Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1985, Page 1
Frjálst, óháð dagblað
DAGBLAÐIЗVISIR
221. TBL. -75. og 11. ÁRG. - LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1985.
Þegar 24 dagar eru til jóla og
börnin fara að hlakka til fá Reykvík-
ingar nýjan lögreglustjóra. Sjálfur
sýslumaður Rangætnga, Böðvar
Bragason, flytur sig þá um set og
gerist yftrmaður á lögreglustöóinni á
móti Hlemmi. Þó hann sé listelskur
og gefinn fyrir bóklestur. eins og
fram kemur í viðtali helgarblaðs DV
í dag, þá veit hann manna best
hvernig umgangast á lögbrjóta eftir
15 ára starf sem sýslumaður og
bæjarfógeti á landsbyggöinni.
Tæpast á hann þó eftir að kljást
við mafíuna, alla vega ekki þá maf-
íu sem Indriði G. Þorsteinsson lýsir
fjálglega hér í helgarblaðinu. Þar er
Árna Bergmann líkt við Corleóne,
heimsfrægan mafiuforingja, og ýmis-
iegt annað safaríkt er látið fljóta
með - að kynlífi meðtöldu.
Á meðan sitja móðir og sonur og
ræðast við á garðbekk í austurbæn-
um sem i sjálfu sér þætti ekki i frá-
sögur færandi ef móðirin væri ekki
að verða níræð og sonurinn sjötug-
ur. Þau mæðginin hafa að öllum lík-
indum sofið vært
margar næturnar
án þess að hafa
áhyggjur af hrotum
en það getur breyst eftir
að þau lesa viðtalið við
Helga Kristbjörnsson lækni.
Hann segir að hrotur séu
ekkert grín, geti jafnvel verið
lífshættulegar.
Það sama verður tæpast sagt um
matinn á Bautanum á Akureyri en
þar var Jónas Kristjánsson að
snæða ekki alls fyrir löngu. Honum
þótti maturinn nógu
góður
til þess að ef
hann værí einhvern
tímann mjög svangur norður
i landi þá færi hann í Bautann.
Aftur á móti þykir það ekki góðs viti
þegar börn leifa frönsku kartöflunum
sínum. Hvort sem er á Akureyri
eða í Reykjavík. Fólk á að
klára matinn sinn; það vita
níræðar mæður sem i
sjötuga syni. -EIR