Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1983, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1983, Blaðsíða 13
DV. MÁNUDAGUR 21. NÖVEMBER1983. 13 tonnum frá Grænlandi og jafnvel kannski úr suöurátt frá Færeyjamið- um. Þaögeturlíkafariöá annan veg og aö við náum því ekki að fiska þessi 200 þús. tonn. Þaö getur aftur farið eins og í ár aö ekki veröi náð þeim afla sem viö ætlum okkur eöa teljum æskilegt að veiöa. Þótt svo færi fengjum viö aö vísu skell, en þaö væri skellur sem viö ættum aö vera menn til aö taka á okkur ef allt væri meö felldu. I áratugi var Noröur- landssíldin aöalfiskstofninn og veiði hennar undirstaöa bátaútgeröar á Islandi. Ár eftir ár og áratímabil eftir tímabil hvarf þessi silfurfiskur af miðunum. Stundum gerðist þorsk- urinn okkar einnig tregur sömu afla- leysisár. Þessi aflaleysisár stóö sjávarútvegurinn af sér og þjóöarbú- iðlíka. Fleirí fiskstofnar Utgerö á þessum árum var miklu einhæfari en nú, nýtanlegar fiskteg- undir voru þá fyrst og fremst þorsk- ur og síld. Þótt nú sé um stund nokk- uö dökkt i álinn í sambandi við þorsk- stofninn og karfastofninn reyndar líka, skulum við hafa þaö i huga og viðurkenna þaö aö viö sliku má alltaf búast og viö slíkar lægðir í aflabrögö- um höfum við búiö. En sem betur fer höfum við nú í fleiri fiskstofna aö- sækja en áöur. Síldin er nú vaxandi fiskstofn, þaö er jafnvel gefið undir fótinn um það aö Norðurlandssíldin komi brátt á miðin aftur. Humar og hörpudiskur skila drjúgu í þjóðarbú- iö, rækjan hefur komiö af staö nýju ævintýri fyrir noröan, líku síldar- ævintýrinu í gamla daga. Sótt er í loönuna á ný, verksmiðjur og skip sem verið hafa stopp undanfariö eru nú komin á miöin á ný og verk- smiöjur eru famar aö snúast. Verö á fiskilýsi og mjöli er mjög hækkandi, sú þróun getur gert kolmunnaveiðar í bræöslu vel arðbærar og einnig spærlingsveiðar. En þetta er ekki nóg. Ástandiöhjá íslenskum sjávarútvegi er þannig að þaö er ekki nóg aö koma meö afla að landi þótt það sé metafli. Þrátt fyrir það er tap á aö gera út fiskiskip á ís- landi. Þeir sem tala um þaö aö sjávarútvegur sé styrkþegi á þjóö- inni ráöa allt of miklu hjá okkur í dag. Þaö er ekki allt meö felldu i sambandi viö þaö hvernig búiö er aö þessum undirstöðuatvinnuvegi okk- ar. Fjármagnskostnaöur er það mikill aö þótt allt afiaverömæti ný- legs skips sé notað til þess aö greiða þann kostnað dugar þaö ekki. Upp- lýsingar um þann þátt komu greini- lega fram í sjónvarpsviðtali fyrir nokkm, þegar rætt var viö útgerðar- mann togarans Úskars Magnússon- ar áAkranesi. Skipinhafa veriölát- in standa ábyrg fyrir greiðslu doll- aralána meö allt aö 22% vöxtum og á meðan dollarinn hefur hækkað yfir 100% hefur fiskverö ekki hækkaö nema um hluta þeirrar upphæðar. Með sliku fyrirkomulagi hefur verið skipulögö millifærsla frá sjávarút- vegi til banka og milliliða. Sjávarút- vegur og launþegar í landinu látnir standa undir óskapnaöareyðslukerfi banka og verslunar, allt of stórs fragtskipaflota sem ekki nýtir nema rúmlega helming flutningsgetu sinnar, þriggja olíufélaga, trygg- ingafélaga og annarra illa stjórn- aöra milliliöaþátta. Afætustofnanir Þótt svarta skýrslan sé ábending um aukna erfiöleika í íslenskum sjávarútvegi þá eru þeir erfiðleikar sem þar blasa við yfirstíganlegir ef afætustofnunum þjóöfélagsins verö- ur gert erfitt um vik aö draga til sín allt of stóran hluta af aflahlut sjávar- útvegsins og þeim um leið gert að skila aftur til þessa undirstöðuat- vinnuvegar þeim fjármunum sem þessir aöilar hafa á undanfömum mánuöum og árum ranglega tekið til sinnar eyöslu frá sjávarútveginum. I slikri aögerö þarf pennastrikið, sem fjármálaráðherra hefur boöað aö koma skuli, að felast. Væntanlega heyrum viö meira af því á næstu dög- um. Sjómönnum og fiskifræðingum er nú kennt um hvernig komið er fyrir þorskstofninum. Þessum aöilum var einnig kennt um minnkun loðnu- stofnsins, um hrun Norðurlandssíld- arinnar. I öllum þessurn tilfellum bendir flest til að um náttúrufræði- legar sveiflur hafi veriö aö ræöa. Frávik frá áætlun fiskifræðinga hafi fyrst og fremst verið af slíkum toga. Viö slikum sveiflum megum við alltaf búast, en sem betur fer eru slíkar sveiflur ekki alltaf á verri veg- inn, stundum eykst afli umfram það sem búist er viö. Það er sjálfsagt aö ræöa um æskilega stærö fiskiskipa- flotans, skipulagningu veiöa og vinnslu og þó fyrst og fremst bætta meðferð og verömætisaukningu á afla og gera þar eitthvað raunhæft. Sú umræöa og aðgeröir henni tengd- ar breyta ekki því að sjávarútvegur- inn er best rekna atvinnugreinin á Is- ’landi og íslenskur sjávarútvegur er trúlega best rekni sjávarútvegur í heimi. Islenskir sjómenn skila margföldum afköstum á við starfs- bræður þeirra í nálægum löndum og úthald íslenskra fiskiskipa, úthalds- dagar á ári, er miklu meira hjá okkur en hjá fiskiskipum nágranna- þjóöa. Hin neikvæöa umræða um sjávar- útveginn og sú afstaða og þau kjör, sem sjávarútveginum eru nú búin af stjómvöldum, breyta heldur ekki því að það er sjávarútvegurinn sem hef- ur búið okkur þau lífskjör sem viö höf- um og búum nú viö. Þegar sjávarút- vegurinn er rekinn meö tapi í met- aflaárum eins og 1981 og 1982 og enn hrikalegra tapi nú, þegar dregur úr afla, þá er þaö vegna þess aö þeir sem eiga aö verja hagsmuni hans hafaekkistaöiösig. Afætuöflunum í þjóðfélaginu hefur ekki veriö haldiö í skefjum. Ef undanhaldi fyrir þeim öflum veröur snúiö í sókn þurfum við ekki mjög aö óttast afleiðingar svörtu skýrslunnar né horfa fram á versnandi afkomu almennings. Skúli Alexandersson alþingismaður. ái| „Það er sjálfsagt að ræða um æskilega w stærð fiskiskipaflotans, skipulagningu veiða og vinnslu og þó fyrst og fremst bætta meðferð og verðmætaaukningu á afla og gera þar eitthvað raunhæft.” samstaöa í flokknum — á meðan sér- framboö var i fullum gangi fýrir vestan, — þá lýsti hinsvegar 1. þing- maður Vestf jarða þeirri skoðun sinni — á öðrum fundi vestur á Isafiröi, — aö ef sérframboð sjálfstæöismanna á Vestfjörðum fengi aö bjóða fram DD-lista þá myndu 6—7 sérframboð koma fram í Reykjavík einni. — Þarna rákust fullyrðingar forystu- manna á meö heldur hlálegum hætti. Leiðir til pólitískrar for- pokunar Nei, góðir sjálfstæöismenn, — ef okkar flokkseining er ekki þving- unarlaus, byggð á heilindum og gagnkvæmu trausti flokksforystu og almennra flokksmanna, — ef hún þolir ekki dagsljósið, þá er sú eining ekki túskildingsvirði, leiöir fyrr eða síðar til pólitiskrar forpokunar, múg- mennsku, — hugsjónadauöa og er heiðvirðum stjórnmálaflokki ósamboöin. Það var annars ekki ætlun mín að hafa hér uppi klögumál og því síður nein skriftamál vegna þeirrar flokkslegu uppákomu sem sérfram- boöið fyrir vestan óneitanlega var. Eg tel mig ekki þurfa að biöjast afsökunar á neinu. Eg tók þátt í sér- framboðinu af heilum hug í sátt við eigin samvizku, sem ég mat einfald- lega meira en nauðungarsátt viö flokkinn og þá pólitísku samherja, sem létu sér sæma aö kalla okkur sérframboðsmenn flokkssvikara og öðrum illum nöfnum í vöm fyrir sitt eigiö pólitíska og persónulega skinn — og voru ekkert sérlega vandir að meðulum. Þetta var mér persónulega og póli- tískt stórkostleg reynsla. Eg kynntist fjölda af kjarkmiklu og heiðarlegu fólki, sem ekki lét ógna sér til hlýöni af stóra miöstjómar- valdinu fyrir sunnan né litla mið- stjórnarvaldinu fyrir vestan, — en fór sínu fram í krafti eigin sannfær- ingar. Ég kynntist því lika, að betri eru opinberir óvinir en falskir vinir. Af hálfu sérframboðsins var hvergi fiskað í gmggugu vatni og það verða ekki stuðningsmenn þess, sem af hefndarhug og heiftrækni ala, aö leikslokum, á erjum og ósætti meðal sjálfstæðismanna vestra, — hvernig svo sem hinir láta. Og því er á þetta mál minnst, hér og nú, að ég tel það ná langt út fyrir mína eigin persónu. Að sjálfsögöu varðarþaðallan flokk- inn, sem erfið reynsla, er sitthvaö má læra af, og hlýtur að vekja ýmsar spumingar, sem þyrfti að fást svar- aö. Þannig er sú spurning mér enn ofarlega í huga í þessu sambandi hvemig það má vera að sérframboð óánægöra flokksmanna í nafni flokksins — DD-lista, þegar Sjálf- stæðisflokkurinn á í hlut — sem Bjami heitinn Benediktsson kom inn í kosningalög á sínum tíma — fyrir 20—30 árum og ungir sjálfstæðis- menn börðust kröftuglega fyrir, — hvemig þaö má vera, aö slíkt sér- framboð virðist nú teljast pólitískt ódæði í augum forystusveitar Sjálf- stæðisflokksins. Hvað merkir hin breytta afstaða? Skyldi Bjarni Benediktsson hafa séð þaö fýrir, er hann átti hlut að því síðar að færa úrskurðarvald í slíku máli til flokksstjórnar, að Sjálf- stæðisflokkurinn geröi þaö aö ,,prinsip”-máli að samþykkja aldrei slíkt framboö. — Er þessi breytta af- staða merki um aukna festu og var- fæmi og sem slík til góðs fyrir flokk- inn? Eða ber hún vitni þverrandi frjálslyndi og vaxandi flokksræði, pólitískum eintrjáningshætti og virðingarleysi fyrir rétti minnihlut- ans? Og ungir sjálfstæðismenn, — eru þeir ekki ungir lengur? Nær samúö Kjallarinn Sigurlaug Bjarnadóttir þeirra, í baráttunni milli frelsis og valds, ekki lengra en til hinna óbeizl- uðu markaösafla í efnahags — og viðskiptalífi? Og er frjálshyggja, sem mælir með klámi og okurstarf- semi í nafni frelsis og mannréttinda — á réttri leiö? Sbr. greinaskrif eins aðaltalsmanns ungra frjálshyggju- manna að undanfömu? Höfundur „Frelsisins”, John Stu- 'art Mill, talar einhvers staðar um hættuna af „fastasvefni fastra skoð- ana”. Er suma ungu mennina okkar strax farið að syf ja ? Og enn spyr ég — spurningar, sem hefir vakaö í huga mér frá því er ég fyrst leiddi hugann að stjórnmálum: Hver er hinn góði flokksmaður? Er þaö sá sem bergmálar nógu dyggi- lega og gagnrýnilaust boðorð flokks- stjómarinnar, gætir sín að tala nógu varlega, styggja engan, þegja frem- ur en segja það sem spiÚt gæti fyrir honum á pólitískri framabraut — jafnvel sjálfum ráðherrastólnum.? Er það sá, sem lúrir á sannfæringu sinni fremur en láta hana koma fram — beint frá hjartanu, hugsanlega í óþökk fyrirmanna í flokknum sem halda um valdataumana? Skoðanaf relsi Þetta eru spurningar, sem að sjálf- sögðu snerta alla stjórnmálaflokka en eru settar hér fram með sérstakri skírskotun til Sjálfstæðisflokksins. Þær fela í sér um leið þá samvizku- spumingu hvort sjálft skoöanafrels- iö, hin helgu mannréttindi, er í raun jafnhátt skrifaö í íslenzku stjóm- málastarfi og látiö er í veöri vaka í stefnuyfirlýsingum, sem eiga að ganga í augun á háttvirtum kjósend- um — ekki sízt unga fólkinu? Sem sjálfstæðismaður geri ég hærri kröfur til Sjálfstæðisflokksins en annarra flokka lun starfshætti og framgöngu alla í íslenzkum þjóðmál- um. I mínum huga stendur hann fyrir fleiru en einkaframtaki í at- vinnulífinu, svo heilshugar sem ég aöhyllist þaö sjónarmið. Hann verður — ekki bara í oröi heldur líka á borði, aö standa yfir hugsjóninni um heiðarleik og drengskap í öllum mannlegum samskiptum, — líka í pólitíkinni, undir kjöroröinu „Gjör rétt, þol ei órétt”, í kröftugri and- stöðu við hvers konar óheilindi, bitlingasnap og metorðakapphlaup, sem illu heilli hefir komið óoröi á Is- lenzk stjórnmál í augum almennings og valdið trúnaðarbresti mitli þjóðarinnar og ráðamanna hennar. Hollusta og tryggð við flokkinn, sem sannarlega ber aö viröa, mega ekki gera ímynd hans i augum flokksmanna að goöi á stalli eða postulinskú á stássstofuborði, sem eitt óvitaspark geti brotið mélinu smærra. Flokkurinn okkar er ekkert annað en við sjálf, lifandi fólk, sem aöhyllist svipuð lífsviðhorf og hug- sjónir, er við teljum horfa til f arsæld- ar fyrireinstaklinga og þjóðarheild. Sjálfstæðisflokkurinn verður aö vera sívakandi og sívirkt þjóðfélagsafl, sem lagar sig að íslenzkum aðstæð- um og hraðfleygum þjóðlífs- breytingum, afl sem þolir gagnrýni og ágjöf í órólegum sjó, afl, sem ekki má hefta í fræðilegum erlendum kennisetningum, klíkuskap og inn- byrðis deilum. Faðirvorið — Hayek og Friedmann Viö — sjálfstæðismenn, sem ekki höfum enn snúið faðirvorinu upp á Hayek og Friedmann, viljum, að í Sjálfstæðisflokknum sé hátt til lofts og vítt til veggja, þar sem lífsviöhorf fólks úr öllum stéttum í sveit og við sjó finni hljómgrunn og mannleg verömæti metin sem skyldi. Ég er orðin langoröari en ég ætlaöi í upphafi. Drep því aðeins hér í lokin á það atriði, sem hæst ber í almennri umræðu á Islandi um þessar mundir: Er ríkisstjórnin okkar á réttri leið? Raunar er því slegið föstu af stuöningsmönnum hennar, að svo sé. Sjálf hef ég þegar á opinberum vettvangi lýst þeirri skoðun minni, að þaö hafi verið nauösynlegt — út úr neyð, að grípa til jafnharkalegra ráðstafana og raun ber vitni. — En, ég hef jafnframt talið — og tel — að þær ráðstaf anir hefðu átt að markast af meiri sanngirni og hyggindum — meiri skilningi á högum þeirra, sem búa við rýrustu kjörin og mega því síst við kjaraskerðingu. En gamla sagan endurtók sig því miður nú sem fyrr — það var byrjað á öfugum enda. Ég vil einfaldlega ekki trúa því, að ríkisstjómin hefði ekki getað, ef hún hefði viljað, tryggt betur í bráða- birgðalögum sinum hag þess tiltölulega fámenna hóps — að ég tel, sem nú sannanlega kemst engan veginn af. Eg hafna þeim rökum sem hreinni uppgjöf, að háiaunahóparnir í þjóðfélaginu hefðu aldrei liðið, að harðar væri að þeim gengið en þeim launalægstu. Eöa eru ekki allir landsmenn jafnir fyrir lögum? , Og þaö er engin furða þótt upp rísi hneykslunaralda út af fríöindafarg- ani — og í sömu andrá sultarólar- söng ráðherranna okkar — ekki bara Steingríms Hermannssonar, sem í engu slá af í kröfum sér til handa — á neyðartímum aö þeirra eigin sögn. Það er alveg rétt, að ráðamenn mega ekki hlaupa eftir hverjum goluþyt al- menningsálitsins en bein lítilsvirðing á þvi sama almenningsáliti er aðeins ein hliðin á valdahroka. Sigurlaug Bjamadóttir, fyrrv. alþingismaöur. ^ „Ein eining, sem byggð er á valdboði og nauðung — og óskhyggju þar á ofan, samrýmist ekki þeim hugsjónum Sjálfstæðis- flokksins um frjálsa hugsun og sjálfstæða ein- staklinga, sem við viljum helst í heiðri hafa 99

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.