Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1984, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1984, Blaðsíða 56
FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsinqar, áskrift og dreifing, sími 27022. Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þá i sima 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sam birtist eða er notað i DV, greið- ast 1.000 krénur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku, Fullrar nafnleyndar er gœtt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. - Frjálst,óhá6 dagblaö LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 1984. Þingmenn samþykkjaaukin dagblaðakaup Við atkvæðagreiðslu um að vísa fjárlagafrumvarpinu til þriðju um- ræðu fðr fram sérstök atkvæða- greiðsla um heimild til dagblaöa- kaupa. 1 fjárlögum eru veittar 13 milljónir króna til dagblaða en at- k væðagreiðslan var um heimild til að kaupa 250 eintök af hverju blaði til stofnana umfrgm það sem segir i fjárlögum. Viö atkvæðagreiðsluna var viðhaft nafnakali að beiðni Halldórs Blöndals. Með heimildinni greiddu 38 at- kvæði, nei sögðu 15, 4 greiddu ekki atkvæði og 3 voru fjarverandi. For- maður Sjálfstæðisflokksins greiddi atkvæði gegn heimildinni en hún er borin upp af fjármálaráðherra og flokksbróður f ormannsins. DV þiggur ekki þessi rikisstyrktu dagblaðakaup. -ÞG' Hallgrímskirkju- þjófamirdæmdir Nýlega var kveðinn upp í Saka- dómi Reykjavíkur dómur yfir þeim mönnum sem brutust inn i Hall- grímskirkju skömmu fyrir jól í fyrra. Þama var um að ræöa tvo menn sem viöurkenndu innbrotiö eftir að lögreglan hafði handtekið þá eftir mikla leit. Höfðu þeir brotist inn í kirkjuna og stoliö þaðan silfur- munum og fleiru sem þeir hugðust siöan seija til aö fjármagna kaup á fikniefnum. I Sakadómi var annar þeirra dæmdur i fjögurra mánaða fangelsi og hinn i þriggja mánaða fangelsi fyrir innbrotið. -klp- Eimskip ódýrast Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna fær helmingslækkun á flutnings- kostnaði á frystum sjávarafurðum til Sovétrikjanna. Þetta reyndist vera árangur útboös á flutningunum. Eimskipafélag Islands átti lægst tilboð þeirra sjö skipafélaga sem buöu i flutningana. Eimskip bauðst til að flytja hvert tonn fyrir 55 dollara. Eimskip hefur haft þessa flutninga meö höndum í áraraöir. Félagið hefur að undanförnu tekiö 102dollarafyrirtonnið. -KMU. Mikiö fyrír lítið... /MIKLIG4RDUR Ég endurnýja til alda■ mótal „ÁSTÆÐULAUST AÐ GEFA FEÐ TIL HJÁLPARSTARFA” — segir framkvæmdastjóri Háskólahappdrættisins um milljónimar fimm „Ég minnist þess ekki að hæsti vinningur í happdrættinu hafi áður komið upp á óendumýjaðan miða,” sagöi Jóhannes L. L. Helgason, framkvæmdastjóri Happdrættis Há- skólans, í samtali viö DV. Eins og fram kom í DV í gær kom hæsti vinn- ingurinn í Happdrætti Háskólans, sem dreginn var út í vikunni, samtals fimm milljónir króna, á miða er ekki hafði verið endur- nýjaður vegna nýlegs fráfalls eig- andans. Maðurinn, sem var Reyk- víkingur, hafði átt miöann í 25 ár, alltaf endumýjaö með skilum, en aldrei fengið vinning. Ættingjamir, sem höföu í mörgu að snúast eftir fráfall mannsins, gleymdu að endur- nýja miðann og var þvi sagt aö fimm milljónimarfengju þeir ekkL „Hér er reglan sú að það er dregið úr öllum miðum, seldum, óseldum eða óendumýjuðum,” sagði Jóhannes. „Vinningshlutfallið er svo 70% af heildarveltu happdrættisins. Þeir vinningar sem koma upp á óselda eða óendumýjaða miöa fara afturíveltuna.” — Nú er hér um óvenjustóran vinning að ræða, heilar fimm milljónir. Hefur ykkur dottið í hug aö setja þessa peninga í einhverja söfnun, kannski Eþíópíusöfnunina? „Nei, það hefur okkur ekki dottið í hug, enda höfum við enga heimild til þess. Eg sé heldur enga ástæðu til þess. Annaðhvort eiga menn hér miða eða eiga þá ekki,” sagði Jóhannes L. L. Helgason. -KÞ. Fimm milljónir króna i peningaseðium. I hverju búnti sem Stefán Stefánsson, aðaifóhirðir Seðlabankans, heldur þama é er hólf milljón króna. DV-mynd: GVA Bláfjöllopin Skiðafólk getur dregið fram skíði sin um helgina, þab er að segja ef veður leyfir. Að sögn Stefáns Kristjánssonar íþróttafulltrúa verður Bláfjallasvæðiö opiö viðri sæmilega til skiöaiökana. I Skálafelli og Hamragili hefur hins vegar ekki verið opnað enn og verður að líkindum ekki fyrr en eftir áramót. -JSS. Enginkjama- vopnáíslandi Geir Hallgrímsson utanrikis- ráðherra hefur lýst því yfir að Shultz, utanríkisráðherra Banda- rikjanna, hafi fullvissað sig um það aö Bandarikin muni standa viö allar skuldbindingar sinar um það að engin kjamorkuvopn verði leyfð á Islandi. Eins og fram kom í DV í gær áttu ráðherramir viöræður i Brussel á utanrikisráðherrafundi aðildar- rikja Atlantshafsbandalagsins. -JH. Palme og Laxness Um miðjan dag i gær heimsótti Olof Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar, Halldór Laxness á Gljúfrasteini. Var heimsóknin liður i opinberri heimsókn sænska forsætisráðherrans hingað til lands. „Jú, hann kom hér og hans menn. Þetta var ánægjulegur hópur,” sagði Halldór i samtali við DV er hinlr sænsku gestir höfðu kvatt. — HvemigleistþéráPalme? „Eg hef séð hann áður og veit hversu ágætur maður hann er.” — Umhvaðrædduðþið? „Það er nú svona i selsköpum þar sem er fjöldi manns sem varla gétur þverfótað hver fyrir öðrum..., þá eru ekkl nein umræðuefni sem hægt er að státaaf.” — Þið Palme hafið þá ekki rætt kjarnorkuvopnalaust svæði á Norður- löndum? „Onei, ekk< töluöum viö um það. ” — Varboðiðuppákaffi? „Eitthvað var á borðum, bæði hart ogfljótandi.” — Hefurðu aldrei haft hom í siðu Svía? „Hom i siðu Svia? I! Það er ótrúlegt hvernig hægt er að snúa sannlelkanum við i einni spurningu. Sviar hafa verið minir bestu vinlr, ég hef enga átt betri i öllum heiminum og þar á ég mina bestu lesara,” sagði Halldór Laxness. Olof Palme flaug til sins heima á miðnætti. -EIR. Albert—konur— ogkrús Unnur Schram Agústsdóttir og Geröur Steinþórsdóttir í fram- kvæmdanefnd um launamál kvenna fóru á fund Alberts Guðmundssonar fjármálaráðherra í Alþingishúsinu í gær. Þær færðu honum að gjöf krús með merki nefndarinnar en krúsin á að minna á baráttu kvenna á umliðn- um árum og áratugum. Gjöfin var að þeirra sögn þakklætisvottur fyrir veittan stuðning vegna hádegisverðar sem fjármálaráðherra bauð konum til þann 27. nóvember i tengslum við ASI-þingið. Sá hádegisverðarfundur markaði timamót, sögðu þær. -DV-mynd KAE. DV-mynd: KAE
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.