Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1985, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1985, Blaðsíða 2
2 DV. FIMMTUDAGUR 28. MARS1985. Kjörbörnin frá Sri Lanka Sólveig Engilbertsdóttir — fyrsta myndin sem tekin var af henni eftir að hún var ættleidd. Hún lét vel í sér heyra i læknisskoðun ó Landspitalanum i fyrradag enda svaf hún vært um kvöldið. Systkinin Guðbjartur Ólafur og Kristin Ósk, Sigurðarbörn. Þau eru lítil og nett, vega hvort um sig 8 merkur. Athygli vakti i flugvélinni á leiðinni heim að þau voru bæði i burðarrúminu. Hvemig ber fólk sigad þegarþað ættleiðir böm? Engilbertsdóttur, var til dæmis lítiö skólagengin og mjög fátæk. Hún haföi hreinlega ekki tök á aö annast barn sitt. Margar mæöurnar eru líka búnar aö brynja sig fyrir afhendinguna, sýna ekki tilfinningar sínar og eru í rauninni fegnar og ánægöar að einhver skuli geta tekiö börnin aö sér. Nú munu um 20 börn frá Sri Lanka búa á Islandi og fleiri eru á leiöinni. Er hægt að velja sér strák eða stelpu? En geta foreldrar valið um strák eöa stelpu? Þaö er aðeins hægt að lýsa yfir ósk sinni, ósk sem hugsanlega er hægtaðuppfylla. Þannig báöu þau Engilbert og Ingi- björg um stúlkubam og fengu. Þau Sigurður og Ellen báðu um strák og stelpu og fengu það líka. Og það er ekki hægt að velja sér börn. Börnin eru valin fyrir foreldrana. Sjálf afhendingin fer fram í rétti þar sem gengið er frá ættleiðing- unni, skrifaö undir nauðsynleg skjöl og þess háttar. Stúlkubörn frekar ættleidd I sambandi viö val á börnum mun vera nokkuð algengara að stúlkubörn séu ættleidd á Sri Lanka. Mæðumar treysta frekar á að eiga drengina með afkomu síðari ára í huga. Sumir kynnu að spyrja hvort greiða þurfi fyrir bömin. Svo er ekki. Aöeins er greitt fyrir skjalakostnað, stimpil- gjöld og þess háttar, auk þess sem lög- fræðingurinn, sem annast ættleiðing- una, fær greidda þóknun fýrir sitt starf. 14 tíma flug — London — Sri Lanka Og það er í rauninni ekkert smá- ferðalag að fara til Sri Lanka. Flestir fljúga héðan til London eöa Amsterdam og þaðan í einni striklotu tilSriLanka. Sem dæmi má nefna að feröin frá London til Sri Lanka tekur um 14 1/2 klukkustund. Þau Engilbert og Ingi- björg flugu þá leiðina. Lent var tvisvar en í hvorugt skiptið var farþegum leyft að yfirgefa vélina. Æðislegt að koma í norðangarrann Svo vai1 það loksins Keflavík: örlítið kaldara en í þessum 35 stigum á Sri Lanka, eða, eins og Ingibjörg og Engilbert orðuðu það: „Það var æðis- legt að koma í norðangarrann og finna allt þetta öryggi hér heima.” Kjörbörnin eru líka svo sannarlega í öruggum höndum. Annars ætti kannski ekki að tala um þau sem kjörböm, Kóreuböm eða Indónesíubörn. Þau eru Islendingar. .jgh ,,Þau eru mjög vær, láta svona vita af sér þegar þau vilja drekka og láta skipta á sér,” sögðu hjónin Sigurður Karlsson og Ellen Olafsdóttir í viðtali í DV í gær en þau hjón ættleiddu tvö börn frá Sri Lanka þann 21. mars síð- astliöinn. Eins og fram kom í DV í gær voru þau ekki ein um það. AIls voru kjör- bömin fjögur sem komu til landsins um síðustu helgi og var það stór stund hjá þessum þremur f jölskyldum. En hvernig ber fólk síg aö þegar þaö vill ættleiða börn? Fá allir að ættleiða börn, kostar þaö eitthvað, hversu mörg böm hafa veriö ættleidd frá svokölluð- um þróunarríkjum á síðustu árum? Félagið íslensk ættleiðing Hjónin þrjú, sem ættleiddu börnin fjögur frá Sri Lanka þann 21. mars síðastliðinn, nutu aðstoöar félagsins Islenskættleiðing. Félagið starfar sem áhugamanna- hópur fólks sem vill ættleiða börn. Það var stofnaö 1978 en fyrstu börnin voru ættleidd í kringum 1970. Þau börn vom frá Kóreu. Síðan þá hafa verið ættleidd börn frá Guatemala, Líbanon, Indónesíu, Tyrklandi, Colombíu og nú síðast Sri Lanka, alls um 140 böm. Flest hafa börnin komið frá Indónesíu, 60 talsins, á árunum 1981 til 1983. Ekki mörg hjón á biðlista Þessa stundina munu ekki vera mörg hjón á biðlista hjá Islenskri ættleiðingu, svo vel hefur gengið aö fá börn á undanfömum árum. T auplastdúkar Enginn dúkaþvottur, engin strauning, ótrúleg eftirlíking af fallegustu handunnum matar- og kaffidúkum. Hverfisgötu 74. Sími 25270. Póstsendum. Islensk ættleiöing er í sambandi við mann í Hollandi sem er tengiliður við þau lönd sem leyfa ættleiðingu. Sam- band hans byggist á gagnkvæmu trausti. Hann vinnur af hugsjón, vill ein- göngu fólk sem er tilbúið að axla ábyrgðina og hefur alla pappíra í lagi en á Islandi eru gerðar miklar kröfur varðandi vottorö og leyfi. Tilskilin leyfi Þau leyfi, sem þarf að hafa, em yfirlýsing frá dómsmálaráðuneytinu, leyfi bamavemdamefndar, hjóna- vígsluvottorð, fæðingarvottorð, saka- vottorö, tekjuvottorð og læknisvottorö. Það vekur og athygli að hjónin, sem DV ræddi við í gær og komu með böm sín heim um helgina, eru ung að árum, um og innan við þrítugt. Hvorag hjón- anna gátu átt böm saman. En sú stund, er hin raunverulega móðir afhendir barn sitt, hlýtur að vera stund tilfinninga. „Þetta var átakanleg stund,” segja þau Engilbert Valgarðsson og Ingibjörg Birgisdóttir. Lítið skólagengin og fátæk Móðir barnsins þeirra, Sólveigar Margar gerðir. Verð til dæmis: Stærð 130x160 kr. 366,- Stærð 130x180 kr. 384,- Stærð 150 x 225 kr. 456,- Stærð 150 x 265 kr. 532,.- hringlaga 140 kr. 358,- hringlaga 175 kr. 456,- Uppsetninga- búðin í fangi mömmu i fjörutiu þúsund fetum á leiðinni heim, i norðrið. „Hún hefur borðað mikið, er meira að segja orðin búttuð á islenskan mælikvarða." Ingibjörg baðar Sólveigu á gistiheimilinu þar sem þau bjuggu í Colombo, höfuðborg Sri Lanka. Eins og sjá má var notast við vaskinn, um annað var ekki að ræða.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.