Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1985, Síða 25
DV. LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER1985.
25
„STRÁKAR, NÚ GET ÉG RENNT MÉR”
DV með heimsreisukylf ingum á Akureyri
„Strákar, þetta er ekkert mál, nú get
ég rennt mér,” sagöi Kínverjinn og
heimsreisukylfingurinn Peter Tang
um leið og hann veifaöi snjóugri spýtu
framan í félaga sína í Hlíðarfjalli í síö-
ustuviku.
„Bíddu, bíddu, Peter, hægan, viö ætl-
um fyrst að taka af þér mynd með skíö-
iö.” Síðan var smellt af. En ekkert
varö náttúrlega úr bruninu niöur Hlíö-
arfjall, lítill var líka snjórinn, þaö
haföi rétt gránað í fjallið um morgun-
inn.
Nú, og svo haföi Peter ekki, frekar
en félagi hans, Vincent Tshabalala frá
Suður-Afríku, séö snjó áöur. Einu sinni
er þó allt fyrst og þaö var í Hlíöarfjalli
í þetta skiptið.
Kapparnir hafa reyndar séö hvítar
litlar kúlur áöur, báöir eru miklir golf-
menn. Erindi þeirra til Akureyrar í
þetta skiptið er oröiö frægt. Þeir eru í
heimsreisuliöi Patrics O’Bryan og
komu til aö spila golf á nyrsta golfvelli
í heimi, Jaöarsvellinum á Akureyri.
Heimsreisukylfingarnir ásamt
fylgdarmönnum, kvikmyndagerðar-
manni, skoskum golfljósmyndara og
blaöamanni golftímaritsins Golf
Digest, geröu auövitaö ýmislegt annaö
en spila golf á Akureyri. Þeir notuöu
daginn líka til aö skoða sig um í höfuö-
staö Norðurlands.
Þeir byrjuðu á að fara í útsýnisferð
upp á Vaölaheiði. Þaðan var haldiö í
bæinn, Nonnahús, Laxdalshús og fleiri
merk hús skoðuð. Ekki mátti gleyma
Hlíöarf jalli, þar komust þeir í tæri viö
snjóinn. I miðbænum notuðu þeir tæki-
færiö til aö spígspora um og kíkja í
verslanir.
Þaö var svo í hádeginu þennan
fimmtudag sem Patrick O’Bryan stillti
þeirri hvítu upp á fyrstu braut á Jaö-
arsvellinum. Bingó, hann smellhitti
boltann, — heimsreisan var hafin.
Syðsti, austasti, vestasti, hæsti og
lægsti golfvöllur í heimi bíður þeirra á
næstu dögum.
-JGH
.Strákar, þetta er ekkert mál, nú get ég rennt mér." Kinverjinn Peter Tang mefl „skíflið" sem hann fann
í Hliðarfjalli. Peter haffli ekki, frekar en félagi hans, Vincent Tshabalala frá Suður-Afríku, séfl snjó áflur.
Á fyrstu braut i útsýnisferðinni, sjálfri Vaðlaheiði. Útsýni til allra átta yfir
Eyjafjörðinn og bærinn með nyrsta átján holu golfvöll í heimi blasir vifl.
Það er Bandarikjamaðurinn Gerrit Danromond sem stýrir kvikmyndavél-
inni. Efnifl sem hann myndar verflur notafl í sjónvarpsþátt um þassa heims-
reisu kylfinganna.
Vaðlaheiðin var ekki eingöngu notufl til afl skofla Eyjafjörðinn. Hár gantast
þeir Bryan Murphy, skoskur og einn frægasti golfljósmyndari heims, og
Jim Moriarity, blaðamaflur Golf Digest, vifl leiflsögumanninn Sigrúnu
Aðalsteinsdóttur. Jim vildi fá mynd af Sigrúnu þar sem hún væri mefl fing-
ur í munni, — skjálfandi af kulda.
c
*
KYNLIFSRAÐGJAFISUERIGEGN
Hún er 57 ára, afskaplega lágvaxin
og talar ensku meö áberandi hreim. Og
Bandaríkjamenn nefna hana þessa
dagana í sömu andránni og þeim verö-
ur hugsað til kynlífsins.
Ruth Westheimer er allt í einu orðin
víöfræg og varla hægt aö opna fyrir út-
varp eöa sjónvarp án þess aö sjá vin-
gjarnlegt andlit hennar, hýrlegt bros.
Og hún tekur sér hiklaust í munn öll
þau orö varöandi kynlíf sem sjónvarp-
iö hefur hingaö til ekki þoraö aö nefna,
ekki vitað af. En Ruth Westheimer tal-
ar um kynlífiö og kynfærin án þess aö
roöna — og öllum finnst þaö sjálfsagt,
enginn fer hjá sér, vegna þess aö hún
er „bara lítil, fullorðin kona” — ekki
nema 140 cm á hæö og svo afskaplega
vingjarnleg.
Ég held ég geri þetta vel
„Þaö var tími til kominn aö hefja
kynlífsfræðslu í stórum fjölmiölum,”
sagöi hún í viðtali við Reuter um dag-
inn og bætti viö: „Eg held aö ég geri
þetta afskaplega vel.”
Ruth Westheimer hefur undanfarna
mánuöi töfrað hvern dagskrárstjórann
á fætur öðrum þannig aö þættir henn-
ar, sem teknir eru upp á myndband,
hafa átt greiða leiö á sjónvarpsskjá-
ina. Hún hefur einnig skrifað sérlega
aðgengilega og vinsæla bók um efnið,
gefið út sjálfstæða myndspólu, útbúiö
sérstakt kynlífsspil, komiö fram í aug-
lýsingum fyrir ritvélar, gosdrykki og
(auövitaö) verjur.
Nýlega kom hún til Bandaríkjanna
frá Frakklandi, en þar kom hún fram í
kvikmynd sem nefnist „Kona eða
tvær” ásamt stjörnunum Gerard Dep-
ardieu og Sigourney Weaver. West-
heimer vonast til að geta bráðlega selt
kynlífsþætti sína til sjónvarpsstöðva
austan hafsins. Bók hennar, „Dr.
Ruth’s Guide to Good Sex” (Leiöbein-
ingar dr. Rutar varöandi fullnægjandi
kynlíf) hefur verið þýdd á þýsku,
frönsku, japönsku og tyrknesku.
Ruth er sögð mjög hógvær í fram-
komu, þættir hennar eru hvorki rót-
tækir né heldur valda þeir nokkrum
manni hneykslun — og þaö er sjálfsagt
skýringin á vinsældum hennar. Enda
segja sjónvarpsstöðvar, sem keypt
hafa þessa þætti, að þeir séu gott
fræðsluefni — alls ekki til þess fallnir
aöespa fólk upp (?).
Vandamál verður að leysa
„Kannski eru þættimir mínir braut-
ryðjandi hvað þaö snertir aö tala
hreint út um hlutina, ég taia um mál
sem sjaldan eru nefnd opinberlega. En
ég er gift. Eg á tvö fulloröin börn. Eg
er íhaidssöm... trúuð á að vandamál
eigi aö leysa. Sá boöskapur minn
kemst greinilega til skila.”
Hún heldur að þessi atriöi, sem hún
nefndi, séu ástæða þess að siðgæðis-
postular og aðrir varðhundar í samfé-
laginu hafa ekki séð ástæðu til að am-
ast við þáttum hennar — snnþá.
„En ég verð aö vera varfærin í orða-
vali þegar ég tala í útvarpið svo aö
hlustendur aki ekki út í skurö.” Og full-
yrðir aö hún noti alls ekki orð eins og
tittlingur, píka, snípur og fullnæging til
þess eins aö vekja á sér athygli.
Hún hefur ákveðnar skoöanir — og
er hvergi hrædd aö láta þær koma
fram. Hún er sannfærð um réttmæti
þess aö gefa fóstureyðingar frjálsar,
jafnframt því sem hún talar mjög fyrir
getnaðarvörnum.
En auk þessa hamrar hún á því aö
upplýsingar og umræður um kynlíf
leiöi til betra kynlífs.
Eitt er þaö sem hefur ýtt undir vel-
gengni hennar, en þaö er erlendi
hreimurinn í framburöi hennar.
„Ameríkönum finnst gott að geta sagt:
Nújá! — þaö hlaut að vera, hún er Evr-
ópumanneskja og getur þess vegna tal-
að um þessa hluti. Og svo kúpla þeir
roér sjálfkrafa saman viö Freud.”
Ruth er þýskur gyðingur aö uppruna
en var send til Sviss þegar gýðingaof-
sóknir hófust í Þýskalandi. Þá var hún
10 ára — og hefur ekki síðan frétt af
foreldrum sínum. Eftir stríðiö flutti
hún svo til Bandaríkjanna og hefur
hingað til unniö fyrir sér með kennslu.
Hún er eftirsóttur fyrirlesari í háskól-
um.
Frægö hennar nú hefur fært henni
auð — sem hún segist njóta. „Mér
finnst gaman að öllum þessum lúxus.
Stúdíóin senda iimósínur eftir mér
þegar ég fer í eða úr upptöku. Þá nýt
ég mín. Og ég er farin að klæöa mig
ákaflega vel — ég nýt þess að vera
smart.”
(Robert Basler/Reuter).
Bandarískir frœflsluþættir um kyn-
líf hafa nófl miklum vinsældum.
■*
OPIV TIL KL4 I UAÚ
JIS
Jón Loftsson hf.
• □CSJDI
Hringbraut 121 Simi 10600