Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1985, Blaðsíða 31
DV. FIMMTUDAGUR 28. MARS1985.
31
Umsjón: Þórir Guðmundsson og Guðmundur Pétursson
Réttarhöldin raikil þrekraun:
TREHOLT VER SIG STANDANDI
í ALLT AÐ SJÖ TÍMA Á DAG
Jón Einar Guðjónsson skrifar frá Osló
Frá Jónl Elnari Guðjónssyni, fréttarit-
araDVíOsló:
A mánudag var nákvæmlega einn
mánuður síðan réttarhöldin yfir Ame
Treholt hófust í réttarsal 23 í dómshús-
inu í Osló. Sem von var vöktu réttar-
höldin geysilega athygli. Dómssalur-
inn var fullur af blaðamönnum og næst
dómaranum og hinum ákærða slógust
ljósmyndarar um besta sjónarhornið.
Fyrstu daga réttarhaldanna komu tvö
norsk blöö, Verdens Gang og Dagblad-
et, út með aukaútgáfur. En það var
bara fyrstu dagana. Nú er allt mun ró-
legra yfir þessu máli. Margir hinna er-
lendu biaöamanna sem hér voru eru
farnir heim. Norsku blöðin hafa önnur
mál á forsíðunni.
Þetta stafar sjálfsagt af því að
réttarhöldin fara nú fram fyrir luktum
dyrum. Einnig hafa verjendur og
ákærandi varist allra svara þegar þeir
koma út úr réttarsalnum.
Neitar að sitja
Mestan hluta síðustu viku noíaði sak-
sóknari til að yfirheyra Treholt. En
Lasse Quigstad neitaði að segja.blaða-
mönnum um hvaö hann hefði spurt
Treholt. Hins vegar viðurkenndi Quig-
stad að Treholt héldi enn fram sakleysi
sínu.
Undanfamar vikur hafa verið mikil
ARGUS4D
, SYNIISTG
AHUGBUNAÐI
FYRIR
IBMPC
TÖLVUR
28,-
Fimmtudaginn 28., föstudaginn
29. og laugardaginn 30. mars n.k.
sýna 15 fyrirtæki hugbúnað fyrir
IBM PC tölvurnar. Á annað hundr-
að mismunandi forrit eru á sýning-
unni sem henta bæði einstakling-
um með minni rekstur, fyrirtækj-
um, skólum og stofnunum. Hér
gefst tækifæri til að kynnast á ein-
um stað þeim fjölbreytta hugbún-
aði sem til er fyrir IBM PC tölvurn-
ar.»Þeir sem ætla að fylgjast með
láta þessa sýningu ekki fram hjá
sér fara.
30. MARS '85
Sýnendur:
FRAMSÝN TÖLVUSKOLI H.F.
GiSLI J. JOHNSEN
HJARNI S.F.
HUGBÚNAÐUR H.F.
IBM Á ISLANDI
ISLENSK FORRITAÞRÓUN S.F.
ISLENSK TÆKI
MAREL H.F.
RAFREIKNIR H.F.
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
STJÚRNUNARFÉLAG ÍSLANDS
TÖLVUFRÆÐSLAN S.F.
TÖLVUMIÐSTÖÐIN H.F.
TÖLVUÞEKKING
ÖRTÖLVUTÆKNI H.F.
SÝNINGARSTAÐUR: SKAFTAHLÍÐ 24
Opnunartímar: fimmtudag kl. 9—18
föstudag kl. 9—18
laugardag kl. 9—16
Skaftahlíð 24,105 Reykjavik.
Simi 91-27700.
þrekraun fyrir Ame Treholt. Hann hef-'
ur næstum helming þess tíma sem
réttarhöldin hafa staðið yfir verið aö
svara spurningum dómara og saksókn-
ara. Treholt hefur svarað standandi og
neitað að setjast. Suma dagana hefur
hann þurft að standa í allt að sjö
klukkutíma. Honum mun hafa gramist
mjög þegar blöðin skrifuðu í síöustu
viku að hann hefði verið uppgefinn og
orðið að biðja um hlé á réttarhöldun-
um. Honum mun vera mikið í mun að
sýna að hann sé í góðri líkamlegri
þjálfun.
Þessi vika
Þessa dagana mæta lögreglumenn-
irnir sem yfirheyrðu Arne Treholt
fyrir réttinum. Lasse Qiugstad sak-
sóknari mun leggja mikla áherslu á aö
fá fram yfirlýsingar um ástand Tre-
holts við þær yfirheyrslur, rétt eftir
handtökuna á Fornebu.
Treholt hef ur sagt að handtakan hafi
verið svo mikið áfail fyrir sig að
hann hafi getað viðurkennt hvað sem
var. Quigstad mun reyna að sýna fram
á að þetta sé ekki rétt.
Hingað til hefur almenningur fengiö
litla vitneskju um hvers konar sannan-
ir það eru sem ákæruvaldið hefur til að
sanna að Treholt hafi látið Sovétmönn-
um í té upplýsingar sem varði öryggi
ríkisins. Samkvæmt upplýsingum,
sem komu fram í fréttum norska sjón-
varpsins, munu slíkar sannanir vera
af skornum skammti. Ákæruvaldið
byggi mál sitt upp á alls kyns vísbend-
ingum fremur en hörðum sönnunum.
Peningarnir
Sjálfur hefur Arne Treholt viður-
kennt að hafa átt óæskilega fundi með
Sovétmönnum, gefið þeim skaðlausar
upplýsingar og brotið trúnaðartraust
það sem honum var sýnt í starfi.
Eitt þaö sem ákæruvaldið reynir nú
að nota sem vísbendingu um sekt Tre-
holts er peningagjöf sú sem hann á að
hafa fengið frá Sovétmönnum og frá
Irökum. En Treholt og ákæruvaldið
eru liklega ekki sammála um hve háar
upphæðir hér er um að ræða. Það er
greinilegt að lögreglan telur að hann
hafi fengið mun hærri greiðslur en
hann hefur viðurkennt í réttarhöldun-
um undanfamar vikur.
I síðustu viku var talsvert rætt um
30.000 dollara sem Treholt á að hafa
fengið frá Titov í Helsingfors í maí
1983. Samkvæmt heimildum, sem
norska sjónvaipið telur áreiðanlegar,
finnast engar sannanir fyrir því að
Treholt hafi fengið þessa peninga frá
Gennadí Titov á þessum fundi í Hels-
ingfers. Fréttamenn skýrðu hins vegar
frá því að einhvem tíma á tímabilinu
Treholt neitar að sitja á meðan
hann svarar ásökunum saksóknara, [
en hann ó erfitt með að útskýra
hvers vegna hann fundaði svo
leynilega með Sovétmönnum.
maí — ágúst 1983 haf i lögreglan brotist
inn í íbúð Treholts og tekið þar myndir
af 30.000 dollurum. Samkvæmt heim-
ildum sjónvarpsins ætlaði ákæruvaldiö
að nota þessar myndir í sínum mál-
flutningi í þessari viku.
örlagarfk vika
Margir hafa velt því fyrir sér hvers
konar sannanir lögreglan hafi getað
aflað sér með hlerunum. Akæruvaldið
mun í lokuöum rétti leggja fram út-
skriftir á þeim símahlerunum sem lög-
reglan gerði. Ekki munu hins vegar
finnast segulbandsupptökur af þeim
fundum sem Treholt átti með Sovét-
mönnum. Þessi vika getur því orðið ör-
lagarik fyrir Treholt.
Ef allt gengur samkvæmt áætlun
munu sérfræðingarnir í málinu leggja
fram sína skýrslu. I hennimunuþeir
fjalla um þau skjöl sem Treholt er
ákærður fyrir aö hafa afhent Sovét-
mönnum og leggja mat sitt á hve mikil-
vægar þær upplýsingar voru í raun. En
vöm Treholts byggir aðallega á því að
upplýsingamar í skjölunum hafi ekki
verið mikils virði og hafi jafnvel birst
í tímaritum og blöðum. Menn hér bíða
mjög spenntir eftir að sjá hvort ungu
sérfræðingarnir, sem nýlega voru
skipaðir, séu sammála hinum eldri
sem voru skipaöir við upphaf réttar-
haldanna.