Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1983, Qupperneq 10
10 DV: MIÐVÍKUDAGÚR7.DESÉMBER 19837
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Umsjón: Guðmundur Pétursson
Gullránið
Heathrow
— tíð stórrán í stærstu flughöfn heims
en aö þeim heföi sýnst ræningjamir
vera þrír, en heyrðu raddir fleiri,
þaö er talið, aö þeir hafi hugsanlega
veriö sex. Allir grímubúnir svo að
kennsl uröu ekki á þá borin og lýsing-
ar ófullkomnar af þeim.
Eitt í málinu vekur athygli lögregi-
unnar en þarf þó ekki aö tákna neitt.
Einn vörðurinn haföi verið renn-
vættur í bensíni og hótað aö kveikja í
honum. A páskadag þetta árið var
rænt nær 300 milljónum króna úr
hirslum öryggisvörslufyrirtækis í
London. Einnig þar hafði einn
öryggisvaröanna veriö vætturíbens-
íni og neyddur á sama máta til aö
gefa mikilvægar upplýsingar.
Gleggri lýsing er til á gullinu, sem
heyröi sennilega til Þróunarbank-
anum, dótturfyrirtæki American
Express. Þaö stóð tilbúiö til sending-
ar því það átti aö fara til
Austurlanda fjær. En þegar stimpil-
merki og númer hafa verið máð af
gullhleifunum, veröur uppruni
þeirra ekki rakinn, og ekki erfitt
aö koma gullinu í peninga á hinum
alþjóðlega markaöi.
Tíð rán í„Þjófatröð"
Byggingar og flugstöðin á Heath-
row-flugvelli hafa oft fengið slíkar
heimsóknir, eins og ræningja og
þjófa, þótt enginn hafi áður veriö svo
stórtækur sem í þessu máli. 1
geymslu eru á Heathrow feiknarleg
auðæfi hvern einasta dag. Þetta er
Gullrániö mikla á Heathrow-flug-
velli, þar sem ræningjar komust yfir
þrjár smálestir af gulli, metnar á
1100 milljónir króna, var svo vand-
lega undirbúið og nákvæmlega fram-
kvæmt aö Scotland Yard hefur
ekkert spor til að rekja.
Um hitt er þó breska lögreglan
sannfærö, að einn eöa fleiri af starfs-
mönnum öryggisvörslunnar Brinks
Mat hljóti að haf a verið meö í ráöum.
Þjófarnir hafa haft haldgóöar
upplýsingar um hvaö geymt var í
geymslu fyrirtækisins í flugstöðinni,'
hvar þaö var geymt og hvernig þeir
gætu nálgast þaö.
Treystu betur tækninni
Öryggisgeymslan var útbúin full-
komnustu rafeindatækjum og
viövörunarkerfi svo aö þar átti
enginn óboöinn aö komast um án
þess að menn yröu varir viö. Þar
innanhúss var sjónvarpskerfi og
myndavélar sjálfvirkar sem raf-
straum fengu úr ööru kerfi en þaö
sem læsti eöa opnaði dyr og hliö meö
fjarstýringum. Gull, eöalsteinar og
önnur verðmæti áttu að vera þar svo
örugglega geymd aö jafnvel ekki
varömenn eöa annaö starfsfólk átti
að geta falliö fyrir freistingum.
Innandyra hjá Brinks Mat voru þó
engir næturveröir. Ekki svo mikið
sem einn varöhundur. Svo mjög
reiddi fyrirtækiö sig á rafeinda-
búnaðinn aö honum þótti betur
treystandi en manneskjum. Þaö
verða t.d. ekki bornar mútur á raf-
búnaö. Líkur á mannlegum mis-
tökum þóttu meiri en hættan á að
hinn sjálfvirki búnaöur biiaöi. Það
þótti jafnvel öruggara aö enginn
varðmaöur kæmi inn í húsið svo aö
hann gæti ekki af slysni truflað
búnaðinn.
Há fundarlaun
Lögreglan hefur haft til rækilegrar
yfirheyrslu hvern einasta starfs-
mann fyrirtækisins til þess aö grufla
upp allar þeirra feröir og annaö at-
ferli. Leitaöur er uppi hver einasti
maður sem erindi hefur átt í öryggis-
geymsluna síöustu sex mánuöina.
Þaö er hennar eina von aö finna
þannig eitthvert spor til þess aö
rekja. Lloyds tryggingarfélagiö
leggur sitt traust hins vegar heldur á
verölaunin, nær 90 milljónir króna,
sem heitiö er hverjum þeim er
hjálpaö geti lögreglunni aö finna
ræningjana.
Innbrotiö var framiö á laugar-
dagsmorgni fyrir rúmri viku. Ber
fréttum ekki saman um atburðarás-
ina. Klukkan 06.30 var ráöist á varð-
mann á lóðinni og voru ræningjamir
þá komnir inn um fyrsta hliöiö.
Hvernig þeir komust þaö vill lögregl-
an ekki upplýsa. Ræningjarnir voru
klæddir einkennisbúningum öryggis-
varða og hafa greinilega getaö tekiö
viðvörunarkerfi hliðsins úr sam-
bandi.
Hótuðu að brenna vörðinn
Dagvaktin kom tíu mínútum síðar
á staðinn. Fimm varömenn, sem
allir voru yfirbugaöir og handjám-
aöir. Einn var sleginn meö skamm-
byssu í höfuöið. Annar var gegn-
vættur í bensíni og honum hótað aö
kveikt mundi í honum, ef hann ekki
ljóstraði upp, hvemig hægt væri að
taka annað viðvörunarkerfi úr sam-
bandi. Eftir þaö gátu ræningjamir
athafnað sig aö vild. Þeir óku
flutningabíl sinum inn í geymsluna
og meö lyftara fyrirtækisins hlóðu
þeir á hann þeim stærsta og þyngsta
gullfjársjóöi sem nokkm sinni hefur
veriö stolið í Stóra-Bretlandi.76 stál-
bláir kassar meö 6800 stimpluðum og
númeruðum gullstöngum plús einn
kassi af slípuðum og óslípuöum
demöntum.
Klukkan 08.15 höföu þeir lokið sér
af og óku burt. Stundarfjóröungi
síðar tókst einum veröinum að losa
sig og gera viðvart.
Engin slóð
Verðimir gátu frá litlu ööm sagt,
Heathrow-flugvöllur Lundúna hefur fengiO margar heimsóknir meistaraþjófa, enda stundum uppnefndur
,, Thiefrow" (Þjófatröð).
Þannlg líta gullhleifarnir út sem rœnt var & Heathrow en auðvelt er að
mi burt stimpilmerkin og númerin eða bræOa gulliO.
stærsta flughöfn í heimi, og London
er stærsta bankamiðstöð í heimi.
Myntir margra landa eru slegnar í
London og peningaseölar margra
ríkja sömuleiðis prentaöir þar. Gull,
demantar og fúlgur fjár em á
stööugu renneríi út og inn um
Heathrow.
Hinir fingralöngu gestir, sem lagt
hafa leiö sína á Heathrow hafa fæstir
verið smátækir. Og þeir eiga þaö nær
allir sameiginlegt aö vera í flokki
þeirra sem kallast mega meistara-
þjófar. Svo rammt hefur kveöiö aö
ásókn þeirra að Heathrow er
stundum uppnefndur Thiefrow
(Þjófatröö). Fyrir nokkmm ámm
skeöi þaö að lögreglan lagöist í leyni
við eina vömskemmuna eftir
ábendingu um aö þær ætlaði einhver
þjófaflokkurinn aö brjótast inn.
Ábendingin reyndist rétt og þjófarnir
vom gripnir við verkiö. En á sömu
stundu og lögreglan var önnum kafin
viö að handsama þennan þjófa-
flokkinn var brotist inn í annaö
pakkhús hinum megin á
flugvellinum. Þar sluppi þjófamir
meö tugmilljóna verðmæti.
Lestarránið mikla
Þaö er taliö aö rán, sem f ramið var
á Heatbrow í byrjun sjöunda áratug-
aríns, hafi lagt til fjármagniö i lest-
arrániö mikla 1963. Bófaflokkur
undir forystu lestarræningjans
Ronalds Biggs slapp í það sinn meö
120 póstsekki og um 150 millj. kr.
í gömlum notuöum peningaseölum
sem voru á leið í brennsluofna seöla-
bankans. Ræningjarnir stöðvuöu
póstlest í Buckinghamskíri aö fyrir-
mynd útlaga villta vestursins. Var
ekki laust viö aö framkvæmd ránsins
og stórtækni þjófanna vekti aðdáun
ævintýramanna og jafnvel laganna
varöa sjálfra. Biggs og nokkrir
ræningjanna náöust og voru dæmdir
til langrar fangelsisvistar en Biggs
tókst aö strjúka úr fangeisinu meö
ævintýralegum hætti og fór huldu
höfði í mörg ár. Loks haföist upp á
honum í Brasilíu þar sem Scotland
Yard reyndi aö fá hann framseldan
án árangurs. Biggs var rænt og
honum smyglaö til Karíbaeyja,
þar sem Bretar hafa mikil ítök, en
heimsálitið reis svo upp gegn slíkum
aðferöum aö ekki þótti stætt á öðru
en leyfa honum aö snúa óáreittum
aftur til Brasiliu.
150 milljónirnar úr lestarráninu
mikla var á þeim tíma stærsti ráns-
fengur sem um gat í allri sögu Stóra-
Bretlands. Þaö met hefur síöan verið
slegið nokkrum sinnum. Meðal
annars 1975 þegar gull og skartgripir
aö verömæti um 450 milljónir króna
voru teknir úr Lundúnadeild
Ameríkubanka.
örygglsgeymsla Brinks Mat, en þaOan var ræntþrem smálestum afgulli.