Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1983, Qupperneq 8
'W. WIÐVtKOETAGUR ?. DESEMBBR1983.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Borgarar forða sér á bátum frá Tripolí, þegar mest gekk á í bardögum milli stríðandi fylkinga innan PLO, en hlut-
deild Sýrlendinga í bardögunum hefur farið lægra.
Slysabylgja
vegna hálku
i Frakklandi
Tíu manns fórust og fjöldi slasaðist
í slysabylgju í umferðinni í
Frakklandi í gær, en mikla hálku
gerði á götum og vegum. Fimm
þeirra sem fórust voru börn á
aldrinum 12—15 ára. Langferða-
bifreið sem þau voru í, hafði runnið
til í hálkunni og hvolft skammt
austur af París, en þar hamlaði þoka
skyggni ökumanna.
I langferðabílnum voru um 50 börn
og f jórir fullorðnir á leið í skoðunar-
ferð um söfn í París.
Skammt frá Bourges í miðhluta
Frakklands fórust þrír þegar bifreið
þeirra rann í hálkunni aftur undir
vörubílspall. Tvennt til viðbótar í
bílnum slasaðist illa.
I Norður-Frakklandi fórst sex ára
drengur þegar hann kastaðist út úr
bifreiö sem runnið hafði i hálku. I
Normandí fórst maður þegar kvikn-
aði í bíl hans eftir fjöldaárekstur
vegna hálku. I öðrum fjöldaárekstri
lentu í einni köku fimm stórir
flutningabílar og nokkrir fólksbílar
og slösuðust þar 18 manns.
Sýriand gagnrýnt
fyrir grimmdina
Belgískur læknir, sem starfað hefur
fyrir Rauða hálfmánann (Rauða
kross-samtök múhameðstrúarmanna)
í Líbanon sakar Sýrlendinga um að
hafa drepið tylftir Palestínuaraba í
sprengjuárásum á flóttamannabúðirn-
ar tvær við Trípolí í síðasta mánuði.
Froskmenn
sprengja
í olíuhöf n
Nicaragua
Froskmenn sprengdu í loft upp
mannvirki í Puerto Sandino, einu
olíuhöfn Nicaragua, og sögöu yfirvöld
að þeir hefðu notiö aðstoðar banda-
rísks skips.
Talsmenn sandinista sögðu aö
bandarískt skip hefði flutt frosk-
mennina og gúmbáta þeirra í grennd
við olíuhöfnina. Skemmdarverka-
mennirnir hefðu síðan róið síðasta
spölinn í land. Skipið á síðan að hafa
flutt þá burt aftur eftir að frosk-
mennimir höfðu komið sprengjum
sínum fyrir.
Miklar skemmdir urðu í höfninni en
þetta er þriðja árásin sem gerð hefur
verið á mannvirki í olíuhöfninni.
1 september voru sprengdir í loft upp
geymar í Corintohöfn (um 50 km
noröur af Puerto Sandino) og varð að
flytja um 5000 manns burt þaðan
vegna eitrunarhættu.
Tekur beiðni
Walesa
til greina
Bandaríkjastjórn sagöi í gær að hún
mundi taka til gaumgæfilegrarathug-
unar tilmæli Lech Walesa, leiðtoga
Einingar, umaðaflétta efnahagsrefsi-
aögerðum sínum gegn Póllandi.
Eins og fram kom í fréttum í gær
hafði Walesa á fundi með blaðamönn-
um hvatt Vesturlönd til að aflétta efna-
hagsrefsiaðgerðunum sem gripiö var
til við innleiðingu heriaga í Póllandi.
Hvatti hann þau til að veita Póllandi
heldur efnahagsaðstoð.
Tekið hafði verið fyrir frekari lán-
veitingar til Póllands sem skuldar
vestrænum ríkisstjórnum 17 milljarða
dollara og vestrænum bönkum 6
milljarða dollara.
Dr. Huub Dierick heldur því fram að
fjöldi fólks hafi farist í sprengjuárás-
um á Baddawi-búðirnar og margir
særst og látið lífið í Nahr-el-Bared-
búðunum. Segir hann að yfir 80 hús
hafi eyðilagst í Baddawibúðunum.
Læknirinn gagnrýndi frásagnir fjöl-
miðla af bardögunum við Trípolí.
Sagði hann þar lítt hafa komið fram
hve hart Sýrlendingar gengju fram í
bardögunum milli stríðandi afla innan
PLO-samtakanna.
Skæruliðar, sem berjast gegn sandinlstastjórninni, hafa notað froskmenn til að
vinna skemmdarverk.
KOMA TIL JARÐAR
AFTUR Á MORGUN
Geimskutlan Columbia er nú að búa
sig undir að snúa aftur til jarðar og
mun lenda á Edwards herflugvellinum
í Kalifomíu á morgun eftir tíu daga
ferð. Upprunalega átti ferðin aðeins að
taka níu daga en var framlengd um
einn dag. Vegna framlengingarinnar
var geimförunum um borð úthlutað
ýmsum aukaverkefnum í rannsóknar-
stofu geimskutlunnar.
Áhöfninni hefur gefist aukinn tími til
að gera athuganir á andrúmslofti
jarðar, sólinni og viöbrögðum manns-
líkamans við þyngdarleysi, vexti
gróöurs i geimnum og áhrifum geisl-
unar svo dæmi séu nefnd.
Geimskutlan Columbia í skotstöðu.
Sleppa pólitískum
föngum gegn gjaldi
Austur-Þjóðverjar hafa sleppt um
250 pólitískum föngum vestur yfir járn-
tjaldiö síöustu fjóra mánuði og áttu þá
flestir þeirra töluvert langt í að hafa
afplánað dóma sína. Langflestir höfðu
Aldrich leikstjóri látinn
Robert Aldrich, einn af virtari leik-
stjórum Hollywood, andaöist í Los
Angeles í fyrradag 65 ára að aldri.
Hann hefur legið á sjúkrahúsi í
nokkra mánuði og gekk nýlega undir
uppskurð.
Meöal frægari kvikmynda hans
voru „The Dirty Dozen”, „The
Flight of Phoenix” og ,,Kiss Me
Deadly” eða „What Ever Happened
toBaby Jane?”,
Aldrich var af efnafólki kominn
(skyldur Rockefellerum) og lagði
stund á hagfræði til undirbúnings
bankastörfum, áður en hann flutti til
Hollywood 1941 þar sem hann var
aöstoöarmaður snillinga eins og
Charlie Chaplin, Orson Welles og
JeanRenoir.
Hann hefur leikstýrt stórstjörnum
eins og James Stewart, Lee Marvin
og Burt Lancaster, en sína fyrstu
mynd geröi hann 1953. Aldrich þótti
ekki fara troönar götur og var jafnan
í andstöðu við leikreglur Holly wood.
þó ekki lengri dóma en eitt til tvö ár.
Áður var vaninn að slíkir fangar af-
plánuöu tvo þriðju af refsivistinni. Nú
hefur mörgum verið sleppt og leyft að
fara til Vestui-Berlínar eftir að hafa
afplánað helming eða jafnvel aðeins
þriöjung refsivistar sinnar.
Samtök í V-Berlín, sem kenna sig viö
13. ágúst (daginn sem byrjað var aö
reisa Berlinarmúrinn), segja það eftir-
tektarvert að sakargiftir séu oftar í
seinni tíð „opinber rógur” en ekki
„undirróðursstarf gegn ríkinu”, sem
þyki alvarlegri sakir.
Meðal þeirra, sem sleppt hefur
verið, voru ýmsir sem höfðu verið
handsamaðir í flóttatilraun til vesturs.
— Bonnstjórnin greiðir A-Þýskalandi
sérstök g jöld fyrir fangana.
NJOSNUÐU UM SOVÉSKU
VOPNIN ÁINDLANDI
Indlandsstjórn hefur boðaö strang-
ara eftirlit með öryggisleyndarmálum
eftir hneykslismál sem valdið hefur
fjaðrafoki á Indlandi. Þrír háttsettir
herforingjar og einn borgaralegur em-
bættismaður hafa veriö handteknir.
Varnarmálaráöherrann sagði í
þinginu í Nýju Delhí í gær frá handtöku
tveggja bræðra, annar er hershöföingi
í landhemum en hinn aðstoðarmar-
skálkur í flughemum og foringja sem
komrnn væri á eftirlaun.
Blöð á Indlandi halda því fram að
ljóstrað hafi verið upp leyndannálum
við bandaríska aöila varðandi vopna-
búnað sem Indverjar hafa keypt af
Sovétmönnum. Sagt er að Bandaríkja-
mennhafi síðustufimm ár haft aðgang
að foringjum og fyrrverandi foringjum
í hernum á Indlandi og fengið
upplýsingar um vopnakaup frá
Sovétríkjunum.
Meðal ráðstafana sem stjómin í
Nýju Delhí hefur boðað er að eftir-
launaforingjar skuli ekki framvegis
hafa jafngreiðan aðgang og áöur að
leyndarmálum hemaðarlegs eðlis.
Á síðustu árum hafa Indverjar feng-
iö nýjustu gerðir af MIG-herþotum,
skriðdreka og fleiri nútímavopn frá
Sovétmönnum.
Upp komst um njósnimar þegar
einn foringi úr hernum gaf sig fram
eftir aö reynt hafði veriö aö bera á
hann fé til þess að láta í té upplýsingar
um hemaðarleyndarmál.