Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1984, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1984, Blaðsíða 15
DV. FIMMTUDAGUR1. NOVEMBER1984. 15 Menning Menning Menning Menning Nú stendur yfir í kjallara Norræna hússins sýning á verkum eftir Gunn- ar örn Gunnarsson, Samúel Jóhannsson og Steinþór Steingríms- son. Aliir sýna þeir tjáningarfull málverk, unniö í miklum ham og af beljandi dugnaöi. Salurinn er nánast að springa utan af myndverkunum, svo miklu er troðið á veggina. Lærifaðir Gunnar örn er þekktastur þessara listamanna og virkar hér líkt og læri- faðir. Gunnar málar í anda nýja mál- verksins og hefur honum tekist á furöu skömmum tima aö skapa sér persónulegt rými innan þeirrar myndgerðar. Kom þaö sérstaklega vel fram á síðustu sýningu hans sem hann hélt í „Galleríi íslensk mynd- list” aö Vesturgötu í mars síðastliðn- um. Nú er Gunnar kominn aftur með sömu viðfangsefnin: orminn og afmyndaðar mannfígúrur. Lista- maðurinn hefur litlu bætt viö í sinni myndrænu umfjöllun nema aö hér sýnir hann mun stærri verk heldur en við eigum að venjast frá hans hendi. En í þessum stóru myndverk- um virðist listamanninum ganga furðu illa að skipuleggja myndrým- ið. A hann í miklum erfiöleikum meö að setja á sviö statískar uppstill- ingar þar sem gefur aö líta fígúrur sem fylla ekki rýmið. Tekst lista- manninum mun betur upp í minni dýnamískari verkum þar sem formin og liturinn og efnisvirknin tjá ærsl og hreyfingu og samþjappaðar fígúrur skilgreina rýmið. ÞRÍR MÁLARAR — íNorræna húsinu Maður og kona eftír Gunnar örn. Ljósm. GBK Myndlist Gunnar B. Kvaran Þá sýnir Gunnar litaða skúlptúra og vekja þeir litla athygli einfaldlega vegna þess hve líkir þeir eru mál- verkinu. Þetta er aðeins litaöur reka- viður sem listamanninum hefur ekki tekist að gæða sjálfstæðu lífi. I heildina eru myndverk Gunnars afar misjöfn, en þó má finna takta sem einungis geta verið ættaðir frá hon- um. Nemendur Samúel Jóhannsson sýnir fjölda samstæðra verka sem eru litalega séð undir miklum áhrifum frá Gunnari Emi. Þetta eru þó frísklega unnin verk, án þess að við getum talað um persónulegan myndheim. Teikningar listamannsins eru mun sterkari og gefa til kynna að hér sé um hæfileikaríkan byrjanda að ræða. Steinþór Steingrímsson er slappastur þeirra félaga og örugg- lega ekki búinn að gera upp við sig hvernig hann ætlar að mála. Teiknar hann óbeislað meö penslinum og veöur úr einni myndgerð í aöra. Þrátt fyrir frjálslegt yfirbragð eru verkin einkar ósamstæð og ópersónuleg. Þessi verk hafa eflaust gefið viðkomandi listamanni stundar fullnægingu en þau hafa ekkert erindi fyrir almenningssjónir. GBK Lausar stöður Eftirtaldar stööur viö námsbraut í hjúkrunarfræði í lækna- deild Háskóla Islands eru lausar til umsóknar: Lektorsstaða í líf f ærafræði. Lektorsstaða í lífeðlisfræði. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækj- enda, ritsmiðar og rannsóknir svo og námsferil og störf skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykja- vík, og skulu hafa borist fyrir 15. nóvember nk. 26. október 1984. Menntamálaráðuneytið. 20-40% afsláttur á leikföngum Einnig afsláttur á glervöru frá SEA GLASBRUK AKTIEBOLAG S-360 S2 KOSTA SWEDEN Skipholti 70, simi 38780. Ath. sama hús og versl. Herjólfur. KÆRIRÐU ÞIG UM LÁGA RAFMAGNSREIKNINGA? OSRAM Ijós og lampar eyöa broti af því rafmagni sem venjuleg Ijós eyða og lýsa þó margfalt meira. OSRAM flúorsent Ijós eyða 11 wöttum þegar þau bera 75 watta birtu. Svo endast þau miklu lengur. OSRAM DULUX — handhægt Ijós þar sem mikillar lýsingar er óskað. Mikið Ijósmagn, einfalt í uppsetningu og endist framar björtustu vonum. JÓN LOFTSSON HF. RAFBÚÐ HRIIMCBRAUT121 SÍM110600 OSRAM LJÓSLIFANDI ORKUSPARNAÐUR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.