Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1985, Blaðsíða 45
DV. FIMMTUDAGUR 28. MARS1985.
45
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Anna vöru-
bílstjóri???
Eins og fyrri daginn er konungs-
f jölskyldan í Bretlandi mikið í fréttum.
Fyrir skemmstu kom Anna fram í
sjónvarpsviötali. Þar sagöi Anna aö
þau hjón, Anna og Mark Phillips, heföu
próf til aö aka þungaflutningatækjum
og notuðu þaö er þau ækju þess háttar
tækjum á búgaröi sínum. Anna, sem er
dóttir drottningarinnar, sem kunnugt
er, sagöi aö ef fyrirkomulag þaö sem
ríkir í Bretlandi nú og hefur gert um
aldir, þ.e. konungsríkið, veröi lagt
niöur geti hún vel hugsað sér aö starfa
sem flutningabílstjóri.
„Þaö er alltaf þörf fyrir fólk sem
getur ekiö hestaflutningabílum, fólk
þetta verður að þekkja hvaö er fram og
hvaö er aftur á skepnunni og ég tel aö
ég geri þaö,” sagöi prinsessan.
Anna harmaði aö hafa ekki komist
til aö vera viö skímina á ööm barni
ríkiserfingjans Karls og konu hans,
Díönu. En aö hún skyldi ekki koma
varð vatn á myllu þeirra sem vilja
halda fram aö alvarlegt ósætti sé í fjöl-
skyldunni. Anna sagöist skammast sín
mikið fyrir aö hafa ekki komist en tók
jafnframt fram aö ósætti milli þeirra
Díönu væri ekki til nema í blöðum.
Mönnum þótti dálítið kostulegt aö af
öllum störfum skyldi Anna nefna þetta
sem hugsanlegt starf. Sennilega er þaö
vegna karlrembuhugsanagangs
þeirra. Húrra fyrir Önnu.
Anna og maður hennar, Mark Phillips, konunglegir vörubílstjórar.
Bjössi kominn í
fatahönnun líka
Björn með Janniku fögru á tiskusýningu í Frakkaríki.
„Hátt
hreykir.
Viö höfum oft minnst á afþreyingu
manna hér. Eins og menn vita er hún
af mörgu tagi, mismerkilegu þó. Sumir
stunda eitthvaö gagnmerkt í frí-
stundum sínum. Aðrir eru aö fást viö
það sem fæstir sjá tilgang í. Þessi
hefur af einhverjum óskiljanlegum á-
stæöum séð sig knúinn til aö klífa þessa
íssúlu. Kannski vill hann geta sagt eins
og í kvæöinu. „Þama varég.” En hann
veröur að drífa sig því brátt fer aö vora
og súlan verður aö vatni.
Ástin
blómstr-
ar víða
Þaö er sönn ást á milli þeirra
Ferdinants Marcos, forseta Fil-
ippseyja, og konu hans Imöldu.
Imalda samdi ástaróð til manns síns er
hún var stödd viö útför Tjernénkos í
Moskvu fyrir skemmstu. Talsmenn
forsetans segja aö þau hjón séu enn
sem ástfangnir unglingar eftir 30 ára
hjónaband. Hvorugt megi sjá af hinu
og ef annað fer í burtu séu eilífar bréfa-
skriftir, og ekki aðeins af hendi eigin-
konunnar, forsetinn ku enginn eftir-
bátur frúarinnar. Hann skrifi henni
bréf, yrki henni ljóö og fleira í þeim
dúrnum.
Þaö er virkilega ánægjulegt aö fá
slíkar fregnir af fyrirmönnum landa
víöa umheim.
Marcos Filippseyjaforseti.
Lítt grunaöi menn þegar Bjöm
nokkur Borg lagði fyrir sig módel- og
sýningarstörf aö hann hæfi framleiðslu
og hönnun upp á sitt eindæmi. Hann
hefur hafiö hönnun á svokölluðum
sportlegum fatnaöi fyrir menn sem
líkar ekki aö vera í stífpressuðum
fötum, vilja vera fr jálslegir og prúöir í
fasi. Hann hefur lagt dálítið upp úr aö
sýna fatnaðinn sjálfur og hefur þaö
óneitanlega verið góö auglýsing. Hann
gengur einnig dags daglega í fötum
sinum og er þá nánast sem gangandi
auglýsing. Menn hafa velt fyrir sér
hvers vegna hann hafi lagt fyrir sig
fatahönnun og í upphafi sýningarstörf.
Ekki hefur hann veriö að drýgja
tekjurnar, svo mikiö er víst. Af þeim
hefir hann víst nóg. Menn em helst á
því aö hann hugsi sér þetta sem at-
vinnu í framtíðinni er hann hefur lagt
spaðann á hilluna, því eins og menn
vita geta menn ekki stundað íþróttir og
keppt til eiUfðamóns. Já, hann er vel
hugsandi, strákurinn.
Hún er aldeilis ekki létt á brún
og brá hún Margrét Dana-
drottning þessa dagana. Hennar
konunglegi bílstjóri hefur orðið
uppvís að því að hnupla sykri úr
konunglega cldhúsinu og hcfur
gert það að sögn um árabil til að
drýgja tckjur sínar. Ekki gott til
afspurnarþað.
Muniði Colombu, leynilög-
regiuna sieipu i sjónvarpinu?
Maöurinn bak við Colombo heitir
Pcter Falk. Falk kallinn á um
sárt að binda um þessar mundir.
Eftir 7 ára hjónaband ákvað hin
huggulega kona hans að yfirgefa
hann. Svona getur þetta verið.
Við sendum blóm og kort.
Norska leikkonan Liv U llmann
hefur verið sæmd heiðurs-
verölaunum í Frakklandi fyrir
þátttöku sína í kvikmyndum,
sem rithöfundur og fyrir
manneskjulega framkomu.
Óþarft er að gcta að Liv var
ánægð með þetta. Sögunni fylgdi
að ekki voru fleiri scm komu til
greina við verðlaunaafhcndingu
þcssa.
Tom Selleck, sem menn hafa
nefnt nýjasta karlkynstáknið í
Hollywood, hefur lýst yfir að hann
hafi áhuga á að keppa um það
hnoss að fá hlutverk James Bond
í framtíðinni. Ljóst þykir að
margir eru um hituna og ekki
vist að Seileck fái. Við skulum s já
tu.