Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1983, Side 5
ffiAr c,rroi»^i»j'ar n rrtTnf <"ttr■vtttrrtT>r. jtrr
DV. MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER1983.
Alþingismenn í jólaleyfi 20. desember:
Fjöldi frumvarpa
óafgreiddur fyrir
jólaleyfi
Stefnt er að því aö Alþingi ljúki
störfum fyrir jólaleyfi í síöasta lagi
þriöjudaginn 20. desemþer. Þó veröur
reynt aö ljúka síðustu umræöu um fjár-
lagafrumvarpið fyrir árið 1984 laugar-
daginn 17. desember en óvist er hvort
þaðtekst.
Þorvaldur Garöar Kristjánsson, for-
seti sameinaðs þings, átti fyrr í þessari
viku fundi meö formönnum þingflokk-
anna og forsætisráðherra tii þess aö
kanna hvaða málum stjórn og
stjómarandstaða vildu koma í gegnum
þingið fyrir jólaleyfi.
Fyrir utan fjárlögin, sem verða að af-
greiðast fyrir áramót, vill fjármála-
ráðherra koma eftirfarandi frum-
vörpum í gegn fyrir jólaleyfi:
breytingu á lögum um tollskrá,
breytingu á lögum um tímabundið
vörugjald, frumvarpi um innlenda
lánsfjáröflun ríkissjóðs, breytingu á
lögum um tekju- og eignaskatt og láns-
fjárlögum. Heilbrigðis- og trygginga-
ráðherra vill afgreiöa frumvarp til
laga um sjúkratryggingagjald.
Iðnaðarráðherra leggur áherslu á að
frumvarp um framlengingu á
verðjöfnunargjaldi nái fram að ganga
svo og frumvarp um Sölustofnun lag-
metis. Menntamálaráðherra vill að af-
greiddar verði breytingar á
grunnskólalögum og lögum um
skemmtanaskatt, en bæði þau mál eru
enn til umræðu í ríkisstjórn. Sjávarút-
vegsráðherra vill afgreiða breytingar
á lögum um veiðiheimildir í landhelgi
Islands fyrir jólaleyfi. Aðrir ráðherrar
hafa ekki sett fram óskir um afgreiðslu
mála fyrir jólaleyfi. -ÓEF.
Þorskurinn gæti
tekið vaxtarkipp
ef óvenju hlýr sjór umhverf is landið helst áf ram
„Við getum vonað en við getum engu
spáö um jákvæð áhrif hlýindanna í
sjónum nú. Lífríkið tekur ekki vaxt-
arkipp fyrr en á vorin og sumrin og við
sjáum ekki nema svo sem þrjá mánuði
fram í tímann. Eftir rannsóknir næsta
vor getum viö frekar sagt eitthvað um
málið. En þótt eitt gott ár sé ekki nægi-
legt til að lífríkið taki verulegan vaxt-
arkipp er það auðvitað til góðs. Okkur
er ljóst að lítill hiti sjávar undanfarin
ár hefur haft slæm áhrif,” sagði Svend
Aage Malmberg haffræðingur í viðtali
við DV um hugsanlega batnandi vaxt-
arskilyrði fisks vegna hlýs sjávar
umhverfis landið nú.
Laxveiðibátur
fyrir utan mörkin
Starfsmenn Landhelgisgæslunnar
fóru í könnunarflug í fyrradag en sáu
fátt athyglisvert í þetta sinn.
Þó komu þeir auga á danskan lax-
veiðibát sem var staddur 3 mílur fyrir
utan 200 mílna mörkin noröaustur af
landinu. Hafa laxveiðibátar ekki sést
þama áður og aldrei á þessum árs-
tíma. Hafa þeir jafnan verið á feröinni
seinni hluta vetrar og þá nokkuö
sunnarenþetta.
-klp.
Samkvæmt nóvembermælingum var
heiti sjórinn fyrir sunnan og vestan
land 6,5 til 7,5 gráður, sem er vel yfir
meðallagi og sömu sögu er að segja út
af Vestf jörðum þar sem hitinn var 5 til
6,5 gráður. Heiti sjórinn var fyrir öllu
Norðurlandi meö yfir 4 gráðu hita og
allt austur fyrir á móts við Reyðarfjörð.
Þar sunnan af, eöa í Lónsbugt, var
aftur komiö í 7 gráður, eða Atlants-
sjóinn.
Eins vora skilin á milli heitsjávar og
kaldsjávar fyrir Norðurlandi og í A-
Islandsstraumnum tiltölulega norðar-
lega.
Svend sagði aö þessar niðurstöður
væru mikil breyting frá því sem var
fyrr á árinu og reyndar þrjú sl. ár og
gæfu þær vonir um mildan vetur í
sjónum umhverfis allt landiö og þar
með að hafísinn héldi sig f rá landi.
-GS.
í viku
hverri
Viðgerðin á Biika EA12 frá Dalvík:
Tilboði heima-
manna hafnað
Samábyrgð Islands á fiskiskipum
samdi í gær við Slippstöðina á Akur-
ejri um viðgerð á bátnum Blika EA 12
frá Dalvík sem skemmdist fyrir
helgina. Tryggingafélagið fór fram á
við eigendur bátsins að gerð yrði
kostnaöaráætlun vegna verksins og
var í því sambandi leitað til tveggja
aðila, Slippstöðvarinnar og fyrirtækis
á Dalvík.
Fyrir hádegi á mánudag var gengiö
frá samningum viö Slippstöðina og
mun viðgerðin þar kosta rúma eina
milljón króna. Var þetta gert skömmu
áður en Tréverk hf. á Dalvík kom með
tilboö sitt sem var 750 þúsund krónur.
Ottó Jakobsson, einn eigandi Blika,
lýsti mikilli óánægju með þessi vinnu-
brögð tryggingafélagsins í samtali við
DV í gær og sagði að það heföi verið
eindreginn vilji eigendanna að verkiö
yrði unnið heima. Taldi hann að mikil
mistök hefðu átt sér stað. Báðir aðil-
arnir hefðu ætlaö að skila verkinu á
sama tíma, viku af janúar og heima-
menn hefðu getað gert þetta alveg
jafnvel og Slippstöðin, auk þess miklu
ódýrar.
Magnús Bjarnason, skipaskoðunar-
maöur á Akureyri, sá um samninga
vegna viðgerðarinnar á Blika. Hann
kveðst hafa veriö á Dalvík á föstudag
og heföu heimamenn ekki minnst einu
orði á að þeir ætluðu að gera tilboð í
verkið. Þá hefði verið gengið frá öllu
símleiðis við Samábyrgðina varðandi
viðgerð í Slippstöðinni, nema upp-
hæðina og lýsingu heföi hann sam-
þykkt fyrir hádegi í gær. Taldi hann
einnig að heimamönnum hefði verið
vel kunnugt um að svo fljótt yrði geng-
ið frá þessum samning i Ekkert þýddi
aö senda tilboð eftir á og samningnum
yrði ekki breytt.
-JBH/Akureyri,
iíG
piN
Ef svo er
komdu við, nú
eða hríngdu, við höfum
opið á fimmtud. tilki. 22.
Við eigum einnig mikið úrva/ af reyrhúsgögnum.
ATH. Þetta eraðeins sýnishorn af furuhúsgögnunum sem við eigum.
„0KKAR VERÐ" 15% AFSL. AF HJÓNARÚMUM.
Stækkan/egur í 140 cm breidd.
Þrjárgerðir ándýnu.
Verðfrákr. 7.943,-
Okkar verð kr. 6.751,-
Verðkr. 9.980,-
JÓLIN NÁLGAST ÓÐUM ÞVÍ BJÓÐUM VIÐ SÉRSTÖK JÓLAKJÖR.
15% afsl. afö/lum hjónarúmum ti/jó/a.
Já, því ekki að sofa í nýju hjónarúmi um jó/in.
HAMRABORG 12
• A HAMRABOF
^>etrið KÚPAVOGI,
SÍMI46460
FRANSKA VINNUKONAN
UPPÞVOTTAVÉLIN
ÓTRÚLEGA
Hentar alls staðar, jafnt heima sem á vinnustað. Tekur lítið pláss,
auðveld í notkun. Gengur aðeins fyrir vatni úr krananum þínum.
AÐEINS KR. 3.300,-
Heildsölubirgðir:
BRAUÐFORM SF.
Þingholtsbraut 44, Kópavogi
Sítni 43969
Utsölustaðir:
REYKJAVIK
Rafviðgerðir hf.{
B/önduhlið 2 simi 83901.
©
POLLINN HF
ÍSAFJÖRÐUR VESTMANNAEYJAR
Póllinn sf.
Aðalstræti 9,
Sími 94-3792
Magnabúð
Sími 98-1488