Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1985, Blaðsíða 19
DV. LAUGARDAGUR19. OKTOBER1985.
19
Leikkona og
rithöfundur
Signoret var leikkona í 43 ár og lék
ótrúlega fjölbreytt hlutverk; hóru,
dómara, viðskiptajöfur, morðingja.
Hún varð fyrst franskra leikkvenna til
aö vinna óskarsverðlaun, án þess að
hafa nokkru sinni gert' kvikmynd í
Hollywood. Verðlaunin fékk hún fyrir
frábæra túlkun á gamalli konu í mynd-
inni Room at the top, árið 1958.
En Simone lét sér ekki nægja stór-
virki á kvikmyndasviðinu. Sjálfsævi-
saga hennar „Eftirsjáin er ekki eins og
hún var” þótti sérdeilis vel skrifuð og
að auki haföi Signoret frá mörgu for-
vitnilegu að segja. Bókin seldist í 2
milljónum eintaka um allan heim enda
þýdd á 16 tungumál. Lesendur hafa
sjálfsagt ekki rifið bókina í sig vegna
ritsnilldar Signoret. I sjálfsævisögunni
segir hún frjálslega og skemmtilega
frá f jölda elskhuga sinna og ekki síður
heil býsn frá lífi sínu og eiginmanns
síns, Yves Montand. Montand og Sign-
oret giftust árið 1951 og hefðu sjálfsagt
fáir trúað því að leikkonan ætti eftir aö
standa við þaö heit að vera með honum
þar til dauðinn skildi þau að. En sú
varð raunin.
Monroe ög Montand
Þó voru oft og tíðum ástæður sem
öðrum hefðu þótt nægar til skilnaðar.
Montand hélt um tíma við Marilyn
Monroe og fylgdist heimsbyggðin
spennt með því árið 1960. Um það
ástarsamband sagði Signoret að það
hefði enginn karlmaður staöist töfra
Monroe.
Signoret og Monroe voru þó oftar en
ekki samrýnd og samtaka. Þau voru
vinstrisinnuð í stjórnmálum og voru
„samferðamenn” kommúnista á
fimmta og sjötta áratugnum án þess
að ganga í flokkinn. Innrás Sovét-
manna í Ungver jaland árið 1956 hafði í
för með sér viss sinnaskipti.
Barátta gegn mann-
réttindabrotum
Þau fordæmdu Sovétríkin og vest-
ræna bandarrienn þeirra harðlega fyrir
verknaðinn og upp frá því beindi
Signoret athygli sinni aö mannrétt-
indabrotum hvar sem var í heiminum.
Signoret var borin til grafar degi áður
en Gorbatsjov, leiðtogi Sovétríkjanna,
kom í opinbera heimsókn til Parísar.
Það var dæmigert fyrir póhtískt ævi-
starf þessarar merku konu að þann
dag birtist í Le Monde yfirlýsing, sem
hún ritaði undir ásamt öðrum, þar sem
mannréttindabrot í Sovétríkjunum
voru fordæmd.
Leikkonan fræga var orðin blind
þegar hún lést, en engu að síður lék
hún í sinni síöustu mynd fyrir nokkrum
mánuðum, sjónvarpsþáttum um París
á árunum fyrir síðari heimsstyrjöld-
ina.
Simone Signoret varð löndum sínum
mikill harmdauði. Og víst er að hún
hafði fyrir löngu unnið sér stóran sess í
sögu kvikmyndanna. Signoret er gott
dæmi um listamann sem lét sér list
sína ekki nægja heldur notfærði sér
frægð sína góöum málstáð til fram-
dráttar.
-ás.
Þrátt fyrir hliðarspor stóðu
þau Montand saman þar
til yfir lauk.
,, Það hefðu allir karlmenn
fallið fyrir Marilyn
Monroe, ’' sagði Signoret
um frcegt ástarsamband
manns hennar, Yves Mon-
tand, og Marilyn.
Starfsemi Kanaríklúbbsins
hefst í nóvember með sérlega
hagstæðum ferðatilboðum.
Nú er stutt í að starfsemi hefjist í
einum skemmtiiegasta klúbbi
landsmanna. Tilgangur starfsins
verður enn sem áður að njóta lífsins
á Kanaríeyjum og vegna hagstæðra
fargjalda má búast við blómlegu
starfi í vetur.
Sértilboð á fyrstu ferðum
13. nóvember er fyrsta brottför í 5
vikna ferð. Verð pr. mann í tvíbýli
er aðeins kr. 35.000.- og í þríbýli kr.
32.270.-. 20. nóvember er önnur
brottförin í 4 vikna ferð, verð pr.
mann í þríbýli í þá ferð er aðeins kr.
29.700,- og í tvíbýli kr. 32.000.-. í
báðum ferðunum er heimkoma 17.
des. Gist verður í hinum vinsælu
smáhýsum San Valentino Park á
Playa del Inglés. Verðdæmi fyrir
hjón með eitt barn, 2-6 ára: aðeins
kr. 27.180,- pr. mann í 5 vikna ferð
(án flugvallarskatts).
Beint í sólina
í beinu leiguflugi
í brottförunum 13. og 20. nóv. er
flogið út í áætlunarflugi en heim í
leiguflugi. Eftir það bjóðum við bæði
ferðir í áætlunarfiugi um
London og beinu leigu-
flugi. Beint út og beint
heim! Þeir sem þekkja
leiguflugið vita hve þægilegt það er
að þurfa ekki að millilenda og skipta
um vél.
smátíma fyrir sólböðin! Kynnisferð-
irnar, skemmtanirnar, íþróttirnar og
veitingahúsin taka jú sinn tíma.
Frábær fararstjórn
Fyrir reynda Kanarífugla
nægir að segja að Auður
Sæmundsdóttir og Klara
Baldursdóttir séu farar-
stjórar. Nýir félagar Kanarí-
klúbbsins mega treysta
því að Auður og Klara eru sérlega
hjálpsamar og gera vel við sína.
Það er beðið eftir
okkur á Kanarí
Veðurguðirnir hafa verið varaðir við
komu okkar. Hótelin eru stífbónuð
og fægð. Ströndin og sjórinn hreint
yndisleg, svo nú er ekki til setunnar
boðið.
í vetur verða höfuðstöðvar Kanarí-
klúbbsins á Playa del Inglés. Þar
geta allir fundið gistingu við sitt hæfi
á einhverju hótelanna eða í smáhýs-
um. Á Playa del lnglés eru ótæm-
andi möguleikar á útiveru og dægra-
styttingu - mundu bara að gefa þér
Mikill afsláttur
fyrir börn og unglinga
Nú geta heilu fjölskyldurnar gengið
í klúbbinn því fjölskylduafsláttur er
óvenju mikill. Börn á aldrinum 2-6
ára greiða aðeins kr. 19.000.-, 7-11
ára fá kr. 6.500,- í afslátt og börn og
unglingar 12-16 ára fá kr. 4.500,- í
afslátt.
Brottfarir í leiguflugi eru 17. des., 7.
jan., 28. jan., 18. feb., 11. mars og 1.
apríl.
Innifalið í verði er flug (án flugvallar-
skatts), gisting, ferðir að og frá flug-
veili á Kanarí og fararstjórn.
ÚRVAL ÚTSÝN Samvinnuferdir -Landsýn FLUGLEIÐIR
'1191 liog