Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1984, Qupperneq 4
4
DV. FEMMTUDAGUR 29. NOVEMBER1984.
Líftækniiðnaður:
Framtíðaratvinnu-
grein á íslandi!
Nú er veriö f>ö rannsaka hvernig
vinna megi ensym úr íslenskum hrá-
efnum. Samtímis fara fram rann-
sóknir á notkunarmöguleikum slíkra
ensyma. Aö verkefninu standa Raun-
vísindastofnun Háskólans, Líffræði-
stofnun Háskólans, Rannsókna-
stofnun fiskiðnaðarins og Iöntækni-
stofnun íslands.
Ensym má vinna úr fiskúrgangi og
hveraörverum. Ensym, eða líf-
hvatar eins og þau heita á íslensku,
eru lífræn efni sem taka virkan þátt í
efnabreytingum lifrænna efna. Til
dæmis má nota þau til að leysa fitu-
efni úr fötum í formi þvottaefnis.
Annað dæmi um notkun ensyma er
við roðflettingu á smokkfiski. Ensym
brjóta niður tengisamband milli
roðsinsogfisksins.
Aö sögn Jóns Hjaltalín Magnús-
sonar, ráðgjafa Háskóla Islands á
sviði líftækni, eru þessar rannsóknir
komnar vel áleiðis. Nú er unnið aö
frekari athugun á markaösmöguleik-
um slíkra ensyma og hvernig hraða
megi þróun líftækniiðnaðar á Is-
landi.
Vísar efasemdum
á bug
Sagöi Jón aö efasemdir, sem
komið hafa fram um líftækniiönaö
sem framtíðaratvinnugrein á
íslandi, ættu við engin rök að styðj-
ast. Benti hann á í því sambandi að
eitt stærsta fyrirtæki á sviði líftækni-
iðnaöar, danska fyrirtækið Novo,
hefði upphaflega hafið starfsemi í
bílskúr með tvo starfsmenn. Nú, 50
árum síöar, væru 5000 manns starf-
andi hjá fyrirtækinu.
„ Viö teljum að þetta séu helstu sér-
sviö á sviði líftækniiönaðar sem
Islendingar eigi raunhæfa möguleika
á að hasla sér völl á í framtíöinni. Ég
vil benda á að fyrir tveimur árum
var því haldiö fram aö við hefðum
enga möguleika á aö hasla okkur völl
á sviði rafeindatækni. I ár framleiöa
íslensk rafeindafyrirtæki fyrir um
150 milljónir íslenskra króna sem
samsvarar brúttó aflaverömæti
tveggja skuttogara á ári. Það er
ekkert sem segir að við getum ekki
gert eitthvað svipað á sviði líftækni-
iðnaöar.” Aö sjálfsögðu munum við
halda áfram aö kanna samstarf við
erlend stórfyrirtæki, sérstaklega á
sviði markaðsmála,” sagði Jón.
-EH.
Enga atvinnulega
þýðingu á næstunni
— segir Jónas Bjarnason ef naverkf ræðingur
,,Ég tel að á sviði líftækniiðnaðar
geti einhvern tíma í framtíöinni fal-
ist einhverjir möguleikar. Hins
vegar tel ég að þessi mál skipti í at-
vinnulegu tilliti engu máli á næstu
áratugum,” sagði Jónas Bjarnason
efnaverkfræðingur í samtali við DV.
„Það þarf gífurlega breidd í þekk-
ingu og verslunartengsluin til þess
aö fóta sig á þessu sviöi. Þegar veriö
er að ræöa um þessa hluti verður lika
aö meta líkur á árangri. Það má ekki
skilja orð mín svo aö þaö eigi aö rýna
eitthvað minna í þetta sviö en önnur.
Það að blása þetta út sem sviö sem
hafi atvinnulega þýðingu í náinni
framtíð held ég að sé rangt, sér í lagi
í ljósi þeírra aðstæöna sem ríkja í
íslensku efnahagslif i nú.”
Aðspuröur kvaö Jónas velgengni
danska fyrirtækisins Novo vera ein-
stakt tilfelli., ,Það var líka gos í Vest-
mannaeyjum fyrir rúmum áratug en
það þýðir ekki að við getum búist við
gosi í Heimaey stöðugt á næstunni.
Það er svo margt annað í íslenskum
atvinnumálum sem er viö bæjar-
dymar. Þess vegna er það hættulegt
að líta langt yfir skammt,” sagði
Jónas.
-EH.
H
Jónas Bjarnason efnaverkfræð-
ingur telur að liftækniiðnaðurinn
tnuni ekki skapa umtalsverða
atvinnumöguleika i náiinni
framtið.
Hér er gamli garpurinn hann Jón Finnbogason frú Fáskrúdsfirdi aö landa
síld sem hann fékk í lagnet. Nokkrir tritlusjómenn á Fáskrúðsfirdi hafa ver-
ið með síldarnet i firðinum í haust en afli verið misjafn.
EHiDV-mgnd: Ægir Kristinsson.
Deilt um rýrnun á loðnu á Eskifirði:
Vilja ekki kaupa
sjó á loðnuverði
„Máliö er einfalt. Við viljum helst
ekki kaupa sjó á loðnuverði,” sagði
Magnús Bjarnason, framkvæmda-
stjóri hraðfrystihússins á Eskifirði, aö-
spuröur um kvartanir er borist hafa
frá loðnusjómönnum um aö þeir væm
hlunnfamir. Telja ýmsir aö loðnuvigt-
in á Eskifirði sé 5—7 prósentum undir
því rétta.
„Ég kannast viö þessar kvartanir.
Svo skemmtilega vildi til aö eftirlits-
menn mælingatækja vom einmitt
staddir hér umræddan dag. Staðfestu
þeir að vigtin væri rétt,” sagði Magnús
framkvæmdastjóri. „Hitt er annað
mál aö við löndum með sérstökum
þurrdælum sem skilja sjóinn frá loðn-
unni. Sjómennirnir fá sitt fyrir loðn-
una. Á sjónum höfum við aftur á móti
ekki áhuga. Ef vigta ætti allt saman
væru sumir bátamir með slíkan loðnu-
feng að þeir ættu alls ekki aö fljóta,”
sagöi Magnús Bjamason.
I gær höfðu borist 36 þúsund lestir af
loðnu á land á Eskifirði. Enginn hefur
vigtaðsjóinn. -EIR.
Norðurland:
Árstíðabundið at-
vinnuleysi eykst
Árstíðabundið atvinnuleysi hefur
aukist mikiö á Norðurlandi séu þrjú
síðustu ár borin saman. Það er lang-
mest frá janúar til mars. Akureyri er
ei'ni staðurinn ,á Norðurlandi þar sem
uíitalsvert atvinnuleysi var síðastliðiö
sumar. Þetta kemur fram í nýrri
skýrslu sem Fjóröungssamband Norð-
lendinga hefur gert um ástand og horf-
ur í atvinnumálum á Noröurlandi.
I skýrslunni segir að ekki sé hægt að
tala um kreppuástand í atvinnumálum
norðanlands þó sigiö hafi á ógæfuhlið-
ina. Kvótakerfi í sjávarútvegi hafi
komið misjafnlega niður á hinum
ýmsu stöðum. Siglufjörður og Skaga-
strönd blómstri til dæmis en verst sé
atvinnuástandið á Olafsfirði og Rauf-
arhöfn. Rækjuvinnsla hafi víða bætt at-
vinnuástand verulega.
Á mörgum þéttbýlisstöðum er taliö
allgott ástand í byggingariönaöi. Þaö
er þó mjög slæmt á Akureyri, Olafs-
firöiogRaufarhöfn. JBH/Akureyri.
í dag mælir Dagfari í dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari
Formaðurinn vill leggja flokkinn niður
Jón Baldvin Hannibalsson hefur
skotist upp á stjörnuhimin stjórn-
málanna í krafti þeirrar upphefðar
að vera kjörinn formaður í minnsta
krataflokki í heimi. Af þvi tilefni eru
birtar ævisögur um hann í vikublöð-
um og höfð við viöhafnarviðtöl í
öörum fjölmiðlum. Yfirleitt hefur
Jón Baldvin veriö galvaskur í svör-
um, enda ævintýramaður og flokka-
fiakkari par exellence. Ekki hefur
hann alltaf haft erindi sem erfiði, þar
til nú að Alþýðuflokkurinn kaus Jón
Baldvin til forystu af ótta við að hann
flandraði yfir enn einn flokkinn ella.
Mun það vcra í fyrsta skipti sem heill
stjórnmálaflokkur kýs sér formann
til aö koma í veg fyrir að sá hinn
sami yfirgefi flokkinn. Verður þó að
virða Alþýðuflokknum þaö til vork-
unnar, því hann er ekki til skiptanna
lengur. Rataðist Jóni Baldvin rétt
orö á munn þegar hann sagði í sjón-
varpsþættinum í fyrrakvöld að það
væri ekki á valdi neins dauölegs
manns aö kljúfa Alþýöuflokkinn. Þar
er allt klofið nú þegar sem kljúfa má.
Nei, Jón Baidvin ætlar ekki lengur
að kljúfa Alþýðuflokkinn. Hann hef-
ur annað og meira i huga. Hann
ætlar sem sagt að leggja Alþýðu-
flokkinn niður. Þá yfirlýsingu gaf
hann í fyrrnefndum sjónvarpsþætti,
eftir að hafa lýst því með fjálglegum
hætti hvernig draumar hans ættu aö
rætast í allsherjarkrataflokki fram-
tíðarinnar. Taldi hann það létt verk
hjá sér og löðurmannlegt aö aflifa
sinn eigin flokk, ef það mætti verða
til þess að stórveldadraumur hans
rættist og vegur hans ykist.
Verður að segja það eins og er að
þetta þykir nokkuö hraustlega mælt
af manni sem enn svífur um í sigur-
vimu yfir því trausti sem hinn dauða-
dæmdi flokkur hefur sýnt honum.
Það er að minnsta kosti ekki á
hverjum degi sem nýkjörnir for-
menn stjórnmálaflokka lýsa þeirri
stefnu sinni svo afdráttarlaust að
næsta mál á dagskrá sé að leggja
niður þann flokk sem þeir hafa for-
ystu fyrir.
Alþýðuflokkurinn hefur marga
hildi háð um dagana og má muna
sinn fífil fegri. Alltaf hefur hann þó
þraukað fyrir tilstilli nokkurra ævi-
félaga. Kosning Jóns Baldvins til for-
mennsku í flókknum mun hafa verið
framin i þeim anda að viöhalda þess-
um ættbálki, þó ekki væri nema af
tryggð við forfeður og gamlar hefðir.
Þykir gusta af Jóni Baldvin, sem er
meira en hægt er að segja um fyrr-
verandi formann, enda var þjóöin oft
í fullkomnum vafa um það hvort
Alþýðuflokkurinn væri lífs eða liðinn.
En annaöhvort hefur Jón Baldvin
blekkt flokkinn til fylgis við sig eða
þá að hér sannast máltækiö að feig-
um verði ekki forðað. Allavega er
Ijóst að Jón Baldvin lítur á for-
mannsstöðu sína sem umboð til aö
leggja flokkinn niður og verður því
ekki neitað að Alþýðuflokkurinn
hefði ekki getaö valið heppilegri
mann í það hlutskipti. Jón Baldvin er
maður með reynslu þegar kemur að
því að koma flokkum fyrir kattarnef
og er þá skemmst að minnast útfar-
arinnar hjá Samtökum frjálslyndra
og vinstrimanna.
Sagan segir okkur að stjórnmála-
fokkar séu lífseigir. Lifi raunar
löngu eftir lát sitt. Svo hefur verið
með Alþýðuflokkinn. Margir hafa
gert sitt besta til að reyta af honum
síðustu atkvæðin. Það hefur ekki tek-
ist enn. En þá er líka þess aö geta að
flokkurinn hefur aldrei áður komiö
sér upp formanni sem hefur það á
stefnuskrá sinni að leggja flokkinn
niður. Dagfari.