Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1984, Blaðsíða 34
34
DV. LAUGARDAGUR15. DESEMBER1984.
ABBA-félagamir Bjöm og Benny og Tim Rice
fá mikið lof fyrir söngleik sinn um skáklistina
Skák er svolítiö fjarstæöukennt
viðfangsefni í söngleik. Tveir menn
aö tefla; hvernig má færa þaö upp á
svið og bæta viö söng og dansi?
Omögulegt, kynnu margir aö segja.
En þetta hafa þeir engu aö síður
gert, Björn og Benny, félagarnir góð-
kunnu úr hljómsveitinni ABBA. Þeir
fengu Tim Rice textahöfund til liös
við sig og bernskudraumur þeirra
varö að veruleika. Söngleikurinn var
nýlega frumfluttur í London af
London Symphony Orchestra, popp-
hljómsveit og söngvurum og við-
tökurnar voru fínar. CHESS sló í
gegn. Söngleikurinn er kominn á
hljómplötu (eitt laganna var sýnt í
síðasta Skonrokki) og er
væntanlegur á svið.
' „Auövitaö er ég stoltur í dag,”
sagöi Benny Andersson frumsýning-
arkvöldiö. „Það var yndisleg tilfinn-
ing að standa inni í miöri Lundúna-
sinfóníunni og heyra mína eigin tón-
list. Finna hana utan á skrokknum.
Vera búinnn aö losna viö hana úr
kollinum og heyra hana utan frá.
Heyra sömuleiöis aö hún hljómar
vel.”
Björn Ulvaeus bætir viö: „Við
vildum semja tónlist sem heföi sína
eigin sál og sem gæti lifað lengur en
rétt og slétt popplag. Þaö var indælt
að heyra þetta í kvöld og hafa á
tilfinningunni aö okkur heföi tekist
þetta. Sjálfur elska ég þessa tónlist
og þegar salurinn fagnaði okkur inni-
lega vissi ég aö öðrum féll líka vel viö
hana. Vissulega er ég stoltur.”
Og þó eru þeir Bjöm og Benny
ekki allsendis óvanir vinsældum.
Hver einasta plata ABBA hefur selst
í hér um bil tíu milljónum eintaka og
þaö er meira en lítiö. Þeir félagar
eru viðurkenndir snillingar í popp-
bransanum. En CHESS er annaö
mál. Eins og fyrr sagöi er þessi söng-
lelkur bernskudraumur þelrra og
þeir voru svo ráðnir í uö láta hann
rætast aö það var ein aöalástæðan
fyrir því aö ABBA lagði upp laupana
fyrir þremur árum. Þá var hljóm-
sveltln enn feiknavinsæl um allan
helm.
„Þaö er hægt aö túlka svo mlklu
brelðara svið tllfinninga i söngleik
heldur en i stuttu popplagl,” segir
Bjöm Ulvaeus. „Popplag má ekkl
vera lengra en þrjár tU fjórar
mínútur en i söngieiknum eru í sjálfu
sér engin takmörk. Maöur hefur full-
komið frelsi og þaö er mun auðveld-
ara aö túlka þaö sem maður v'll
segja.”
Móttökurnar í Barbican listamiö-
stööinni þar sem CHESS var frum-
flutt sýndu að sem endranær höföu
Bjöm og Benny náö tU fólksins. Og
eflaust á söngleikurinn eftir aö ná til
fleiri en þeirra sem þar voru; eins og
sæmir fyrrum ABBA-félögum eru
þeir með stóran sokk á prjónunum.
Aöferð þeirra viö að koma söngleikn-
um á framfæri er raunar nokkuö
óvenjuleg. Fyrst kynna þeir hann á
tónleikum og hljómplötu en upp-
færsla á sviöi bíður betri tíma þó
undirbúningur sé þegar hafinn. Nú
eru þeir á hljómleikaferðalagi um
Evrópu og aUs veröa haldnir fimm
tónleikar. Meö í förinni er London
Symphony Orchestra eins og hún
leggur sig, kórinn Ambrosian
Singers og fuUskipuö rokkhljóm-
sveit. Alls löOmanns!
Söguþráðurinn kunnug-
legur — að vissu marki
Söguþráður CHESS er saminn af
textahöfundinum Tlm Rice sem allir
þekkja af verkunum Jesus Christ
Superstar og Evltu. CHESS gengur
út á heimsmelstaraelnvígi i skák og
er óhætt að segja að það sé mjög i
brennldepli um þessar jafnteflis-
mundlr. Elnvigið i söngleiknum er
haldið I smábæ á Italíu, Meranó (I),
og þar ver bandariskur helmsmeist*
ari titíl Silin gegn sovéskum áskor-
anda. Taugastríö brýst út mUli kepp-
endanna, eins og títt er á heims-
meistaraeinvígum í skák; Molokov,
KGB-maöur í þjónustu Sovétmanns-
ins, og stúlkán Florenee í þjónustu
heimsmeistarans koma þar mjög viö
sögu. Að lokum ráöast úrslitin viö
skákborðið og nýr heimsmeistari er
krýndur: Sovétmaöurinn sigrar. Og
hann hlýtur fleira en heimsmeistara-
tignina. Stúlkan Florence segir skUið
viö Bandaríkjamanninn og gerist
lagskona Rússans. Hann gerist á
hinn bógmn pólitískur flóttamaöur á
Vesturlöndum en fær ekki konu sína
til sín. Hljómar kunnuglega, eöa
hvaö?
Ári síðar er haldiö nýtt einvígi í
Bangkok. Askorandinn er ungur
sovéskur stórmeistari sem KGB
treystir á. Gamli bandariski heims-
meistarinn er mættur á staöinn sem
fréttamaöur og enn í hefndarhug
vegna konumissisins. Hann gerir
bandalag viö Molokov frá KGB og
þeir beita sér fyrir því að eiginkona
heimsmeistarans fær leyfi tU að fara
frá Moskvu tU manns sins. Það á að
koma honum úr jafnvægi. En þvert
ofan i vonir andstæðinganna tekst
heimsmeistaranum nýja að sigrast á
persónulegum vandamálum slnum
og hann teflír betur en nokkru sinni
fyrr. Honumtekstaðsigrastááskor-
andanum unga og flokkshoUa og
helgar sig skákinnl upp frá því.
Bandaríkjamaðurinn reynlr að
kvelkja á ný lif í ástínni. Nlöurstaöan
erjafntefll.
Endursagt— IJ.
Björn Ulvaeus, Tim Rice og Benny Andersson var inniiega fagnað af
áhorfendum eftir frumflutning á CHESS.