Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1985, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1985, Síða 8
8 Ú gáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaðurog útgáfustjóri: SVEINN R.EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóriogútgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNÁS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlASSNÆLAND JÓNSSON Fréttastjórar: JÖNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON Auglýsingastjórar: PALLSTEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn: SfÐUMÚLA 12-14, SlMI 686611 Auglýsingar: SlÐUMÚLA 33, SlMf 27022 Afgreiðsla.áskriftir.smáauglýsingar ogskrifstofa: ÞVERHOLT111 ,SlMI 27022 Slmi ritstjórnar: 686611 Setning.umbrot.mynda- ogplötugerð: HILMIR HF., SlÐUMÚLA 12 Prentun: ARVAKUR H F. - Áskriftarverö á mánuði 400 kr. Verð I lausasölu virka daga 40 kr. - Helgarblaö 45 kr. Opin lönd og lokuð Við höfum daglega aðgang að upplýsingum um hryðju- verk á vegum stjórnarinnar í Suður-Afríku. Lögreglu- menn ganga berserksgang í manndrápum og skjóta jafn- vel börn og unglinga í bakið. Siðrænt gjaldþrot aðskilnað- arstefnunnar liggur í augum uppi um heim allan. Við höfum líka daglegar upplýsingar um skipulega mis- munun og mannréttindabrot af hálfu ríkisstjórnar ísraels á hernumdu svæöunum vestan við ána Jórdan. Við get- um, ef við kærum okkur um, kynnt okkur, hvernig arabar eru annars flokks borgarar í ísrael. Hvorki Israel né Suður-Afríka enn síður eru lýðræöis- ríki. Þetta eru ríki kúgunar og sumpart hryðjuverka, svartur blettur á samvizku hinna vestrænu ríkja, sem leynt eða ljóst hafa stutt þessi ríki gegn hinum minni máttar í þjóðfélaginu og í nágrenni þess. Sum vestræn ríki eru raunar aðeins lýöræðisleg inn á við, en haga sér eins og hryðjuverkasamtök út á við. 111- ræmdar eru tundurduflalagnir stjórnar Bandaríkjanna í höfnum Nicaragua. Ennfremur beinn og óbeinn stuðning- ur hennar við uppreisnarmenn frá Somoza-tímanum. Mitterrand Frakklandsforseti er kominn í dilk með Gaddafi Líbýuleiðtoga. Menn hans stunda hryðjuverk í erlendum ríkjum. Þegar þetta kemst upp, biðst Mitter- rand ekki einu sinni afsökunar, en lætur ofsækja þá menn, sem grunaðir eru um að hafa lekið þessum upplýsingum. Jafnvel þótt Frakkland og Bandaríkin væru talin til lýð- ræðisríkja, eru slík ríki ekki nema um 50 í heiminum, langflest í Vestur-Evrópu. Hin, sem ekki ástunda lýðræði, eru mun fleiri eða um 110 talsins. Lýðræði er því miður afar sjaldgæf munaðarvara á jörðinni. Lýðræðisríkin eru þau, sem virða ákvæði stofnskrár Sameinuðu þjóðanna um mannréttindi og upplýsinga- frelsi. Þessum samtökum er svo aftur á móti núorðið stjórnað með samblæstri ríkja, sem virða hvorki mann- réttindi né upplýsingafrelsi almennings. 1 atkvæðagreiðslum standa saman fulltrúar þriggja afla, Sovétblakkarinnar, arabaríkjanna og einræðisherra þriðja heimsins. Meðal þess, sem þetta ófélega lið hefur á heilanum, eru ísrael og Suður-Afríka. Ályktunum gegn þeim linnir ekki, en önnur ríki eru látin í friði. 1 Sovétríkjunum hefur allur þorri fólks engin borgara- leg réttindi. Þau eru öll í höndum fámennrar yfirstéttar, sem til dæmis beitir mannréttindasinna margvíslegu kvalræði og fremur í Afganistan villimannlegustu hryðju- verk, sem kunn eru um þessar mundir. í heild má segja um Sovétblökkina, arabaríkin og þriöja heiminn, að stjómarfar þar er verra en í Suður- Afríku og ísrael. Við höfum hins vegar yfirleitt ekki eins nákvæmar upplýsingar um kúgun og hryðjuverk slíkra stjómvalda, af því að þetta eru meira eða minna lokuð lönd. Israel og Suður-Afríka hafa það umfram slík ríki, að þau eru opin. Við getum fengið fréttir af ástandi mála og tekiö afstöðu til þeirra. Við fáum hins vegar stopular fréttir af æðinu í Afganistan og aðstæöum eða líöan mann- réttindasinna í Sovétríkjunum. Við megum ekki verða svo upptekin af óbeit á fram- ferði ríkisstjórna í opnum ríkjum, að við gleymum fram- ferði verri ríkisstjóma í lokuðum ríkjum. Og við skulum muna, að hornsteinn mannréttinda er upplýsingafrelsið. Baráttan fyrir því er mikilvægasta lóðið á vogarskálina. Jónas Kristjánsson. DV. LAUGARDAGUR28. SEPTEMBER1985. Efstir að siðferðisstigum — Þetta var enn einn átakalítill sigur, sagði hann um leið og hann slökkti á sjónvarpinu, brosandi út undir eyru. Þaö er lítið gaman aö því að horfa einn á fótbolta og þessvegna fer ég gjarna í heimsóknir þegar beinar út- sendingar eru. Þaö er lítiö gaman að því að horfa á leiki nema maður geti öskrað á nærstadda: — Sáuð þiö þetta? Víti! Ekkert annað en víti! Og útaf með andskotans manninn líka! Ég hef séð áhorfendur á fótbolta- leikjum sem standa rólegir og athugulir láta sér ekki bregða viö grófustu brot eða fegurstu mörk. Þeir ræða síöan yfirvegað og af hlut- lægni um leikinn á eftir, velta fyrir sér leikkerfinu og hugsanlegum breytingum á því, ásamt öðrum tæknilegum hlutum. Slíkir menn hafa ekkert á fótboltaleiki að gera. Úr ritvélinni Ólafur B. Guðnason hristi útréttan vísifingur hægri handar til merkis um að hann heföi ekki talað út um þetta mál. — Hitt er annað mál að miöað við fólksf jölda erum við tslendingar með mun betra lið en Spánver jar. Hann gerði stutt hlé ,og ég gretti mig. Mér leiðist fólksfjölda- argúmentið. Og ég sagði honum það og bætti viö. Þú verður að gera betur en þetta, ég á heimtingu á nýrri röksemda- færslu, nýrri aðferð við þaö að breyta ósigri í sigur. — Bíddu hægur, ég er að koma aö því. Sjáðu til, þarna sáum við liö þrautþjálfaðra atvinnumanna sem gera ekkert annað en leika knatt- spyrnu og teljast meir en meðal- menn í faginu, lenda í hinum verstu erfiðleikum viö að hafa sigur yfir íslenskum áhugamönnum. Nautn áhorfenda að fótboltaleikj- um felst í því að gefa sig hópsálinni á vald, að skilja sanngirni, réttsýni og aðrar dyggðir eftir heima. Eina dyggðin sem fótboltaáhugamaður á að sýna er trúfesta. Honum ber að styðja sitt lið, á hverju sem dynur. (Ef við víkjum hér aöeins að bein- um útsendingum almennt vil ég koma hér á framfæri þeirri skoðun minni aö það eigi að vera fótbolti í öllum beinum útsendingum. Gott dæmi um þetta var útsending frá Noregi nú nýlega þegar fram fóru kosningar þar í landi. Mestallan tím- ann, sem útsendingin stóð, sáust á skerminum nýjustu tölur úr ýmsum kjördæmum, ásamt tölvuspám um úrslit. Þetta var auövitað það sem málið snerist um en samt kvörtuðu báðir íslensku þulirnir undan því í sífellu að við værum óheppin með myndefni, þetta væri ákaflega óspennandi. Þaö sem þeir voru auð- vitað að kvarta yfir var að þetta var ekki fótbolti!) En semsagt fór ég í heimsókn, til þess að hafa félagsskap meðan lands- leikurinn var sýndur í sjónvarpinu á miðvikudag. Og gestgjafinn hefur um árabil verið stuðningsmaður Vík- inga en það er einhver trúfastasti og bjartsýnasti hópur manna á Islandi. að vísu veit ég að sumum eldri stuðn- ingsmanna liðsins var hætt að standa á sama um velgengni þess, en þeir hafa nú tekið gleði sína aftur. Þaö hefur nefnilega lengi verið trú hinna sönnu Víkinga að það sé hollt fyrir- sálina að tapa en óhollt að vinna, eða að minnsta kosti að vinna of oft. Það kom mér þessvegna svosem ekkert á óvart aö heyra þennan stuðningsmann Víkinga kalla ósigur íslendinga í Sevilla „enn einn átaka- lítinn sigur”. En ég gat þó ekki á mér setiö að minnast á eina staöreynd, þó slíkt sé yfirleitt álitið dónaskapur þegar rætt er um íslenska landsliðið. — Spánverjar skoruðu tvö mörk en Islendingar bara eitt! Hann brosti vorkunnsamlega til mín og kinkaði kolli. — Jú, rétt er það, okkar menn skoruðu aðeins eitt mark en fengu á sig tvö. Þú taldir rétt og færð aö laun- um kókoshnetu. — Fyrirgefðu, en hafi reglum FIFA ekki verið breytt stórlega, frá því ég lærði þær í porti Miöbæjar- skólans, hefur það lið sigur sem fleiri skorar mörkin. Ég gat ekki skilið annaö af orðum þínum og fasi nú áöan en að þú teldir Islendinga sigur- vegara í þessum leik. Þú hefur nú tækifæri til þess að leiðrétta mig, hafi ég misskilið þig. — Ég mótmæli því ekki að Spán- ver jar unnu þennan leik, sé fariö ein- göngu eftir markatölunni. Og þeir fara auðvitað til Mexíkó. Eg ætlaði aö taka til máls en hann Ég greip nú frammí fyrir honum. — Langflestir landsliðsmennirnir eru atvinnumenn í íþróttinni, svo þetta er haldlítið. — Satt er það að flestir þeirra þiggja laun fyrir aö leika knattspyrnu en knattspyrna er og verður leikur. Islendingar eru öðrum þjóöum greindari og skilja þetta vel og taka knattspyrnu þessvegna ekki alvar- lega. Það gera drengirnir sem búa erlendis ekki frekar en aðrir Is- lendingar. Það er hinsvegar skiljan- legt aö þeir taki tilboðum um að leika sér gegn háum launum. Islenska landsliðið er áhugamannaliö eftir sem áður. Hann gerði nú pásu meðan hann saup á kaffinu og hugleiddi loka- orðin. — Ég kallaði þetta átakalítinn sigur af því aö íslenska landsiiðið vinnur alltaf sigur. Hver sem úrslitin eru, í mörkum taliö, eru Islendingar alltaf hinir siðferðilegu sigurvegar- ar, eins og lítilmagninn hlýtur alltaf að vera ef hann bara gerir sitt besta. Hann leit á mig og sagði af fullri sannfæringu: — Við þurfum ekki aö fara til Mexíkó. Við erum siðferðilegir heimsmeistarar nú þegar. Ég játaði mig sigraðan, því slíkan sannfæringarkraft bíta ekki rök. Skömmu síðar fór ég heim, en ekki fékk ég kókoshnetuna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.