Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1985, Qupperneq 18
18
DV. MÁNUDAGUR7. OKTOBER1985.
íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
„Þeir komu
mér ekki
á óvart”
— sagði Fred Stava,
þjátfari Táby Basket
„Þetta var mjög góður leikur
hjá báðum liðum. Haukarnir léku
sérstaklega vel í síðari hálfleik.
Styrkleiki þeirra kom mér ekki á
óvart. Ég hef fylgst með góðum
árangri íslenska landsliðsins á
síðasta ári og Haukarnir komu
mér alls ekki á óvart,” sagði
Fred Stava, þjálfari Taby
Basket, eftir leikinn gegn
Haukum á laugardag. Ekki virt-
ist kappinn kippa sér mikið upp
við ósigurinn og var brosmildur
mjög þegar blaðamaður DV
ræddi við hann eftir leikinn.
„Eg veit að mínir menn geta
ieikið raun betur en þeir gerðu i
kvöld. Larry Robinson, okkar
besti maður, er meiddur á hné og
hann hefur aðeins getað æft í þrjá
daga. Eg vona að á þeirri viku
sem er í síðari leikinn nái hann að
jafna sig og verði með á fullu í
siðari leiknum. Við höfum góða
möguleika á að komast áfram,
sérstaklega ef Robinson verður
tilbúinn í slaginn,” sagði Randa-
ríkjamaðurinn Frcd Stava,
þjálfari Taby Basket. -SK.
„Við getum
komist
í 2. umferð”
— sagði Mike Scheib
„Þetta var mjög góður leikur.
Við vorum hræddir í byrjun
leiksins en síðan fór þetta aö
ganga betur hjá okkur. Ég hef trú
á því að við getum leikiö enn
betur í Svíþjóð og vissulega
getum við komist áfram í 2.
umferð,” sagði Mike Scheib,
Bandarikjamaðurinn sem lék
með Haukum gegn Táby Basket.
„Hvað sjálfan mig varðar þá
er ég ekki í alveg nógu góðri
æfingu. Mig vantar meira úthald
og er staðráðinn í að æfa á fullu
fram að siðari leiknum og á von á
að verða sprækari þá. Hauka-
liöið er gott lið en það vantar
kannski meiri hæö i það.
Munurinn á bandarískum og
íslenskum körfuknattleik er sá að
í Bandarikjunum eru leikmenn
mun hærri og þessir stóru leik-
menn geta skotið af færi.” -SK.
„Ekki ánægður
meðfráköstin”
— sagði ívar Webster
„Eg er að sjálfsogðu ánægður með
þennan sigur hjá nkkur en ég get ekki
verið ánægður mcð sjálfan mig, sér-
staklcga frákftstin hjá mér," sagði Ivar
Webster eftir leiklnn gegn Taby
Basket.
„Eg veit að þctta á eftir að koma.
Maður er rétt að komast í leikæfingu og
með fleiri leikjum verður þetta betra.
Eg veit að ein mín sterkasta hlið í
körfubultanum cru frákftstin og þetta
kemur. Ég veit það,” sagðl fvar
Webster.____________-SK.
„Möguleiki
á2. umferð”
— sagði Pálmar
Sigurðsson
„Það tók okkur nokkuð langan tima
að komast að því aö víð vorum ckki
lakari en þeir. Við lékum mjög vel i
síðari hálfleik og mögnleikinn á að
komast í 2. umferð er vissulega fyrir
hendi,” sagði Pálmar Sigurðsson eftir
lcikinn gegn Taby Basket.
„Það var sárgrætilegt að geta ekki
leikið með á fullri ferft. Ég fann það vel
að ég var greinilega ekki nægilega
fljðtur í þessum leik. Eg vona bara að
ég verði orðinn góftur af meiðslunum
fyrir síðari leikinn. Ég er bjartsýnn á
góð úrsbt i Svíþjóð,” sagði Pálmar
Signrðsson._________-SK.
„Það var hrein unun að sjá tíl ykkar
í dag, þið eruð stolt bæjarins,” sagöi
Kristinn Guðnason, formaöur körfu-
knattleiksdeildar Hauka, í stuttu
ávarpi til leikmanna Hauka eftir að
þeir höfðu sigraö sænska liðið Táby
Basket frá Stokkhólmi í fyrri leik
liðanna í 1. umferð Evrópukeppni
bikarhafa í körfuknattleik á laugar-
dag. Haukar sigruðu með 88 stigum
gegn 83 eftir að hafa verið einu stigi
undir í leikhléi, 45—46.
Fyrir margra hluta sakir var brotið
blað í sögu íslensks körfuknattleiks á
laugardag. Þetta var fyrsti Evrópu-
leikur hjá íslensku liði í áraraðir og
fyrsti sigur hjá íslensku liöi í Evrópu-
keppni. Og þessi sigur Haukanna er
fyrsti sigur hjá íslensku meistara-
flokksliði gegn sænsku meistaraflokks-
liöi frá upphafi. Landsleikir eru þá
meðtaldir. Það var sem sagt stór
dagur hjá körfuknattleiksmönnum á
laugardag og eftir leikinn gegn Taby
Basket skein ánægjan úr hverju and-
liti. Maöur haföi þaö á tiifinningunni aö
enginn hefði haft trú á því fyrir leikinn
að Haukunum myndi takast aö sigra
Svíana. Fögnuður leikmanna og ekki
síður aðstandenda liösins var mikill í
lokin og ekki að furöa.
Leit ekki vel
út í byrjun
Svíarnir komust í 6—0 í byrjun og
svartsýnustu menn sögöu ékki eitt ein-
asta orö. Síöar breyttist staðan í 11—18
en Haukarnir minnkuðu síðan muninn
í 25—26 og komust síðan yfir í fyrsta
skipti 27—26 þegar ellefu mínútur voru
liðnar af fyrri hálfleiknum. Jafnt var á
með liöunum til leikhlés og staöan í
leikhléi var 45—46.
Haukarnir komu eitilharðir til leiks í
síðari hálfleik og breyttu varnaðar-
aöferð sinni, úr maður á mann vörn í
svæðisvörn, 1—3—1. Engu var líkara
en Svíarnir heföu aldrei séö slíka vörn
og stóðu þeir lengst af sem styttur á
leikvellinum. Og Haukar komust í 63—
54 og var það mesta forskot þeirra í
leiknum. Lokatölur urðu síðan 88—83
eins og áður sagði.
Himnasending
frá Dooley
Með Haukunum í gær lék Banda-
ríkjamaðurinn Mike Scheib, sem
James Dooley útvegaði Haukunum, en
Dooley þjálfaði hér á landi um tíma.
Mike þessi átti snilldarleik og er þá
vægt til oröa tekið. Aldrei hefur
sneggri íþróttamaður sýnt listir sínar
hér á landi. Hreint ótrúlegur snillingur
og grátlegt að þessi leikmaður skuli
ekki leika hér í vetur. Mike var lang-
bestur hjá Haukum í þessum leik en
einnig áttu þeir Olafur Rafnsson og
Reynir „göngugarpur” Kristjánsson
mjög góðan leik. I heild átti Haukaliðiö
iM
skínandi leik.og sigur liðsins var stór-
kostlegur. Og ef einhver sem þetta les
ætlar að draga úr árangri Haukanna
vegna Mike Scheib skal þess getið að
tveir Bandaríkjamenn léku með
sænska liðinu og einn Þjóðverji. Hvort
þessi sigur Haukanna nægir þeim til að
komast í 2. umferð skal ósagt látið en
vissulega er þessi sigur í mjórra lagi. I
raun og veru skiptir ekki öllu máli
hvort Haukarnir komast áfram eða
ekki þó auðvitað sé stefnt aö því meö
öllum tiltækum ráðum. Það sem mestu
máli skiptir er sá sigur sem Haukarnir
unnu á laugardag og vonandi verður
þessi frammistaða til að ýta á önnur
íslensk félagslið að taka þátt í Evrópu-
keppnum.
Eins og áður segir var Mike Seheib
bestur Haukanna og skoraði 20 stig.
Margar sendingar hans fengu áhorf-
* Ólafur Rafnsson gerir atlögu aö körfu Svianna i ieiknum á laugardag.
Blökkumaöurinn Nate Cole i liði Taby Basket reynir að trufla Ólaf en Cole
var yfirburðamaður í sænska liðinu og skoraði 33 stig. Þessa skemmtilegu
mynd af þeim félögum í loftdansinum tók Bjarnleifur Bjarnleifsson.
endur til að gleyma stað og stund. Slík
tilþrif sjást ekki oft til íþróttamanns.
Scheib er skemmtilegasti og líklega
einn allra besti körfuknattleiksmaður
sem hér hefur leikið. Pálmar Sigurðs-
son var ekki nema hálfur maöur vegna
meiðslanna en ef hann verður orðinn
góður fyrir síðari leikinn mega Sví-
arnir fara að hugsa málið.
Sænska liðið lék „tíbískan” sænskan
körfuknattleik, yfirvegaðan og agaðan
og í liðinu eru margir mjög snjallir
leikmenn. Nate Cole var yfirburða-
maður að þessu sinni og skoraði 33
stig. Hann hélt liðinu á floti í þessum
leik og ef hans hefði ekki notið viö
hefðu Svíarnir farið með stórtap á
bakinu til síns heima.
Besti maður liösins og Svíþjóöar í
fyrra, Larry Robinson, var lítið með í
þessum leik vegna meiðsla og verður
vart búinn að ná sér fyrir síðari
leikinn. I Haukaliöið vantaði Viðar
Vignisson, sem er meiddur, og Pálmar
lék á hálfum hraða.
Stig Hauka: Mike Scheib 20, Ölafur Rafns-
son 18, Reynir Kristjánsson 17, Ivar Webster
10, Pálmar Sigurðsson 12, Eyþór Þ. Árnason
7, Kristinn Kristinsson 2 og Henning
Henningsson 2.
Stigahæstur hjá Taby Basket var Banda-
rikjamaðurinn Nate Cole með 33 stig.
Dómarar voru þeir Dannicl O’Connor frá
írlandi og Norðmaöurinn Robert Persson.
Voru þeir frckar slakir og gerðu mftrg slæm
mistiik. Var langt frá því aft Haukarnir hefðu
hag af dómgæslu þeirra. Maöur leiksins:
MikeScheib, Haukum. -sk.
• Að leikslokum fókk Bandaríkjamaðurinn Mike Scheib viðurkenningu frá
Haukunum fyrir frábæran leik. Hór svifur hann i háloftunum og liklega
hefur þessi smái en knái leikmaður aldrei veriö jafnhátt uppi.
DV-mynd Bjarnleifur.
• Fögnuður leikmanna Hauka var mikill i leikslok eftir að Haukarnir höfðu
innbyrt sigurinn gegn Taby Basket. Á miðri myndinni er þjálfari Hauka,
Einar Boliason, kampakátur eins og raunar allir aðrir sem sáu leikinn.
DV-mynd Bjarnleifur.
• Mike Scheib, Bandaríkjamaðurinn
sem lék með Haukum á laugardag í
Evrópuleiknum gegn sænska iiðinu
Táby Basket, sýndi snilldartakta í
leiknum og heillaði áhorfendur alger-
lega upp úr skónum. Margar send-
ingar hans fengu áhorfendur til að
gleyma stað og stund. Á myndinni hér
að ofan sést Mike smeygja sér fram
hjá einum leikmanna sænska liðsins og
svifa í átt að körfunni. Knötturinn
hafnaði að sjálfsögðu á réttum stað
eftir að Mike hafði einleikið með knött-
inn upp allan völlinn. Eigingirni er þó
nokkuð sem þessi snjalli leikmaður
þekkir ekki. Hann leitaði alltaf að sam-
herja áður en hann gerði hlutina upp á
eigiruspýtur.
DV-mynd Bjarnleifur.
Fyrsti sigur
á Svium
í körf u
frá upphafi
Stórgóður leikur Hauka þegar þeir sigruðu
Táby Basket, 88:83, íEvrópukeppni bikarhafa
á laugardag. Snillingurinn Mike Scheib
sýndi otrulega takta