Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1983, Page 13
DV. MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER1983.
13
Það varðar framtíð
Skíðaskálans f Hveradölum
Kjallarinn
Fyrir borgarráöi liggur tillaga frá
Iþróttaráöi Reykjavíkurborgar um
kauplelgusamning viö Carl Jonas
Johnsen, eiganda Veislumiöstöðvar-
innar, um Skíðaskálann i Hvera-
dölum.
Samningurinn er til fimm ára en
aö leigutíma loknum skal leigutaka
heimilt aö kaupa Skíöaskálann
ásamt leigulóðarréttindum og
búnaði öllum fyrir verö sem ákveöið
skal af tveimur sérfróðum mönnum
er aöilartilnefna.
Grein þessi er skrifuö til aö vekja
athygli þeirra sem unna skíöaíþrótt-
inni á því hvaö hér er á seyði: hér er
ekki um aö ræöa einfalda leigu á
Skíöaskálanum í Hveradölum heldur
öölast leigutaki óskoraðan rétt til að
kaupa Skíðaskálann aö fimm árum
liönum.
Fréttafíutningur
I fréttum hefur þetta mikilvæga
atriöi aldrei komiö fram. 1 DV 2.
nóvember segir m.a.: „Iþróttaráö
Reykjavíkurborgar frestaöi að taka
ákvörðun um þaö á fundi sínum í
fyrradag hverjum verði leigður
Skíöaskálinn í Hveradölum og veröa
því þeir fjórir aðilar sem lýst hafa
yfir áhuga sinum á skálanum aö bíöa
enn í tvær vikur eftir úrslitum.” Og
eftir ákvörðun íþróttaráðs segir DV:
„Seint gengur að taka ákvöröun um
hverjum verði leigður Skiöaskálinn í
Hveradölum. Iþróttaráö Reykja-
víkurborgar hefur afgreitt máliö frá
sér og sent borgarráöi til staöfesting-
ar.”
Miðstöð skíðagöngumanna
Skíðaskálinn í Hveradölum var á
sínum tíma byggður með miklu fé-
lagslegu átaki. Bygging hans var
fyrsta myndarlega framtakiö á sviöi
skíöaíþróttarinnar, markaöi tíma-
mót og hleypti nýju blóöi í íþróttina.
Fátt er jafnheillandi og ganga á
skiöum yfir mjúkar fannbreiður
móti hækkandi sól.
Skíöaíþróttin er undirorpin tísku-
sveiflum eins og svo margt annaö. Á
undanförnum árum hefur Reykja-
víkurborg ásamt nágrannasveitarfé-
lögunum lagt mikinn metnaö og fjár-
magn til að byggja upp aöstööu til
skiðaiðkana i Bláfjöllum. Um skeiö
var áhuginn mestur fyrir alpa-
greinum meö tilheyrandi lyftum og
sami skíðaútbúnaöur hentaði ekki
lengur til gönguferða og svigs.
KR-ingar héldu þó fast viö Skála-
fellssvæðiö, góðu heilli, enda eru
brekkur þar góöar og aflíöandi og út-
sýni fagurt á góöviörisdögum. Ekki
dró nýja lyftan þeirra KR-inga úr aö-
sókn í Bláfjöllin sem sýnir mikinn,
almennan og vaxandi áhuga á skíða-
íþróttinni.
A þessu „lyftuskeiði” hefur Skíða-
skálinn í Hveradölum fallið í skugg-
ann. En núna hafa skíðagöngur orðið
vinsælar á ný og áhugi á þeim á eftir
aö vaxa gífurlega, enda heilsusam-
legri og hættuminni íþrótt en svigið
og góö tilbreyting f rá brekkunum.
Einar B. Pálsson, fyrrverandi for-
maður Skíöasambands Isiands,
hefur sagt mér aö Hellisheiðarsvæð-
iö sé miklu f jölbreyttara en Bláf jöll-
in. Og fyrir skiöagöngufólk heillar
heiðin að nýju og fær aödráttarafl.
Ef rétt væri aö málum staðið ætti
Skíöaskálinn í Hveradölum aö veröa
að nýju miöstöö skíöagöngumanna.
Svæðiö er aðgengilegra en Bláfjalla-
svæðið. I raun er hægt að stíga á
skíðin viö þjóðveginn. Nokkrir hafa
fundið aö því aö snjór fari fljótt af
þessu svæöi. Þaö á aðeins við um
brekkurnar en fannbreiðumar hald-
ast lengi á heiöinni sjálfri. Viö Skíöa-
skálann ætti að leggja áherslu á
skiöakennslu fyrir byrjendur, og aör-
ir geta gengiö um heiöina og notiö
feguröar og fjölbreytileika náttúr-
unnar og fengið sér hressingu í
skálanum, og jafnvel gist þar yfir
nótt eins og foröum daga.
Komið hefur fram sú hugmynd aö
tengja skíðasvæðin saman, því að
þreytandi getur verið til lengdar aö
ganga í tóma hringi.
öryggisstaður
Einu má ekki gleyma: Skíöaskál-
inn gegnir mikilvægu öryggishlut-
verki við f jölfarinn f jallveg, þar sem
engin byggð er á löngu svæöi allt frá
Hveragerði til Gunnarshólma.
Það var Skíðafélag Reykjavíkur
sem reisti skálann árið 1935. A ýmsu
hefur gengiö meö rekstur hans en
áriö 1971 keypti Reykjavíkurborg
skálann, en Skíðafélagiö hefur haft
aöstöðu þar. Ljóst er að borgaryfir-
völd hafa ekki sýnt Skíöaskálanum
þann áhuga og alúö sem þurft heföi
enda áhuginn beinst aö Bláfjalla-
svæðinu.
Þaö er dýrt aö halda við gömlum
húsum. En þaö er líka dýrt aö byggja
Gullinbrú yf ir Grafarvoginn.
Ekki óskað umsagnar SR
Það er athyglisvert aö ýmsir
frömuðir innan skiöaíþróttarinnar,
sem jafnvel eiga sæti í stjórn Skíöa-
félags Reykjavíkur, höföu ekki hug-
mynd um þaö hvað hér er í bígerð
fyrr en í síðasta mánuði. Og ekki
hefur verið leitað eftir umsögn eöa
áliti þeirra.
Eitt er víst: Verði skálinn seldur
einkaaöila höfum viö enga tryggingu
fyrir nýtingu hans í framtíðinni, viö
höfum ekki einu sinni tryggingu fyrir
því aö skálinn verði til. Það verður
komiö undir geöþóttaákvörðun eig-
anda hans.
Þegar umsóknir um leigu á Skiða-
skálanum voru lagöar fram í borgar-
ráöi 29. nóvember sl. komu fram
tvær tillögur frá fulltrúum minni-
hlutans sem báöar miöa aö því aö
horfið verði frá kaupleigusamningi.
Tillaga Sigurjóns Péturssonar
hljóöarsvo:
„Borgarráö samþykkir aö beita
sér fyrir samstarfi sveitarfélaga á
Gerður Steinþórsdóttir
• „Það er dýrt að halda við gömlum húsum.
En það er líka dýrt að byggja Gullinbrú
yfir Grafarvoginn.
höfuöborgarsvæðinu og í nágrenni
skálans svo og ríkisins um nýtingu
Hengilssvæöisins sem útivistar-
svæðis.
Miöað veröi við, aö skíðaskálinn í
Hveradölum veröi þjónustumiðstöð
svasöisins.
Vegna kaupleiguútboös á skíöa-
skálanum samþykkir borgarráð aö
taka upp viðræður við bjóðendur.
Miðaö sé viö, aö borgin eigi, að leigu-
tíma liðnum, rétt á að leysa til sín
þaö sem leigutaki hefur lagt í endur-
nýjun og endurbætur á skálanum.”
Kristján Benediktsson lagöi fram
svohljóöanditillögu:
„Borgarráö samþykkir, að í
samningum um leigu Skíöaskálans í
„Aðalatriðið er aó Skíðaskálinn /Hveradölum verói ekkiseldur, eð henn fari ekki úr höndum iþróttehreyf-
ingarinnar, eÓ hann verði að nýju miðstöð skiðagöngumanna."
Hveradölum veröi ekki ákvæði um
kauprétt væntanlegs leigutaka.”
Afgreiðslu var frestað.
Þaö var 10. nóvember sem ég bar
fram fyrirspum í borgarstjórn þess
efnis hvaö tilboö i leigu á Skiöa-
skálanum í Hveradölum fælu í sér.
Reifaöi ég viö þaö tækifæri þá hug-
mynd að fleiri aðilar kæmu inn í
rekstur Skíðaskálans, svipað og í
Bláfjöllum. Á síöasta borgar-
stjómarfundi, 1. des., tók ég málið
aftur til umræðu og kom fram hjá
meirihlutanum aö rétt væri aökanna
þann möguleika sem kæmi fram í
tillögu Sigur jóns Péturssonar.
Aðalatriöið er aö Skíöaskálinn í
Hveradölum verði ekki seldur, aö
hann fari ekki úr höndum íþrótta-
hreyfingarinnar, að hann veröi aö
nýj u miöstöð skíðagöngumanna.
Áhugamannaféiag um
Skíðaskélann
1 samtölum mínum við formann
Skíöaráös Reykjavíkur og fleiri
hefur sú hugmynd verið reifuö að
stofnað veröi áhugamannafélag um
Skíöaskálann í Hveradölum og varö-
veislu hans. Skíöaráð Reykjavíkur
hafi forystu í því máli en einstakling-
ar, sveitarfélög og ríkí komi til iiös
við þaö.
Ég vil hvetja alla skíðaunnendur
aö taka höndum saman um andur-
reisn Skiöaskálans í Hveradölum.
Hann er sögulegur minnisvaröi um
upphaf skiöaíþróttarinnar sem al-
menningsíþróttar, tákn um áhuga og
stórhug frumherjanna.
Við höfum þörf fyrir þessi þrjú úti-
vistarsvæði í nágrenni höfuöborgar-
innar: Bláfjöll, Skálafell og Hellis-
heiöarsvæðiö. Þau hafa hvert og eitt
sín sérkenni og sjarma og nauðsyn-
legt er aö skíöamannahópurinn
dreifist umsvæðin.
Gerður Steinþórsdóttir
borgarfulltrúi.
lagslega vandamáli, sem hann fjallar
núum.
Reiður maður
Fyrrverandi námsstjóri í samfélags-
fræðum lætur líka gamm sinn geisa í
blööunum. M.a. vísar hann mér á föður
minn tU þekkingaröflunar í skólamál-
um og fyrrum menntamálaráöherra,
Gylfa Þ. Gíslasonar, mér til skoðana-
myndunar. Ég legg tU, aö námsstjór-
inn fyrrverandi ræöi miUUiöalaust við
þessa heiðursmenn. Ég er ekki viss um
aö hann væri jafnfús tU þess að skjóta
málstaö sínum undir úrskurð þeirra
eftir þær viöræður og ég er nú.
Sama máli gegnir um þaö hald hans,
aö ég hafi ekki lesiö skýrslu sem hann
samdi fyrir embættismannanefnd á
vegum þingmannasambands NATO
um kennslu í samfélagsfræði og ég
hafði mUUgöngu um að útvega. Þar
veit hann s jálf ur að hann fer meö rangt
mál.
Reiði í stað raka
Þá ber reiðin rökhyggju hans ofur-
Uði. Hann leggur til aö ég þegi fremur
en segi af þeirri ástæöu, að prýöisgott
alþýðuflokksfólk hafi veriö viöstatt
samningu námsskrár og skripioröa-
smíð. Hvort á viðveran að vama mér
skoðunar eöa varna mér máls? Telur
maöurinn, að hlutverk kennara með
flokkspóUtískar skoöanir sé að mynda
múra póUtískrar samtryggmgar utan
. um ákvarðanir skólarannsóknardeUd- :
ar og fræðsluyfirvalda?
Hvaöa öðru hlutverki á sh'kt fólk að
gegna veröi samherjum þess á að
gagnrýna fræösluyfirvöld? Kæra
viökomandi fyrir flokksstofnunum?
Hver heldur maöurinn aö takist slUt
verkefni á hendur? Hvað myndi þaö
nefnast á máli samfélagsfræðinnar?
Gott eða vont námsefni
Ég efa ekki, aö hið nýja námsefni
samfélagsfræðinnar er gott í mörgum
greinum. Spurningin er hvaöa öðru
námsefni er þokað til hliðar svo að það
komist aö. Þehrar spurningar gleyma
menn oft að spyrja. Þannig met ég
meira 20 blaðsíöna fróöleUt um sum
rismestu tímabil þjóöarsögunnar en
Kjallarinn
Sighvatur Björgvinsson
jafnlanga frásögn af samfélagi baví-
ana — jafnvel þótt miklum fjárfúlgum
hafi verið varið til vísindalegra rann-
sókna á því síðamefnda svo aö vitnað
sé í grein hins fyrrverandi námsstjóra.
(Þaö hefur raunar Uka verið gert varö-
andi samfélög termíta og býflugna.
Eru það rök fýrir því, að t.d. sjálf-
stæðisbarátta Islendinga sé vikið til
hUöar úr námsskrá grunnskóla svo aö
termítar og býflugur komist þar fyrir
viö hlið bavíana?)
í góðum félagsskap
Islandssagan er síöur en svo ein á
báti. Hún er í góöum félagsskap meö
íslenzkri landafræði. I Velvakanda
Mbl. skýrði kennari í Kópavogi frá því
nú á dögunum, að í námsskrá 4. bekkj-
ar grunnskóla væri búið aö þoka burtu
kennslu um landafræði Islands fyrir
öðru námsefni. I 5. bekk er áherslan
svo lögð á PóUand. I 6. bekk á
Tansaníu.
Þá hafa fræösluyfirvöld reynt aö fá
grunnskóla tU þess aö taka upp
dönskukennslu i 10 ára bekk þar sem
margir nemendur eiga fullt í fangi með
sitt eigið móðurmál. Hver skóUnn af
öörum hefur snúist tU varnar. Heldur
skólarannsóknardeild sig geta haldiö
þessu leyndu?
Því reiðast goðin
Margt hefur vel veriö gert í skóla-
málum á Islandi. Annað miklu miður.
M.a. vegna þess, aö ýmsar ákvaröanir
eru í ætt viö trúboð — mótaðar af
persónulegu Ufsviöhorfi og pólitískum
skoðunum stjómenda, sem ekkert eiga
skylt viö vísindi og fræði þótt reynt sé
aö hengja sUka merkimiöa á fram-
kvæmdina m.a. með tilbúningi
merkingarlausra oröskrípa. Einnig
vegna þess, aö sumir, sem veljast tU
stjórnunar og stefnumótunar um
námsefni og kennsluhætti, hafa sjálfir
ýmist enga eða mjög slæma reynslu af
kennslu barna og ungUnga.
Fræðslumál eru ekkert einkamál
skólarannsóknardeUdar og náms-
stjóra. Þessar stofnanir eiga ekki aö
vera trúboðsstöövar heldur opnar fyrir
umræöu og gagnrýni. Ofurviökvæmnin
fyrir réttmætu háöi um málfræðUegan
voodooisma og oröskrípasmíð í þroska-
heftum fræðsluyfirvalda kemur upp
um snöggu blettina. Því reiöast goöin.
Þess átti ég von. Mér er alveg sama.
Þeim f jöhnörgu m.a. í hópi reyndra
- skólamanna og kennara, sem haft haf a
samband viö mig, sent mér kveðjur og
skUaboð meö þakklæti fyrir að hafa
opnað þessa umræöu, kann ég bestu
^þakkir.
Sighvatur Björgvlnsson,
fyrrv. alþingismaður.
• „Fræðslumál eru ekkert einkamál skóla-
rannsóknardeildar og námsstjóra. Þessar
stofnanir eiga ekki að vera trúboðsstöðvar
heldur opnar fyrir umræðu og gagnrýni.”