Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1984, Qupperneq 35
DV. LAUGARDAGUR15. DESEMBER1981
35
Nýjar bækur
Nýjar bækur
Nýjar bækur
Bófonum
|r';- Móirí MBsagftr
MÁRIE MESSENGER
BÓKIN UM
BRJÓSTAGJÖF
Út er komin hjá Erni og örlygi
Bókin um brjóstagjöf eftir Márie
Mesenger. Halldóra Filippusdóttir
þýddi og staðfærði en Rannveig Sigur-
björnsdóttir hjúkrunarfræðingur las
yfir texta og veitti leiðbeiningar, en
hún starfar við ungbarnaverndina í
Kópavogskaupstað og hefur látiö þessi
mál mikiö til sín taka. Mælir hún ein-
dregið með brjóstagjöf og hvetur
mæöur öllum ráðum til aö hún geti tok-
ist.
Bókin um brjóstagjöf leggur fram
rök, hagnýtar upplýsingar og leiðbein-
ingar sem nauðsynlegar eru til aö ýta
undir sjálfstraust móður og hjálpa
þannig til að gera brjóstagjöfina ein-
falda, ánægjulega og vel heppnaða.
Bókin er byggð á traustum nýjum
upplýsingum úr heimi læknisfræðinn-
ar, ásamt reynslu höfundar sjálfs sem
móöur og ráðgjafa um brjóstagjöf.
Bókin f jallar um kosti br jóstagjafar og
brjóstamjólkur, útskýrir hvemig
mjólkurframleiöslan fer fram, gefur
báöum foreldrum góð ráð er lúta að
undirbúningi fyrir fæðingu bamsins,
helstu aðferðir við gjöfina, gjöf sam-
kvæmt kröfum eða vissum reglum og
hvernig hægt er að samræma vinnu og
brjóstagjafir. Einnig er fjallað um
hlutverk föður og annarra fjölskyldu-
aðila, kynlíf og brjóstagjöf. Ráð til að
venja barn af brjósti eöa pela og
hvenær og hvernig á að byrja að gefa
barni fasta fæðu. Itarlega er fjallaö um
almenn vandamál — líkamleg, sálræn
og félagsleg — og hvemig eigi að yfir-
stíga þau. Einnig vandamál er varða
fyrirburði og fötluö böm.
Uppsetning bókarinnar er miðuö við
aö auðvelt sé að finna ráðleggingar.
Textanum fylgja ljósmyndir og teikn-
ingar tii leiðbeiningar.
Bókin um brjóstagjöf er sett,
prentuð og bundin í Prentsmiðjunni
Eddu.
DAUÐINN
ER EKKITIL
Ut er komin hjá Isafoldarprent-
smiðju hf. bókin Dauðinn er ekki til
eftir finnska lækninn Rauni-Leena
Luukanen í þýðingu Björns Thors.
Bókin skiptist í tvo hluta. I fyrri hlut-
anum er m.a. fjallaö um hug-
lækningar, hugsanaflutning, hlut-
skyggni, hugarorku, lausn úr
líkamanum og endurfæðingu. En
seinni hlutinn er boöskapur sem
höfundur tók á móti meö ósjálfráðri
skrift frá látinni móöurömmu sinni;
fallegur boðskapur sem hlýtur að
vekja til umhugsunar.
Bókin er 191 bls. og er aö öllu leyti
unnin hjá Isafoldarprentsmiðju hf. Ut-
söluverð bókarinnar er kr. 678,00.
RAUNI-LEENA LUUKANEN
DAUÐMN
ER EKKl TIL
SÖLVI
HELGASON
Ut er komin hjá Isafoldarprent-
smiðju hf. bókin Sölvi Helgason, lista-
maður á hrakningi, eftir Jón Oskar.
Bókin er ævisaga Sölva, unnin upp úr
samtímaheimildum.
Efni bókarinnar er tvíþætt. I fyrri
hlutanum er lýst réttarhöldum yfir
Sölva og árekstrum hans við rétt-
vísina. En síðari hluti bókarinnar.
lýsir nánar lífi og störfum Sölva,
harðræði í dönskum fangelsum og til-
raunum til að ná rétti sínum.
Bókina prýða litprentaðar margar af
hinum sérstæðu og fallegu myndum
þessa misskilda listamanns. Bókin er
264 bls. og aö öllu leyti unnin hjá
Isafoldarprentsmiöju hf. Utsöluverð
bókarinnar erkr. 1.198,00.
VICTOR BRIDGES
GRÆNLANDS-
HAFSEYJAN
Sögusafn heimilannahefurgefið út í
bókarflokknum Sígildar skemmti-
sögur Grænlandshafseyjan eftir Victor
Bridges. I bókaflokknum Sígildar
skemmtisögur eru eingöngu gefnar út
gamlar vinsælar skáldsögur sem verið
hafa ófáanlegar árum saman en mikið
er spurt um. Græniandshafseyjan er
247 bls.
NUUTAJARVI
Eflirsótt, hnilmiðað.verðlaunað.
Pú finnur það í París, London, NewVork._
og f Reykjavík f íslenskum heimilisiðnaði, Hafnarstrœti.
ARABIA
FINLAND
SÖLUSTAÐIR
Arabia glervara
isl. heimilisidnaður
Libra
Hólmkjör
K.F. Héraðsbúa
Reykjavík
Hafnarfirði
Stykkishólmi
Egilsstöðum