Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1985, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1985, Síða 9
DV. LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER1985. Kjötinnflutningur er ekki leyföur til íslands en mér skilst að hann sé leyfður til Keflavíkur, segir Albert Guðmundsson fjármálaráðherra í viðtali við DV í vikunni. Landsmenn hafa af áhuga fylgst með baráttu ráðherrans í sumar gegn því að varnarliðiö á Keflavíkurflugvelli flytji inn hrátt kjöt til neyslu og gangi þannig gegn lögum um gin- og klaufaveiki. „Keflavík — útlent ríki" I bili virðist svo sem f jármálaráð- herrann hafi orðið undir í þessari baráttu sinni. Hann hefur beitt þeim ráðum sem honum eru fær, í því ráðuneyti sem undir hann heyrir. Eftir að tollgæsla fór sérstaklega aö fylgjast með kjöti, sem kom sjóleið- ina, brugðu Bandaríkjamenn á það ráð að flytja sitt kjöt með flutninga- flugvélum sínum, beint til Keflavík- urflugvallar. Þar með losnuöu þeir við afskiptasemi fjármálaráð- herrans. Keflavíkurflugvöllur heyrir nefnilega undir Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra og flokksbróður fjármálaráðherra. En hann er ekki sama sinnis og Albert og ber fyrir sig ákvæði varnarsáttmálans, sem heimilar kjötinnflutninginn. Sátt- málinn stangast þannig á við lög sem fyrir voru í landinu. Fjármálaráðherrann er svo upp- gefinn að hann lítur á Miðnesheiöina sem fylki í Bandaríkjunum. „Ég hef engar leiðir til þess að stööva kjöt- innflutning í þetta útlenda ríki, Kefiavík,” segir ráðherrann í fyrr- nefndu DV-viðtali. Sýkt kjöt í Bandaríkjunum Það hefur komiö fram í fréttum DV að undanförnu að kjöteftirlit í Bandaríkjunum er úrelt og ekki hef- ur verið komiö í veg fyrir sýkingar og efnamengun í bandarísku kjöti. Vitnað er til vísindaritsins Science, en í skýrslu, sem birtist nýlega í rit- inu, er fullyrt að skemmt kjötmeti sé orsök helmings allra alvarlegra til- fella matareitrunar sem upp komu í Bandaríkjunum á árunum frá 1968 til 1977. Kjöteftirlit í Bandaríkjunum hefur ekki bolmagn til þess að fylgj- ast meö framleiðslu á hinum ýmsu tegundum kjötmetis svo sem eftirlit- inu ber samkvæmt þarlendum lög- um. Urbætur eru taldar kostnaðar- samar þannig að óraunhæft sé aö reikna með bót á næstunni. Vandi Bandaríkjamanna er sá að þeir hafa leyft nolkun fúkkalyfja, sýklalyfja og hormóna í fóöri eins og komið hefur fram hjá Páli A. Páls- syni yfirdýralækni. Lyfjaleifar finn- ast í kjöti og kjötskoöun nær ekki aö útiloka þetta kjöt. Hér mun einkum vera um að ræða svínakjöt, kjúkl- ingakjöt og kálfakjöt. Þegar yfirdýralæknir var spurður um smithættu af innfluttu hráu kjöti, sagði hann að hættan væri alltaf yfir- vofandi ef kjötið kæmi nálægt skepn- um. Slys hafa sem betur fer ekki orö- ið vegna þessa, a.m.k. ekki í seinni tíð. Lögfræðilegur ágreiningur Lögfræðingar fjármálaráöuneytis- ins hafa haldiö því fram að innflutn- ingur varnarliðsins á hráu kjöti brjóti í bága við lög frá árinu 1928. Lögfræöingarnir Sigurgeir Jónsson og Árni Kolbeinsson geröu úttekt á kjötinnflutningi varnarliðsins árið 1976. Niðurstaöa þeirra var sú að inn- flutningurinn bryti í bága við lögin. Ágreiningur Geirs Hallgrímssonar og Alberts Guðmundssonar byggist á því að í viðbæti viö varnarsamning islendinga og Bandaríkjamanna frá árinu 1951 stendur: „Hervöld Banda- ríkjanna mega flytja inn tollfrjálsan útbúnað handa liði sínu og hæfilegt magn vista, birgða og annars varn- ings til nota fyrir liðsmenn eina og L(Hiq<ird(K]spisti!l Jónas Haraldsson fréttastjóri skyldulið þeirra svo og fyrir verk- taka Bandarikjanna og menn i þeirra þjónustu, sem eigi eru íslensk- ir þegnar.” Með lögum frá Alþingi frá 1951 var varnarsamningnum og viðbætinum veitt lagagildi. Þá hefur það komið fram í álitsgerð Benedikts Sigurjónssonar, fyrrverandi hæsta- réttardómara, að innflutningur á vegum varnarliðsins sé í samræmi viðgildandilög. Á þessu byggir utanríkisráðherra afstöðu sína, en fjármálaráöherra telur hins vegar aö þar sem ekki sé tekið fram í viðbæti varnarsamn- ingsins að hann sé lögunum frá 1928 yfirsterkari þá standi það að inn- flutningur á hráu kjöti brjóti í bága viö lög. „Þau lög voru sett til að varna því að smit bærist til lands- ins,” segir fjármálaráðherra. „Þaö er því í hæsta máta furðulegt ef þaö er aöeins hættulegt ef tslendingar flytja inn kjöt,” bætti hann við. Alþingi verður að taka af- stöðu Þarna er komið að kjarna málsins. Alþingi Islendinga verður að taka af- stöðu til þess í vetur hvort það sé hættulegt að flytja inn hrátt kjöt til landsins eða ekki. Ef það er niður- staðan þá verður jafnt yfir alla að ganga. Breyta verður lögum og gera það klárt að hvorki Islendingar né Bandaríkjamenn flytji inn slíkt kjöt. Smithættan er sú sama. Verði niður- staðan hins vegar sú að Bandaríkja- menn megi flytja inn hrátt kjöt þá er heldur ekki hægt að meina Islending- um það. Sjálfsagt er þá að Islending- ar flytji inn sitt kjöt frá þeim löndum sem ábyrgjast heilbrigði kjötsins. Geti Bandaríkjamenn ekki sýnt fram á heilbrigði síns kjöts verða þeir ann- aðhvort að kaupa það hérlendis eða flytja það frá þeim löndum sem ábyrgjast gæði kjötsins. Verði það ákvörðun þingsins að halda fast í bann á innflutningi á hráu kjöti verða Bandaríkjamenn að sætta sig við það að leggja sér til munns íslenskt kjöt. Ekki verður séð að þar sé í kot vísað. Islendingar framleiða ágætt svína- og nautakjöt og islenskir bændur hafa nýlega sýnt fram á það að þeir geta boðið varnar- liðinu mun ódýrara nautakjöt en þeir neyta nú. Hérlendis eru stór kjúkl- ingabú þannig að enginn vandi ætti að vera að fullnægja eftirspurn frá varnarliðinu. Þá má ekki gleyma ís- lenska lambakjötinu. Nóg er til af því. Islendingar státa sig af því að framleiða besta dilkakjöt sem fáan- legt er. Seljum það til varnarliðsins. Það er alkunna að menn, sem dvelja í öðrum löndum en sínu heimalandi, semja sig að siðum í nýju landi. Á Is- landi borða menn ágætt lambakjöt. Bjóöum það gestum okkar, hvort sem þeir eru varnarliösmenn eða aðrir. Breytingar á samningi Varnarsamningur Islendinga og Bandaríkjamanna er gerður á jafn- réttisgrundvelli. Komi í ljós galli á þeim samningi verða þjóöirnar að breyta samningnum. I þessu tilfelli felst hætta á sýkingu klaufdýra á Is- landi. Við það verður ekki unað. Breytinga er þörf og það fljótt. Bandaríkjamenn eru á Islandi með leyfi íslenskra stjómvalda. Þeir verða að fara að þeim leikreglum sem gilda. Hér gildir ekki afstaða stórveldis til smáríkis. Ríkisstjórnin hefur verið í hálf- gerðum vandræðum með þetta kjöt- mál í sumar og ekki vitað hvaö gera skal. Niðurstaða var sú að fá bænda- samtökin til þess að fá úrskurð dóm- stóla á réttmæti kjötinnflutningsins. Mikil vandkvæði eru á slíku. Ráð- herranum þarf að stefna fyrir lands- dóm og til þess þarf sérstaka heimild Alþingis. Bændur hafa því eðlilega hafnað þessari leiö sem ófærri. Af- staöa Þorsteins Pálssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, er rétt í þessu máli. Eftir að ríkisstjórnin hafði ákveðið dómstólaleiðina sagði Þor- steinn: „Ef ágreiningur er um hvað eru rétt lög í landinu þá hefur ríkis- stjórnin öruggan meirihluta á þingi til að kveða skýrt á í því efni. ” „Ég veit ekki hvort Alþingi vill úr- skuröa um hvort umrædd lög séu enn í gildi eða hvort varnarsamningur- inn hafi ýtt þeim til hliðar,” segir Al- bert Guðmundsson fjármálaráð- herra í viðtali við DV í fyrradag og vísar þar til margumræddra laga um smithættu frá árinu 1928. Ráðherr- ann vill ekki svara því í sama viðtali hvort hann muni leita eftir sUkum úrskurði eftir að þing kemur saman. Rétt er að hvetja ráðherrann til þess. Skynsamlegrar niöurstöðu er þörf. -Jónas Haraldsson KJÖTK) INN Á MNG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.