Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1985, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1985, Síða 2
2 DV. LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER1985. Það voru hressir krakkar sem tóku þótt i skrúðgöngu ó iþróttahótið i Laugardalnum. Hér mó sjó hóp- inn streyma inn ó iþróttasvœðið. Krakkar í leikjum Mikil útihátíð var í Laugardalnum þegar um 3000 grunnskólakrakkar komu saman og héldu svokallaða ólympíuleika í krakkaleikjum. Hátíðin var haldin samkvæmt til- lögum nemendaráðs grunnskólanna í Reykjavík. Var þarna keppt í öllum mögulegum og ómögulegum leikj- um. Hátíðin er haldin í tilefni árs æsk- unnar. SMJ Rœðumenn ó hótíðinni fengu virðulega fylgd. Hór koma ræðumenn sitjandi i kassabilum. Boðhlauð var vinsæl keppnisgrein ó hótíðinni og það er ekki annað að sjó en að vel sé tekið ó. Keppnin i „limbó" var ekki sú léttasta, það var hreint ótrúlegt hvað sumir gótu fett sig. ,L*i, Fiskveiðistjórnun næstu 3 árin: FRUMVARP LAGT FRAM Á ALÞINGI HIÐ FYRSTA Sjávarútvegsráðherra, Halldór Ás- grímsson, mun á næstu dögum leggja fram drög aö frumvarpi um fiskveiði- stjórnun næstu þrjú árin fyrir ríkis- stjórn og þingflokka. Fulltrúar hags- munasamtaka innan sjávarútvegsins eru sammála því aö frumvarpið verði lagt fram á Alþingi hið fyrsta en ítreka þó að það verði ekki samþykkt áður en samtök þeirra hafa fjallað um það. Jón Sigurðsson, formaður ráðgjafar- nefndar um fiskveiðistefnu, sagði að megintilgangur þessa frumvarps væri sá að með því yrði öllum gildandi reglum um fiskveiðar komið í eina lög- gjöf. 1 frumvarpinu er gert ráð fyrir, eins og í ár, að hægt verði að velja milli aflakvóta og sóknarkvóta. Þá á frumvarpið að gilda í næstu þrjú ár. Á blaðamannafundi í gær lýstu allir fuUtrúar heildarsamtakanna, nema Kristján Ragnarsson framkvæmda- stjóri LIÚ, að þeir væru persónulega andvígir svo löngum gildistíma en bentu jafnframt á að samtökin myndu taka endanlega afstöðu tU þess á aðal- fundum þeirra sem verða á næstunni. I frumvarpinu er einnig gert ráð fyrir aö sjávarútvegsráðherra leggi ár hvert fram frumvarp á Alþingi um hversu mikiö megi veiða úr helstu botnfiskstofnum á komandi ári. Þá er, samkvæmt frumvarpinu, heimilt að flytja 10 prósent af afla yfir á næsta ár og 5 prósent af næsta ári á yfirstandandi ár. I frumvarpinu er gert ráð fyrir aö sömu reglur gildi áfram um framsal kvóta. Hins vegar veröur ekki leyfilegt að selja aflakvóta með skipum sem eru seld. Hvað snertir báta undir 10 tonnum er gert ráð fyrir að þeir geti sótt veiðar 215 daga á ári. I því sambandi er kveðið á um ákveðin tímabil sem ekki er heimiltaðveiða. „Eg tel að þetta ákvæði frumvarps- ins sé tilræði gegn smábátaeigendum og sé veruleg skerðing frá því sem verið hefur,” sagði Arthúr Bogason, formaður samtaka smábátaeigenda. Hann skilaöi séráliti í ráðgjafar- nefndinni þar sem hann mótmælir alfarið þeirri grein frumvarpsins sem fjallar um sókn smábáta. I áliti ráðgjafarnefndarinnar er undirstrikað að enn séu ýmis álitamál í frumvarpinu, s.s. gildistími, heildar- aflamark, reglur um veiðar smábáta og framsal kvóta. Um þessi atriði verður væntanlega rætt á næstunni í samtökum hagsmunaaöila og á Alþingi. APH Samdráttur í ullarframleiðslunni: Mikill verkefna- skortur hjá sauma stofunum þegar — stef nir í lokun hjá nokkrum þeirra Verkefnaskortur blasir nú viö hjá mörgum saumastofum sem annast hafa framleiðslu á ullarflíkum fyrir út- flytjendur. Ekki hefur enn þurft aö koma til uppsagna starfsfólks. Hvort til þess þarf aö grípa mun koma í ljós á næstu vikum. Þá er einnig vitað til þess að nokkrar saumastofur eru alvarlega að hugleiða hvort þurfi aö loka. „Það er ekki ofsögum sagt að ástandið hjá saumastofunum er alvar- legt. Skýringar á þessu eru margar. Nú eru til stórir lagerar og líklega var framleitt of mikið í fyrra. Þá er einnig minna um endurpantanir í ár,” segir Reynir Karlsson, formaður Lands- sambands sauma- og prjónastofa, í viðtaliviðDV. ■ Samkvæmt upplýsingum DV virðist ástandið vera verst hjá Álafossi. Þar er búist við um 15 prósent samdrætti í framleiðslunni í ár. Þetta hefur það í för með sér að saumastofur, sem unnið hafa fyrir Álafoss, fá ekki verkefni í haust. Hjá Hildu hf. fengust þær upplýsing- ar að ekki væri búist við samdrætti en kannski heldur minni framleiðslu en í fyrra. Margar saumastofur hafa undan- farið þurft að keyra framleiðsluna á hálfum afköstum. Reyndar hafa þær fengið nokkuð af verkefnum fyrir Rússlandsmarkað. Hins vegar verða þær að taka þá framleiðslu í neyð vegna þess að veröið á flíkum á þann markað er mjög lágt. Algengt er aö þær séu hreinlega framleiddar með taP‘- APH. Snilldarleikur Kasparovs tryggði jafntef li Níunda skákin í heimsmeistara- einvíginu var tefld áfram í gær eftir aö hún hafði fariö í bið í flókinni stöðu. Eftir næturlangar rannsóknir stórmeistara í Moskvu var jafntefli tahð líklegustu úrslitin en staða Karpovs þótti þó íviö betri. Er tekiö var til við biðskákina var Kasparov hins vegar fljótur að slá Karpov út af laginu. I þriðja leik skellti hann e- peði sínu fram og Karpov hugsaði um svarleik sinn í 28 mínútur. Fram- haldið var nánast þvingaö og eftir átta leiki tU viðbótar tókust skák- meistararnir í hendur og sættust á jafntefli. Kasparov notaði aðeins þrjár mínútur á leiki sína eftir bið. Peðsleikur Kasparovs vakti al- menna hrifningu áhorfenda og vafa- laust er áskorandinn ánægður með aö hafa komið Karpov og aðstoðar- mannasveitinni í opna skjöldu. Karp- ov þurfti að leysa vandamálin yfir borðinu en það gerði hann náttúrlega óaðfinnanlega. Lokastaðan var á borði stórmeistaranna i blaða- mannaherberginu löngu áður en hún kom upp í skákinni sjálfri. Staðan í einvíginu er þá 5—4 Karp- ov í vil. Hann hefur unnið tvær skák- ir, Kasparov eina en sex hefur lokið með jafntefli. Til þess að sigra þarf Karpov að vinna f jórar skákir til við- bótar og eru jafntefU þá ekki talin með, eða hljóta 12 vinninga samtals, með jafnteflum. Þeir tefla mest 24 skákir og Karpov heldur titihium á jöfnu. Biöstaðan var þessi, Karpov (svart) lék biðleik: HEIMSMEISTARA- EINVÍGIÐ: abcdefgh 42. — cxb4 43. hxg6+ Eftir 43. Dc4 strax leikur svartur best 43. — gxh5! ogmáþá vel viðuna. 43. — fxg644.Dc4h5 45. e5! ’ Sennilega er jafntefli að fá með 45. Rxd4 Bxe4 46. Rxe4 Dxe4 47. Re6! því aö ef 47. - Dxc4 48. Bxc4 Rc6 þá 49. Rg5+ og þráskákar og annars ættu mislitir biskupar að sjá um sitt. Textaleikurinn er aftur á móti mun öflugri og kom Karpov gjörsamlega á óvart. David Goodman, fréttaritari DV á einvíginu, spurði Dorfman, aðstoðar- mann Kasparovs, hvað væri að ger- ast. „Þú verður að bíöa og sjá,” var svariö. 45. — Bxf3 46. gxf3 Bxc5 47. f4! Bxf4 Eftir 47. — Bg7 48. f5 er hvíta sókn- in hættuleg. 48. Dg8+ Kh6 49. Bc2! Dg7! Hann verður að gefa mann því að ef 49. — Df6? þá 50. Re4! og vinnur. 50. Dxd8 Bxg3 51. fxg3 De5 52. Df8+ Kg5 53. Kg2 Og hægri hendurnar tókust sam- tímis á loft og mættust á miöri leið: Jafntefli. Hvítur kemst ekki hjá drottningakaupum og síðan leikur svartur h5-h4 og skiptir upp á síö- asta peðinu. JLÁ. Skák lón L. Ámason

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.