Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1984, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1984, Side 9
DV. LAUGARDAGUR 22. DESEMBER1984 53 Guðbergur Magnússon, bóndi á Þverá í Svarfaðardal, á stórt kortasaf n. Úr safninu eru hér sýnishorn korta sem hafa verið notuð á íslandi allt f rá síðustu aldamótum til að senda jóla- og nýárskveðjur Það er töluverður aðdragandi að þessari söfnun. Eftir að ég kom hingað 1970 fór ég að rekast á kort hér og þar í húsinu. Þá hafði ég ekkert safnað kortum en ýmsu öðru eins og frímerkjum og mynt. Eg safnaði þessum kortum saman á einn stað og þau voru búin að vera þannig í tvö til þrjú ár áður en ég mannaöi mig upp til aö fara milli manna og betla kort. Ei'gin- leg söfnun byrjaði því ekki fyrr en 1974. A fyrsta staðnum fékk ég strax góðar viðtökur og fór þaðan með 150 kort. Upp frá því fór ég á hvern bæinn af öörum og fékk alls staðar svona góðar móttökur. Frá einum bæ kom ég mest meö 450 kort. Það má heita að ég sé búinn að fara á alla bæi í sveitinni og svo náttúr- lega hef ég líka leitað hjá öllu venslafólki mínu, ættingjum og vinum um allt land. Eg hef verið að leita aö alls kon- ar kortum. Það er sama hvort það eru jólakort, afmæliskort fenningarkort, sumarkort, póst- kort, boðskort eða minningarkort. Bókstaflega allt sem hægt er að kalla kort. Eina skilyrðið er að þauhafiverið notuðá tslandi. Um fjölda jólakortanna hef ég ekki nokkra hugmynd en ætli í safninu séu ekki alls 15 eöa 16 þús- und kort. Það kom fljótlega að því, þegar safnið fór að stækka, að lionsmenn á Dalvik komu aö máli við mig og fleiri safnara hér að við sýndum á Vorkomunni sem er nokkurs konar listahátíð. Þar sýndi ég kortin og upp úr þessari fyrstu sýningu fóru að berast sendingar til mín. Margt af því hef ég ekki huginynd um frá hverjum var. Eg vil líka geta þess að ég eignaðist safn Guömundar Magnússonar á Siglufirði. Hann hafði safnað kortum í 52 ár. Frímerkjum safna ég enn og mynt þó kortin séu aðalsöfnunin. En þar fyrir utan safna ég líka gömlum hlutabréfum, einnig víxl- um og ávísunum. Eg reyni að ná í allar gerðir frá öllum bönkum og sparisjóðum, nýjar og gainlar. Banka- og sparisjóðsbókum safna ég og ýmsu gömlu prenti í miða- fonni. Þetta er orðið mjög pláss- frekt, ég þarf orðið heilt herbergi undir safnið. Það er út um allt hús en í vor kem ég því vonandi saman í eitt herbergi. Það fer líka mikill tími í þetta í sambandi við flokkun og skráningu. Eg er til dæmis bú- inn að skrá hveit einasta póstkort og skrifa lýsingu á því. Eg veit ekki hvoit hægt er að draga út einhver jólakort sem mér finnast merkari en önnur. Ætli það væri þá ekki helst sería koita sem er allt frá 1910. A þeim er mynd vinstra megin og vísa hægra meg- in. Þau kort voru notuð allt til 1940. Jólakort sem nú eru notuð finnst mér ójólaleg miðað við gömlu kortin. Það var miklu meira lagt í gömlu kortin. Þau flytja ein- hverra hluta vegna meiri jólaboð- skap, til dæmis þessi kort þar sem versið er framan á. Þau koma auk jólakveðjunnar. Það vill nú svo til að ég sendi sjálfur lítið af jólakortum. Þess vegna kemur lítið til þess að ég velti útliti koita, sem við fáum, og gerð fyrír mér. Hins vegar geri ég meira en lesa jólakort. Eg grand- skoða þau, hver sé útgefandi og hvert myndefnið sé. Það eru nefni- lega ekki bara gömlu einföldu kortin sem ég safna heldur líka þessi tvöföldu. Það er almenn regla hjá mér að enginn fær að lesa aftan á kortin í safninu. Þar er oft einkamál sem fólk kærir sig ekki um að sé veriö að lesa. Allar þær upplýsingar sem ég gef um koitið er á litlum kortum sem ég lét prenta. Þar er skráð tegund korts, viðtakandi, sendandi, dagsetning ef einhver er, hjá hverjum kortið er fengið og livaða ár. Kortin sjálf eru númer- uö og raðað í möppur. Upplýsinga- kortunum er raðað á sama hátt í aðra möppu. Það þarf því að skoða möppurnar tvær sainan til að fá allar upplýsingar um kortin. Maður hefur víða rekist á að það er búið að henda gömlum kortum. Fyrir alla muni, gerið það ekki heldur látiö safnara njóta þeirra. Þaö veröur að líta á þessi söfn sem menningarverðmæti. Textiogmyndir. JónBaldvin Halldórsson óska þér gæfu á ófarnri hraut. þísi umvvþt hanúttoju-sóíin. / framiíð oú nútíð þvr jalti í skatít friður, svm iimtviða jólin. / S. U. Þetta er dæmi um kort þar sem vinstra megin er mynd og hægra megin vísuerindi. Þessi kort voru mikið notuð á árunum 1910 til 1940. í MuÁ M t Á stríðsárunum sendu breskir og bandarískirhermenn að sjálfsögðu jólakort til vina og ættingja, bæði hér á landi og erlendis. Ekki er vitað hver gaf kortin út, hvar þau voru gerð né hver teiknaði þau. Isbirnir og hreindýr eiga að minna á íslenskar aðstæður svo ekki virðist teiknarinn hafa vitað mjög mikið um Island. Fyrstu jólakortin sem notuð voru á islandi voru án áletrunar. Eins kort voru þá notuð til að senda alls konar boð og kveðjur, þar á meðal jóla- kveðjur. Þetta kort er frá því um aldamót.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.