Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1985, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1985, Blaðsíða 15
DV. FIMMTUDAGUR 28. MARS1985. 15 Báknið burt með láglaunastefnu? GARÐAR VIBORG STJORNARMAÐUR RÉTTARBÓTAR ALDRAÐRA Hagsmunir borgaranna HeiLsurækt og útivist þurfa jú fleiri þegnar borgarinnar en aldraöir, fatlaðir og öryrkjar. Þeir heilbrigöu eiga líka sinn rétt og þann rétt eygja verkfræðingarnir nú með myndar- hætti. Verkfræðingafélag Islands hafði fengið byggingarlóð í hinum svokall- aða „nýja miðbæ” í KringlumýrL ForystumÖnnum þess þótti það ekki henta sem skyldi og knúðu því á um, að fá lóð á öörum stað, nefnilega í Ásmundarreitnum. Þetta náði ekki fram í fyrstu, fengu ekki stuöning í borgarráði. Þá gripu verkfræðingar til þess ráðs, sem og fleiri hafa gert, að sækja um lóð í Kópavogi með jákvæðum árangri. Þegar sá möguleiki var ljós, að lóð fengist þar, þá bilaði mótstaðan í borg- arráði Reykjavíkur. Þeir Kristján Benediktsson og Sigurjón Pétursson með stuöningi verðandi og núver'andi borgarstjóra Davíðs Oddssonar, gegn andstööu Alberts Guðmundssonar og Björgvins Guðmundssonar og létu eftir að nágrenni Asmundarreitar fékkst sem byggingarlóð fyrir hús Verkfræðingafélags Islands. Og það er húsið sem nú er að rísa viö Suðurlandsbraut mörgum til ama. Meö byggingu þessa húss hverfur úr huga og sjón sá unaðsreitur sem græna byltingin ætlaöi að færa öldruöum, fötluðum og öllum almenningi til úti- vistar og heilsubótar. Ég vona að húsið blessist, þó þrýstivaldi hafi verið beitt, og okkur auönist að sjá húsráðendur trimma og skokka um þær grænu grundir sem eftir verða af því landi sem græna byltingin ætiaði að vemda, almenningi til athvarfs og heilsubótar. Garðar Viborg. Það er undarlegt aö ríkið skuli ekki búa betur að starfsfólki sínu. Mörg fyrirtæki leggja nú aukna áherslu á að næla sér í gott starfsfólk með menntun og reynslu, búa sæmilega að því svo að það tolli og bjóða því jafnvel að fyrra bragði upp á ýmiss konar endurmennt- un. Margir atvinnurekendur hika ekki lengur við rækilegaryfirborganir til að fá það starfsfólk sem þeir vilja. Sam- staöa þeirra um að halda laununum niðri er brostin í mörgum sérhæfðum greinum, einkum ýmsum verslunar- og skrifstofustörfum og sumum tækni- störfum. Stór hluti atvinnurekenda kýs samt enn sem áður frumstæðan at- vinnurekstur sem ekki krefst sérþekk- ingar. Þeir tíma ekki að skapa starfs- fólki sínu viðunandi lífskjör. Osérhæft starfsfólk nær engum kjarabótum nema með samtakamætti og miskunn- ariausrí baráttu. Hægri hönd auðvaldsins Ríkið er ekki aðeins verkfæri í hönd- um auðvaldsins heldur samvaxið lík- ama þess. Engu að síður gegnir það m.a. hlutverki sem er andstætt lögmál- um auðsins. Það veitir ýmsa þjónustu sem þarf lítið eða ekkert aö greiða fyrir, einkum menntun, heilsugæslu og almannatryggingar. Sú þjónusta er árangur af áratugabaráttu og fómfúsu starfi verkalýðssamtaka og kvenfé- laga. Ætlunin var aö þeir ríku fjár- mögnuöu þessa þjónustu með réttlátu skattakerfi. Sú hefur þó ekki orðið raunin. Auövaldið reynir margt til að losna við þennan jöfnunarþátt ríkisins sem er eins og æxli á líkama þess. Ríkið hefur frá fornu fari staðiö með atvinnurekendum á launamarkaönum og ekki látið sitt eftir liggja að halda laununum niðri. Það heldur enn sínu striki þótt sumir atvinnurekendur skerist úr leik. Nú hefur láglauna- stefna þess farið út í þvilikar öfgar að nánast er ómögulegt að ráða aðra en byrjendur og undirmálsfólk til ríkisins og stofnana þess. RQtið er að verða lítiö annað en 1—3 ára þjálfunarbúðir fyrir óþjálfaö skrif- stofufólk og fólk nýkomið úr námi. Þegar þjálfuninni er lokið bíða þessa fólks tvöfait betur launuö störf á hinum frjálsa vinnumarkaði. Nú eru ríkis- launin orðin svo lág að mörg pláss í þjálfunarbúðunum standa ónotuð. Menntamálaráðuneytið hefur t.d. aug- lýst tvisvar eftir riturum án árangurs. Albert hefur gengiö illa að ráða fólk til skattrannsókna þó þar sé boðið upp á úrvalsnám í skattalögum og hvernig hægt sé að sniöganga þau, tilvalið fyrir tUvonandi bókhaldsmenn fyrirtækja. Afleiðingar lágra launa hjá ríkinu Þessi „fómarstarfsemi” ríkisins Þorvaldur örn Árnason LÍFFRÆÐINGUR, STARFAR HJA menntamálarAðuneytinu. ---------------------- bitnar að sjálfsögöu á afköstum og gæðum þeirra starfa sem því ber að vinna. Það pirrar t.d. marga skóla- stjóra og deUdarstjóra að fá ekki að halda reyndum starfsmönnum. En æðstu yfirmennimir láta þetta við- gangast. Hvers vegna? Hafa þeir eng- an metnað fyrir ríkisins hönd? Svarið er nei. Fjármálaráðherra og fámenn klíka afturhaldsmanna ráða launastefnunni. Þessir æðstu yfirmenn ríkisins vilja ríkið feigt, sér í lagi þann hluta þess sem veitir jafn snauöum sem ríkum þjónustu. Þeir vUja að rfliiö standi sig iUa svo þeir geti sagt: Þama sjáið þið, einkarekstur er betri en opin- ber rekstur. Lifi frelsið til að græða á neyöannarra! Svo geta sjálfstæðir eiginhagsmuna- seggir að sjálfsögðu stofnað einka- skóla, ráðið tU sín hæfa kennara, þjálf- aða í ríkisskólum, og boðið börnum hinna efnuðu upp á dýra en vandaða kennslu. Sjúkrahúsin verða í einkaeign og peningalaust fólk fær aö deyja á tröppum þeirra í friði eins og í Amerík- unni. Á endanum veröur kannske stjórnarráðið lagt niður og starfsemin boöin út á frjálsum markaði. Kannske dómstólamirlíka! Þá veröur Island gósenland þeirra ágjörnu og riku. Þá ráða miskunnar- laus lögmál arðsemi og gróöa hvar- vetna. Þá verður auðgildið allt og manngddið ræðst af því. Er það kannske þetta sem við vUjum? Hvar er allt félagshyggjufólk- ið í landinu? Búið að gefast upp? Alítur kannske að félagshyggja sé orðin úr- elt? Þorvaldur Örn Árnason Mýmörg tækifærí „Við þörfnumst meiri stóriðju studda erlendu fjórmagni þvi hún gefur mikið i aðra hönd. En við eigum ekki að fá stóriðju stóriðjunnar vegna heldur til að treysta efnahagslif okkar." að læra það af reynslunni að einhæfni í atvinnulífi er hættuleg, einnig í stór- iðju. Um aUt þjóöfélagið úir og grúir af hugmyndum um nýja framleiðslu, sumpart meira að segja í tengslum við stóriðjuna. Þar er járnblendiverk- smiðjan á Gmndartanga lflriega ljós- ast dæmi. En flestar slikar hugmyndir virðast til þess eins fæddar að deyja í okkar fjármagnshungraða verðbólgu- þjóðfélagi, þar sem atkvæðaafls er neytt til þess að kría peninga út úr kerfinu. Það úir og grúir af hugmyndum Um allt þjóðfélagið úir og grúir af hugmyndum um nýja framleiðslu. Ekki eru þær allar þess eðlis að þær skipti sköpum fyrir þjóöarbúiö hver og ein. En flestar eiga þær það sameigin- legt að bjartsýnin ein dugar ekki til þess að hrinda þeim í framkvæmd. Og þær eiga einnig annaö sameiginlegt. Þær komast sjaldan fyrir augu alþjóð- ar nema sem nokkurs konar sérviska, sem einhver fjölmiölamaöurinn segir af náð sinni frá. Hvemig væri að einhver góður fjöl- miðill tæki sig til og kynnti þjóðinni kerfisbundið allar þær hugmyndir sem eru á sveimi vítt og breitt um þjóðfé- lagið um nýja framleiðslu og aukna verðmætasköpun, sem ein getur í raun leitt til bættra lifskjara í landinu. Skelfing væri það notaleg tilbreyting frá öllu bölmóðsrausinu í sumum áhrifamiklum fjölmiðlum sem helst geta engu komið frá sér nema hörm- ungumogóáran. Bölmóður fjölmiðla Vissulega er afstaða f jölmiðla ólík til þeirra manna sem enn eiga eitthvað eftir af bjartsýni og framkvæmdavilja. En það er eins og sumir fjölmiölar sjái ekkert nema svartnætti í kringum sig. Hvert tækifæri er gripið til þess að æsa upp alla óánægju og minnimáttar- kennd og stundum virðast tilefnin kær- komnari eftir því sem þau eru í raun ómerkilegri. Ef fólk ætti í raun aö taka fréttaflutning þeirra alvarlega myndi það flykkjast í stórum stíl til útlanda. Og hvað skyldi slíkur fréttaflutningur í raun hafa orðið mörgum ofviða? Eg held að einhverjum fjölmiðlinum væri alveg óhætt að snúa við blaðinu. Eg held að almenningur sé í raun orð- inn hundleiður á öllu bölmóðsrausinu, því hann veit vel að þaö er lífvænlegt á Islandi og sá fréttaflutningur sem gef- ur aðra mynd er ósannur fréttaflutn- ingur. En til þess að okkur vegni vel hér „á skerinu” eins og menn segja á stund- um, þarf ýmsilegt að breytast, satt er það. Ekki bara viðhorfin til aukinnar og nýrrar framleiðslu. Númer eitt, tvö og þrjú er að verðbólgan verði hamin, annars getum viö gleymt þessu öllu í bili. Við þurfum einnig aö koma á rétt- látri skattheimtu, þannig að hvorki komist menn undan því að gjaida keis- aranum það sem keisarans er né held- ur sé mönnum refsað fyrir dugnað. Og við megum heldur ekki einblina á hin veraldlegu verðmæti eins og við höfum skilgreint þau hingaö til. Við búum í dásanflegu landi sem opnar faöm víð- áttu sinnar hverjum þeim sem hvíldar er þurfi. Við þurfum að gæta þess vel að varðveita hreinleika þess, jafn- framt því sem við nytjum þessi náttúrugæði þess eins og önnur. Við þurfum þar — rétt eins og í stóriðju- málum — að gæta aö skrefum okkar og fylgjast vel með. En hvorki í þeim efn- um né öðrum megum við láta óttann og heimóttarskapinn hindra okkur í því að stíga skref f ram á við. Magnús Bjarnfreðsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.