Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1983, Qupperneq 35
35
COO r crrrcrjsFrrnrrry n rrr r rx p <-ry t»ttt T<-r-r» »• »rrr
DV. MIÐVKUDAGUR 7. DESEMBER1983.
Sandkorn
Sandkorn
Sandkorn
Erfið fæðing
Sú hugmynd Birgls Dýr-
fjörð að umtalsverð búbót
vœrt að því að gefa búpeningi
upphitað vatn vakti heilmikla
athygli. Sem kunnugt er töídu
sérfrseðingar í landbúnaði aö
þarna vteri um misskilning að
rseða. LifeðUsfræðingar við
Háskólann sögðu aftur að
hugmyndin væri athygUs-
verð.
Þama var greinUega komið
upp Ult mál þar sem tvær
fylkingar sérfróðra gátu ekki
komið sér saman. Þær
brugðu þvi á það ráð að koma
saman tU fundar og finna
grundvöll sem allir aðilar
gætu sæst á. Síðan skyldi
gefin út sameiginleg yfir-
lýsing.
Fundurinn var haldinn með
pompi og prakt á sunnudegi
og herma sagnir að hann hafi
staðið i heUa sex tima. Ekki
varð málið þó leyst þar því
orðalag yfirlýsingarinnar var
mikið viðkvæmnismál og
erfitt að koma benni saman.
Leyniþræðir
Æskulýðsráð óskaði sem
kunnugt er eftir því á dögun-
um að fram færi athugun á
rekstri unglingaskemmti-
staðarins Best sem starfrækt-
ur hefur verið í FáksheimU-
inu. Mun það framtak hafa
komið heldur á óvart þvi
staðurinn sá arna hafði á sér
heldur gottorð.
En nú þykjast sérfróðir
hafa fundið þarna leyniþræði
sem liggja víst vlða. Fyrrver-
andi starfsmaður ÚtideUdar
og þá samstarfsmaður Æsku-
lýðsráðs hefur nefnUega tekið
Tónabæ á leigu. Báðir leita
umræddir skemmtistaðir,.
þ.e. Best og Tónabær, á sömu
mið því báðir eru opnir tU kl.
þrjú á nóttunni og eru með 16
ára aldurstakmark. Þeir eru
því í hörkusamkeppni um
hausana og þykir það gera
málið alit heidur hornótt.
Umsjón:
Jóhanna S. Sigþórsdóttir.
Það varð þvi ekki fyrr en
fimm dögum síðar sem bún
leit fuUsköpuð dagsins ijós.
Og vitaniega hófst hún á þeim
orðum að ekki væri um neinn
ágreining að ræða mUli aðtta
vegna hugmynda um gjöf á
heitu vatni.
Oní hundrað
Sandkorni hefur löngum
verið lagið að lesa hugsanir
manna eins og landslýð er
kunnugt (og jafnvel verið á
undan þeim sem ætlað er að
hugsa). Nú hefur kornið iesið
hugsanir Steingríms Her-
mannssonar er hann lét hug-
ann nýiega relka tU síðustu
stjórnar og niðurtalningar
verðbólgunnar þá. Hugsan-
irnar birtust í eftirfarandi
limru:
Mig hefur ætið undrað
hvert ólán fékk
stjórninni sundrað.
Við töldum þó niður
meðan tU þess var friður,
frá25 oníhundrað.
Steingrímur.
Tmknlmaðurínn Guótougw.
Mannfæð
Margir hafa hlustað á Rás 2
undanfarna daga og likað
dæmalaust vel. En þeir eru
færri sem gera sér grein fyrir
því hve Ula stöðin er mönnuð.
Á Rás 2 eru nú fjórir fastir
starfsmenn. Þar af er einn
tæknimaður, Guðlaugur
Guðjónsson. Hann hefur sér-
hæft sig í meðferð þeirra
tækja, sem í stöðinni eru og er
sagður sá eini sem kann
skikkanlega á þau. Ef hann
verður frá vinnn af einhverj-
um orsökum má gera ráð
fyrir að rekstur rásarlnnar
stöðvist á meðan.
Sama máli gegnir um aug-
iýsingarnar (sem þykja
hreint ágætar, svona í fram-
hjáhlaupi). Um það flóð sér
aðeins ein stúlka þannig að
það er aUt á einni hendi. Ef
hún „bregst” þá þýðir það
engar auglýsingar á Rás 2.
Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir
Kvikmyndir Kvikmyndir
Regnboginn — Svikamylla:
Hver er hvaö og
hverjum má treysta?
Heiti: Svikamylla (The Osterman Weekend).
Leikstjóri: Sam Peckinpah.
Handrit: Alan Sharp, byggt á skáldsögu Robert
Ludlum.
Kvikmyndun: John Coquillon.
Tónlist: Lalo Schifrin.
Aðaleikendur: Rutger Hauer, John Hurt, Burt
Lancaster, Craig T. Nelson, Dennis Hopper og
Chris Sarandon.
Það halut aö koma að því að ein-
hver skáldsaga Robert Ludlums yrði
kvikmynduð. Undanfarin tíu ár
hefur hann verið mest seldi spennu-
söguhöfundur í heimi og eru margar
bækur hans hið besta skemmtiefni.
Það vakti því hjá mér nokkra til-
hlökkun þegar ég frétti aö kvik-
mynda ætti eina af fyrstu bókum
hans The Osterman Weekend og að
leikstjóri yrði enginn annar en gamli
harðjaxlinn Sam Peckinpah sem
hefur ekki gert kvikmynd í ein fimm
ár, eða síðan Convoy leit dagsins
ljós. Og strax fá Reykvíkingar að sjá
árangurinn því þaö eru ekki meira
en þrír mánuðir síðan hún var frum-
sýnd vestanhafs.
Og árangurinn er kannski bæði
góöur og slæmur. Fyrir þá sem hafa
lesið bókina eru nokkur vonbrigði
með nokkrar breytingar er gerðar
hafa verið á sögunni, sérstaklega
þegar fer aö líða á myndina, og gerir
söguþráðinn enn torskildari fyrir
bragðið. En vonbrigðin gieymast
þegar horft er á sniUdarhandbragð
Peckinpah með kvikmyndavélina í
sumum atriðum.
Svikamylla segir frá fjórum vin-
um sem hittast einu sinni á ári og
eyða saman helgi hjá einum þeirra,
nefna þeir þessar helgar eftir einum
þeirra, The Osterman Weekend.
Einn vinurinn er John Tanner
(Rutger Hauer) vinsæll sjónvarps-
fréttamaður er berst fyrir réttlæti í
heiminum og á þaö til að hakka í sig
háttsetta embættismenn. Tanner
hefur haft mikinn hug á að fá til við-
tals yfirmann CIA Maxwell Dunforth
(Burt Lancaster), sem hann telur or-
sök aUs hins iUa í þjóöfélaginu.
Ovænt fær Tanner ósk sína uppfyllta,
en í staðinn verður hann að njósna
um vini sína þrjá næstu Osterman
helgi er veröur haldin heima hjá
Tanner. CIA telur vini hans vera
Sovétnjósnara og færir sannanir
fyrir því. Tanner gengur aö þessu.
Fyrir alla aðila verður heigin ein
martröö atburöa er erfitt er að festa
hendur á og veröur ekki fariö nánar
útíþaðhér.
Það er eins og áður sagði margt
gott við SvikamyUu. Kvikmyndun og
ÖU önnur tæknivinna er meistara-
verk eins og búast mátti við af leik-
stjóra er gerði The Wild Bunch og
Straw Dogs og hefur Sam Peckinpah
Annað sem vel hefur tekist viö
Svikamyllu er val leikara. Rutger
Hauer er sannfærandi í hlutverki
Tanners og þrátt fyrir hollenskan
uppruna feUur hann vel inn í gerviö
sem amerískur miUistéttarmaður.
En það eru þeir John Hurt og Burt
Lancaster sem virkUega kveður aö í
myndinni. Burt Lancaster verður
betri og betri með aldrinum og í hlut-
verki Maxwell Dubforth sýnir hann
okkur vel hversu veröldin má varast
menn með slíkan hugsunarhátt.
Lawrence Fasset (John Hurt) er
John Tanner (Rutger Hauer) ásamt eiginkonu sinnl (Meg Foster).
engu gleymt í þeim efnum. Slow
motion nýtt tU hins ýtrasta þegar á
við og kUppingar meistaraiegar. En-
það sem ekki hefur tekist nægjan-
lega vel er að koma sjálfu efninu tU
skila. Flestir vita hvorki upp né nið-
ur hvað um er aö vera þegar líða tek-
ur á myndina og svörin í endann eru
ekki nægilega vel skýrð, þannig að
hálfgert botnfaU verður þegar mynd-
inni lýkur.
mótsögnin. Maður tiifinninga og
hugsar aðeins um hefnd vegna dauða
eiginkonu sinnar. Leikur John Hurt í
þessu hlutverki er skínandi eins og
við er að búast frá þessum frábæra
leikara.
Svikamylla er kvikmynd fyrir þá
sem vUja flókinn söguþráð, og spenn-
andi er hún, Sam Peckinpah sér um
það.
HUmar Karlsson.
í þaðmunar umminna
KJOTMIÐSTOÐIN Laugalæk 2. s. 86511
okkar verð nýja verðið
Lambahamborgarhryggir 128,00 224,00 kr. kg
London lamb 158,00 296,00
Úrbeinað hangilæri 218,00 331,00
Úrbeinaður hangiframpartur 148,00 234,00
Hangilæri 128,00 218,00
Hangiframpartur 85,15 120,15
Söltuð rúllupylsa 60,00 127,00
i Reykt rúllupylsa 75,00 127,00
i 1/2 folaldaskrokkar. KREDITKORT
tilbúnir í frystinn 79,00 r, —
Opið alla daga til kl. 19.
Opið laugardag til kl. 16.
Alltaf opið í Kádeginu.
VELKOMIN
'JtilMflh
FALLEG OG VÖNDUÐ VARA
VERSLUNIN FELL
MOSFELLSSVEIT