Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1983, Blaðsíða 41
DV. MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER1983.
41
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Barry Manllow — féll fyrir Dfönu
prinsassu.
Barry Manilow
sleit liðbönd
pnnsessunni
Barry Manilow féll bókstaflega fyrir
Díönu prinsessu, sem eftir tónleika
kom aö heilsa upp á hann. I ákafanum
viö að ná handtaki prinsessunnar sneri
Manilow sig illa og sleit liöbönd í ökkla.
Barry bar sig þó karlmannlega
meöan hann heilsaði Díönu. Það var
ekki fyrr en eftir aö prinsessan var
farin að sársaukinn kom fram i andliti
hans.
Shakin Stevens.
Shakin Stevens
og Bonnie Tyler
saman á plötu
Shakin Stevens, eða Stebbi hristing-
ur eins og viö á Fróni gjarnan köllum
pilt, hefur notiö mikilla vinsælda
undanfarin misseri. Um þessar mund-
ir er nýjasta plata hans, Cry just a
little bit, meðal tíu vinsælustu hljóm-
platna Bretlandseyja.
Til marks um vinsældir Shakin Stev-
ens má geta þess að strax í fyrstu vik-
unni, eftir aö platan kom út, rauk hún
upp í 11. sæti breska listans.
En Stebbi situr ekki aögerðalaus.
Nú er hann að syngja inn á enn eina
' plötu, að þessu sinni með söngkonunni
Bonnie Tyler. Stebbi sjálfur höfundur
tveggja laga en önnur eru gamlir slag-
arar. Platan þeirra mun heita The Bob
wontstop.
Bonnie Tyler.
Nemendur iRóttarholtsskóla og foreldrarþeirra bfða spenntír eftir næstu bingótölu.
DV-myndir: GVA.
Bingókvöld í Réttarholti
I skólunum er ekki bara iært. Þar
er lika leikið enda mun það vera
leikur að læra, eins og segir í vísunni.
Foreldra- og kennarafélag Réttar-
holtsskóla hélt bingókvöld i sam-
vinnu við nemendafélagið síðastlið-
inn fimmtudag. Tilgangurinn var að
safna fyrir upptökuvél fyrir mynd-
band en einnig að skemmta fólkinu.
1 þéttsetnum sal kepptu nemend-
ur og foreldrar um bingóvinningana.
Skólastjórinn, Haraldur Finnsson,
las upp tölumar með aðstoð nem-
enda. Ennfremur sýndu nemendur
leikþátt um fóstureyöingu.
Leikritiö fjallar um fóstureyöingu.
Innan veggja skólans hafa nemendur smfðaö notalega setustofu.