Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1985, Blaðsíða 12
12
DV. LAUGARDAGUR19. OKT0BER1985.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 101., 104. og 106. tölublaði Lögbirtingablaösins 1985 á
eigninni Engihjalla 9 — hluta —, tal. eign Andrésar Einarssonar, fer
fram að kröfu Bæjarsjóðs Kópavogs á eigninni sjálfri þriðjudaginn 22.
október 1985 kl. 15.30.
Bæjarfógetinn I Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 101., 104. og 106. tölublaöi Lögbirtingablaðsins 1985,
á eigninni Engihjalla 11 — hluta —, þingl. eign Guðna Þorsteinssonar,
fer fram að kröfu Bæjarsjóðs Kópavogs á eigninni sjálfri þriðjudaginn
22. október 1985 ki. 15.40.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 101,., 104. og 106. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985á
eigninni Hamraborg 12 — hluta —, þingl. eign Marbakka hf., fer fram
að kröfu Jóns G. Briem hdl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 23. október
1985 kl. 10.40.
Bæjarfógetinn i Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var 1101., 104. og 106. tölublaöi Lögbirtingablaðsins 1985á
eigninni Hlðarvegi 17, — hluta —, þingl. eign Trausta Hallsteinssonar,
ferfram að kröfu skattheimtu rikissjóðs I Kópavogi á eigninni sjálfri mið-
vikudaginn 23. október 1985 kl. 11.00.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 101., 104. og 106. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á
eigninni Hliöarvegi 146, þingl. eign Kristófers Eyjólfssonar, fer fram að
kröfu Bæjarsjóðs Kópavogs á eigninni sjálfri miðvikudaginn 23. október
1985 kl. 11.00.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 101., 104. og 106. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985á
eigninni Hófgerði 9, þingl. eign Jakobs Tryggvasonar, fer fram að kröfu
Bæjarsjóös Kópavogs og skattheimtu ríkissjóðs í Kópavogi á eigninni
sjálfri miövikudaginn 23. október 1985 kl. 11.00
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 101., 104. og 106. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á
eigninni Kjarrhólma 20 — hluta —, þingl. eign Hildar Garðarsdóttur, fer
fram að kröfu Bæjarsjóðs Kópavogs og Tómasar Þorvaldssonar hdl. á
eigninni sjálfri miövikudaginn 23. október 1985 kl. 13.30.
Bæjarfógetinn I Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 101., 104. og 106. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á
eigninni Kjarrhólma 30 — hluta —, þingl. eign Skúla Thoroddsen, fer
fram að kröfu Bæjarsjóðs Kópavogs á eigninni sjálfri miövikudaginn 23.
október 1985 kl. 14.00.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 101., 104. og 106. tölublaöi Lögbirtingablaðsins 1985 á
eigninni Kjarrhólma 16 — hluta —, þingl. eign Guðmundar Magnús-
sonar, fer fram að kröfu Veðdeildar Landsbanka Islands á eigninni sjálfri
þriðjudaginn 22. október 1985 kl. 11.30.
Bæjarfógetinn I Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var 1101., 104. og 106. tölublaöi Lögbirtingablaösins 1985 á
eigninni Borgarholtsbraut 76, þingl. eign Sigurbjörns Bjarnasonar, fer
fram að kröfu skattheimtu ríkissjóös i Kópavogi á eigninni sjálfri þriöju-
daginn 22. október 1985 kl. 14.40.
Bæjarfógetinn I Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var 1101., 104. og 106. tölublaði Lögbirtingablaösins 1985á
eigninni Asbraut 3 — hluta —, þingl. eign Brynjólfs Sigurðssonar, fer
fram að kröfu Bæjarsjóös Kópavogs á eigninni sjálfri þriðjudaginn 22.
október 1985 kl. 11.45.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Framarar sjást hér fagna marki gegn Glentoran. Fagna þeir einnig gegn Rapid Vín?
Framarar enn
í baráttunni
— leika miðdagsleik í Laugardalnum
★ Verður fjölgað í 1. deild?
★ Á laugardaginn kemur fáum við
„leynigest” íþáttinn!
Það hefur sýnt sig undanfarin ár
að það er ekki tekiö út með sældinni
fyrir íslensk félagslið að ná árangri í
Evrópukeppninni í knattspyrnu.
Framarar fá nú að kynnast því. Þeir
leika á miðvikudaginn gegn Rapid
Vín frá Austurríki í Vínarborg.
Síðan verður seinni leikurinn í
Reykjavík 6. nóvember og þá jafnvel
í hávaðaroki, rigningu eða kannski
snjó og frosti.
Leikurinn fer fram á Laugardals-
vellinum en þar hefur aldrei verið
leikið svo seint á grasvelli. Baldur
Jónsson vallarstjóri og starfsmenn
hans hafa ákveðið að hafa völlinn
kláran fyrir slaginn. Það er djarft
teflt hjá Baldri en hann er ákveðinn í
að sýna enn einu sinni aö það er
ýmislegt hægt hér norður í Dumbs-
hafi þegar vetur kóngur er kominn á
ról.
Miðdegisleikur
Það er ekki hægt að reikna með
mörgum áhorfendum á leik Fram og
Rapid Vín í Laugardalnum þar sem
leikið verður um miöjan dag, um
þrjúleytið. Ástæðan fyrir að leikið er
á þessum tíma er að ekki eru fljóð-
ljós við aðalvöllinn í Laugardal. Þaö
hlýtur að verða næsta skref hjá
Iþróttaráði Reykjavíkur að berjast
fyrir því að flóðljós verði sett upp við
völlinn. Það er orðið tímabært því að
landsleikir, Evrópuleikir og leikir í 1.
deildar keppninni, sem eru leiknir í
september, verða alltaf að byrja fyrr
þar sem þá er orðið myrkur snemma
kvölds.
Nei, það er ekki hægt að búast við
að margir áhorfendur mæti á völlinn
um miðjan dag þegar Framarar
leika gegn Rapid Vín. Menn eru þá
almennt að vinna. En ef Framarar
standa sig vel í Vínarborg má fast-
lega reikna með að knattspyrnuunn-
endur taki sér frí úr vinnu til að sjá
síðasta stórleik ársins.
Samvinna félaga
Leikmenn Fram hafa ekki leikið
kappleik síðan þeir léku gegn Glen-
toran í Belfast á dögunum. Það háir
íslenskum liðum mest, er þau kom-
ast áfram í Evrópúkeppninni, hvað
undirbúningurinn er losaralegur. Is-
landsmótið er fyrir löngu búið og þar
af leiöandi eru leikmenn í lítilli æf-
ingu. Framarar hafa æft vel að und-
anfömu en þeir hafa þó ekki leikið
kappleiki. önnur félagsliö eru hætt
að æfa þannig að ekki er hægt að
leika æfingaleiki viö þau.
Það er ljóst aö það þarf meiri sam-
vinnu félaga — þau þurfa að hjálpa
hvort öðru í sambandi við Evrópu-
keppnina. Það hefði verið góð sam-
vinna, t.d. ef tvö 1. deildar lið hefðu
haldið áfram að æfa til að Fram
fengi æfingaleiki.
Verður fjölgað í 1. deild?
Það hafa verið uppi háværar radd-
ir um að tillaga komi f ram á ársþingi
KSI í Vestmannaeyjum um fjölgun í
1. deildar keppninni í knattspyrnu
þannig að 12 félög leiki í deildinni.
Utanbæjarfélög, sem vilja nálgast
peningana, eru mjög hlynnt þessari
tillögu og þá segja menn að Reykja-
víkurfélögin Víkingur og Þróttur,
sem féllu niður í 2. deild, séu heit fyr-
irþessari tillögu.
Atvinnumennskan heillar
Eins og undanfarin ár fara margir
knattspyrnuáhugamenn til útlanda
eftir að knattspyrnutímabilinu lýkur
hér á landi. Að undanfömu hafa þrír
leikmenn farið — Ragnar Margeirs-
son til Belgíu og Guðmundur Þor-
bjömsson og Janus Guðlaugsson til
Sviss. Þá getur svo farið að Akureyr-
ingurinn Halldór Áskelsson fari til
Belgíu.
Þessi þróun — að leikmenn fari ut-
an, á örugglega eftir að aukast. Sviss
er nú orðið tískuland knattspyrnu-
manna en það er ekki langt síðan
Svisslendingar opnuöu landið fyrir
erlendum knattspyrnumönnum.
Það er draumur allra knattspyrnu-
manna hér á landi að fá að spreyta
sig með erlendum félagsliðum —
breyta til og reyna eitthvað nýtt. Það
er víkingablóð í æðum Islendinga
sem eru alltaf tilbúnir að herja á
önnur lönd og leita fanga.
Hvíld hjá handknattleiks-
mönnum
Mikill kurr er í handknattleiks-
mönnum hér á landi þessa dagana.
Þeir sætta sig ekki við að þeir séu í
„fríi”. Það er nú komið þannig að
leikmenn 1. deildar liöanna hér á
landi eru í fríi i tíma og ótíma vegna
verkefna landsliðsins. Þeir benda á
að öll spenna í kringum 1. deildar
keppnina tilheyri nú fortíðinni.
íþróttir í
vikulokin
SigmundurÓ.
Steinarsson
Að sjálfsögðu á að efla íslenska
landsliðið af öllum mætti en það má
ekki gera á kostnað handknattleiks-
ins hér á landi. Formaður HSI segir:
„Góður árangur íslenskra íþrótta-
manna í keppni við landslið stór-
þjóöa vekur mikla athygli erlendis
og er góð kynning fyrir Island, land,
þjóð og útflutningsvöru.”
Þetta er allt rétt og satt hjá for-
manninum en verða forráðamenn
HSI ekki einnig aö hugsa um íslenska
handknattleiksunnendur hér heima
og leikmenn sem leika hér? Hand-
knattleikur á Islandi þrífst ekki
nema að leikmennimir hér heima fái
verkefni — að þeim sé haldiö við
efnið. Það er einnig hægt að segja
það sama um áhorfendur. Þeir vilja
fá að sjá handknattleik leikinn hér en
ekki að hann sé notaður til að kynna
íslenskar útflutningsvörur.
Dla skipulögð mót og sundurlaus
hafa fælt áhorfendur frá handknatt-
leik hér á landi undanfarin ár. Það
hefur komið fram í vetur að það er
erfitt að fá þá áhorfendur til að mæta
á ný sem búið er að fæla frá.
Það má ekki aðeins horfa á lands-
liðið og safna peningum til þess að
það geti ferðast sem mest til útlanda
til að leika. Þetta er gert á sama
tíma og íslensk félagslið berjast í
bökkum f járhagslega vegna þess að
áhorfendum fer alltaf fækkandi á
kappleikjum hér á landi. Forráða-
mam HSI og félaganna verða að
setjast niður fljótlega og ræða um
vandamál handknattleiksins hér
heima. Finna lausnir á málum áður
en það verður of seint.
Með lögum skal...
Eg hef áður minnst á það hér að
sumir menn hika ekki við að rang-
túlka lög og reglur til að stjórna eigin
duttlungum. Svokallaðir einræðis-
herrar sem ekkert kunna en öllu
vilja ráða. Eg hef frétt af ferðum
eins af þessum mönnum að undan-
fömu. Því ferðalagi mun ljúka hér í
dálknum um næstu helgi. Þar til leyf-
um við manninum að leika lausum
hala.
Hann verður „leynigestur” okkar í
næsta þætti sem ég mun nefna: „Þaö
erkominngestur!” -SOS