Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1985, Page 15
DV. MANUDAGUR 7. OKTOBER1985.
15
Menning Menning Menning
ÚRTAKA2
Tónleikar ungra einleikara í Norræna húsinu, 2.
okt.
Kolbeinn Bjarnason flautuleikari og Sigrún
Eðvaldsdóttir fiðluleikari.
Á seinni tónleikunum í úrtökunni
fyrir Tónlistarhátíö ungra einleikara
á Norðurlöndum léku þau Kolbeinn
Bjarnason og Sigrún Eðvaldsdóttir.
Eins og Pétur fyrra kvöldið kom Kol-
beinn víða við í efnisvali sínu. Hann
byrjaöi og endaði tónleikana með
verkum sem hann lék hér fyrstur
manna á Myrkum músíkdögum,
Riding the Wind eftir Harvey Sol-
berger og Afterlight eftir Robert
Dick. Enn stendur maöur dolfallinn
yfir þeim hugmyndum sem Harvey
Solberger hefur um flautuleik. Að
láta flautuleikarann spila jafnt á út-
blæstri sem innsogi í einni samfelldri
línu, fyrir utan að blása í flautuna á
hinn furðulegasta máta. Þetta
minnti mig eiginlega á það þegar ég
varð vitni að því aö trumbuslagari
nokkur frá Senegal sýndi mönnum
hvernig leika mætti á bumbur á
þúsund og guðmávitahvað marga
vegu. Því er yfirleitt haldið fram, og
ég hygg með réttu, að þegar menn
leiki nútimamúsík með svo óhefð-
Tónleikar
Eyjólfur Melsted
bundnum tónmyndunaraðferöum sé
það einungis til að skerpa þá sem
flytjendur hinnar gömlu, hefðbundnu
tónlistar. Það var heldur ekkert að
tóninum aö finna hjá Kolbeini í Ein-
leikssónötu Carls Philipps Emanuels
Bach en áherslurnar, einkum í fyrsta
kaflanum, uröu að mínu mati til að
rjúfa það sístreymi tónanna sem
höfundurinn stefnir að í ritun sinni.
Einskis slíks gætti hins vegar í
Syrinx Debussys og í Sonata per
Manuela náði Kolbeinn að sýna allar
sínar bestu hliðar.
Rómantísk háspenna
Síöust á þessum úrtökutónleikum
lék Sigrún Eðvaldsdóttir. Ekki var
hún að ráðast á lægstan garðinn í
efnisvali sínu. Ballade, sónata eftir
Eugéne Ysaýe, var fyrra verkið sem
hún lék. Sigrún sýndi það hér að hún
hefur ekki aðeins færnina heldur
einnig þroskann sem til þarf svo að
jafntorleikið verk fái notið sín í
flutningi.
Hið sama gilti um César Franck
sónötuna, en minnin eru þar mörg
hin sömu og i Sinfóniunni hans. Likt
og Hrefna kvöldið áður var Selma
(af illri nauðsyn) helst til varfærin
við píanóið. Það litaöi að sjálfsögðu
samleikinn, en fiðluleikinn út af fyrir
sig hafði þaö næsta lítil áhrif á. Þar
var aldrei slakað á hinni rómantísku
háspennu.
EM.
Eg, eins og flestir aðrir sem á
þessa tvenna tónleika ungra einleik-
ara i Norræna húsinu hlýddu, hef að
sjálfsögðu valið mér minn óska-
kandidat fyrir Norræna Biennalinn
næstkomandi. Hvort sem dómnefnd-
in velur á sama veg þá er þó eitt víst
—■ af þeim fjórum sem til greina
koma er ekki hægt annað en að velja
veröugan fulltrúa okkar á þessa há-
tíö.
1. MÓTORSTILLING
2. SKIPT UM KERTI
3. SKIPT UM PLATÍNUR
4. SKIPT UM BENSÍNSÍU
5. ATHUGA BLÖNDUNG
6. SKIPT UM VIFTUREIM
7. MÆLA HLEÐSLU
8. HREINSA OG SMYRjA
RAFGEYMISPÓLA
9. SETJA ÍSVARA Á
RÚÐUSPRAUTUR
10. STILLA RÚÐUSPRAUTUR
11. ATHUGA ÖLL LJÓS
12. LJÓSASTILLING
13. MÆLA FROSTÞOL KÆLIVÖKVA
14. ATHUGA FJAÐRABÚNAÐ
15. ATHUGA STÝRISBÚNAÐ
16. ATHUGA HEMLA
17. ATHUGA HANDHEMIL
18. ATHUGA PÚSTRÖR
19. ATHUGA DRIFSKAFT OG
HJÖRULIÐI
20. SMYRJA HURÐARLÆSINGAR
INNIFALIÐ í VERÐI: VINNA, KERTI, PLATÍNUR, BENSÍNSÍA,
VIFTUREIM, ÍSVARI Á RÚÐUSPRAUTUR.
TOYOTA
& &***£»*£*&.
Nybylavegi8 200Kópavogi S 91-44144
Y>
GOÐ OG HENTUG
BARNAHÚSGÖGN
Svefnbekkur með dýnu og 3 púðum
Yfirhilla
^3.380-
W - LS " " AÉ
ÍL i
ht. i /
Skrifborð m/hillu: Skrifborð m/hillu
Svefnbekkir m/dýnum,
og 3 púðum og hillum:
Kommóður:
8 skúffur3.390,-
6 skúffur 2.780,-
4 skúff ur 2.040,-
Húsgögnin eru með eikarfólíu eða furufólíu
eða hvítri fólíu, sem er mjög slitsterk og
auðvelt að þrifa.
30% útborgun og afgangur á 6 mánuðum. 5% stað-
greiðsluafsláttur og svo eru kreditkortin að sjálfsögðu
tekin sem staðgreiðsla og útborgun á samningi.
Byrjið smátt og bætið við.
Verið vandlát og skoðið verðin
HÚSGAGNABÖLLIN
BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK ® 91-81199 og 81410