu síö- an fyrir svörum. Ráðstefnunni lauk meöpallborösum- ræöum, og þar kom m.a. fram aö mannkynið ætti nú meiri möguleika en áöur á því aö ráöa fram úr vandamál- um sínum og krepputal væri því ekki viö hæfi. Skilningur á efnahagskerfinu væri meiri en áöur og viö ættum meiri möguleika á aö skipuleggja framtíö okkar. Þaö kom einnig fram í pallborösum- ræöunum aö viö hefðum lagt mikið í sölumar til aö öölast þaö sem viö höf- um. -GB New York vill Sauðárkróksvatn „New York borg er tilbúin til aö kaupa 20 þúsund tonn af vatni frá ferskvatnsverksmiðjunni á Sauöár- króki, ef framleiösla kemst í gang, og vatniö er búið aö fá „Good Housekeep- ing” stimpil frá Ameríku,” sagöi Albert Guömundsson fjármálaráö- herra m.a. er hann sat fyrir svörum á ráöstefnu Lífs og lands á laugardag. Albert var þó nokkuð spuröur um menningarmálin og fjárstyrki ríkisins til þeirra og það kom fram h já ráöherr- anum aö bæði Sinfóníuhljómsveitin og Þjóðleikhúsiö myndu leggjast niöur ef ríkiö hætti aö styöja þau. Ráðherrann lagði áherslu á aö fólk yröi aö taka meiri þátt í aðgöngumiðaverðinu. Fjármálaráöherra og forsætisráö- herra eru ekki á einu máli um hvort selja eigi Sinfóníuhljómsveitina, og bauöst Albert þá til aö gefa Steingrími hana. „Viltuhana?”spuröi Albert. Og Steingrímur svaraöi: „Ekki ef ég þarf aö borga meö henni. ” -GB Frá æfirtgu íslenska dansfíokksins á afmælissýningunni. Afmælissýning íslenska dansflokksins íslenski dansflokkurinn er tíu ára um þessar mundir og veröur afmælis- ins minnst meö sýningu á þremur nýj- um íslenskum ballettum. Frumsýning- in veröur fimmtudaginn 24. nóvember kl. 20 í Þjóðleikhúsinu, önnur sýning veröur laugardaginn 26. nóvember kl. 15 (ath. óvenjulegan sýningartíma) og þriöja sýningin verður þriöjudaginn 29. nóvember kl. 20. Sýningar verða ekki fleiri en þessar þrjár. Dansararnir í sýningunni eru Asdís Magnúsdóttir, Ásta Henriksdóttir, Auöur Bjarnadóttir, en hún dansar nú aftur hér á landi eftir aö hafa starfaö erlendis sl. fimm ár, Birgitta Heide, Helga Bernhard, Ingibjörg Pálsdóttir, Helena Jóhannsdóttir, Katrín Hall, Olafía Bjamleifsdóttir, Sigrún Guömundsdóttir, Einar Sveinn Þóröarson, Jóhannes Pálsson og Örn Guömundsson. Einar Sveinn dansar sem gestur í sýningunni, en hann hefur dvalist í Bandaríkjunum undanfarin ár viö balletnám og sem fastráöinn dansari. Einar kom hingað heim fyrir tveimui' árum og vakti þá mikla , athygli í Giselle hér í Þjóöleikhúsinu. Höfundar ballettanna sem sýndir veröa eru Nanna Olafsdóttir, Ingibjörg Bjömsdóttir og dansflokkurinn. Leik- myndir eru eftir Sigurjón Jóhannsson, en lýsingu annast Árni Baldvinsson. -ÖM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.