Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1985, Blaðsíða 11
DV. FIMMTUDAGUR 28. MARS 1985.
11
Fiskvinnslufólk frá Bæjarútgerfl Reykjavíkur, Ísbirninum og fleiri fiskvinnslustöðvum fjölmennti á þing-
palla. „Við stöndum alltof lítið saman, en nú yfirgáfu allir vinnustaði sina," sagði einn úr hópnum.
DV-mynd S.
Fiskvinnslufólk fjölmennti á þingpalla: ,
HÆRRILAUN - EKKIDUSU
Fiskvinnslufólk fjölmennti á þing-
palla þegar frumvarp sem Sighvatur
Björgvinsson og Guðmundur J.
Guðmundsson eru flutningsmenn að
var til umræðu á mánudaginn. Það
er um breytingar á tekju- og eignar-
skatti til frádráttar af tekjum fisk-
vinnslufólks.
I frumvarpinu segir að frádráttur-
inn skuli nema 10% af beinum
tekjum ófaglærðs verkafólks, fag-
lærös starfsfólks í fiskiönaði og verk-
stjómarfólks í fiskiðnaði.
Guðmundur J. kvaðst vonast til, en
hann mælti fyrir frumvarpinu, að
þingmenn bæru gæfu til að afgreiöa
þetta frumvarp fljótt og undan-
bragðalaust. Karvel Pálmason, sem
hefur tekið aftur sæti sitt í þingsölum
eftir veikindi (varamaður hans var
Sighvatur), sagði að nauösynlegt
væri aö leiðrétta áratuga misrétti
fiskvinnslufólks. En spurning vakn-
aði hvort með lækkun tekju- og
eignaskatts rétta sporið væri stigiö
eöa hvort þetta skref væri nógu stórt
til úrbóta fyrir fiskvinnslufólk og
öryggi þess.
Guðrún Helgadóttir tók þátt í
umræðum og gagnrýndi verkalýðs-
félögin í landinu harðlega fyrir að
þau hefðu ekki fariö réttu leiðina
fyrir launafólk. Veriö væri að bæta
til bráðabirgöa launamál eins hóps í
þjóðfélaginu. Þaö væri atvinnurek-
andanna að greiða þessu fólki og
öðrum mannsæmandi laun.
Guðrún taldi rangt að taka einn
hóp út úr eins og hér væri verið að
gera — hvað með prjónakonurnar og
saumakonumar í landinu? spurði
hún.
„Hvers vegna hefur verkalýðs-
forystan í landinu ekki séö til þess að
þetta fólk fái sómasamleg laun?
Þetta fólk á að fá hærri laun en það á
ékki að setja það á einhvem ölmusu-
bekk eða stinga upp í þaö dúsu,”
sagöi þingmaöurinn Guðrún Helga-
dóttir. Klappað var á þingpöllum
fyrir ræöumönnum en forseti neðri
deildar bað áheyrendur um aö virða
þingreglur og láta af slíku. Fleiri
tóku til máls um málið, m.a. Albert
Guömundsson fjármálaráðherra.
-ÞG.
Munum nota
yfirlýsingu
Steingnms
— í næstu samningum, segir formaður BSRB
„Eg tel mjög gott að fá þessa yfir-
lýsingu frá forsætisráðherra, að
opinberir starfsmenn eigi að fá laun í
samræmi við launakjör í landinu. Eg
tel að þetta styðji okkar kjarabar-
áttu og viö munum nota okkur þessa
yfirlýsingu í næstu samningum,”
sagði Kristján Thorlacius, formaður
BSRB.
Sem kunnugt er gerði ríkisstjórnin
sérstaka samþykkt síöastliðinn
fimmtudag vegna kennaradeil-
unnar. Þar segir á einum stað að
tryggja verði eðlilegt samræmi í
kjörum ríkisstarfsmanna og manna í
sambærilegum störfum á hinum al-
menna vinnumarkaði. I bréfi til
launamálaráðs BHM síðastliðinn
laugardag áréttaði forsætisráðherra
þessa skoðun sína með þessum
orðum: „Yfirlýsingar ríkisstjómar-
innar ber aö skilja svo aö ætlunin er
að tryggja ríkisstarfsmönnum sömu
heildarkjör og menn hafa við
sambærileg störf og ábyrgð, m.a. að
dagvinnulaun verði hin sömu þegar
borin eru saman laun, sem eru fyrir
fulla dagvinnu aðeins og tekiö tillit til
hlunninda hverskonar.”
I síðustu aöalkjarasamningum
fékk BSRB eins launaflokks hækkun
vegna launaskriðs á almennum
vinnumarkaði sem fjármála-
ráðuneytið viðurkenndi aö næmi 3 til
4%. Kristján Thorlacius sagði að þaö
væri vitað mál að þetta launaskriö
hefði veriö enn meira eftir þann tíma
sem metinn var til hækkunar hjá
BSRB en ekki væri auðvelt að fá það
upp á yfirboröið. En yfirlýsing Stein-
gríms væri siðferðilegur styrkur
fyrir komandi samninga.
BSRB getur óskað eftir viðræðum
um kaupliði gildandi kjarasamnings
eftir 1. júni næstkomandi. Ef ekki
næst samkomulag fyrir 1. júlí er
heimilt aö segja upp samningnum
fráogmeðl.september. -ÓEF.
wmm
Með þessu tilboði okkar viljum
við óska þér til hamingju með
ferminguna. Við bjóðum tvær
samstæður úr gullnu línunni
frá Marantz á sérlega hagstæðu
verði. Staðgreiðsluverð á
ódýrari gerðinni er aðeins
27.980 krónur eða gegn 7.000
króna útborgun og eftirstöðvár
greiðist á 8 mánuðum.
SAMSTÆÐA I
Utvarpsmagnari: 2 X 30 vatta (8
ohm hátalarar) eða 2X40 vatta
(4 ohm hátalarar) FM, MW og
LW útvarpsbylgjur.
Segulbandstæki: Með samhæfðu
og léttu stjórnkerfi og dolby-
suðeyði.
Plötuspilari: Hálfsjálfvirkur,
reimdrifinn með vökvalyftu og
léttarmi.
Hátalarar: 2X50 vatta góðir
hátalarar.
Skápur: Tækjunum góðu er
haglega komið fyrir í skáp á
hjólum.
SAMSTÆÐA II
Með samstæðu II kemur
SÉR-MAGNARI 2X33 vatta
(8 ohm hátalarar) eða 2X43
vatta (4 ohm hátalarar) og
SÉR-UTVARP með FM, MW
og LW bylgjum.
Þetta er kraftmeiri samstæða
með meiri fjölbreytni.
Plötuspilari, segulbandstæki,
hátalarar og skápur em sömu
og fylgja samstæðu I. Stað-
greiðsluverðið er 31.980 krónur.
eða, með þægilegri 7.000 kr.
útborgun og eftirstöðvar
greiðist á 8 mánuðum.
Skipholti 19, Reykjavik,
S: 29800