Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1985, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1985, Blaðsíða 1
Gúmbáturinn sem fannst bundinn við flakið. Ekki sáust nein merki þess að skipverjar hefðu komistí hann. DV-mynd GVA. Slmamynd í morgun. Óttast að fimm manns hafi farist með Bervík SH 43 frá Ólafsvík: Leitarmenn fundu flak bátsins á 25 metra dýpi Öttast er að fimm manns hafi farist með Bervík SH 43 frá Olafsvík er hún sökk um einni sjómilu undan Bifshöfn i gærkvöldi. Flak bátsins hefur verið staðsett á 25 metra dýpi. Skipverjarnir eru allir úr Olafsvík. Allir eru þeir f jölskyldumenn nema sá yngsti sem er um tvítugt. Sá elsti er umfimmtugt. Báturinn hafði verið á veiðum fyrir sunnan Snæfellsnes og var á leið heim til ÖJafsvikur. Hann hafði talstöðvar- samband við annan bát um klukkan 19.30 i gær og þá átti hann eftir um 20 mínútna siglingu til heimahafnar. Klukkustundu síðar kom Hugborg SH SH 87 að mannlausum gúmbáti sem varö til þess aö leit hófst. I ljós kom aö gúmbáturini) var bundinn fastur við skipsflak undir niðrl Verksummerki bentu til þess að enginn maður hefði farið í gúmbátinn þar sem rekakkeri var ósnert og þakið haföi ekki verið blásiö upp. Talið er að sjálfvirkur sleppibúnaöur hafði losaö gúmbátinn eftir að Bervík fékk á sig brotsjó og sökk. Veður á svæðinu var slæmt, 7—8 vindstig og þungur sjór og frost um 10 stig. Umfangsmikil leit hófst þegar. I henni tóku þátt flestir stærri bátar frá Rifi, Olafsvík og Grundarfirði. Undir miðnætti fannst ýmislegt lauslegt úr Bervík rekið að syðri hafnargarðinum á Rifi. 1 morgun var ákveöið að stækka leitarsvæðið. Fjöldi báta og skipa leitar nú frá öndveröamesi að (Xafs- víkurenni. Einnig hafa fjölmennir f lokkar úr björgunarsveitunum Björgu frá Hellissandi og Sæbjörgu frá Olafs- vík gengið fjörur í alla nótt og í morgun. Sjónarvottur á Rifi taldi sig hafa séð aö slagsíöa væri komin á bátinn í gær- kviðdi. Einnig herma óljósar fréttir að heyrst hafi frá Bemk að slagsíða væri kominábátinn. Bervík er 36 lesta eikarbátur, smíðaður árið 1954. Hann var á veiöum með drag- nót. KMU/APH Fjörur gengnar f morgun viö Rif. Taliö er aö báturinn hafi sokkiö sunnan viö vitann sem sést 6 myndinni. Þar fannst gúmbáturinn bundinn viö flak- ið og olfubrák á sjónum. DV-mynd GVA — Sfmamyndir f morgun

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.