Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1983, Side 9
'DV. MIÐVHCUDAGUR 7. DESEMBER1983.
9
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Spá fsöld
— og hafna gróðurhúsakenningunni
Sovéskur veðurfarsfræðingur
vísar á bug „gróðurhúsakenning-
unni” og heldur því fram að við séum
á leið inn í nýja ísöld ef manninum
takist ekki að ná stjórn á veðurfar-
inu.
Yevgeny Borisenkov segir í viðtali
við Tass-fréttastofuna að svikula
veðráttu á norðurhveli jarðar síöustu
árin megi að nokkru kenna þvi að
þar hefur farið kólnandi á siðustu
þrjátíu árum.
Segir hann þetta upphaf kulda-
skeiðs sem leiða muni til algerrar ís-
aldar á tíu þúsund árum.
Borisenkov vísar á bug gróður-
húsakenningunni sem sovéskir og
vestrænir veðurfræðingar hafa hald-
ið á lofti seinni árin. Sú kenning
boðar að andrúmsloft fari hitnandi á
jörðinni vegna aukins koltvísýrings í
gufuhvolfinu.
Bendir Borisenkov á að samkvæmt
gróðurhúsakenningunni ætti hitastig
hér á jörðinni að hafa hækkaö um 0,4
gráöur á Celsíus á síðustu tveim
eða þrem áratugum sem ekki hefði
þógerst.
I siöasta mánuði var gerð kunn spá
sovéskra vísindamanna um að árið
2030 mundi Kansas orðin eyðimörk
en Síbería blómstrandi jarðræktar-
svæði.
„Við munum
sigra”
— segir Lech Walesa um óháðu
verkalýðshreyfinguna
Lech Walesa sagði í blaðaviðtali sem
birt var í gær í Lundúnablaðinu Times
að frjáls verkalýðssamtök myndu
sigra að lokum. En við vinnum ekki
sigur á morgun og megum ekki lifa í
þeirri sjálfsblekkingu. Við stefnum að
Lech Walesa telur verkalýðshreyfing-
una munu sigra að lokum.
því að ná markmiðum okkar með sem
minnstu tapi,” sagði Walesa.
Hann sagði jafnframt að starfsemi
innan verksmiðjanna væri lykilatriði í
framtíð frjálsrar verkalýðshreyf-
ingar. „Þannig tryggðum við sigur
okkar í ágúst,” sagði hann og átti við
sigur Solidarity í ágúst 1980, þegar
leyfi fékkst fyrir frjálsum verkalýðs-
samtökum. „Og þannig munum við
tryggja sigur okkar aftur,” sagði
hann.
Blaðaviðtal þetta var tekið i siðasta
mánuði af tveimur pólskum blaða-
mönnum sem vilja gæta nafnleyndar.
Walesa er ekki lengur opinberlega í
forsvari fyrir verkalýðshreyfinguna
eftir að pólsk yfirvöld bönnuðu slíka
starfsemi. Hann hefur tekið upp sína
fyrri iðju sem rafvirki í Lenínskipa-
smíðastöðinni i Gdansk.
Danuta, eiginkona Walesa, veitir
friðarverðlaunum Nóbels viðtöku fyrir
hans hönd nk. laugardag í Osló því
Walesa óttast að hann fái ekki aö snúa
aftur ef hann f er úr landi.
I umræddu viðtali sagði Walesa jafn-
framt að enginn alvarlegur ágreining-
ur væri milli hans og þeirra er starfa í
neðanjarðarsamtökum Solidarity.
„Okkur greinir stundum á um aðferð-
ir,” sagði hann þó. „Allt tal um að
Solidarity séu róttæk öfgasamtök er
bull og þvættingur, gerður í áróðurs-
skyni af yfirvöldum,” sagði Walesa.
Hann sagði jafnframt að andstæðing-
um Solidarity yrði það ljóst fyrr en
síðar að þeir fengju engu áorkað með
skriðdrekum og ógnunum.
Norðmenn
ætla að
gera risa-
olíuhöfn
Mongstad, norður af Björgvin, og
verður Mongstad þar með stærsta olíu-
höfn í Evrópu um margar komandi
kynslóðir.
Statoil mun annast gerð mannvirkja
á landi eri Norsk Hydro lagningu leiösl-
unnar úti í sjó. I Mongstad veröur
einnig sett upp olíuhreinsistöð sem
jafnframt mun vinna hráoh'u, flutta á
skipumfrá Statfjord-svæðunum.
ÁLVERKPALLAR
Eigum til sölu og leigu afar hentuga álverkpalla í 4 gerðum til notkunar
úti sem inni.
Norðmenn ætla að leggja leiðslu til
þess að flytja oliuna utan af bor-
svæðunum og upp á land, þar sem
þeir ætla að gera olíuhöfn, norður'
af Björgvin.
Statoil, norska ríkisolíufélagið, hefur
samþykkt áætlanir um lagningu nýrr-
ar 300 milljón dollara leiðslu til að
flytja olíu af tveim borsvæðum í
Noröursjó.
Gerð leiöslunnar á að vera lokið 1989
og mun Norsk Hydro, sem er að hluta í
ríkiseign, vinna verkiö með Statoil.
Leiðslan á að flytja oliu frá Gullfaks
og Osebergsvæöunum á land hjá
Alu-Quick 80.
Vinnuhæð allt að 4 m
Lengd 1,80 m.
Breidd 0,60 m.
Alu-Quick 200.
Vinnuhæð allt að 3,75 m.
Lengd 1,80 m.
Breidd 1,80 m.
Alu-Star 140.
Vinnuhæð frá 4,50—17,50 m.
Lengd 2,60 m.
Breidd 1,20 m.
Alu-Star 80.
Vinnuhæð frá 4,50-
Lengd 2,60 m.
Breidd 0,60 m.
17,50 m.
Pallar hf.
Vesturvör 7 Kópavogi.
Sími 42322.
Höfum einnig
til sölu og leigu:
stálverkpalla,
loftastoðir
og álstiga.