Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1984, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1984, Blaðsíða 16
EFTIR FRIÐRIK INDRIÐASON Eldglæringar leggur undan 200 hest- afla vélsleöanum þar sem hann þýtur meö brauki og bramli yfir hjarniö á túndrunni. I ökusætinu situr Jóla- sveinninn, klæddur rauöum búningi með hvítu kögri, dúskhúfu og spegla- sólgleraugum. Jólasveinninn teygir aöra höndina aftur í bakpoka sinn og tekur jólahefti Playboy úr honum. Hann blaöar í því meö annarri hendinni. Það rymur í honum er hann virðir fyrir sér hina búttuöu ungfrú desember. Svo grýtir hann blaöinu út á gaddfreðna túndruna. Lítur upp og hlær. Fölleitt tungliö speglast í sólgleraugunum. Jólasveinninn er á hraðferð meö jólagjöfina til hamingjusömustu þjóöar í heimi. Hamingjusömustu þjóöar í heimi sem á í tímabundnum erfiöleikum. Gjöfin hafði valdið miklu fjaörafoki, hugarangri og svitastorknum and- vökunóttum í Jóiasveinalandi. Hvaö í helvíti er hægt aö gefa hamingjusöm- ustuþjóðíheimi? Efnt var tii skyndifundar. Hurða- skellir kom meö fyrstu hugdettuna. Sagöi hana táknræna: „Gefum þeim myndband af uppstoppuðum puddle- hundi meö bjórlíki flæðandi úr eyrunum.” Huröaskellir var púaöur niður og fékk þar að auki áminningu fyrir aö vera drukkinn eftir upphaf aðventu. Pottasleikir lagöi tii að gefa þjóðinni upphitaöar baðstrendur meö innbyggðum sóllömpum. „En að gefa henni heilanuddtæki, gerð 11?” spurði Tjaldbakur. Tjaldbakur? „Já, hann byrjaöi í fyrra. Alveg vonlaus. Af því, minn kæri, aö hún trúir aðgerð 1 virkl Algjöróþarfi.” Loks kom fram málamiðlunar- tillaga um aö grípa til neyðaráætlunar B. „Já, þamaeróska-bragðið.” Akveðiö var að gefa hamingjusömustu þjóö í heimi eina ósk. Hvað sem væri. Jólasveinninn var sendur af staö og sagt aö segja fyrsta Islendingi sem hann hitti aö hann mætti óska sér eins hlutar fyrir þjóö sína. Vindurinn á túndrunni vex. Verður aö stormi. Þaö hvín í gráskítugu skeggi Jólasveinsins. Vélsleöinn klýfur skafrenningstaumana sem leggur um túndruna. Ljós borgarinnar byrja aö glampa í fjarska. Ljós stærstu borgar hamingjusömustu þjóöar í heimi. Þaö glamþar á borgarljósin í speglasól- gleraugunum. Jólasveinninn ákveöur aö þeysa á fullu inn í borgina og stöðvast þar sem hann stöövast. Vélsleðinn æöir inn á milli húsanna. Kemur aö stórri upp- iýstri byggingu. Hótel eitthvaö stendur á henni. Stór, ljótur vélsleöi göslar inn um anddyriö á Hótel Loftleiöum. Dyra- karmar og glerbrot spýtast í allar áttir. Móttökustúlkurnar taka andköf. Gestir í anddyrinu æpa. Rauöklædda vp' n klofar af sleðanum og vippar sér aö .iæsta manni. Segir hátíöiegri röddu: „Þú mátt óska þér einnar óskar fyrir þjóö þína og hún mun veröa uppfyllt.” ,jVh, dra til helvete," segir Lund Svendström, verulega pirraöur. Hann er einn af meöiimum sænska hópsins sem bíður afgreiöslu í anddyrinu. Svendström er í léttri helgarreisu svona rétt fyrir jólastressiö heima. Alit hefur gengiö á afturfótunum. Ef ég kem einhvern tímann krumlunum um hálsinn á Malmquist vini mínum. . . hugsar hann. Að segja að fjöriö sé í Reykjavík. Þaö má vel vera. Hann gleymdi aö geta þess aö nær sólarhring tæki aö komast f rá f lug- stööinni á hótelið, auk annars. Og það í mannskaðaveðri. Svendström blótar vini sínum í sand og ösku þar sem hann stendur í and- dyrinu á Stenmark skíðabuxunum með Björn Borg hárbandiö aöeins of mikiö haliandi til hægri. Krumpaöur í útliti. Og þaö fyrsta sem maöur upplifir í anddyri hótelsins er einhver brjálæðingur sem ekur á vélsleða sínum í gegnum útihuröirnar. Mildi aö einhver drapst ekki. Ætli hann sé einn af þeim innfæddu sem Malmquist sagöi aö maöur ætti að varast. Eg meina það. Fá smetti meö grá- skítugu skeggi og speglasólgleraugum framan í sig bablandi eitthvað á máli innfæddra. Og engin vínlykt. Skrýtið. Hvert fór þessi náungi annars? Eldglæringar umlykja 200 hestafla vélsleöann þar sem hann þýtur meö brauki og bramli í átt til. .. Endlr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.