Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1985, Síða 15
DV. LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER1985.
i o
Tískan f rá aldamótum
— frá stífum reglum til frelsis
Tímarnir breytast og mennirnir meö
segir einhvers staöar. Klæðnaöur fólks
er einmitt eitt merki breyttra tíma og
víst er að fyrir þá sem vilja fylgjast
meö tískunni getur þaö verið ansi
kostnaðarsamt. Allt um þaö, víst er aö
hugsunarháttur á hverjum tíma og aö-
stæður í þjóöfélaginu geta haft sín
áhrif á tískuna. Viö skulum hér fara í
örfáum orðum yfir helstu tískufyrir-
brigöin sem einkennt hafa tískuna frá
því um aldamót.
1900
Konurnar áttu aö líta út eins og
þroskaðar konur, þ.e. barmmiklar en
um mjaðmirnar áttu þær að vera
grannar eins og strákar. Til aö ná hinni
réttu lögun voru notuð lífstykki.
1960
England meö Mary Quant var í
broddi fylkingar. Hún olli byltingu með
ódýrum fötum sínum. Bítlarnir og
Karnaby stræti voru allsráöandi í fata-
tísku unga fólksins.
1964
Fyrsta buxnadragtin kemur fram og
1966 urðu skálmarnar víðar, en þannig
héldust þær í mörg ár.
1968
Ár stúdentauppþota og tískan var
hlutur sem féll ekki í kramiö. Nú voru
allir í gallabuxum og blómamussum.
Það var tíska út af fyrir sig ekki satt.
1970
Alger ringulreiö í tískuheiminum.
Sjöl frá Indónesíu, pelsar frá Afganist-
an, hálsbönd frá Perú o.s.frv. Denim
og velúr voru vinsælustu efnin á þess-
um árum. Klæðnaður karla og kvenna
varö nú mjög svipaður.
1980
Allt í óreiðu. Kjólarnir mjög stuttir
eöa vel niður fyrir hné. Engar reglur
gilda lengur og allir stílar ganga. Tísk-
an er annaöhvort afar kvenleg eða þú
getur klætt þig eins og karlmaður.
Aðalatriðið er að þú klæðir þig eins og
þér hentar best. j>ýtt s J.
Dæmigert fyrir daginn í dag, siflan hvenær er þessi mynd eiginlega? Jú,
hún er ný og stúlkan frjálslega klædd enda gildir það i dag afl klæflast bara
eins og maflur vill.
1913
Kjólarnir voru svo þröngir að neðan
að helst leit út fyrir að konurnar væru
einfættar. Barmurinn átti áfram að
vera mikill. Mitt í lífstykkjafárinu kom
dansmærin Isadora Duncan fram á
sjónarsviðið og var hún ófeimin við að
sýna likama sinn eins og hann var í
dönsum sínum.
1914
Fyrri heimsstyrjöldin hófst og undir-
föt kvenna breyttust. Þau urðu nú
teygjanleg og mun þægilegri. Kjólarn-
ir voru áfram skósíðir en samt mun
þægilegri. Karlmennirnir voru á víg-
völlunum og konurnar tóku að sér störf
þeirra, þær voru bílstjórar, lestarverð-
ir og unnu verk karlmanna þar sem
það þurfti.
1920
Kjólarnir voru nú lausir og tími líf-
stykkjanna liðinn. Hvorki brjóst né
mitti áttu að vera áberandi. I fyrsta
skipti kom fram tíska sem höfðaði til
kvenna í öllum stéttum. Hárið var stutt
og kvenímyndin var strák-stelpa með
langa fætur, lítil brjóst, litlar mjaðmir
og breiðar axlir. Því hefur verið haldið
fram að strákatískan hafi komið fram
eftir stríðið vegna þess að karlarnir
sem lögðu línurnar höfðu umgengist
svo mikið af ungum mönnum á meðan
stríöiðstóðyfir.
1925
I fyrsta skipti sem hnén fengu að
sjást. Á sama tíma byrjuðu konur að
nota síöbuxur en oftast þegar þær voru
í einhverjum íþróttum. Pilsin urðu
styttri og sokkar og skór urðu mikil-
vægari í klæðnaði kvenna en fyrr.
1930
Mittið kom aftur. Axlapúðar voru nú
nauðsynlegir í öll föt. Rennilásinn kom
til sögunnar og blúndur voru algengar
á kjólunum. Buxur þóttu nú sjálfsagö-
ur klæðnaður fyrir konur.
1940
Buxurnar orðnar hversdagsklæðnaðui
hjá konum. Peysur og þægilegir skór
varð algengur klæðnaður kvenna. Föt-
in áttu að vera þægileg og alls ekki að
þrengja að. Þau voru nú orðin fjölda-
framleidd og ódýr.
1945
Stríðið búið og nú áttu konurnar aft-
ur að verða kvenlegar. Mjaðmimar
áttu að vera breiðar, mittið mjótt og
mikill barmur.
1947
12. febrúar þetta ár sýndi Christian
Dior „New-Look” línuna í fyrsta sinn.
Kjólarnir voru víðir og síðir, svona um
miðja kálfa. Hópur kvenna mótmælti
nýju síddinni og taldi að frelsi kvenna
hefði verið skert þegar innleiða átti
aftur síðakjóla.
1950
Áratugur kalda stríðsins og rokksins
einkenndist af háum og oddhvössum
hælum og örmjóu mitti. Kjólfaldurinn
færðist upp á við og stórir og þykkir
undirkjólar sáu um að halda pilsunum
uppi.
1956
Táningarnir fá í fyrsta skipti sína
eigin tísku. Nú áttu unglingsstelpurnar
ekki lengur að líta út eins og smækkuð
mynd af mæðrum sínum. Sérstakar
deildir voru settar upp sem eingöngu
seldu föt fyrir unglinga.
Dæmi: Opel Kadett LS lækkar úr 436.700 í 379.800!
Við vorum ekki fyrr búnir að lækka verðið á Opel Corsa,
Opel Kadett og Opel Ascona er tilkynnt var tollalækkun
á bílum sem leiðir af sér kærkomna auka-verðlækkun I
Þegar svo við bætist tilboð okkar um auðveldari leiðir
en áður til greiðslu á nýja bílnum, getum við fullyrt að
það hafi aldrei verið hagstæðara að kaupa Opel en
einmitt núna!
• Verðlækkunin er ótrúleg:
Þannig lækkar t.d. Opel Kadett LS úr 436.700 í
379.800!1)
Allt að
• 30.000kr. staðgreiðsluafsláttur
ef bíllinn er greiddur innan 45 daga frá afhendingu.
• Gamli bíllinn tekinn upp í
Það kemur sér e.t.v. best fyrir þig að setja gamla bílinn
upp í. Lítum á dæmi:
Nýr Kadett LS (eftir lækkun) kr. 379.800
Sá gamli kostar t.d. kr. 175.000
Þá er útborgun kr. 143.500
og afganginn greiðir þú með jöfnum
afborgunum á 5 mánuðum kr. 61.300
kr. 379.800
•» ■ ' .. '* ■" • ' "’T
1) Miðað við gengi 22. sept. '85
• 60% lánað
Þú getur líka samið við okkur um lánafyrirgreiðslu.
Dæmi:
Nýr Kadett LS
útborgun 40%
Helming eftirstöðva lánum
við síðan í 3 mánuði.
og afganginn í 12 mánuði
• Þínar óskir
kr. 379.800
kr. 151.920
kr. 113.940
kr. 113.940
kr. 379.800
Við erum alltaf til viðræðu um aðrar leiðir en þærsem
hér hafa verið nefndar. Þú ættir að hafa samband og
kanna málið.
BíLVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300
• * .. ,-*4,
4
Auglýsingaþjónustan