Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1985, Blaðsíða 9
DV. FIMMTUDAGUR 28. MARS1985.
9
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Afnema verslun við
Suður-Afríkumenn
Skutu blint
inn i þvögu
Lögregla drap í dag tvo
blökkumenn meö því aö skjóta inn í
hóp fólks sem var aö ráöast á hús í
bæjarfélagi nálægt Uitenhage í
Suður-Afríku, eftir því sem lögregla
á staðnum segir. Húsið átti móöir
svarta bæjarstjórans. Svartir em-
bættismenn hafa orðið fyrir miklum
árásum annarra blökkumanna sem
líta á þá sem samstarfsmenn hvítu
Blökkufólk á harðahlaupum undan
táragasárás lögreglunnar í Höfða-
borg.
aðskilnaðarstjómarinnar í Suður-
Afríku.
Lögregla sagði að múgurinn hefði
verið um 2.000 manns. Þeir hefðu
hent bensínsprengjum og steinum að
lögreglu. Varðmaður og lögreglu-
maöur hefðu særst. Eftir að lög-
reglan hafði skotið blökkumennina
tvo var táragasi dælt á fólkið.
Bardagarnir blossuðu upp á sama
tíma og réttarhöld hófust vegna
dráps lögreglu á 19 manns fyrir ná-
kvæmlega viku. Einnig fóm fyrir
rétt í gær kirkjuleiðtogar sem fóm í
mótmælagöngu gegn kynþátta-
aðskilnaðarstefnu stjómvalda í
trássi við lög sem banna útifundi.
Opna um ísland í Le Monde
Frá Friðriki Rafnssyni, fréttarit-
araDVíParís:
Franska stórblaðið Le Monde
birti á föstudag heilmikla grein um
Island auk þess sem blaöið birti
flennistóra mynd frá Þingvöllum á
forsíðu. Greinin í blaðinu náði yfir
heila opnu. Hún var stórfengleg
lýsing á landi og þjóð þar sem brá
fyrir skondnum athugasemdum
blaðamanns, eins og þeirri að á
landinu byggju eitthvað um tveir
víkingar á f erkílómetra.
önnur eins landkynning hefur
ekki birst á síöum fransks blaðs frá
því forseti Islands var hér á
ferðinni í hittifyrra. Því má búast
viö að Frakkar stefni norður á bóg-
inn næsta sumar.
— lagt að Norðurlöndum að gera það sama
Norska stjórnin birti í gær laga-
frumvarp um að takmarka mjög eöa
algerlega verslun og viðskipti við
Suður-Afríku. Eninn vafi er á því að
frumvarp hægri stjórnar Káre Willoch
verðursamþykkt.
Auk þessa ætlar Sven Stray utan-
ríkisráðherra að leggja til við utan-
ríkisráðherra hinna Norðurlandanna
að Svíþjóð, Danmörk, Finnland og Is-
land geri eins. Hann mun leggja þetta
til á fundi utanríkisráðherranna sem
hófst í Helsinki í morgun. Einnig á að
leggja að öðrum þjóðum Evrópu að
fylgja fordæmi Norðmanna.
Meðal tillagna frumvarpsins er aö
skrásett verði öll norsk skip sem flytja
olíu til Suður-Afríku. En gagnrýnendur
kynþáttastefnu Suður-Afríku halda því
fram að norsk olíuskip flytji til Suöur-
Afríku allt aðhelmingi oliuþarfa lands-
ins.
Asbjöm Haugstvedt viðskiptaráð-
herra sagði að einnig myndi þurfa sér-
stakt leyfi stjómarinnar til innflutn-
ings frá Suður-Afríku. Stjórnin myndi
einnig íhuga að setja formlegt bann á
olíuútflutning til Suður-Afríku. Fyrir
er óformlegur samningur um að norsk
olía fari ekki til Suður-Afríku.
Vestrænir sendimenn segja að
mikilvægasta atríöi frumvarpsins sé
skrásetning olíuskipanna sem flytja
olíu til Suður-Afríku. Norskir skipaeig-
endur myndu sennilega hætta viö flutn-
inga til Suöur-Afríku af ótta við að
missa mikilvæga viðskiptamenn í mið-
austurlöndum yrði ljóst að þeir sigldu
til Suður-Afríku.
Nú fara þessir flptningar fram með
mikilli leynd. Oliuskipin sigla undir
fölskum nöfnum og koma i hafnir í
Suður-Afríku ljóslaus af ótta við að
hópar sem berjast gegn kynþáttastefn-
unni komi auga á þau.
En sendimennirnir sögðu þó að lík-
lega myndi Suður-Afríka ekki eiga
mjög erfitt með að fá önnur skip til
ferðanna.
Svíar hætta kolainn-
f lutningi frá Afríku
Sviar vilja einnig leggja sitt fram í
baráttunni gegn kynþáttastefnu Suður-
Afríku og stjórnin þar hefur ákveðið að
hætta öllum kolainnf lutningi frá Suður-
Afríku.
Orkumálaráðherra Svíþjóðar,
Birgitta Dahl, sagði í gær að stjórnin
hefði gert kolainnflytjendum ljóst að
hættu þeir ekki innflutningi frá Suður-
Afríku af sjálfsdáðum myndi stjórnin
skylda þá til þess. Þeir hefðu
samþykkt að fara að tilmælum
stjórnarinnar.
Formaður kolainnflutningsfélags
Svíþjóðar, Olle Berg, sagði að félag
hans hefði samþykkt samhljóða að
f ara að tilmælum stjómarinnar.
AIWA AIWA AIWA
Fermingarg,söfmeleðut
AIWA CA-30
Stórglæsilegt feröatæki meö LB, MB, SB og FM stereo, lausum hátölurum, 2x 14 vatta magnara,
tengingu fyrir plötuspilara, hljóðnema og heyrnartól, 5 banda tónjafnari, segulband með lagaleitara,
Dolby og fyrir normal-, chrome-og metalspólur. _ ,
Stgr. vo,ö 16.980,-
OpiÖ alla laugardaga fró kl. 10 — 12.
Allt tíl hljómfíutnings fyrir:
HEIMILID - BÍLIIVN
OG
DISKÓTEKIÐ
D i. .i
i\aa io
ARMÚLA 38 (Selmúla meginl 105 REYKJAVIK
SIMAR: 31133 83177 POSTHÓLF 1366
Stórkostlegt páskatilboð
?||0/ afsláttur á öllum gulum vörum.
/O Fermingarsett, jakkar, jogginggallar og bómullarbolir.
Aðeins
föstudag og laugardag
FÍ3EB
Laugavegi 41. Sími 22566.