Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1985, Side 37
DV. MÁNUDAGUR 7. OKTOBER1985.
37
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Bob Hope og eiginkonan Dolores ættleiddu fjögur börn. Þau eru á meðfylgjandi mynd ásamt mökum
Kjörbörn og frægir foreldrar
Sumir safna frímerkjum, einstaka
eldspýtustokkum, servíettur eru vin-
sælt söfnunarefni, myntsafnarar og
vínsafnarar eru fjölmargir. Söfnun-
arástríða er nokkuð sem gengur tals-
vert meöal vestrænna þjóðflokka og
þykir alveg eðlileg hegðun — svo
framarlega sem karlmenn taka ekki
upp á því að safna undirfötum kvenna
og konur safna ekki skeggi. Hollívúdd-
stjörnur eru þarna engin undantekning
— þar er öllu mögulegu safnað — eins
og til dæmis kjörbörnum.
Kjörbarnasöfnun í kvikmyndaborg-
inni er ekkert nýtt fyrirbrigði því
stjörnurnar frá þeim gömlu góðu gull-
aldardögum borgarinnar létu ekki sitt
eftir liggja — Jane Russel ættleiddi til
dæmis fjögur börn.
Frægasta kjörbarnið þessa dagana
er Michael Reagan, kjörsonur Ronalds
Reagan og Jane Wyman. Þar áöur var
sennilega einna mest skrifaö um hina
þýskættuðu Mariu sem Elizabeth
Taylor og Richard Burton ættleiddu og
einnig börnin fjögur sem eru kjörbörn
Miu Farrow og André Previn. Leikkon-
an Mia varð einstæð móðir einn daginn
— með sjö lítil böm á framfæri!
Af fleiri frægum kjörforeldrum má
nefna Bette Davis með tvö og sama má
segja um John Denver, James Cagney,
Lorettu Yong og Yul Brynner. Bob Hope
á fjögur kjörbörn, Gene Barry, Milton
Berle, Hedy Lamarr, Dinah Shore,
Barbara Stanwyck og Gene Wilder eitt
hvert en George Burns ættleiddi tvö
stykki. Svona mætti halda áfram enda-
laust — meðal þeirra frægu og ríku
þykir ekkert tiltökumál aö sjá fyrir slagið þar af þykkari gerð-
nokkrum barnungum enda launaum- inni.
Frægasta kjörbarnið ar Michael, sonur Ronalds Reagan.
Mia Farrow er stundum kölluð Mama Mia — enda á hún fjögur kjörböm
auk sinna þriggja barna úr fyrra hjónabandi með André Previn.
„Byrjuðum á tveggja
herbergja íbúð...”
íslenska hljómsveitin er að hefja sitt fjórða starfsár og meðfylgj-
andi mynd tók Kristján Ari i Bústaðakirkju á fyrstu æfingu hljóm-
sveitarinnar. Aðspurður sagði stjórnandi sveitarinnar, Guðmundur
Emilsson, að reksturinn gengi vel og þeir væru ekkert á því að gef-
ast upp á að halda starfseminni áfram. „Reksturinn verður sífellt
viðameiri, við byrjuðum með fjárhagsáætlun fyrsta árið sem sam-
svaraði tveggja herbergja ibúð, núna er komin heil villa inn i mynd-
ina. En þetta gengur vel og við höfum áhuga á því að reyna að
heimsækja fólk úti á landi lika þótt það kosti talsverðar fjár-
upphæðir að flytja hljómlistarmenn og tæki milii staða."
Fyrstu tónleikar verða haldnir í Langholtskirkju i lok október með
ítalskri tónlist frá öndverðri tuttugustu öld.
Elizabeth Taylor með Mariu sem þau Richard Burton ættleiddu i sinu fyrsta
hjónabandi.
ÞROSKAÞJÁLFI EÐA MEÐ-
FERÐARFULLTRÚI
Svæðisstjórn Norðurlands vestra óskar að ráða þroska-
þjálfa eða meðferðarfulltrúa á sambýlið við Lindargötu,
Siglufirði.
Skriflegar umsóknir sendist til skrifstofu svæðisstjórnar,
pósthólf 32, 560 Varmahlíð. Aðstoðum við útvegun hús-
næðis ef með þarf. Nánari upplýsingar veitir forstöðu-
maður sambýlisins Lindargötu 2, 580 Siglufirði. Sími 96-
71217.
SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA
NORÐURLANDIVESTRA J
Pósthólf 32
560 VARMAHLÍÐ
Árvík kynnir enn eina nýjung.
Slípikragi fyrir tréiðnað.
Vinnusparnaður er ótrúlegur við erfiðustu aðstæður, s.s. kanta
pírála, ójafnt yfirborð o. fl.
Komið eða hringið og kynnist þessari byltingu.
ARVIK
Armúla 1.
Sími 687222