Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1985, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1985, Blaðsíða 9
DV. LAUGARDAGUR19. OKTOBER1985. 9 Frð fyrstu dögum Bandalags jafnaðarmanna. Tilraun ssm misheppnast? Pólitískir timburmenn 1 ólgusjó stjórnmálanna að undan- fömu hefur ófriðurinn innan Banda- lags jafnaðarmanna vakið hvað mesta athygli. Þegar Vilmundur Gylfason skýrði frá því á fundi í Sameinuðu Alþingi 18. nóvember árið 1982 að hann hefði sagt skilið við Alþýðuflokkinn og myndi standa að stofnun nýrrar stjómmálahreyfingar, Bandalags jafnaðarmanna (BJ), komst hann svoaðorði: „Viö myndum bandalag gegn flokkunum. Þetta er tilraun sem kannski heppnast, kannski mis- heppnast. Það verður að koma í ljós.” Vilmundur var einn þeirra stjóm- málamanna sem tókst að laöa til fylgis við sig fólk úr ólíkum áttum. Það nægði til þess að skila inn á Al- þingi fjögurra manna þingflokki. Það eitt út af fyrir sig er nokkurt af- rek, og reyndar helsta minnismerkið um pólitiska baráttu Vilmundar. En það tókst lakar til með að fylgja þeim sigri eftir. Það sem tókst í fyrstu atrennu viröist því nú vera að renna út i sandinn. Satt best að segja kemur það ekki á óvart eins og allt er í pottinn búiö. Hannibal og Vilmundur Oft er sagt að sagan endurtaki sig. Það er gjarnan rangt. Engu aö síður má oft sjá svipi frá liðinni tíð í atburöum samtímans. Ferill BJ minnir þannig nokkuð á sögu Samtaka frjálslyndra og vinstri manna (SFV). Þótt þessir tveir flokkar hafi verið um margt ólíkir svipar þeim saman aðýmsuleyti. Freistandi er að halda því fram að BJ sé á hraöri leið til sömu endaloka og' SFV: að stefnumótið við pólitískan dauðadag nálgist óðfluga og sé óumflýjanlegt. Þessir tveir flokkar voru báðir öðru fremur stofnaðir kringum einn sterkan forystumann. SFV um Hannibal Valdimarsson. BJ um Vilmund Gylfason. Þessir tveir stjórnmálagarpar voru að vísu harla ólíkir. Eitt áttu þeir þó sameiginlegt: hæfileikann til að tala beint til fólksins og sópa að sér fylgi á örlagastundum. Báðir mynduðu þeir „bandalag gegn flokkunum”. Flokkar þeirra áttu að verða allt öðruvísi en „gömlu flokkarnir”. Sundrung á miðju kjörtímabili I fyrstu kosningum sínum fengu SFV og BJ svipað fylgi — SFV fimm þingmenn en BJ f jóra. Kosningasigurinn varð þessum flokkum hins vegar harla ólíkt vega- nesti. SFV fór beint inn í ríkisstjóm. BJ hefur verið og er í stjórnarand- stöðu. Þrátt f yrir það eiga flokkarnir það sameiginlegt aö á miðju kjörtímabili er allt komið í upplausn. SFV klofnaði þegar Bjarni Guðna- son sagði skilið við samþingsmenn sína og hóf pólitíska eyðimerkur- göngu með nánustu skoðanabræðr- um sínum. Þeim svipar um margt til andófshópsins, „fornaldarkrat- anna”, innan BJ nú. I BJ rífast menn opinberlega um grundvallaratriði og nær sá ágrein- ingur gegnum þingflokkinn miðjan. Stofnaö er til andófsfélags og hótun- um um brottrekstur og hreinsanir veifað. Ástandið er reyndar orðið svo slæmt að sumir forystumenn BJ tala um það opinskátt að verið sé að ganga af flokknum dauðum. Hvers vegna? Þótt SFV tækist að lifa tvennar al- þingiskosningar varð ekki hjá því komist að flokkurinn sundraöist í frumeindirsínar. Orsakir þeirrar þróunar eru næsta augljósar. Og þeim svipar um margt til þeirra staöreynda sem nú eru að reynast BJ um megn. Lítum aðeins á þrjár ástæður þess að SFV hvarf af vettvangi stjómmál- anna. Foringinn, sem flokkurinn var öðru fremur stofnaður um, dró sig í hlé. Það meginmál sem flokkurinn taldi ætlunarverk sitt í stjómmálun- LAUGARDAGS- PISTILL: Elías Snæland Jónsson AÐSTOÐARRITSTJORI um, sameining vinstri manna, reyndist óframkvæmanlegt. Fylgismennimir, sem uppruna- lega höfðu sameinast um litríkan for- ingja og sameiningarmálið, höfðu í flestum málum gjörólíkar skoðanir. Þegar hveitibrauðsdögum kosninga- sigursins lauk komu þær andstæður greinilegaíljós. Þessir pólitisku timburmenn urðu banamein Samtakanna. Að mörgu leyti er þessu eins fariö meðBJ. Foringinn er fallinn fró. Samein- ingarátakið er ekki lengur til staðar. Meginmál BJ, kjarninn í boðskap þess og Vilmundar í kosningabarátt- unni — stjómkerfisbreytingin — hef- ur engan pólitískan hljómgrunn í landinu og er því dautt mál. I daglegu pólitísku starfi hefur komið í ljós að í flestum málum hafa þeir, sem flykktu sér um Vilmund í hita baráttunnar, mjög ólíkar skoð- anir. Þannig er sá klofningur og ófriður, sem brotist hefur út innan BJ, auö- skýranlegur. Og líklega óhjákvæmi- legur eins og hverjir aðrir timbur- menn. Ein fær leið? BJ var hugsað í upphafi sem mjög lítt skipulögð hreyfing. Gömlu flokkarnir hafa yfirleitt viðamikið flokksskipulag og sveit kontórista til að halda við bakland- inu. Allt þetta kerfi miöar að því að ala á þeirri tilfinningu flokksfólksins aö það hafi einhver áhrif í flokknum á mótun og framkvæmd stefnumála, og virkja það til atkvæðasmölunar í kosningum. BJ og „popuiískar” hreyfingar af svipuðu tagi hafa engu slíku bak- landi að sinna. Þingmenn BJ hafa væntanlega litla hugmynd um hverj- ir kusu þá. Fyrir nú utan það að kjós- endur BJ í síðustu kosningum voru almennt ekkert að Hjósa persónulega núverandi þingmenn: þeir voru að kjósa Vilmund. Það eru því rangar baróttuaöferö- ir slíkrar hreyfingar að eyða pening- um og orku í skipulegt flokksstarf á gamla mátann. Eina færa leiðin er að tala beint til fólksins — á vinnu- stöðum og gegnum fjölmiðlana. En þá verða menn líka að hafa eitthvað að segja sem snertir fólkið, og segja það á réttan hátt. Þrátt fyrir góðan vilja í þessa átt hjá sumum forystumönnum BJ hef- ur þetta ekki tekist sem skyldi. En það er ekki öll nótt úti. Ef BJ bæri gæfu til að fylkja sér um forystu sem gæti talað um mikil- væg stefnumál beint til fólksins af því hispursleysi í orðavali, sem eftir væri tekið, væri kannski von um framhaldslíf. Að minnsta kosti fram yfir næstu alþingiskosningar. I því efni skiptir framboö BJ í Reykjavík höfuömáli. Með því að velja þar i efsta sæti frambjóðanda af því tagi sem hér hefur verið lýst gæti BJ hökt gegnum næstu þing- kosningar. Og slíkur frambjóöandi er sýnilega fyrir hendi. Spurningin er hvort flokksmennimir hafa áhuga á slíkri lífgjöf eða vilja ófram geys- ast blindandi til stefnumótsins í Sam- arra. Skiptir það máli? Svo má auðvitaö spyrja sig þeirrar spurningar hvort það skipti í raun og veru nokkru máli fyrir íslensk stjómmál komandi ára hvort BJ lifir eða deyr. Margir munu svara þeirri spum- ingu neitandi. A hitt má benda að gömlu flokk- amir hafa mjög gott af því að búa við aðhald frá gagnrýnum smáflokkum. Það er alltof rík tilhneiging til þess hjá forystu að minnsta kosti sumra þessara gömlu flokka að líta á tsland og Islendinga sem eins konar heim- anmund. Hagsmunir flokksgæðinga sitja í fyrirrúmi. Fyrirgreiðslupóli- tík og hvers konar spilling er út- breidd. Gagnrýnin stjómmálaöfl geta þar haft hlutverki að gegna. Þau geta haft hemil á flokkseigend- unum — sýnt þeim fram á að þeir eigi ekki landið og þjóðina. Það er misskilningur, sem oft er haldiö fram, að þaö þurfi endilega aö vera slæmt að hafa marga flokka. I eins flokks þjóðfélögum telja valdhafamir stórhættulegt að hafa fleiri en einn flokk. Það eru þeirra hagsmunir. Forystumenn fjórflokkanna hér hafa einnig allt á hornum sér ef fleiri flokkar koma til sögunnar. Það eru þeirra hagsmunir. Hagsmunir þjóðarinnar eru hins vegar að sem flest sjónarmið, sem á annað borð hafa sæmilegan hljóm- grunn, fái að koma fram í stjóm- málaumræðunni. Það er eðli lýðræð- isins. Þaö er þess vegna síður en svo keppikefli í sjálfu sér að flokkur eins og B J lognist út af ef hann hefur eitthvað fram að færa sem móli skiptir í þjóðfélagsumræðunni. -ESJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.