Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1985, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1985, Síða 13
DV. IJVUGARDAGUR 28. SEPTEMBER1985. 13 „Þessi voðalega illmælgi um ísland" „Jón Hreggviösson er kannski ekki margþátta persónuleiki — en það er í honum þessi tvískinnungur sem er kannski sérstakur, íslenskur eigin- leiki,” sagöi Helgi Skúlason leikari — hann var aö hlaupa inn á sviö á æfingu, Islandsklukkan fer á fjalirnar aftur nú um helgina og á eflaust eftir aö ganga langt fram á vetur. „Jón er náttúrlega aö berjast fyrir lífi sínu — og í leikritinu, eins og skáld- sögunni, eru ótal ógleymanlegar setn- ingar,” sagöi Helgi, sem færöist allur í aukana viö aö rifja upp nokkrar setn- ihgar: „Múgamaður veit aldrei hvort hann á þaö höfuö sem hann ber . . „Sérstæö persóna, Jón Hreggviösson,” sagöi Helgi — „þessi voðalega illmælgi um Island, sem hann lýsir sem „bann- aöri boru” — og snýr svo viö blaðinu þegar madaman úti í Kaupmanna- höfn gengur á hann. Þá kemur í ljós aö hann kann aö lýsa landinu öðruvísi — á sinn draum um sitt land.” Larry Hagman kampakátur með mömmu sinni, Mary Martin, sem segir hann vera algjöra andstæðu ribbaldans J.R. i Dallas. Islandsklukkan er skyldulesning í efsta bekk grunnskólans, og væntan- lega stefna kennarar nemendum sín- um í leikhúsið. „Þaö er einkar skemmtilegt aö leika Jón Hreggviðsson — skemmtilegt aö taka þátt í þessari sýningu,” sagöi Helgi — „ekki síst vegna þess að svo margir þekkja textann, þekkja setn- ingarnar þegar þær koma og taka þeim eins og gömlum kunningjum.” Einhverjar breytingar á sýningu Þjóðleikhússins frá í vor eru nauðsyn- legar, m.a. vegna þess aö Hjalti Rögn- valdsson, sem lék Jón Marteinsson, er fluttur af landi brott, og Pétur Einarsson tekur viö af honum. Á síðasta leikári var „Klukkan” leikin 18 sinnum — og kemur aftur upp nú um helgina. -GG. ◄c Helgi Skúlason — Jón Hreggviðsson. Hvers vegna J.R. þegir á sunnudögum Þegar Mary Martin er beöin um eiginhandaráritun er hún oftast beö- in að bæta aftan viö aö hún sé mamma J.R. Er henni sama? Hún var fræg sjálf á sínum tíma svo henni gæti fallið illa að þurfa aö bæta ein- hverju við eiginhandaráritun sína svo aö hún veröi einhvers virði. En Mary Martin lætur sér fátt um finnast og gleðst yfir velgengni son- ar síns. Mary er nefnilega hin raun- verulega mamma Larry Hagman sem flestir ef ekki allir kannast við sem J.R. nokkurn í bandarísku sáp- unni Dallas. Mary var á sínum tíma þekkt leik- kona, m.a. kom hún fram í þeirri þekktu mynd „Sound of Music”. Árið 1951 var hún stödd í London og Larry var þá 18 ára gamall. Hann fór og skráöi sig í flugherinn en á þeim tíma var stríö í Kóreu. Mary segist hafa verið mjög hrifin af því að Larry skyldi hafa skráö sig í herinn en jafn- framt undrandi á því hvernig hann komst inn því hann hefur lélega sjón. Hann svaraði: „Þú hefðir átt aö sjá náungann sem beið viö hliðina á mér. Hann sá mig ekki einu sinni.” Mary heldur áfram að lýsa vel- gengni sonar síns. Auövitaö gat Larry ekki flogið, hann kunni þaö ekki. Hann var þess vegna settur í þaö aö skemmta hermönnunum og þar kynntist hann þessum bransa í fyrsta sinn. Þarna geröi hann marga góöa hluti og læröi líka margt sem hannbýrennþáað.” Larry er algjör andstæða J.R. En hvernig er Larry viö sína raun- verulegu mömmu, jafngrimmur og viö Miss Ellie í Dallas? „Hann segir mér hvaö ég á aö gera og hvernig ég á aö gera hlutina. Þetta minnir kannski á J.R., en það er ekki rétt því hann er algjör and- stæöa J.R. í daglegu lífi. Ég er fegin aö frægöin kom á þessum tíma hjá Larry, ef hún heföi komiö fyrr heföi hann ekki verið reiðubúinn til aö tak- ast á viö hana. Larry hefur mikla kímnigáfu og frægðin hefur síöur en svo stigið honum til höfuös,” segir hin stolta móðir. Larry þegir á sunnudögum Eins og búast má við af svo þekkt- um manni sem Larry Hagman þá er hann mjög upptekinn enda sér hann orðið aö mestu um Dallas framleiðsl- una. Mary segir að í fjölskyldunni séu flestir mjög uppteknir og þegar fjölskyldan komi saman þá vilji allir komast að með sín málefni þannig aö málæðið sé mikiö. Larry sker sig þó úr hópnum ef fjölskyldan hittist á sunnudögum því þá þegir hann þunnu hljóöi af ásettu ráöi. Hann hvílir nefnilega radd- böndin einu sinni í viku. Ef á hann er yrt þá svarar hann meö því aö blístra. Eitt blístur þýöir aö hann sé sammála því sem hann er spurður að en tvö blístur segja nei. J.R. er orðinn afi J.R. eöa Larry Hagman hefur ver- iö giftur sænskri konu, Maj aö nafni, i tæp 30 ár og eiga þau tvö börn, son og dóttur. Sonurinn er nýlega búinn aö eignast barn sem gerir þaö að verkum að Larry (J.R.) er orðinn afi. Hann er nú 54 ára gamall og Dallas hefur veriö í gangi í átta ár, kannski hann veröi enn að þegar hann veröur langafi. Viö bíöum spennt. ÞýttSJ. kECKÐli Q ;»l VOLVO 244 GL árg. 1984, sjálfskiptur, grár met., ekinn 12.000 km. Verð kr. 640.000. VOLVO 244 GL árg. 1983, sjálfskiptur, blár met., ekinn 31.000 km. Verð kr. 560.000. VOLVO 244 GL árg. 1979, sjálfskiptur, gull met., ekinn 66.000 km. Verð kr. 290.000. VOLVO 244 GL árg. 1979, sjálfskiptur, brúnn met., ekinn 83.000 km. Verð kr. 270.000. VOLVO 264 GLE árg. 1980, sjálfskiptur, rafmrúður o.fl., gulbrúnn met., ekinn 93.000 km. Verð kr. 435.000. VOLVO 244 DL árg. 1978, beinskiptur, grænn met., ekinn 114.000 km. Verð kr. 230.000. VOLVO 345 DLS árg. 1982, beinskiptur, gulur, ekinn 57.000 km. Verð kr. 335.000. VOLVO 343 GLS árg. 1982, beinskiptur, blár met., ekinn 35.000 km. Verð kr. 340.000. 340 PALOMA árg. VOLVO 1984, beinskiptur, drapp, ekinn 16.000 km. Verð kr. 425.000. VOLVO 343 DL árg. 1984, beinskiptur, drapp, ekinn 21.000 km. Verð kr. 395.000. ISUZU TROOPER árg. 1982, 4ra gíra, 4x4, silfur-met., ekinn 54.000 km. Verð kr. 600.000. VOLVO LAPPLANDER árg. 1980, 4ra gíra, 4x4, Ijósgrænn og dökkgrænn, ekinn 17.000 km. Verð kr. 480.000. Opið virka daga frá kl. 9—18, laugardaga frá kl. 13- VAIMTAR BÍLA Á SÖLUSKRÁ - TÖKUM ALLAR TEGUNDIR BÍLA í UMBOÐSSÖLU. VOLVOSALURINN Suöurlandsbraut 16 • Sími 35200

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.