Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1984, Page 22
22
DV. LAUGAHDAGUR15. DESEMBER1984.
SKILABOB
FRÁ
JÖRBIJ
— Pfoneer tíundi býr sig undir að
yfirgef a sólkerfið
Horfið til himins á heiöskírri nóttu.
Leitið að Neptúnusi. Hugsið svo
hlýlega til Pioneers tiunda; hann er
þarna einhvers staðar úti í jökulkuld-
anum. í tólf löng ár hefur þessi
gervihnöttur verið einn á ferð um
óravíddir geimsins, sent heim til
jarðar ómetanlegar upplýsingar og
von er á meiru. í fyrra fór Pioneer út
fyrir braut ystu reikistjörnunnar og
býr sig nú undir að yfirgefa sólkerfið.
Það var þann 13. júní 1983 sem
Pioneer tíundi fór fyrstur allra
gervihnatta út fyrir braut Neptúnusar
sem um þessar mundir er ysta reiki-
stjarnan. (Vanalega er dvergurinn
Plútó enn f jær sólu. Braut hans er hins
vegar svo sporöskjulaga að næstu
sautján árin er Neptúnus lengst frá lif-
gjafanum okkar.) Allan sinn feril
hefur Pioneer verið í hlutverki braut-
Úti ijökulkuldanum. Teikning af Pioneer tiunda.
ryðjandans. Hann hefur lagt að baki
hér um bil sex þúsund milljónir kíló-
metra og á hverri klukkustund æðir
hann 48.875 kílómetrum lengra út í
óvissuna. Visindamenn bíða hverrar
sendingar hans í ofvæni því flest er á
huldu um það hvað tekur við þegar
reikistjörnunum sleppir.
Pioneer mun ef til vill staðfesta til-
vist mikilla þyngdaraflskrafta sem
kenningar eru uppi um og eru taldar
eins konar bergmál ægilegra hamfara
í árdaga. Hann mun áreiðanlega
hjálpa vísindamönnum að finna hver
þau öfl eru sem hafa truflandi áhrif á
brautir Uranusar og Neptúnusar.
Sumir halda því fram að þar sé að
verki dimm og útbrunnin fylgistjama
sólarinnar okkar, aðrir telja að tíunda
reikistjarnan leynist einhvers staðar
þama úti í myrkrinu. Og takist
vísindamönnum að hlera enn um sinn
hin veiku skilaboð frá átta vatta
senditæki Pioneers munu þeir öðlast
nýja og spennandi vitneskju um endi-
mörk sólkerfisins og þá víðáttu sem þá
tekurvið.
14 ár á ferli
„Pioneer markar upphaf nýs skeiðs í
sögu mannkynsins,” segir Richard 0.
Fimmel, sá maður hjá Geimferöa-
stofnun Bandaríkjanna sem sér um
eftirlitið með Pioneer. ,Jt fyrsta sinn
fer hlutur á okkar vegum út fyrir sól-
kerfið.”
Pioneer tíunda var skotið á loft frá
Canaveralhöföa þann 3. mars árið
1972. Hann varð fyrstur til þess að
smeygja sér gegnum loftsteinabeltið
uggvænlega milli Mars og Júpíters og
í desember 1973 var hann í aðeins 130
þúsund kílómetra f jarlægö frá ólgandi
yfirborði Júpíters. Pioneer sendi
fyrstu ljósmyndimar af rauða
blettinum dularfulla, rannsakaöi „loft-
hjúp” stjörnunnar og komst aö því að
Júpíter er hulinn vökva. Síðan varö
Pioneer fyrstur gervihnatta til þess að
notfæra sér snúning reikistjörnu og
þyngdaraflskrafta til þess að þeyta sér
áfram í átt að hinum reikistjömunum.
Aðferö Pioneers verður í fullu gildi
lengi enn.
Upphaflega höfðu vísindamenn ekki
gert ráð fyrir að Pioneer yrði nothæfur
nema 21 mánuð. En hann er enn að.
Eftir að hann lifði af gífurlega geisla-
virkni umhverfis Júpíter var sýnt aö
þessi 225 kílógramma gervihnöttur
væri þrautseigur með afbrigðum. Og
hann hegðaði sér líka svo að segja óaö-
finnanlega þegar hann fór framhjá
Satúrnusi árið 1976, Uranusi árið 1979
og Plútó þann 25. apríl í fyrra. Aðeins
tveimur mánuöum síðar skaust hann
svo út fyrir braut Neptúnusar.
Að „landamærum"
Pioneer telst þó enn vera innan sól-
kerfisins og svo verður um hríö. „Við
erum komnir út úr kastalanum,” segir
Fimmel, „en eigum eftir að komast
yfir díkið.”
„Díkiö” er rafmagnað gas úr
prótónum og nevtrónum sem streymir
með 1,6 milljón kílómetra hraöa á
klukkustund f rá sólrnni og myndar þaö
eins konar blööru utan um sólkerfiö og
skýlir því gegn geimgeislum utan úr
fjarska, geislum sem margir telja að
eigi uppruna sinn í hrikalegum dauða
risastjama.
Blaðran er straumlínulöguð þar
sem sólkerfið er á stöðugri hreyfingu
og Pioneer er nú á ferðalagi niður eftir
„halanum”. Hali þessi, sem markar
endanleg mörk sólkerfisins, er álitinn
vera átta til sextán þúsund milljón
kílómetra langur og Pioneer stefnir
ósmeykur að „landamærunum”.
Einhvem tíma snemma á næsta
áratug, eöa í síðasta lagi 1995, er búist
við því að Pioneer tíundi yfirgefi sól-
kerfið fyrir fullt og allt. Um sama leyti
reikna vísindamenn meö því að afl-
gjafi hans og senditæki verði loks að
þrotum komin. Þögn mun rikja í mót-
tökutækj um NASA.
En þar meö er ekki öll sagan sögð.
Pioneer tíundi mun lifa í tvö þúsund
milljón ár og hrekjast stefnulaust um
geiminn, en tilgang hefur hann enn.
Fari svo að skyni gæddar verur rekist
einhvern tíma á hann ber hann skUa-
boð frá jörðu; skjöld sem sýnir
staösetningu jarðar og sólkerfisins,
mynd af manni og konu og fáein orð á
grundvaUarmáli stærðfræðinnar.
Endursagt — IJ.
ÁR BIBLÍUNNAR
Á ÍSLANDI
Guðbrandsbiblía 400 ára
Nýja testamenti
OddsGottskálkssonar 444ára
HIÐ ÍSLENSKA
BIBLÍUFÉLAG