Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1985, Blaðsíða 18
18
DV. FIMMTUDAGUR 28. MARS1985.
Viðskipti og efnahagsmál Viðskipti og efnahagsmál
Tryggingafélögin.:
Hvers konar samkeppni
erþetta eiginlega?
„Hvers konar samkeppni er þetta
eiginlega? Hvaö eru tryggingafélögin
að tala um aukna samkeppni, auglýsa
bónus og fara svo fram á 78% hækkun
iögjalds bifreiðatrygginga frá í fyrra
þegar vísitala framfærslukostnaöar
hef ur hækkaö um 28% á sama tíma? ”
Spuminga sem þessara hafa bif-
reiðaeigendur spurt sig aö undanfömu
í kjölfar þess aö iðgjöld bifreiöa-
trygginga voru hækkuð um 68% þann
8. marssl.
Það var þó ekki sú hækkun sem
tryggingafélögin fóru fram á, því eins
og fyrr segir: þau báöu um 78%
hækkun. Tryggingaeftirlitiö lækkaði
sem sé örh'tið. En þó ekki nóg miðað
við þær fyrirspurnir sem rignt hefur
inn á ritstjórn DV að undanförnu um
hækkunina.
Fer það saman að auka
bónus og hækka iðgjaldið?
Rifreiðaeigendur viröast margir
hverjir vera ansi reiöir. En lítum á
málið. Fer það saman hjá trygginga-
félögunum að auglýsa hærri bónus,
afslátt, á sania tíma og iðgjöldin
hækkaum68%?
Erlendur Lárusson hjá trygginga-
eftirliti ríkisins.
„Jú, það fer saman. Vegna þess að
því hærri sem afsláttur trygginga-
félaganna, bónusinn, er á iðgjöldum
þeirra sem ekki valda tjóni því hærri
þurfa iðgjöldin að vera til að standa
undirtjónunum.”
Að sögn Erlendar er það iðgjaldiö,
taxtinn, sem hækkaði um 68%. Heild-
ariögjaldstekjur tryggingafélaganna
hækka um 57%. „Astæöan er sú, að
búið er að meta áhrif bónussins.”
Kemur gamla kerfið
betur út fyrir mig?
— Nú auglýsa tryggingarfélögin
bónus, bónus, og meiri bónus, 55%, eða
65% eða 70%, eftir atvikum. — Borgar
sig fyrir mig að fá gamla bónusinn,
50% á lægra iðgjald eða þann nýja til
dæmis 70%, á „hátt” iðgjaid nú?
„Maður sem fer úr 50% bónus,
segjum í 70% eins og þú talar um, hann
borgar nánast þaö sama i krónum taliö
og í fyrra, þrátt fyrir hækkun iðgjalds-
ins, taxtans, um 68%.”
Og Erlendur bætti viö: „Hið nýja
bónuskerfi borgar sig því greinilega í
því dæmi sem við tókum.”
Þetta leiðir okkur aftur að spurn-
ingunni, hverjir tapi á þessu nýja
bónuskerfi. Svarið virðist einfalt; þeir
sem engan bónus hafa, þeir sem ekki
hafa ekiðtjónlaust.
Dýrara en áður
að missa bónusinn
„Þessar nýju bónusreglur
tryggingafélaganna eru tvímælalaust
búnar að skerpa línurnar á milli þeirra
sem aka tjónlaust og þeirra sem valda
tjóni. Þaö er orðið dýrara en áður að
missa bónusinn.
Hinar nýju reglur virka því mun
meira hvetjandi á bflstjóra til aö aka
tjónlaust. Þaö eru þeir sem engu tjóni
valda sem njóta góðs af hinum nýju
reglum. Og þannig er þetta nýja kerfi
meira í átt til þess fyrirkomulags sem
er í nágrannarikjunum.”
En hvaö þýðir 68% hækkun iögjalds-
taxtans á heildarafkomu tryggingai-
félaganna? Þau fóru jú fram á 78%
hækkun frá því í fyrra?
Tjónakostnaður 600 m. kr.
— iðgjaldstekjur 600 m. kr.
„I áætlun okkar gerum við hjá
tryggingaeftirlitinu ráð fyrir að
tekjur tryggingafélaganna af
iðgjöldum bifreiðatrygginga verði 600
milljónir króna á yfirstandandi ári.
Það er sama upphæð og áætlaður
tjónakostnaður á árinu.”
— Nú spyr fólk sig, Eriendur, hvort
tekið sé tillit til vaxtateknanna af
iðgjaidsgreiöslunum? Það sem ég á við
er að iðgjaldið er greitt 1. mars og er
því fyrirframgreiðsla fyrir þau tjón
sem síðar kunna að vera á árinu?
„Jú, þaö er tekið tillit til þessara
vaxtatekna tryggingafélaganna
þegar iðgjaldið er fundið út. Fyrir
þetta ár er tjónakostnaður áætlaður
540 milljónir og rekstrarkostnaður 150
milljónir. Þetta gerir 690 milljónir
króna.
Vaxtatekjurnar
af iðgjöldunum
„En þar sem vaxtatekjur trygg-
ingafélaganna vegna iðgjaldanna eru
90 milljónir króna þá lækkar liðurinn
reksturskostnaður um þessa upphæö.
Nettókostnaður er því 600 milljónir
króna. Og iðgjaldstekjur á móti eru
600 milljónir.”
Eins og lesendum er eflaust kunnugt
fóru fram nokkrar umræður á síðasta
ári um tryggingamál hérlendis og þá
sérstaklega stööu nokkurra trygg-
ingafélaga vegna áfalla á erlendum
endurtryggingarmörkuðum.
— Er staða einstakra trygginga-
félaga nú þannig að þau ráði ekki við
nýja bónuskerfið, það verði þeim
ofviða?
„Staöa tryggingafélaganna er mjög
misjöfn en staða engra þeirra er svo
slæm að þau ráði ekki við hinar nýju
reglur.”
Talandi um stöðu trygginga-
félaganna. — Hver var afkoman,
Erlendur, á síðasta ári varðandi bíla-
tryggingarnar?
Tryggingafélögin töpuöu
65 milljónum króna
„Síðasta ár reyndist trygginga-
félögunum ekki hagstætt varðandi bif-
reiðatryggingar. Aætlað tap þeirra er
upp á 65 milljónir króna. Það er þannig
tilkomiö aö tjónakostnaður var 485
milljónir króna, á móti tekjum af
iðgjöldum, 420 milljónum króna.
Og ástæðan fyrir þessu tapi er sú að
á síðasta ári urðu fleiri slysatjón en
reiknað var með — og jafnframt alvar-
legri.
Auk þess hækkuöu iðgjöldin í fyrra
aðeins um 10 prósent miðað við áriö á
undan en kostnaður reyndist eiga eftir
aö hækka um 20 til 45%, misjafnt eftir
kostnaðarliðum.”
260% hækkun frá '82
1 þessu sambandi gat Erlendur þess
að iðgjöldin hefðu hækkað um 260% frá
1982, en heildariðgjaldstekjur (með
tilliti til bónussins) hefðu hækkaö um
226%. Á sama tíma hefði framfærslu-
vísitalan hækkað um 248%.
Erlendur bætti við að ekki væri alveg
sanngjarnt að miða við framfærslu-
vísitöluna því réttara væri að athuga
t.d. hvað viðgerðarkostnaður hefði
hækkaö og hvað verð á nýjum bílurn
hefði hækkaö. Þetta réði því hvert
meðaliðgjaldið yrði á hvem bíl.
Þá er rétt að skjóta því hér inn í að
ekki er séð fyrir um fjölda tjóna eða þá
hve alvarleg tjónin á bilunum veröa.
Þá er ekki hægt að sjá fyrir hve fólk
slasast alvarlega, en þegar slysatjón
eru bætt er tekið tilUt til tekjutaps
viðkomandi.
— ferþaö samanhjá
tryggingafélögunum
að auglýsa hærri
bónus á sama tfma
og iðgjöldin eru
hækkuð um
68 prósent?
Vátryggingarupphæðin
12,7 milljónir
Hvað hafa vátryggingarfjárhæðirn-
ar bækkað mlklð, Erlendur?
„Vátryggingarfjárhæðirnar hafa
hækkað úr 10 milljónum króna í 12,7
milljónir króna. Og sjálfsábyrgöin
hefur hækkaö úr 3.500 krónum í 4.500
krónur.”
Hinar nýju bónusreglur eru nokkuð
mismunandi eftir tryggingafélögum.
Ekki skal hér getið einstakra
tryggingafélaga en meginreglan er
þessi:
55% bónus eftir 5 ára tjónlausan
akstur, 65% bónus eftir 10 ára tjón-
lausan akstur. Og 11. árið kemur þá
frítt á eftir. Að minnsta kosti tvö
tryggingafélög eru með 70% eftir 8
ára tjónlausan akstur.
Samfleytt hjá sama
tryggingafélagi
Þegar menn skipta á milli
tryggingafélaga halda þeir
bónusnum frá gamla trygginga-
félaginu. Hámarksbónuss njóta menn
þó ekki nema hafa tryggt samfleytt hjá
tryggingafélaginu í tilskilinn ára-
fjölda.
Iðgjald tryggingar á venjulegri
fólksbifreið er við 68% hækkunina
komið í 12.000,- kr. á ári. Maður sem
fær 70% bónus. greiðir því 30%
iðgjaldsins, eða 3.600 kr.
Hvar í ósköpunum
er þessi samkeppni?
En við hófum þessa umfjöllun um
samkeppni sem svo mikið er talað um
hjá tryggingafélögunum. Hvar í
ósköpunum er hún. ef kjörin hjá
tryggingafélögunum eru yfirleitt þau
sömu?
„Samkeppnin kemur fram í lipurri
þjónustu við viðskiptamennina, til
dæmis bjóða sum félögin upp á að
skipta iðgjaldinu, greiðslunum. Nú og
þá eru sum tryggingafélögin lipurri i
tjónauppgjörum en önnur,” sagði
Erlendur.
Hvað með algjört frelsi
hjá tryggingafélögunum?
En hvað með að gefa þetta alveg
frjálst? Leyfa tryggingafélögunum
virkilega að kljást á markaðnum og
gefa þeim f relsi til að ákveða iögjaldið,
taxtann og einnig bónusinn?
„Min skoðun er sú aö þaö veröi að
vera ákveðnar reglur í þessum efnum.
Þannig er það alls staðar erlendis. Og
ég tel að hinar nýju bónusreglur
félaganna, það að fjölga bónus-
flokkunum, færi okkur nær því eins og
það ererlendis.”
-JGH
Iðgjöld bifreiðatrygginga, taxtinn, hefur hœkkað um 68% á milli ára. Tryggingafálögin fóru fram á 78%.
Nýju bónusreglurnar eru sagðar skerpa linurnar, hvetja til tjónlauss aksturs. Þannig eru tjónlausir
ökumenn látnir njóta góðs ó kostnað hinna. Það er nefnilega orðið dýrt að missa bónusinn,
Fryst loðna:
Japanir leita nú til Kanadamanna
— „bagalegt að kaupendur geti ekki treyst okkur”
„Hvað gerist? Jú, það sem gerist
er aö Japanir leita nú til Kanada-
manna um að fá þá frystu loðnu sem
við gátum ekki látið þá fá,” sagöi
Eyjólfur Isfeld Eyjólfsson, forstjóri
Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna.
„Verkfalliö kom á alversta tíma.
Það hefði ekki getað komið á verri
tíma. Utkoman var súað viö frystum
um þúsund tonn af loðnu en Japanir
vildu fá um 5 þúsund tonn af frystri
loðnufráokkur.”
Eyjólfur sagði að þaö væri mjög
bagalegt að kaupendur okkar
erlendis gætu ekki treyst á okkur
eins og raunin varö á í þetta skiptið
varöandi frystu loðnuna.
Og svo kann að fara aö Japanir
setji allt sitt traust á Kanadamenn í
framtíðinni. Að sögn Eyjólfs Isfelds
veiða Kanadamenn nánast eingöngu
íloðnufrystingu.
Þeir fyrir vestan hafa áður komiö
til bjargar. I fyrra brást loðnu-
frystingin hjá Norðmönnum, varð
6500 tonn miðað viö 18 þúsund tonn
árið 1983.
Kanadamenn notuðu tækifæriö og
juku sína loönufrystingu úr 11
þúsund tonnum í 18 þúsund tonn.
Tíminn leiðir svo i ljós hvort
Kanadamenn „hirða" Japans-
markaðinn á frystri loðnu fýrir fullt
og fast.
-JGH.