Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1984, Page 5
DV. MANUDAGUR12. NOVEMBER1984.
5
lllmenni íÞjóðleikhúsinu:
HELGILEIKUR
RÍKARÐIII
Eftir rnikla óvissu fram á siðustu
stundu er nú ljóst að Helgi Skúlason
leikari hreppir hnóssið og mun fara
með hlutverk Ríkarðs III i jólaleikriti
Þjóðleikhússins. Staðfestí þjóðleikhús-
stjóri þetta i samtali viö DV i gœr.
Ákvöröunin var tekin af leikstjór-
anum John Burgess sem stýra mun
verkinu k fjölum Þjóðleikhússins.
Rikaröur in er talin eitt mesta ill-
menni samanlagðra bókmenntanna og
óskahlutverk flestra leikara. Enda
hafa margir þekktustu leikarar ver-
aldarinnar spreytt sig á hlutverkinu i
timans rás.
En Rikarður er ekki eina illmennið
sem verður á sviöi Þjóðleikhússins á
næstunni. Föstudaginn 23. nóvember
frumsýnir leikhúsiö Skugga-Svein sem
eins og kunnugt er fjallar um eitt
mesta illmenni íslenskra bókmennta
en þar verður Erlingur Gislason í aðal-
hlutvericL Arni Tryggvason leikur
Grasa-Guddu og Brynja: Benedikts-
dóttir leikstýrir.
-EIR.
Reykjavíkursamningurinn sam-
þykktur með 77% atkvæða
Orslit í atkvæöagreiöslu um ný-
gerðan kjarasamning Starfsmanna-
félags Reykjavíkurborgar lágu fyrir
seint á föstudagskvöld. Orslit urðu
þau aö 1537 eöa 77% samþykktu
samninginn en 145 eða 8,7% voru á
móti. Auðir seðlar voru 211 eða 14%
og ógildir 6. Akjörskrá voru 2452.
DV haföi samband viö Harald
Hannesson, f ormairn Starf smannaf é-
lags Reykjavíkurborgar, og spurði
hann álits á úrslitunum. „Eg verð aö
segja að ég er ánægður með þessi úr-
slit, sérstaklega það hve fáir skiluðu
auöu. Það hafði veriö rekinn sér-
stakur áróður fyrir því aö skila auðu
af þeim sem voru óánægðir yfir þvi
að ekki skyldi nást verðtryggingar-
ákvæöi inn i samninginn. Það var
hins vegar fullreynt en reyndist úti-
lokað og hefði kostaö langt verkfall i
viðbót.
Haraldur sagöi einnig að vandinn
við þennan samning væri ekki að
prósentuhækkanir væru ekki nógu
miklar heidur miklu heldur hitt að
það yrði vandasamt að halda þvi
sem áunnist heföi i þessum samn-
ingL Það væri aö sjálfsögðu, eins og
vant er, i hendi þelrrar rikisstjórn-
ar sem færi meö völdin hver ju sinni.
•EH.
Helgi Skúlason leikur Rikarð m.
Erlingur Gislason leikur Skugga-Svein.
Háskólafyrirlestur
um kapalkerfi og
upplýsingaveitur
Kapalkerfi og upplýsingaveitur
verða til umfjöllunar í fyrirlestri
William Evans sem hann heldur íboði
Verkfræðistofnunar Háskólans kl. 18 í
kvöld í stofu 101 í Lögbergi.
William Evans er framkvæmda-
stjóri og verkfræöingur hjá Manitoba
simafélaginu og mun hann fjalla um
kapalkerfi (breiöbandsnet) Winnipeg-
borgar, sem og um athyglisverðar til-
raunir með nýjungar á sviöi upp-
lýsingaveitna i dreifbýli.
.JCapaikerfi sem hér um ræðir eru
annað og meira en þau kerfi sem hér
dreifa sjónvarpsefni,” sagði Sigfús
Björnsson dósent i viðtali viö DV.
„Gagnvirk kapalkerfi geta boðið upp á
mun meiri þjónustu sem ekki veitir af
aö undirstrika hér þvi þróunin hér
virðist stefna í ógöngur. Það er að visu
ekki raunhæft aö ætla að kanadíska
kerfið dugi okkur hér en þeir hafa tutt-
ugu ára reynslu i þessum efnum og
mér er ekki kunnugt um stærri slík
kerfi en einmitt i Winnipeg.
Slik kerfi bjóða upp á möguleika til
félagsmálastarfs, gagnaflutninga,
verslunar og bankaviðskipta og þar
fram eftir götunum. Og það verður aö
taka tillit til allra þessara möguleika
við hönnun þessara kerfa i upphafi. ”
Fyrirlesturinn verður haldinn i stofu
101 i Lögbergi kl. 18 í kvöld, eins og
fyrr sagöi, og er öllum opinn.
Eimskipog
landsbyggðin
Ný strandsiglingaáætlun hefur tekið
gildi hjá Eimskip. Viðkomuhafnir
verða átta, ferðir veröa tíðari og stærri
skip en áður munu nú sinna þessum
siglingum.
Mánafoss mun þjóna Vestur- og
Norðurlandshöfnum og siglir skipiö frá
Reykjavik einu sinni i viku, á mánu-
dögum. Komiö er til Isaf jarðar tvisvar
i viku, einu sinni í viku til Akureyrar og
hálfsmánaöarlega til Patreksfjarðar,
Húsavikur, Siglufjarðar og Sauöár-
króks. Sunnan- og austanlands er siglt
til tveggja hafna. Eimskip hefur tekið
að sér aÚa vöruflutninga með Herjólfi
á milli lands og Vestmannaeyja og
mun skipiö veröa í ferðum tvisvar á
dag. Þá mun Norðurlandaskip fé-
lagsins koma hálfsmánaðarlega tll
Reyðarfjaröar á leið sinni frá Reykja-
vik til Noröurianda.
íBonduuell
mrirþað mögulegt.
Vinnutölva
með hagnýta möguleika_
atvinnulífí og námi.
Bondwell 12 er einstök tölva á ótrúlegu verði.
• í ferðatösku með handfangi.
• CP/M 2,2 stýrikerfi.
• 9" amber skjór, 24 línur, 80 tákn.
• 16 forritanlegir notendalyklar.
• synthesizer sem talar ensku.
FORR/T SEM FYLGJA:
• Wordstar • Mailmerge
• Calstar • Datastar • Reportstar
Einnig model 14 CPM 3.0 DSDD.
MODEL WBí HHHHP
Z80A4MHz. Tengi:
CP/M 2,2. Tvö RS232C.
64K RAM. Eitt Centronis.
4K ROM. Mál:
Diskadrif, 195X450X395 mm.
tvö 5,25", 1/2 hœð, Þyngd11,8kg.
samtals 360 K. Aukalega:
Les diska ó drifi B: íslenskir stafir og forrit.
Osborn, Kaypro og Bakarí, aflauppgjör.
Spektravideo. launaforrit o.s.frv.
Laugavegi 89, sími 13008