Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1984, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1984, Side 7
DV. FIMMTUDAGUR 29. NOVEMBER1984. 7 Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Leigubifreiðar: Löggjöfin þ jónar ekki hagsmunum neytenda Viö endurskoöun löggjafar um leigubifreiöaakstur fara Neytenda- samtökin fram á aö koma fram sem aöili fyrir hönd þeirra sem kaupa þessa þjónustu. Neytendasamtökin skora á stjórn- völd að núverandi löggjöf veröi breytt vegna þess aö hún sé nú and- stæð hagsmunum neytenda m.a. vegna þess aö hún hindrar eölilega samkeppni. Samtökin telja aö alhr sem full- nægi almennum skilyröum til leigu- bilaaksturs eigi aö fá leyfi til leigu- bifreiöaaksturs enda hafi þeir meö- mæli eöa ráðningarsamning frá leigubifreiöastöö. APH Kaffi- sopinn hækkar Maöur nokkur frá Selfossi hafði samband við neytendasíöu DV um dag- inn og sagðist hafa keypt lítinn Braga kaffipakka á 28 krónur í Kaupfélagi Árnesinga og stuttu síöar hafði hann þurft aftur á kaffi aö halda og þá var pakkinn á 33 krónur. Fannst mannin- um þetta mikil hækkun. Neytenda- síöan komst síðar aö því aö um hafi verið- aö ræöa samvinnusölutilboö Sambandsins þegar kaff ipakkinn var á 28 krónur og síðan þegar pakkinn var á 33 krónur var þaö verö hiö eðlilega. Hinsvegar haföi neytendasíöan samband viö Gunnar Karlsson hjá Kaffibrennslu Akureyrar og sagði hann aö kaffið heföi hækkaö þann 20. ágúst sl. um 10 prósent. Síðan kom hækkun um 5 prósent þann 1. nóvemb- er og von er á enn meiri hækkun í byrj- un desember sem verður á bilinu 10 til 15 prósent. Gunnar sagöi aö verö á erlendum markaði heföi farið hækkandi á undan- fömum mánuðum og nú síöast heföi dunið yfir gengisfelling sem hefur mikil áhrif á kaffiveröiö því hráefnið er keypt meö dollurum. Hann sagöi þó að ákvöröun um verðhækkun á kaffi heföi verið tekin áöur en gengisfelling- in kom til en hversu mikil|hækkunin verður er ekkiákveðiöennþá. „Hráefniö í kaffið er yfirgnæfandi hluti kaffiverðsins hér svo aö veröið er mjög háö markaðinum. Launin eru hverfandi hluti — þau eru um 2 prósent af útgjöldunum hjá okkur.” Gunnar sagöi aö stjórnvöld í Brasilíu heföu alltaf greitt útflutnings- bætur og fara þær nú síminnkandi svo að líklega verður Brasiliukaffiö nú dýrara heldur en Columbiakaffiö en Columbiakaffiö hefur alltaf verið dýr- ara hlutfallslega. Kílóiö af Bragakaffi kostar nú 116 krónur í heildsölu en fyrir ári kosiaoi pakkinn 95 krónur. Alagning á kaffi var gefin frjáls í vor og sagöi Gunnar aö verö í smásölu væri því misjafnt. Áður en álagning var gefin frjáls var leyfð 14 prósent smásölu- álagning en nú er álagning allt frá 5 prósentum og upp í 20 prósent en þó er algengasta álagningin 10 til 15 prósent. JI Til aö mæta áhrifum síðustu gengisfellingar hefur PANASONIC ákveðið að gefa okkur kost á einni sendingu af hinu frábæru NV-370 myndsegulbandstækjum á stórlækkuðu verði. 8 liða fjarstýring Quarts stírðir beindrifnir mótorar Quarts klukka 14 daga upptökuminni 12 stöðva minni OTR: (One touch timer recording) Rafeindateljari Myndleitari Hraöspólun með mynd áfram Hraðspólun meö mynd afturábak Kyrrmynd Mynd skerpu stilling Mynd minni Framhlaðiö 43 cm breitt (Passar í hljómtækjaskápa) Upptökuminni til daglegrar upptöku t.d. er hægt að taka 10—12 fréttatíma fram í tímann. Sjálfspólun til baka Fín Editering. Klippir saman truflanalaust nýtt og gamalt efni. Tækið byggt á álgrind. Fjölvísir Multi-Function Displav stgr. verð ,48300. iMýtt verð 41.900.“ Panasonic gæði. varanleg gæði. AKUREYRl. Radíóvinnustofan Kaupangi. Tónabúðin. BORGARNES: Kaupfélagiö. ESKIFIÖRDUR: Pöntunarfélagió. HAFNARF|ÖRDUR: Kaupfélagiö Strandgötu. HELLA: Mosfell HORNAFIÖRDUR: Radióþjónustan. NESKAUPSTADUR: Kaupfélagið. SAUDÁRKRÓKUR: Rafsjá. SELFOSS: Vöruhús KÁ. SEYDISFIÖRDUR: Kaupfélagið. TÁLKNAFIORDUR: B|arnarbúð. VESTMANNAEYIAR: Músik og Myndir. JAPIS hf BRAUTARHOLTI 2 SÍMI 27133 í mjög umfangsmikilli könnun sem gerö var á vegum bresku neytendasamtakanna um bilanatíöni myndsegulbandstækja, kemur í ljós að PANASONIC BILA LANG MINNST ALLRA VHS TÆKIA og eru því áreiðanlegustu tækin á markaðinum að mati bresku neytendasamtakanna. Breski markaðurinn er stærsti vídeómarkaðurinn í Evrópu. verðlækkun. Panasonic CÆÐI VARANLEC CÆÐI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.