Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1983, Síða 16
Spurningin
.£8eíHaawa?.an VHTjnAtTUjjrvorM vn
DV. MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER1983.
Peningaspil eða leiktæki?
Hvað finnst þér skemmtileg-
ast við jólin?
Daði Kárason: Það er skemmtilegast
að fá pakkana og svo að fá góðan mat.
Gunnlaug Þorláksdóttir skrifar:
Borgaryfirvöld hafa nýlega sam-
þykkt reglur um rekstur leiktækja. Nú
má ekki hafa leiktæki í svokölluðum
sjoppum en hins vegar er heimilt að
reka stóra leiktækjasali einungis ef
viðkomandi hefur veitingaleyfi. U.þ.b.
240 leiktæki eru í notkun í leiktækjasöl-
unum en einungis nokkur tæki, 15—20
í sjoppum og biðskýlum, en meginuppi-
staða þeirra eru leiktæki sem Knatt-
spyrnufélagið Þróttur hefur fengið að
hafa í stærri sjoppum og biöskýlum og
það í mjög góðri samvinnu við eigend-
ur staöanna.
Samkvæmt nýju reglunum á að f jar-
iægja strax þessi örfáu leiktæki úr
sjoppum og biöskýlum á meðan leik-
tækjasalirnir bæta stööugt við sig og
nýir staöir spretta upp eins og gorkúl-
ur.
Haröast bitna þessar aðgerðir á
Knattspyrnufélaginu Þrótti sem rekið
hefur nokkur leiktæki á ofangreindum
stöðum til að afla starfsemi sinni fjár.
Svo undarlega bregður við að á sama
tíma sem verið er að bera leiktækin út
úr sjoppum og biðskýlum eru peninga-
spil Rauöa krossins látin í friði þrátt
fyrir að þar sé um að ræða hreinræktuð
peningaspil eins og þekkjast í spilavít-
umerlendis.
Staðreyndin er sú aö þessi peninga-
spil leiöa margan unglinginn út í enn
frekari og alvarlegri peningaspil
þannig að margir verða ofurseldir
spilafíkninni. Eru dæmi þess að ungir
Ingibjörg Þórðardóttir: Mér finnstj
aðfangadagur skemmtilegastur. Þá
fæddist Jesús. Jólin eru hátíð ljóssins.
Hrafn Þórðarson: Fá pakka og gott að
borða. Svo er gaman að fara á jóla-
skemmtanir og sofa út i fríinu. Jólin
eru hátíö afslöppunar og allsnægta.
Peningaspil Rauða krossins loiða margan ungiinginn út i ann frokari og alvarlogri poningaspil þannig að
margir vorða ofurseidir spiiafikninni, sagir bréfritari.
menn hafi tapað aleigu sinni í peninga-
spilum.
Mér finnst miklu eölilegra að leyfa
rekstur leiktækis í sjoppu eða biðskýl-
um heldur en peningaspils og ég vil
skora á Rauöa krossinn að hætta þess-
ari starfsemi. Fram hefur komið í
blöðunum að einungis tveir aðilar hafi
heimild til slfks reksturs, þ.e. Rauöi
krossinn og SÁÁ en að SÁA hafi
ákveðið að notfæra sér ekki þetta leyfi.
Finnst mér þeir hjá SAA eigi þakkir
skildar fyrir að falla ekki í þá freistni.
Mér finnst að borgaryfirvöld eigi að
gera allt sem i þeirra valdi stendur til
að Knattspymufélagið Þróttur verði
ekki svipt þessu viðurværi sínu enda
veit ég til þess að rekstur leiktækja
þeirra hefur engu ónæði valdið og
énginn kvartað yfir þessari starfsemi
svovitaðsé.
Heimir Þór Hermannson: Maturinn og
pakkamir. Allt umstangið sem fylgir
jólunum, svo og fríið. Þaö er ágætt aö
vera laus við skólann.
ristin Ölafsdóttir: Þá fæddist Jesús,
; stemmningin i kringum hátiðina er
ca skemmtileg. Svo er gaman aö
>na pakkana, og taka þátt í undirbún-
gnum sem fylgir jólahaldinu.
ggi®
Aslaug Guðmundsdóttir: Fá pakka og
fara í kirkju. Annars er bara allt
skemmtilegt við jólin.
Hér má sjá ainn af örfium isianskum Formula-1 ökumönnum A fuiiri ferö. en bráfritari viiifáað sjá meira fri slíkri keppni.
Iþróttaþáttur sjónvarpsins:
Lítið sýnt af akstursíþróttum
Þórður Helgason skrif ar:
Fyrir íþróttaþáttinn laugardaginn
26. nóvember var auglýst að sýnt yrði
frá akstursíþróttakeppni og fleiri
íþróttaviðburðum.
Sem unnandi akstursíþrótta hélt ég
að nú kæmi loksins ein „sæmileg”
(annað væri bjartsýni) rallmynd í
íþróttaþætti Ingólfs Hannessonar.
Eg, og sjálfsagt margir fleiri, varð
fyrir vonbrigðum þó ég hafi ekki vænst
mikils af akstursiþróttaefni í sjónvarp-
inu. Sýndar voru innan við 39 sekúndur
af því efni og síðan kom næsta atriöi,
eitthvert sprikl sem fáir hafa gaman
af.
Það var og, eitt af sex áður auglýst-
um atriðum íþróttaþáttarins var 39
sekúndur að lengd. Ekki skil ég hvers
vegna þættinum voru ætlaðar 110
minútur í dagskránni þennan dag
(fyrir utan beinu útsendinguna frá
Englandi).
Þetta rifjar upp að í vor sýndi Bjami
Felixson heilar 47 sekúndur frá akstri
.Ji’ormula 1” bila, þá var það líka
auglýst fýrirfram. Stuttu síðar sló
Ingólfur metið og sýndi 37 sekúndna
atriöi frá sams konar keppni. Það skal
tekið fram aö skeiðklukkur voru
notaöar til tímatöku í öllum tilvikum.
Eg hef þó séö ljósan punkt í íþrótta-
þætti hjá Ingólfi, þegar hann fjallaði
um ,,moto-cross”-keppni í sumar. En
hlutfall akstursíþrótta er svo litið, mið-
að við vinsældir efnisins, að það er
bæði Bjarna og Ingólfi til skammar.
Úrvar
KJÚRINN
FÉLAGI
Alkóhólisminn er kominn í tísku
Fyrrverandi eiginkona drykkju-
manns, hringdl:
Þessa dagana stendur yfir sala á
happdrættismiöum til styrktar SÁÁ,
fer það víst framhjá fáum. Söfnunar-
herferö þessi er blásin upp í blöðum
og á opinberum vettvangi, eins og
þar sé á ferðinni eini málstaöurinn
sem okkur skiptir einhverju máli. En
það eru fleiri sem safna fé, það gera
þeir á hljóðlátan hátt, þeir vinna
störf sín í sjálfboðavinnu og sýna að
þeir kunna aö meta þann stuðning
sem þeim er sýndur.
A meðan bygg ja SAÁ menn s júkra-
stöð sína, landsmenn verða allir aö
gefa, hér er á ferðinni of mikilvægt
málefni til aö nokkur megi skorast
undan. En hvað leggja þeir menn
sem þurfa á þessari stöð að halda á
sig? Vinna þeir sjálfboðavinnu viö að
reisa sjúkrastöð sína? Þama eiga
— segir bréfritari
þeir eftir að koma í meðferð með
reglulegu millibili. Þessir menn sem
eru orðnir óskaböm þjóðarinnar,
haga sér eins og ofdekraðir smá-
krakkar. Þeir heimta allt en hvað
gefa þeir í staðinn? Era þeir of góðir
til að vinna í eigin þágu? Allir hafa
þessir menn til að bera líkamlega
heilsu til að stunda vinnu í eigin
þágu, þó það sé ekki hægt að segja
um alla þá sem á f járstuðningi þurfa
aðhalda.
Eg er einstæð móðir með veikt
bam á framfæri og get ég ekki
stundað vinnu vegna veikinda bams-
ins. En faðir krakkans, sem er fyrr-
verandi drykkjusjúklingur, neitar
allri f járhagsaðstoð við okkur fram-
yfir það sem honum er gert skylt að
greiða, þ.e.a.s. meðlag og þess hátt-
ar. Það getur hann gert á meöan
hann biöur alla landsmenn að hjálpa
sér og sinum likum að reisa sjúkra-
stöð. En þessir menn era greinilega
ekki tilbúnir aö aöstoða aðra.
Islendingar, stöðvum þennan tví-
skinnungshátt sem rikir i fjársöfn-
unarmálum. Ekkert eitt málefni er
öðru fremra, gerum öllum jafnhátt
undir höfði.
En við verðum að taka
alkóhólisma af listanum yfir tisku-
fyrirbrigði, með því gerðum við
drykkjusjúklingum og okkur sjálfum
stóran greiða. Nú þykir orðið fínt að
vera alkóhólisti og enginn er maöur
með mönnum nema hann hafi farið í
meðferð. Engin þjóð hefur gott af
slíkum tískufyrirbrigðum, ráðum
þess í stað bót á vandamálum okk-
ar, hver sem þau eru, á hljóðlátan
hátt.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur