Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1983, Page 26
DV. MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER1983.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 97., 101. og 104. tbl. Lögbirtingablaðs 1983 á hiuta í
Laugavegi 157, þingl. eign Braga Kristiansen, fer fram eftir kröfu
Axels Kristjánssonar hrl., Gjaldheimtunnar í Reykjavik og Kópavogs-
kaupstaðar á eigninni sjáifri f östudaginn 9. desember 1983 kl. 16.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 97., 101. og 104. tbl. Lögbirtingablaðs 1983 á hluta í
Álftamýri 52, þingl. eign db. Guðmundar Jóhannessonar, fer fram eftir
kröfu Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis og Tryggingastofnunar
rikisins á eigninni sjálfri f östudaginn 9. desember 1983 kl. 11.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 48., 53. og 56. tbl. Lögbirtingablaðs 1983 á hluta i Ljós-
heimum 16B, þingl. eign Jóns Gislasonar, fer fram eftir kröfu Skúla J.
Pálmasonar hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 9. desember 1983 kl.
10.45.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta i Stigahlið 24, talin eign Friðriks Stefáns-
sonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbankans og Árna Einars-
sonar hdl. á eigninni sjálfri f östudaginn 9. desember 1983 kl. 13.45.
Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 91., 94. og 99. tbl. Lögbirtingablaðs 1983 á hluta í
Drápuhlíð 33, þingl. eign Guðmundar Jens Axelssonar, fer fram eftir
kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavik, Hafsteins Sigurðssonar hrl.,
Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis, Veðdeildar Landsbankans, Ut-
vegsbanka íslands, Guðjóns Á. Jónssonar hdl. og Helga V. Jónssonar
hrl. á eigninni sjálfri f östudaginn 9. desember 1983 kl. 14.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 98., 101. og 105. tbl. Lögbirtingablaðs 1983 á hluta í
Laugavegi 51b, þingl. eign Mariu Ingimundardóttur, fer fram eftir
kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavik, Tryggingastofnunar ríkisins og
Sveins Skúlasonar hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 9. desember 1983
kl. 15.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Skilaboö til Söndru
Kvikmyndin Skilaboð til Söndru,
sem gerö er eftir samnefndri skáld-
sögu Jökuls Jakobssonar, verður
frumsýnd í Háskólabíói 17. desember
næstkomandi. Myndin f jallar um rit-
höfundinn Jónas, sem Bessi Bjarna-
son leikur. Jónas fær tækifæri til þess
að skrifa kvikmyndahandrit um
Snorra Sturluson. Jónas heldur því
út á land til að fá frið til aö sinna
verkinu. En það gengur illa, sérlega
eftir að hann ræður til sín ráðskonu,
Söndru, sem Ásdís Thoroddsen leik-
ur.
Handrit skrifaði Guðný Halldórs-
dóttir í samvinnu við Kristínu Páls-
dóttur, leikstjóra myndarinnar, og
Áma Þórarinsson. Kvikmyndatöku
annast Einar Bjamason. Það er
Kvikmyndafélagið Umbi sem fram-
leiðir kvikmyndina.
Bessl Bjarnason og Astfís Thoroddsen i hlutverkum sínum i kvikmynd-
inni Skilaboð tii Söndru.
Tæki gegn
kafaraveiki
— vonandi þurfum við aldrei að nota það,
segir forseti Slysavamafélagsins
Slysavarnafélagið hefur fest kaup
á afþrýstiklefa sem kemur að góöu
gagni ef maöur sem stundar köfun
hefur fengið svonefnda kafaraveiki.
Köfunarveiki er í því fólgin að
köfnunarefni binst vökva og blóði
líkamans vegna aukins hlutaþrýst-
ings þess viö köfun niður fyrir ákveð-1
ið dýpi. Ef kafari finnur fyrir áhrif-
um þessarar veiki, sem bæði er kvala-
full og jafnvel lífshættuleg, verður að
koma honum í afþrýstiklefa hið bráð-
asta ef ekki á illa að fara. Er viökom-
andi þá fyrst hafður í klefanum undir
sama þrýstingi og hann hafði verið
og síöan er þrýstingurinn minnkaöur
smám saman eftir vissum reglum.
Ætlunin er að klefinn verði staðsett-
ur í Reykjavík og þaðan verður hægt
að flytja hann hvert á land sem er og
einnig á haf út. Klefinn var keyptur
til landsins með aðstoð Kvennadeild-
ar SVFl sem gaf 100 þúsund krónur í
þessu skyni.
Þá er nýlega útkomin bók um
köfun að frumkvæði Slysavama-
félagsins, nefnist hún „Lærið að
kafa” og er þýdd úr sænsku af Gunn-
ari Karli Guðjónssyni tæknifræðingi.
Bókin skiptist í nær 20 kafla og meðal
þeirra má nefna: Köfunareðlisfræði,
Loft, Hæfni líkamans til að aðlagast
breyttum þrýstingi, Afþrýstitöflur,
Skipulag köfunar, Lög og reglur um
kafara, Neðansjávarljósmyndun og
Tækjaköfun.
Er afþrýstiklefinn nýi var kynntur
í samsæti hjá Slysavarnafélaginu
sagði Haraldur Henrýsson, forseti
félagsins, að vonandi þyrfti aldrei að
nota þetta nýja tæki, en aftur á móti
væri gott til þess að vita að það væri
til staðar ef eitthvað brygði út af.
-EIR.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 98., 101. og 105. tbl. Lögbirtingablaðs 1983 á Lauga-
vegi 67, þingl. eign Ársæls Guðsteinssonar, fer fram eftir kröfu Gjald-
heimtunnar í Reykjavík, Guðjóns Á. Jónssonar hdl., Útvegsbanka ís-
lands og Skarphéðins Þórissonar hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 9.
desember 1983 kl. 15.45.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 98., 101. og 105. tbl. Lögbirtingablaðs 1983 á hluta í
Laugavegi 118, þingl. eign Egils Vilhjálmssonar hf., fer fram eftir
kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík og Hafsteins Sigurðssonar hrl. á
eigninni sjálfri f östudaginn 9. desember 1983 kl. 16.00.
Borgarfógetaembættiö í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Langholtsvegi 112b, þingl. eign Ólafs Más Ásgeirs-
sonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni
sjálfri föstudaginn 9. desember 1983 kl. 10.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Úthlíö 15, þingl. eign Gisla Friðbjarnar-
sonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík og Sigurðar I.
Halldórssonar hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 9. desember 1983 kl.
14.45.
Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 98., 101. og 105. tbl. Lögbirtingablaðs 1983 á hluta i
Hvassaleiti 28, þingl. eign Birgis V. Halldórssonar o.fl., fer fram eftir
kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavik, Guðjóns Á. Jónssonar hdl., Ævars
Guðmundssonar hdl., Jóns Hjaltasonar hrl., Helga V. Jónssonar hrl.,
Guðmundar Péturssonar hrl., Póstgíróstofunnar, Einars Viðar hrl. og
Landsbanka íslands á eigninni sjálfri föstudaginn 9. desember 1983 kl.
11.15. Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Kæfum ekki fíkniefnaumræðuna
— Kvennalista- og kvennaf rambodskonur boða tilfundará sunnudag
„Hafiö þið áhyggjur af aukinni fíkni-
efnaneyslu? Viljið þið gera eitthvað í
málinu núna strax? ”
Þetta eru upphafsorð bréfs, sem
Kvennalista- og kvennaframboðskon-
ur hafa sent til skólastjóra, formanna
nemendafélaga og foreldra- og
kennarafélaga.
I bréfinu er boðað til almenns um-
ræðufundar um fíkniefnamál á Hótel
Borg á sunnudag kl. 14.
„Það er mikilvægt að nýta þann
meöbyr, sem umræðan um fikniefna-
vandann hefur fengið, og halda henni
áfram til þess að hún kafni ekki í jóla-
ösinni,” sagöi Guðrún Agnarsdóttir
alþingismaður á fundi með frétta-
mönnum er bréfiö var kynnt.
I bréfinu segir að tilgangur fundar-
ins sé fyrst og fremst sá að varpa ljósi
á ýmsa ólíka fleti þeirra vandamála
sem fíkniefnaneysla hefur í för með
sér og fá fram umræðu milli þeirra
mörgu aðila, sem á málinu taka í starfi
sínu. Og síðast en ekki síst að gefa for-
ráðamönnum barna og unglinga tæki-
færi til fræðslú og skoöanaskipta um
þessibrýnumál.
A fundinum flytja framsöguerindi
þau Árni B. Einarsson fræðslufulltrúi,
Ásgeir Friðjónsson fíkniefnadómari,
Jóhannes Bergsveinsson læknir,
Snjólaug Stefánsdóttir, cand. phil. í
uppeldisfræði, og Þuríöur Jónsdóttir
félagsráðgjafi.
Að erindunum loknum verða pall-
borðsumræður þar sem framsögu-
menn og aðrir, sem hafa afskipti af
þessum málum, munu skiptast á skoð-
unum og svara fyrirspumum utan úr
sal.
Ætlunin er að koma upp hugmynda-
banka og vilja fundarboðendur gjam-
an fá skriflegar hugleiöingar um
væntanlegar leiðir til úrbóta.
Fundurinn er öllum opinn.
-GB
Tökum höndum saman—styðjum hjartveika:
Lionsmenn selja
merki um helgina
—til styrktar hjartveikum
„ Við erum bjartsýnir á að merkja-
salan eigi eftir aö ganga vel,” sagði
Egill Thorarensen, formaður lions-
klúbbsins Víðarr, er DV innti hann
eftir merkjasölu klúbbsins um
helgina.
„Þetta verkefni er okkar framlag
til þeirra, sem gangast undir hjarta-
aðgerðir, og þurfa allra fullkomn-
ustu tæki sem til em í dag vegna
slíkra aðgerða.”
Lionsklúbburinn Víðarr er ný-
sto&iaður klúbbur og er merkjasalan
um helgina fyrsta verkefni hans.
Yfirskrift merkisins er: Tökum
höndum saman — styðjum hjart-
veika.
„Við vonumst til að geta selt um
tólf til þrettán þúsund merki. Ætlun-
in er að selja þau í stórverslunum á
föstudag, en heimsækja síöan
heimilin á laugardag.”
Þess má geta að sala merkjanna
er bundin við Stór-Reykjavíkur-
svæðið. Merkiö kostar 50 krónur.
-JGH