Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1983, Blaðsíða 25
i'W i t’ ric<v*»- r.',. x r t nm t nTV'.nt.Wl.í 'lsrt
DV. MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER1983.
Nýjar bækur
.\».-\T. ii.\" !í .\ '>S< j\ i
Eðli drauma
eftir Matthías Jónasson
Bókaútgáfa Menningarsjóðs hefur
gefiö út ritiö Eðli drauma eftir dr.
Matthías Jónasson, en þar er um aö
ræöa tilraun til sálfræðilegrar túlk-
unar á þessu margflókna viöfangsefni.
Um erindi bókarinnar segir svo á
kápu:
Djúptæk þáttaskil hafa oröið í
draumrannsóknum á þessari öld.
Menn leita ekki lengur aö forspá í
draumum, heldur að þeim hræringum í
vitund dreymandans sem þeir spretti
af. Þetta er í samræmi við þróun
þeirra vísinda sem nú leggjast á eitt
um aö skýra eðli drauma. I staö þess
aö leita út fyrir hiö mennska sviö
skyggnast draumfræðingar 20. aldar
inn í vitsmuna- og tilfinningalíf
einstaklingsins og meta áhrif þeirrar
geðrænu reynslu sem hann kann að
hafa orðiö fyrir.
Eöli drauma skiptist í tvo aöalhluta.
Nefnist hinn fyrrí: Svefn og draumar í
ljósi lífeölisfræöinnar, en hinn seinni:
Hugrænar draumfræöikenningár.
Kaflar bókarinnar eru alls nítján og
fjalla um geysivíðtækt efni er höfðar
jafnt til leikara sem lærðra.
Matthías Jónasson er í hópi kunn-
ustu og afkastamestu rithöfunda okkar
um vísindaleg efni nú á dögum. Er
þetta tólfta bók hans, og hafa hinar
fyrri hlotið miklar vinsældir og tryggt
höfundi virðingarsess meöal íslenskra
fræöimanna.
Eöli drauma er 299 blaösíöur aö
stærö og bókin unnin í Prentsmiðju
Hafnarfjaröar.
OTíirgif
Sandemo
Vetmrhríú
Útilegumenn
og auðar tóttir
Ólafur Briem:
Bókaútgáfa Menningarsjóös hefur
gefið út í annarri útgáfu endurskoöaöri
og aukinni rit Olafs Briems Utilegu-
menn og auöar tóttir, en frumútgáfan
frá 1959 er löngu þrotin. Segir svo á
kápu um höfundinn, bókina og hina
nýjuútgáfuhennar:
Bók þessi lýsir útilegumannabyggö-
um sem frá greinir í íslenskum
heimildum fornum og nýjum og telst
því fræöileg rannsókn. Jafnframt
lýkur höfundur upp hulduheimi þjóö-
sagna og þjóötrúar og ber saman við
staðreyndir. Mun lesendum þykja sá
fróðleikur skemmtilegur og mark-
verður enda um hann fjallað af vand-
virkni og hugkvæmni.
Bókina prýöa fjölmargar ljós-
myndir, flestar eftir Gísla Gestsson,
fyrrum safnvörö, sem einnig hefur
samiö þrjá kafla hennar og stjórnað
þeim fornleifarannsóknum er gerðar
voru.
Olafur Briem fyrrum menntaskóla-
kennari á Laugarvatni er bæöi mikil-
hæfur fræöimaöur og listrænn rit-
höfundur. Bækur hans aðrar en
Utilegumenn og auðar tóttir eru:
Norræn goöafræöi (1940), Heiöinn
siöur á Islandi (1945), Vanir og Æsir
(1963) og Islendingasögur og nútíminn
(1972).
Utilegiunenn og auðar tóttir er 188
blaðsíður aö stærð. Bókin er sett,
prentuð og bundin í prentsmiðju
Hafnarfjaröar. Kápu geröi Siguröur
Örn Brynjólfsson.
ilegumenr
oq auðar
íslenskir
sagnaþættir
II bindi
Samantektir af Gunnari Þorleifs-
syni. Efniö er tekið saman úr ýmsum
áttum, úr gömlum blööum og bókum.
Hugmyndin er aö halda þessari útgáfu
áfram og birta smám saman þætti alls
staöar aö af landinu, gamla og nýja, og
mun kappkostað að hafa efnið sem
fjölbreytilegast. I þessu II. bindi Is-
lenskra sagnaþátta eru m.a. þessir
þættir. Sagnaþættir, þjóölífsþættir,
skipströnd, þættir fyrri alda, sérkenni-
legir menn o. fl. Utgefandi er Hildur.
Frú Pigalopp
og jólapósturinn
Frú Pigalopp er mikil kjarnakona
sem á heima í Þúsunddyrahúsinu uppi
á hæðinni fyrir ofan litla bæinn.
I fyrra týndust öll jólakortin hennar í
póstinum svo aö hún ákveður aö vinna
sem aukapóstur fyrir þessi jól. Þá
getur hún sjálf séö um aö jólapóstur-
inn hennar komist á áfangastað.
En margt fer öðruvísi en ætlað er.'
Þótt frú Pigalopp sé þaulreyndur póst-
ur og eigi meira aö segja heimsmet í
hraöpóstferð, þá verður margt til að
tefja hana: Hún þarf aö fylgjast með
jólabakstrinum hjá Hleifi og Kringlu,
kenna fyrir frú Döölu Stöng á mat-
reiðslunámskeiði, eltast viö pantilóp-
una hans Ljóngeirs dýrasala, breyta
Hattargötu í jólagötu ársins, skoöa
risaplönturnar hans Garömundar
handavinnukennara, stilla til friöar
hjá fjölskyldunni Ro & friöi; og margt,
margt fleira.
Frú Pigalopp og jólapósturinn er.
skemmtileg og jákvæö barnabók um.
síglaða konu sem metur lífiö meira en
lífsgæöi. Bókin er prýdd á annaö
hundraö fallegra og sérstæðra lit-
mynda.
Bókin er 173 bls. aö stærö. Hún er
sett og filmuunnin hjá Odda hf. A/S
Reistad Offset í Osló prentaði.
Hamskiptin
eftir Kafka í endurskoðaðri
þýðingu'
Iöunn hefur gefiö út Hamskiptin,
sögu Franz Kafka í þýöingu Hannesar
Péturssonar. Bókin er gefin út í tilefni
þess að í ár er öld liðin frá fæðingu
Kafka, eins hinna miklu brautryöjenda
nútímalegs skáldskapar í lausu máli.
Hann hefur haft drýgri áhrif í
bókmenntum aldarinnar en flestir
höfundar aörir, en Hamskiptin er hin
eina af lengri sögum hans sem þýdd
hefur veriö á íslensku fram til þessa.
Sagan kom út í þýöingu Hannesar Pét-
urssonar árið 1960 og er sú útgáfa
löngu horfin af markaði. Nú hefur
Hannes endurskoöaö þýöinguna og
breytt henni verulega, svo aö í raun er
um nýja þýöingu aö ræöa.
Hamskiptin samdi Kafka áriö 1912
og var langlengsta saga höfundar sem1
birtist aö honum lifandi. Sagan er
„mjög sérstæö og áhrifamikil, reyndar
um margt ógnþrungin”, segir í kynn-
ingu forlagsins: „Hún er fléttuð
ýmiss konar tilvísunum og táknum
sem eiga sér undirrætur í lífi skáldsins
sjálfs, en öðlast víddir langt út fyrir
þaö, eins og er aðalsmerki mikillar rit-
listar.”
Bókin er 111 blaösíöur. Oddi
prentaði.
HAMSKIFTIN
Vetrarhríð
„Vetrarhríö” er tíunda bókin í bóka-
flokknum Sagan um Isfólkiö eftir Mar-
git Sandemo, sem Prenthúsiö hefur
gefið út.
Villimey Kalebsdóttir er aðeins
sautján ára þegar hún verður yfir sig
ástfangin af Eldari frá Svartaskógi
sem er átta árum eldri en hún. Það
stoöar lítið þó aö allir segi að Eldar sé
af illum ættum og samviskulaus
kvennabósi.
Viliimey verður aö gjalda trú sína á
Eldar dýru verði því að hann hefur
blandast bæöi í uppreisn og blóðhefnd
þó aö ungur sé...
Bókaflokkurinn Sagan um Isfólkið
hóf göngu sina á síðasta ári og hefur
hann fengiö mjög góöar viötökur enda
Margit Sandemo einn vinsælasti rit-
höfundur á Noröurlöndum.
ÍSLENSKIR
SAGNAÞÆTTIR
VAIMTAR
MATREIÐSLUMANN
Veitingahús vantar vanan matreiðslumann. í boði
eru mjög góð laun fyrir hæfan mann. Áhugasamir
leggi nafn og heimilisfang inn á afgreiðslu DV,
Þverholti 11, fyrir föstudaginn 9.12. nk. merkt
„Matreiðslumaður".
Úrval
VIÐ ALLRA HÆFI
Amerísk
billiardborð
Nokkur billiardborö eru til afgreiðslu strax. Þeir
sem áhuga hafa vinsamlega geri pöntun.
Gísli Jónsson&Co. hf.,
Sundaborg 41. Sími 86644.
[EIGENDUR
ekki
.frDnkÖNNU Nl
-----^nsust
Untboðið 4015,10 kr.
%%iS3iy.10kr. 3070.305,
32*95, 1959,*05,
23005, kk>?.795,
2*105^
~3568,40 Kr' ----
Fjöðrin
45795,
5203 5,
27555,
17195,
3030 5,
~33S95r/
afiilununL „ústkerfa ætlum
- Um g®6‘ NTrf,aP en bíleigendur
VÍ& hugaabýmsirvara-
^"eniumbobunum.
Kappkostum ávallt I
að bjóða Lada-varahluti I
á sem /ægstu verði |